Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 4
hjá fólki varðandi það hvort eitthvað sé ekki að gerast í efnahagsmálunum, þá blundar sú von að með ein- hverjum hætti sé hægt að leysa efnahagsmál þannig að þau séu þar með úr sögunni. En efnahagsmál þjóðar eins og okkar sem býr við miklar sveiflur hljóta auðvitað alltaf að vera til skoðunar og það eru alltaf einhver óleyst verk- efni. Menn komu að vissum verkefnum þegar stjórnin var mynduð og hafa verið að tak- ast á við þau. Jafnframt er ver: ið í stefnumarkandi vinnu. í því sambandi viðra menn auðvitað einnig ferskar hug- myndir til lausnar á hinum ýmsu málum og skoða nýjar leiðir. I starfí þínu sem varafor- maður Alþýðubandalagsins hefur þú haft í frammi ákveðnar skoðanir á sjávarút- vegsmálum. Hefur tekist að vinna rétt að vanda sjávarút- vegsins td. með stofnun At- vinnutryggingasjóðs? - Þegar ég var að tala um vanda sjávarútvegsins sem ég gerði mikið sl. haust áður en þessi ríkisstjórn var mynduð þá var ég með þær hugmyndir að það væri þörf á ákveðinni aðstoð við fyrirtækin og þeim ma. hjálpað til að endurskipu- leggja sig eða jafnvel hætta. Jafnframt var ég og er á þeirri skoðun að sjóðakerfið sé orð- ið slíkur frumskógur að það beri að endurskoða það mjög vandlega og jafnvel að leggja sjóðina að miklu leyti niður og ætla bankakerfinu þann hlut sem það á að eiga í fjárfesting- um í atvinnulífinu. Hugmynd- in að stofnun hlutabréfasjóðs, sem nú er í farvatninu er sett fram til að bankarnir geti keypt hlutabréf í viðkomandi fyrirtækjum í gegnum sjóðinn og þannig tekið yfir í formi nlutafjár skuldir fyrirtækj- anna við bankakerfið sem er eina leiðin til að bremsa vaxtakostnaðinn niður. Atvinnutryggingasjóður gegnir ákveðnu hreinsunar- hlutverki í þessum efnum þeas. að hann er annarsvegar að vinna í því að skuldbreyta hjá fyrirtækjum sem eru þannig uppbyggð að hafa rek- strarlegar forsendur. Hins- vegar sigtar hann út þau fyrir- tæki sem ekki eiga lífsvon miðað við óbreyttar aðstæður og eru kannski búin að sigla sig alltof djúpt. Jafnframt er á þeim vettvangi leitað leiða að hagkvæmari skipan í að sam- eina fyrirtæki eða breyta fyrir- komulaginu með einhverjum öðrum hætti. Þannig gegnir Atvinnutryggingasjóðurinn ákveðnu hlutverki sem er tímabundið. Eað á við þessar aðstæður núna og ég vænti þess að hans hlutverki verði lokið innan einhvers tíma. Eru tillögur sjávarútvegs- ráðherra um endurskipan sjóðakerfísins til bóta eða ekki? - Mér finnst það vera tíma- skekkja að setja upp atvinnu- greinda sjóði. Skil á milli atvinnugreina eru orðin það óljós að í staðinn ætti að koma upp þróunarsjóði sem næði yfir alla nýbreytni í atvinnu- málum. Þannig að persónu- lega líst mér ekki á þessa hug- mynd um sérstakan þróunar- sjóð fyrir sjávarútveginn. Hvað með úreldingarsjóð- inn? - Að mínu mati er það rétt að fiskiskipaflotinn sé orðinn of stór miðað við þann afla sem við ætlum að veiða í ár og á næstu árum. Það er jafn- framt ljóst að viljum ná fram meiri hagkvæmni í útgerðinni Svanfríður Jónasdóttir varaformaður Alþýðubanda- lagsins og aðstoðarmaður fjármálaráðherra er á beininu að þessu sinni. Hún hefur haft í frammi ákveðna stefnumörk- un innan síns flokks í málefn- um sjávarútvegsins og lands- byggðarinnar enda verið bæjarfulltrúi á Dalvík en er nú í ótímabundnu leyfi frá þeim störfum. Stjórnarsamstarfið, vandamál sjávarútvegsins, fundaherferð formanna A- flokkanna og draum vinstri manna um sterkt pólitískt afl; allt þetta á Beininu í dag. Svanfríður var fyrst spurð hvernig henni fyndist stjórnarsamstarfíð hafa gengið til þessa. - Mér finnst það hafa tekist þokkalega að mörgu leyti. Ég horfi nú ekki einungis á stjórnarsamstarfið sem ein- hvern afmarkaðan þátt heldur að í því gæti falist frekari möguleikar til framtíðar. Ég er því ánægð með að A-flokk- arnir skuli vera saman í ríkis- stjórn. Það er hinsvegar alveg ljóst að þessi ríkisstjórn tekur við þannig aðstæðum að hefð- bundin úrræði vinstri stjórnar eins og menn þekkja þau koma ekki til álita í mörgum tilfellum. En ég treysti þeim aðilum sem standa að þessari ríkisstjórn til að hugsa málin upp að nýju sem verður að gera og satt best að segja sé ég ekki í stöðunni í dag annað stjórnarmynstur sem gæti tek- ist á við þá hluti sem þarf að takast á við í dag. Hafa menn komist I ein- hverja stefnumarkandi vinnu í efnahagsmálum og hvernig miðar þeirri vinnu? - Menn eru auðvitað alltaf að vinna að efnahagsmálum en í þeirri óþreyju sem gætir Á BEININU og til þess að ná henm þurfum við að fækka í flotanum. í dag er lífleg verslun með kvóta og menn eru að úrelda skip. Þannig að það er verið að fækka skipum þó svo að út við sjóndeildarhringinn grilli í ný skip sem búið er að semja um smíði á. Til að mæta úreldingu er eðlilegt að skoða hugmynd- ir um einhverjar aðgerðir. Þarna er líka verið að vinna að tímabundnu verkefni vegna þess að aðstæður eru eins og þær eru. En allt miðar þetta að því að ná fram meiri hag- kvæmni í útgerð og vonandi verður svo einnig í fiskvinns- lunni. - Hugmyndir um aflamiðl- un hafa verið viðraðar með til- liti til hagsmuna vinnslunnar og landverkafólks. Það er í hæsta máta óeðlilegt að LÍÚ skuli skipuleggja landanir skipa í erlendum höfnum mánuði fram í tímann og tryggja vinnslustöðvum þar öruggan aðgang að hráefni á meðan okkar vinnsla á aldrei einu sinni möguleika á að bjóða í þetta hráefni og fá það til vinnslu. Við höfum orðið ákveðna reynslu af fisk- mörkuðum hérlendis. Þá reynslu eigum við að nýta þeg- ar við förum í aflamiðlun og varast að láta einum hagsmunaaðilanum í sjáv- arútvegi það eftir. Það eru skiptar skoðanir innan A-flokkanna um fund- arherferð formannanna. Er þetta rétt leið að þínu mati og telur þú tímabært að flokk- arnir sameinist? - Ég geri nú ekki ráð fyrir að flokkarnir sameinist svona einn tveir og þrír. Þessi leið sem formennirnir hafa valið er til að vekja athygli og hvetja til umræðu. Ég held að það sé allt gott um hana að segja sem eina leið af mörgum sem fólk fer ef það vill búa til nýtt tæki í stjórnmálabarátt- unni. Þannig að þetta getur aldrei verið það eina, heldur verður fólkið í flokkunum og þeir sem áhuga hafa á stóru pólitísku afli til vinstri að fá tækifæri til að ræða málin og skoða þau. Fundarherferð formanna gerir það fyrst og fremst núna að kveikja ýmsa elda varðandi þessi mál. En það er Ijóst eftir þau ævintýri sem fram hafa farið á vinstri vængnum undanfarin 18 ár eða svo með Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna og Bandalagi jafnaðarmanna þá er dálítið til af þeim sem ég vil kalla pólitíska munaðarl- eysingja, sem hafa á einhverj- um tíma tekið þátt í svona til- raun til samfylkingar. Hafa síðan orðið eftir eða undir og ég er viss um að stór hópur þeirra hefur núna verulegan áhuga á að vera með í umræðu um það hvort nú sé lag. Ég tel að svo sé. Fyrir nokkru var lag fyrir frjálshyggju í þessu landi og nú finnst mér vera lag fyrir aðrar lausnir. í þjóðfélaginu er ýmis verk að vinna sem þarf að ganga til og ég held að það finni það mjög margir og þes- svegna biður stór hópur fólks um sterkt pólitískt afl sem gæti komið þeim breytingum fram sem þarf. Þú spáðir því í upphafí stjórnartímabilsins að stjórn- in ætti góða möguleika að lifa út kjörtímabilið. Ertu enn sama sinnis? - Já ég er sama sinnis. Ég sé ekki í stöðunni annað stjórnarmynstur sem getur tekist á við þennan vanda sem við eigum við að glíma. í ljósi þess tel ég að stjórnin ætti að geta lifað út kjörtímabilið. -grh Lag fyrir nýjar lausnir Svanfríður Jónasdóttir varafor- maður Alþýðubandalagsins og aðstoðarmaður fjármálaráð- herra: Ég heftrú á að stjórnin lifi útkjörtímabilið. Annað stjórn- armynstur er ekki í augsýn. Það þarf að taka til hendi víða 4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.