Þjóðviljinn - 09.12.1988, Blaðsíða 12
Gleðilegt nýtt ár,
í Keflavík!
Hjúkrunarfræðingar, hvernig væri að breytatil og
standa við áramótaheitin í nýju og rólegu um-
hverfi hæfilega langt frá Reykjavík? Okkur vantar
aðeins einn hjúkrunarfræðing til að fullmanna
stöður hjúkrunarfræðinga. Upplýsingr um laun,
húsnæði, dagheimili og fleira hjá hjúkrunarfor-
stjóra Sjúkrahússins í Keflavík í síma 92-14000.
Ljósmóðir - afleysingar
Ljósmóðir óskast til afleysinga við fæðingardeild
Sjúkrahússins í Keflavík hið fyrsta. Um er að
ræða 50% starf í 3-5 mánuði. í boði er mjög góð
vinnuaðstaða, fjölbreytt starfsreynsla og launa-
kjörsem standast samanburð. Nánari upplýsing-
ar fást hjá hjúkrunarforstjóra í síma 92-14000.
TONUSMRSKDLI
KÓPÞNOGS
Jólatónleikar
Fyrri jólatónleikar Tónlistarskóla Kópavogs
verða haldnir í salnum, Hamraborg 11, laugar-
daginn 10. desember kl. 14.00. Aðgangur
ókeypis.
Skólastjóri
..... * ................
Skrafsamkoma
íhaldsins
Sjálfstæðismeirihlutinn í
borgarstjórn heldurenn áfram
uppteknum hætti við stjórn
fræðslumála í borginni og
sniðgengur fræðsluráð borg-
arinnar með allar ákvarðanir,
heldur vísar málum til svokall-
aðs Skólamálaráðs til endan-
legrar afgreiðslu, en þar eiga
eingöngu sæti fulltrúar íhalds-
ins. Þorbjörn Broddason
sem sæti á í fræðsluráði, hef-
ur neitað að sitja fundi skóla-
málaráðsins, enda liggur fyrir
lagaleg álitsgerð um ólög-
mæti þessa ráðs. En íhaldið
BRIDDS
Ólafur
Lárusson
Jón Þorvarðarson og Guðni
Sigurbjarnason urðu sigurvegar-
ar í 44 para barometerkeppni
Bridgefélags Reykjavíkur, sem
lauk á dögunum. I síðustu um-
ferð mættust tvenn efstu pörin,
þeir Jón og Guðni og Aðalsteinn
Jörgensen og Ragnar Magnús-
son. Tvenn af okkar efnilegustu
pörum. Úrslitaspilið í þeirri lotu
var þetta spil:
ÁD94
10 ÁD876 Á42
K 1073
G85 Á976
1032 G54
KD10963 G8652 KD432 K9 G87
5
Á þessi spil í N/S renndu þeir
Aðalsteinn og Ragnar sér í 6
spaða. Ekki óþekkilegur samn-
ingur, vantar einn ás og tromp-
kóng. Spilaíferðin var hins vegar
vafasöm, svo ekki sé meira sagt.
Sagnhafi fór af stað með spað-
agosann, kóngur og ás og nú var
spaðatían upphafin í Austri og
einn niður. Toppur hjá Jóni og
Guðna.
Rökin á móti spaðagosanum
eru þessi: Það má ljóst vera að
samningurinn er toppskor, því
ekki er líklegt að mörg pör „þef-
uðu“ af þessari slemmu. í ljósi
þessa hlýtur að vera eðlilegra að
spila lágum spaða, að ás/
drottningu, með það í huga að
láta dömuna.
í sveitakeppni hins vegar,
kemur sterklega til álita að hefja
leikinn með spaðagosa. Sú spila-
mennska býður þá upp á
„sveiflu“, líkt og félagi Benedikt
heitinn Jóhannsson var svo ansi
hrifinn af og setti sig aldrei úr færi
að velja fallegustu leiðina. Benni
hefði kunnað við spilið í sömu
setu;
K96 ÁG732 (spaða-
litur) og hafið leikinn á spaða-
gosa, með það í huga að hleypa
honum hringinn. Það hefði tek-
ist, því daman var þriðja á eftir
gosanum, en tían önnur á eftir
kóngi.
Þær kunna ýmislegt fyrir sér,
þessar gömlu kempur.
bkaldsaga
,Á enga líst mér eins og þig,
þótt allar fyrir mér virði.
Átján vildu eiga mig
í honum Tálknafirði. “
(Húsgangurj
(Ilfar Þormóðsson
rithöfundur
Þijár sólir svartar er söguleg skáldsaga og greinir
frá atburðum á 16. og 17. öld. Aðalpersónumar eru
hinn frægi manndrápari Axlar-Bjöm og sonur hans
Sveinn skotti sem var alræmdur landshomaflakkari.
Þijár sólir svartar er óvenjuleg og eftirminnileg
þjóðlífslýsing. í sögunni er margbreytilegt og
ólgandi mannlíf með sérstæðum persónulýsingum
og safaríkri kímni. Hið dulmagnaða örlagatákn, öxin,
hið óhuggulega morðvopn, sem í sögulok birtist í
samtíð okkar og minnir á að enn er illra veðra von.
ÞRJÁR SÓLIR SVARTAR, óvenjuleg saga,
eftirminnileg bók.
Verð kr. 2.648
Dreifing:
Innkaupasamband bóksala
Sími 685088
lætur ekki segjast. Á dögun-
um var boðaður fundur í
Fræðsluráði í fundarsal borg-
arráðs kl. 12.15 og var það
13. fundur ráðsins á árinu.
öllum álitamálum sem komu
upp á fundinum var vísað til
skólamálaráðs, sem merki-
legt nokk kom saman til síns
71. fundar á árinu á sama
stað kl. 15.00 strax að loknum
fundi fræðsluráðs. Sömu mál
til afgreiðslu og á fyrri fundin-
um og allir sömu fulltrúarnir
nema Þorbjörn Broddason. Er
nema furða þó Þorbjörn hafi
látið bóka eftirfarandi I skóla-
málaráði. „Svokallað „skóla-
málaráð“ er heiti yfir skraf-
samkomu Sjálfstæðismanna
sem hefur enga formlega
stöðu gagnvart menntamála-
ráðuneytinu.B
Kraftur í KRON
Forráðamenn Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis,
með Þröst Ólafsson I farar-
broddi hafa nú blásið til stór-
sóknar á verslunarmarkaðn-
um I höfuðborginni og ætla að
veita Hagkaupsveldinu öfluga
samkeppni. í vikunni festi
KRON kaup á umboðinu fyrir
Habitat búsáhöld og húsgögn
sem Kristján Siggeirsson
hefur haft og verður Habitat
verslunin flutt I Miklagarð I
rúmgott húsnæði I mars á
næsta ári. Þá náði KRON fyrir
skömmu I umboðið fyrir
Quelle-vörulistann hérlendis,
og mun ætlunin vera sú að
koma upp höfuðstöðvum fyrir
Quelle-listann I fyrrum hús-
næði Kaupfélags
Hafnfirðinga við Strandgötu
þar I bæ, en KRON og
Kaupfélag Hafnfirðinga voru
sameinuð I eitt fyrr á þessu
ári. Þrátt fyrir erfiða tíma I
verslun er enginn bilbugur á
forráðamönnum KRON sem
segjast staðráðnir I þvl að
stórauka sinn hlut I verslun á
höfuðborgarsvæðinu. ■
Kreppa hjá Davíð
Starfsmenn slökkviliðsins I
Reykjavík fengu I vikunni það
óvenjulega verkefni frá borg-
aryfirvöldum að kveikja I hús-
inu að Undralandi við Suður-
landsbraut sem er ein síðasta
bújörðin I borginni. Þarna
gafst slökkviliðsmönnum
kærkomið tækifæri til að
stunda reykköfunaræfingar
áður en húsið yrði brennt. En
sagan er ekki öll sögð. Þau
skilyrði fylgdu frá borgaryfir-
völdum, að öll vinna við í-
kveikjuna og reykköfunaræf-
ingar yrði ekki greidd fyrr en 1.
febrúárá næstaári. Ástæðan,
peningaleysi hjá borgar-
sjóði.l
Þá flaug Hrafninn
Ingvi Hrafn Jónsson
fyrrum fréttastjóri Ríkissjón-
varpsins hefur áhyggjur yfir af
að bókin sín um samstarfs-
menn og vini á Sjónvarpinu
seljist ekki sem skyldi í jóla-
bókaflóðinu. Til að þess að
koma í veg fyrir það flýgur
Hrafninn landshorna á milli til
að árita bókina og hefur víða
komið við. Síðast spurðist til
hans á Húsavík og mun hann
hafa staldrað þar stutt við
enda fáar bækur sem þurftu
áritunar við.H
Stuttir fundir
Þingfundir stóðu stutt á Al-
þingi í gær, þrátt fyrir miklar
annir og kröfur þingforseta
um að þingstörfum verði lokið
fyrir jól. Þingmenn kepptust
við og tæmdu dagskrá fund-
arins á mettíma. Skýringin er
sú að árlegt boð forseta ís-
lands fyrir þingmenn var hald-
ið á Bessastöðum í gær-
kvöldi. Að venju var boðið upp
á glæsilegar veitingar, og víst
að þar var ekkert handhafavín
haft um hönd.B
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ