Þjóðviljinn - 09.12.1988, Síða 30
Hvað á að gera um helgina
Höskuldur Jónsson
forstjóri ÁTVR
Ég ætla að taka til í bílskúrnum
heima hjá mér til að geta komið
bflnum þar fyrir. Ef tími verður
aflögu á sunnudaginn reyni ég
eftir fremsta megni að bregða
mér í gönguferð með Ferðafélagi
íslands mér til uppörvunar úti í
náttúrunni.
Alþýðubankinn, Akureyri, Ijós-
myndir Harðar Geirssonar til 6. jan.
Bókasafn Akraness, grafíkmyndir
Hauks Halldórssonartil 12. des. virka
daga 15-18:30, helgar 14-20:30.
Bókasafn Kópavogs, verk Svavars
Ólafssonartil 16. des. Biblíusýning til
áramóta, virka daga 9-21, laugard.
11-14.
FÍM-salurlnn, Garðastræti 6, sýn. á
verkum félagsmanna, 12-18 virka
daga, versl.tími laugard.
Gallerí Borg, jólaupphengi; verk
gömlu meistaranna. Grafíkgall.
Austurstr. gler- og leirmunir, Kring-
lan, 3. hæð, myndirog leirmunir.
Opnunartímiversl.
Gallerf Gangskör, Amtmannsstíg 1,
árleg jólasýning gangskörunga opn-
uðkl. 14laugard.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4 A,
samsýning þeirra sem að galleríinu
standa, 12-18virkadaga.
Gallerf Llst, nýjar myndir og kera-
mik, 10-18 virkadaga, 10:30-14
laugard.
Gal erfSál.Tryggvagötu 18,sýning
TryggvaGunnarsHansen, 17-21
daglega.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnar-
firði, Litli salurinn: verk frú Hönnu
Davíðsson til 11. des.
fslenska óperan, málverk Tolla til
18. des. 15-19 daglega.
Jóhanna Bogadóttir borgarlista-
maður sýnir teikningar, graf ík og mál-
verk í vinnustofu sinni, Hjarðarhaga
48,4. hæð tv, 15-22, lau-mánud.
Kjarvalsstaðir, ný verk í Listas.
Rvíkurtil 18. des. 14-22daglega.
Llstasafn ASÍ, verk Jóns Engilberts
til 18. des. virka daga 16-20,14-20
um helgar.
Listasafn Elnars Jónssonar, lokað
desemberogjanúar. Höggmyndag-
arðurinn opinn daglega 11-17.
Llstasafn íslands, kyrralífsmyndir
Kristínar Jónsdótturtil 15. des. Neðri
hæðir, eldri verk í eigu safnsins, efri
hæðir ný aðföng, veitingast. keramík
Leifs Breiðfjörð. Leiðsögn um sýning-
arsunnud. kl. 15. Leiðs. Mynd mán-
aðarinsfimmtud. kl. 13:30: Uppstill-
ing e/ Kristínu Jónsd. Opið 11-17
daglega.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi, 50 verk Sigurjóns, 14-18
um helgar. Tekið á móti hópum e/
samkomul.
Mokka v/ Skólavörðustíg, Ríkey Ing-
imundardóttir sýnir um óákv. tíma.
Nýlistasafnið, Kristinn Guðbrandur
Harðarson sýnir skúlptúra, útsaum
og lágmyndirtil 4. desember. Sýning-
in er opin í dag kl. 16-20, og kl. 14-20
um hejgina.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, þjóðsagna- og ævint-
ýramyndir Ásgríms til febrúarloka,
sunnu-, þriðju-, fimmtu- og laugard.
13:10-16.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14, Breiðhoiti,
damaskmyndvefnaður Sigríðar Jó-
hannsdóttur og Leifs Breiðfjörð til 27.
jan. mánu- til fimmtud. 9:15-16,
föstud. 9:15-18.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6, Kristín
Schmidhauser Jónsdóttir, Flíkurog
Form til 11. des. 14-18 daglega.
Tunglið, Sissú (Sgþrúður Pálsdóttir)
sýnir myndlist f rá þessu ári f ram yfir
hátíðar.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúslð, Kjallara Hlaðvarp-
ans, Vesturgötu 3, Koss kóngulóar-
konunnar, í kvöld og laugard. kl.
20:30.
Leikfélag Kópavogs, Fróði og allir
hinir grislingarnir, laugar- og sunnud.
kl. 15.
Leikfélag Reykjavíkur, Hamlet,
sunnudagskvöld kl. 20. Sveitasinfón-
ía, í kvöld og laugard. kl. 20:30.
k Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið, Stór og
smár, sunnud. kl. 20, síðasta sýn.
Ævintýri Hoffmanns, í kvöld og
laugard. kl. 20.
TÓNLIST
Heiti potturinn Duus-húsi, sunnud.
21:30, jólajass, Friðrik og fél.
Hafnarborg, tónlistardagskrá í tilefni
þess að Ijós verða kveikt á jólatrénu á
Thorsplani laugard. kl. 16. Gunnar
Gunnarsson flautuleikari, Helgi
Bragason orgelleikari, Blásarasveit
Hafnarfjarðar, Kór Þjóðkirkjunnarog
Karlakórinn Þrestir.
Kór Langholtsklrkju ásamt blásara-
sveit flytja 5 motettur og e-moll
messu eftir Bruckner í Langholts-
kirkju á morgun og sunnud. kl. 17.
Stjórnandi Jón Stefánsson.
KórTónlistarskóla Hafnarfjarðar
flytur helgileikinn Hljóðu kirkjuklukk-
urnar í Víðistaðakirkju sunnud. kl. 16
til styrktar kaupum á flygli fyrir kirkj-
una.
Snæfellingakórinn og sópransöng-
konurnar Rósa Kristín Baldursdóttir
og Theódóra Þorsteinsdóttir halda
jólatónleika í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50 a, sunnud. kl. 16. Innlend og
erlend jólalög, undirleikari Oddný
Þorsteinsdóttir, söngstjóri Friðrik S.
Kristinsson. Kaffiveitingar eftir tón-
leika.
Tónskóli Sigursveins D. Kristins-
sonar, jólatónleikar forskólans á
laugard. kl. 14 í sal Fellaskólans.
Nemendurforskóladeilda undir stjórn
kennara. Sunnud. tónleikar yngri
deilda í sal Tónskólans, Hraunbergi 2
kl. 14 og í Norræna húsinu kl. 17. Ein-
og samleikuryngri nemenda. Mánud.
kl. 20:30, tónleikar Sæmundar Rún-
ars Þórissonar gítarleikara að
Hraunbergi 2.
Uwe Escner gítarleikari frá Þýska-
landi heldur tónleika í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar sunnud. kl. 20:30.
VerkeftirBach, Giuliani, Brouwer,
Martin, Lauroog Villa-Lobos.
HITT OG ÞETTA
Arleg jólasala Myndlísta- og hand-
íðaskóla íslands er í turninum, Lækj-
artorgi mánu- til fimmtud. 16-18,
föstud. 16-19, laugard. 10-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
bókmenntadagskrá með tónlistar-
ívafi sunnud. 15:30. Sigurður Páls-
son les úr Ljóð námu menn, Nína
Björk Árnadóttir úr Hvíta trúðnum,
Hannes Sigfússon úr Lágt muldur
þrumunnar, Björn Th Björnsson úr
Minningarmörk I Hólavallagarði og
Guðmundur Andri Thorsson úr Mín
káta angist. Gunnar Kvaran leikur
saraböndur úr einleikssvítum Bachs,
kynnir Viðar Eggertsson.
Leikfélag Mosfellssveltarog karla-
kórinn Stefnir halda jólavöku sunnud.
kl. 20:30. Söngurog upplestur úr
verkum Þórbergs, Guðjón Sveinsson
les nútíma jólasögu, kórinn syngur
undirstjórn LárusarSveinssonar,
Stefnur sjá um veitingar.
Vinnustofur Kópavogshælis, opið
hús laugard. 14:18. Starfsemi kynnt,
hlutir unnir af vistmönnum boðnir til
sölu. Kaffi og piparkökur, allir vel-
komnir.
Reykjavíkurhöfn, kveikt á Hamb-
orgarjólatrénu á morgun kl. 16.
Lúðrablásarar leika frá 15:45.
MÍR, Vatnsstíg 10, basar á morgun
kl. 14. Til sölu ýmsir minjagripir,
bækuro.fl. frá Sovétríkjunum.
Félag eldri borgara, opið hús f Goð-
heimum, Sigtúni 3 frá kl. 14 sunnud.
Frjálst spil og tafl, dansað 20-23:30.
OpiðhúsíTónabæfrákl. 13:30
mánud. félagsvist hefst kl. 14. Ath. v/
jólaleyfis er lokað íTónabæ 17/12-7/1
Átthagasamtök Héraðsmanna,
jólaglögg að Hverfisgötu 105
laugard. kl. 21. Að lokinni
skemmtidagskrá leikur hljómsveitin
Frílyst fyrir dansi. Skólafólk af Héraði
hvatt til að líta inn.
Kvennadeild Breiðfirölngafélags-
Ins, jólafundur I Bústaðakirkju
sunnud kl. 19. Munið eftir litlu pökk-
unum.
Ferðafélag íslands, dagsferð I Geld-
inganes á sunnudaginn. Verð 500 kr.
Brottför kl. 13 frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, farmiðar við bíl,
f rítt fyrir börn I fylgd fullorðinna.
Hana nú, lagt upp I laugardags-
gönguna I fyrramálið kl. 10 frá Digra-
nesvegi 12. Nýlagað molakaffi.
Utlvist, stórstraumsfjöruferð I Gróttu
sunnud. kl. 13. Brottför kl. 13 frá BS(,
bensínsölu.
Kvæðamannafélaglð Iðunn minnir
á jólafundinn á morgun að
Hallveigarstöðum. Fjölbreytt dagskrá
tengdjólum, góðar veitingar, fundur-
inn hefst stundvíslega kl. 20.
Llonessuklúbbur Reykjavíkur held-
ur kökubasar að Sigtúni 9 sunnud. kl.
14. Tertur, smákökur og dönsk jóla-
tré, heimsendingarþjónusta ef þess
eróskað. Ágóði rennurtil líknarmála.
Líf og land, uppákoma í Kringlunni
laugard. 13-18. Girðumgrasbítana
afl
Vestfirðingafélaglð í Rvík, aðal-
fundur að Frfkirkjuvegi 9 sunnud. kl.
14. Venjuleg aðalfundarstörf og kaffi-
veitingar á eftir. Takið með ykkur nýja
félaga.
JC Nes og JC Borg, jólafundur að
Laugavegi 178 á morgun kl. 20:30.
Gestir: Barbara Wdowiak, landsfor-
seti og Þorsteinn Fr. Sigurðsson viðt.
landsfors. Veitingar i hléi og opið hús
e/fundinn. Félagsmenn hvattirtil að
takameð sérgesti.
ÍÞRÓTTIR
Handboltl
Ekkert verður leikið í 1. deild karla
fyrr en á miðvikudag en í 1. deild
kvenna eru þrír leikir á dagskrá.
Sjarnan og Þór eigast við (Digranesi
kl. 20.00 á föstudag. Daginn eftir
sækja Þórsstúlkur FH-inga heim kl.
14.00 og á sunnudag leika Fram og
Haukar kl. 14.00 ( Laugardalshöll.
Heil umferð leikja verður (2. deild
karla. Á laugardag leika ÍR og Þór kl.
14.00 í Seljaskóla og ÍBK og Aftur-
elding eigast við kl. 15.15 í Keflavík. Á
sunnudag leika HK og Selfoss í
Digranesi kl. 14.00 en síðan verða
tveir leikir í Firðinum, Haukar og Þór
eigast við kl. 15.15 og að hinum lokn-
um, um kl. 16.30, leika ÍH og Ármann.
Karfa
Þar sem hlé hefur verið gert í Flugl-
eiðadeildinni þar til 15. janúar fer litið
fyrir körfuknattleik um helgina. í 1.
deild kvenna leika Grindavik og
Njarðvík á laugardag kl. 14.00 og á
sunnudag leika síðan ÍR og Haukar
kl. 14.00 í Seljaskóla og Stúdínur og
Keflvíkingar f Kennaraháskólanum
kl. 20.00. Þá verður einn leikur i 1.
deild karla, Léttir og Snæfell eigast
við í Hagaskólanum kl. 14.00 á sunn-
udag.
Auglýsingar eru lífæðin
Það hefur verið mikill kreppu-
söngur í fjölmiðlunum að undan-
fömu. í þeim hafa glumið „brot-
hljóð hruninna fyrirtækja“ svo
vitnað sé í bjargvættinn frá Flat-
eyri. Gjaldþrotin hafa keðju-
verkanir, þegar eitt fyrirtæki fer
yfir um tekur það oft önnur með
sér - lánardrottna sína.
Það sem fjölmiðlamir segja
okkur minna um era áhrif þess-
ara gjaldþrota á þá sjálfa og af-
komu þeirra. Að sjálfsögðu hafa
gjaldþrotin áhrif á afkomu fjöl-
miðla eins og annarra fyrirtækja í
samfélaginu. Fyrirtækin sem eru
að fara á hausinn era mörg hver í
‘hópi þeirra sem mikið hafa aug-
lýst og þess era mörg dæmi að
fjölmiðlar hafi orðið að afskrifa
auglýsingatekjur að undanförnu.
Við þetta bætist að samdráttur-
inn hefur orðið til þess að draga
veralega úr auglýsingum þeirra
fyrirtækja sem enn era á lífi. Sum
neyðast beinlínis til þess að draga
saman af fjárhagsástæðum.
Önnur draga saman auglýsingar
af þeirri einföldu ástæðu að við-
skiptin hafa dottið niður svo það
er ekkert vit í að auglýsa. Þetta
síðamefnda á einkum við auglý-
singar um alls konar munað,
hvort sem era leikföng fyrir full-
orðna eða þjónusta veitingahúsa.
Nú er komið fram í desember
og jólavertíðin hafin, vertíðin
sem ríður baggamuninn í rekstri
margra fyrirtækja. Ef hún verður
góð eiga þau von á að hjara.
Verði þetta litlu jólin kaupmann-
anna eins og einhver orðaði það
er hins vegar hætt við að brot-
hljóðahljómkviðan verði vera-
lega háværari eftir áramót.
Þess má sjá ýmis teikn í fjöl-
miðlunum að auglýsingarnar era
minni en oftast áður á þessum
árstíma. Það þarf að fara nokkur
ár aftur í tímann til að finna
Morgunblöð frá síðari hluta nó-
vembermánaðar sem voru eins
rýr og í ár. Á afmælisdegi blaðs-
ins hóf ný sunnudagsútgáfa
göngu sína með 128 blaðsíðum en
næstu tvö sunnudagsblöð vora
talsvert minni. DV fór oftar en
einu sinni niður í 32 síður undir
lok nóvember. Og þá þarf vart að
minnast á minni blöðin. Tímarit
og sérrit ýmiss konar eru líka
óvenju þunn.
í Sjónvarpinu var það ekki fyrr
en undir síðustu helgi sem auglýs-
ingatíminn fór að lengjast. Og
enn era bókaauglýsingar svo til
einráðar, annað er vart sjáanlegt.
Ljóst er að Ríkisútvarpinu mun
ekki reynast þessi jólavertíð
drjúg til að hala upp í tapið á
stofnuninni sem að sögn Þjóðvilj-
ans er hálfur miljarður.
Það er haft til marks um það
hversu erfið tíðin er að starfsfólk
auglýsingadeildar Morgunblaðs-
ins mun vera farið að hringja út í
fyrirtæki og bjóða þeim afslátt ef
þau vilja auglýsa. Fram til þessa
hefur blaðið ekki þurft að hafa
fyrir slíku og auk þess getað selt
auglýsingar sínar án teljandi af-
sláttar af auglýstu verði. And-
stætt við hin blöðin sem þurfa að
hafa öll spjót úti og slá veralega
af verðinu í flestum tilvikum.
Því hefur einnig heyrst fleygt
að Morgunblaðið hafi þurft að
hagræða í rekstrinum og taka
fyrir nýráðningar vegna þess að
tekjuáætlanir hafi farið úr
skorðum. Það á reyndar við fleiri
fyrirtæki í fjölmiðlaheiminum og
er skemmst að minnast uppsagn-
anna á Stöð 2. Undanfarin ár hef-
ur störfum við fjölmiðla fjölgað
veralega og kaupið hækkað í takt
við eftirspurnina. Nú hefur mark-
aðurinn þrengst og lítið er um
gylliboð og yfirborganir.
Þegar þróunin er á þennan veg
kemur glöggt í ljós hversu mjög
fjölmiðlarnir eru háðir hag-'
sveiflum samfélagsins sem þeir
lifa í. Og hversu háðir þeir eru
auglýsendum. Á krepputímum
verður ljóst hverjir það eru sem
geyma fjöregg fjölmiðlanna og
þar með þjóðfélagsumræðunnar.
Það era bflasölurnar, vídeóbúð-
irnar og tískusjoppumar (og svo
auðvitað bankarnir sem hafa
okkur öll á valdi sínu). Auglýs-
endur hafa það í raun og veru í
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSniR
„Auglýsingar eru fjölmiðlunum nauðsyn og kannski var það sú stað-
reynd sem svarendur höfðu ( huga í könnuninni sem leiddi í Ijós að
töluverður meirihluti væri fylgjandi auglýsingum í sjónvarpi."
hendi sér hvort fjöimiðlar lifa eða
deyja.
Auglýsingar eru fjölmiðlunum
lífsnauðsyn og kannski var það sú
staðreynd sem svarendur höfðu í
huga í könnuninni sem leiddi í
ljós að töluverður meirihluti væri
fylgjandi auglýsingum í sjón-
varpi.
Þótt þessi sami meirihluti segð-
ist ekkert mark taka á auglýsing-
um.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ i Föstudagur 9. daaember 1988