Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 23
1ir lokin veröur samkennd okkar meö örlögum þeirra rík og söknuöurinn sannur. f rá Síam skoðunum annarra en af gerðum og orðum þeirra sjálfra. Þeir halda áfram að vera óútskýrt undur. Jafnvel andstæðir per- sónuleikar þeirra eru ekki nema að litlu leyti útfærðir í leiknum og þá á sama yfirborðskennda mát- iu PÁLL BALDVIN BALDVINSSON ann og þeir skopast sjálfir með í skemmtiatriðum sínum. Ferill þeirra í fjölleikahúsum Ameríku tekur talsvert rúm í leiknum og skemmtiatriði þeirra þjónar tvennum tilgangi: í fyrstu á það að vera skemmtun og undir lokin er það endurtekið sem andhverfa, grátleg upprifjun og niðurlæging. í fyrra sinnið bregst atriðið algerlega, brandararnir falla í grýtta jörð, bæði sökum þess að þeir eru í sjálfu sér ekki nógu fyndnir og eins er atriðið misheppnað í sviðsetningu og leik. Þetta er til lýta. Reyndar er allur fyrri hluti sýningarinnar dauflegur og reikandi. Það er ekki fyrr en Sigrún Edda og Guð- rún birtast á sviðinu að sýningin hleypur í spennu og þær reynast sá drifkraftur sem dugar til að gera verkið lifandi og heillandi heild. Allt fyrir þeirra innkomu gleymist sem langur inngangur að spennandi og skemmtilegu verki. Þar tekst Göran að skapa trú- verðugar andstæður, þar kvikna átökin af ólíku eðli, ólíkum for- sendum persónanna í skapgerð og atferli. Og leikkonurnar taka hlutverkin heldur engum vett- lingatökum. Þær kunna báðar frábæ'rlega til verka og það sópar að þeim á sviðinu. Hér verður ekki dvalið lengur við þeirra þátt, einungis þakkað fyrir kunnáttu, yfirvegun og sanna list. Rétt eins og gerist oft þá dugar frábær frammistaða eins eða tveggja til að hleypa fjöri í aðra í hópnum. Ása Hlín hafði reyndar snemma í sýningunni sýnt góð til- þrif í leik Dóróteu og átti magn- aðan kafla í atriðinu um fæðingu þeirra bræðra. En eftir að saga systranna tveggja, sem þær leika Guðrún og Sigrún, hófst fóru straumarnir að leika um gamla salinn í Iðnaðarmannahúsinu. Eggert Þorleifsson sýndi sólóatr- iði án þess að aðrir leikarar tækju eftir því, Sigurður Karlsson barð- ist hetjulegri baráttu við hlutverk sem reyndist honum ofviða, Jón Sigurbjörnsson var traustur að vanda, Ragnheiður dró upp skýra mynd af Skeggjuðu kon- unni. Mestu skipti þó að Sjang og Eng sjálfir skýrðust og urðu marktækari meðan umhverfið varpaði á þá sterkari birtu. Sig- urður og Þröstur hafa í fullu tré við hlutverkið, þótt margir skyggðir fletir blasi við. Þeir eru undursamlega skoplegir á köflum og undir lokin verður samkennd okkar með öriögum þeirra rík og söknuðurinn sannur. Sýningin er þrátt fyrir brota- lamir leiksins og langan fyrrihluta mjög eftirminnileg og heppnast vel í heild. Leikmynd og búning- ar eru fátækleg, en þjóna leiknum vel þótt skiptingar verði fyrirferðarmiklar. Tónlistin er ljómandi skemmtileg og hreyf- ingar þokkalegar. Þýðing Þórar- ins munntöm þótt bókleg sé hún á köflum. Lárus hefur sviðsett leikinn af smekkvísi og á í honum nokkrar snjallar sviðrænar lausnir sem koma skemmtilega á óvart. Leikurinn um Sjang og Eng á skilið að áhorfendur hópist til að sjá hann. Og Leikfélagið á þakkir skildar fyrir að bregða svo skjótt við og sýna okkur það sem er markverðast að gerast núna í norrænum bókmenntum. ikar í Bústaðakirkju dómi er það ekki alls kostar rétt. Eins og alltaf hjá Schubert er grunnt á tregann og söknuðinn og sorgina. Hægi kaflinn til dæmis. Og reyndar einnig millikaflinn í skersóinu. Og jafnvel sums stað- ar í rondóinu. Einkum er það sellóið sem sér um sorgina og söknuðinn. En hvað er þessi sorg alltaf að gera í glaðlegum verkum Schuberts? Hún er hann sjálfur. Schubert fann heimsharminn svo vel af því að hann var svo djúpur og sannur maður. Hann hefði aldrei slegið í gegn hjá Hemma Gunn. Samt er Schubert „léttari og skemmti- legri“ og miklu meira „hress" en nokkur sem þar hefur komið fram. En hann er aldrei billegur, heimskulegur og yfirborðslegur. Hann var ekki fífl. Þetta verk fannst mér alltof hratt spilað. Að minni hyggju á ekki að geysast svona áfram með Schubert. Fyrir vikið varð leikurinn óskýr og ómögulegur. Aðeins hægi kaflinn var fallegur enda fékk hann að njóta sín og breiða úr sér. En hin- ir þættirnir hurfu út í mistrið á harðastökki. Kannski er þetta smekksatriði. Ég geng þess auðvitað ekki dulinn að hér voru afbragðs listamenn að leika. En ég varð því miður fyrir vonbrigð- um með flutning þessa yndislega • tónverks. Tríó Reykjavíkur, Guðný Guðmundsdóttir, Halldór Halldórsson og Gunnar Kvaran. Sérstæður lslandsvinur Það eru orðin nokkur ár síðari ég hef séð eldhugann Harald Clayton frá Kanada á götu í Reykjavík. Ég er hálfpartinn farinn að sakna þess að sjá honum ekki bregða fyrir, en hitt er jafnvíst að ef ég rækist á hann myndi ég skjáskjóta mér inní næsta húsport. Líklega er þó ekkert að óttast. Jafnvel þótt ég gengi beint í flasið á honum á Mokkakaffi, myndi hann varla þekkja mig aftur. Haraldur Clayton hefur um svo margt annað að hugsa. Haraldur Clayton er án efa mis- skildasti snillingur sem ég hef fyrir- hitt. Samt held ég að í útlöndum sé til gott fólk sem skilur list Haraldar Clayton, en á íslandi veit ég ekki um nema einn mann sem er gæddur því- líku innsæi, nafnkunnan alþýðlegan fræðimann með stóra og óskiljanlega kenningu. En sá skilningur er víst byggður á gagnkvæmu samkomulagi sem þeim finnst báðum harla gott: Haraldur skilur fræðimanninn og fræðimaðurinn skilur Harald. Sem er líklega bara önnur tegund af skiln- ingsleysi. Að vísu skein frægðarsól Haraldar Clayton stutta hríð þegar hann kom hingað fyrst fyrir tuttugu og fimm árum. En þá var íslenska intelligensí- an heldur ekki orðin jafn kresin og veraldarvön og síðarmeir og tók öllum útlendingum sem sýndu Islandi þá vinsemd að koma hingað eins og þar væru heimsfrægir spámenn á ferð. Þetta var á þeim tíma þegar kóre- anskur listamaður fór úr buxunum á tónleikum í Tjarnarbæ og þótti stór- merkur viðburður í íslensku menn- ingarlífi. Það urðu blaðaskrif um mál- ið og læti, en róttækum listamönnum þótti að þar hefði íslenska borgara- stéttin fyrir fullt og allt afhjúpað sitt einstaka afturhaldseðli. Á þessum árum bjó listin ekki við hálfvelgjulegt umburðarlyndi, heldur var tekist á um stefnur og strauma sem allir eru búnir að gleyma. Sumir íslensku framúrstefnumannanna hefðu verið reiðubúnir að láta lífið fyrir rétt Kóreumannsins til að girða niður um sig á tónleikum - og jafnvel líka fyrir rétt Haraldar Clayton til að spila á píanó. Það var semsagt á þessum blóma- tíma sem Haraldur Clayton kom í fyrsta skipti til íslands sem hann var búinn að ákveða að væri heimkynni hins kosmíska og kosmóbíólógíska anda, næsti bær við sjálft almættið. Fyrstu kunningjum Haraldar á ís- landi þótti gott að heyra að hann elsk- aði landið, og þegar hann sagðist líka hata ísland, sýndist þeim að þarna væri skynugur maður á ferð. Svona leið þeim líka. Þeir hylltu hann. Það var skrifað í blöðin um þennan sér- stæða og góða íslandsvin. En þegar hann kom hingað í annað sinn, þriðja sinn, fjórða sinn, tóku gömlu kunningjarnir að forðast hann eins og pestina. Þeir hættu að svara í síma þegar hann var á landinu. Þeir vildu ekki hitta hann, en allra síst vildu þeir hitta sjálfa sig einsog þeir voru þegar þeir hömpuðu Haraldi Clayton. Hann hafði ekkert breyst, en núorðið vissu þeir að hann var ekki jafnágætt sýnishorn af nýjustu heimsmenningunni og þeir héldu forðum. Hann var líka hreint yfir- gengilega uppáþrengjandi. Hann keðjureykti kamelsígarettur, talaði án afláts um sjálfan sig, titraði allur og skalf af hugaræsingi, og hlustaði aldrei á neinn. Honum lá einfaldlega svona mikið á hjarta. Aldrei hcfur neinn maður búið í stærri Ioftkastala en Haraldur Clayton. Ég kynntist honum í Stúdentakjall- aranum sem fyrir níu árum var at- hvarf fyrir drykkfellda gáfumenn og unglinga. Það var svolítið kyndugur félagsskapur sem þarna hittist: sífull- ur trompetleikari sem hafði áhyggjur af því að hann væri orðinn náttúru- laus, Norðmaðurinn Olaf sem drakk öll kvöld en föndraði annars við að tálga trébrúður á háalofti við Laufá- sveginn, Italinn Mario sem þóttist kunna öll heimsins tungumál nema íslensku sem honum veittist fjar- skalega erfitt að læra, andlega sinnað- ur heimspekinemi að austan sem var í framan eins og jesúmynd, Dagur Sig- urðarson, og svo við, ungu gáfnaljós- in og bóhemarnir, rétt nýskriðnir úr menntaskóla. f þennan ágæta hóp bættist svo Haraldur Clayton haustið 1979. Og hann var hjartanlega velkominn. Fastagestirnir í Stúdentakjallaranum fóru ekki í manngreinarálit. Ungu gáfnaljósin þóttust náttúrlega sjá í gegnum allt, en fannst merkilegt að heyra Harald vaða elginn um kynni Egill Helgason sín af forystumönnum bítnikka í Am- eríku. Sjálfur var Haraldur líka fram- bærilegasta eintak af bítnikka sem við höfðum séð, að Dcgi meðtöldum: með sítt grátt hárið bundið í tagl, aleiguna í gamalli skjóðu, hlaupandi á eftir einhverri dásamlegri tálsýn yfir meginlönd heimsins. Við heyrðum heldur ekki betur en hann væri leik- bróðir allra bítnikka sem við vorum að lesa um í pappírskiljum: Allen Ginsberg, Jack Kerouack William Burroughs, Gregory Corso. Klukkan hálfellefu opnaði Harald- ur píanónið og hóf að impróvísera. Flutningurinn var einstakur og til- finningin falslaus: Hann lagðist upp á hljóðfærið, hvarf inn í það, stökk ofan á það, skreið undir það, faðmaði það eins og konu, barði það eins og óvin sinn, og hrópaði undir mergjað- ar særingar; það mátti greina orðin „jökull", „cldgos", „hot springs“ og „the sunset at Landmannalaugar". Að beiðni Haraldar tók Olaf hinn norski fram hattkúf og efndi til sam- skota meðal gestanna. Það var nóg fyrir fimm rósavínsflöskum. Klukkan eitt sagðist Haraldur ætla niður á Hjálpræðisher og leigja sér herbergi. Heimspekineminn að austan tók það ekki í mál og bauð honum gistingu í bílskúrnum sem var hans heimili. Svona var lífið í Stúdentakjallaran- um næstu vikurnar. Milli þess sem Haraldur framdi list sína var hann alltaf að reyna að ná sambandi við fólk úti í bæ, sem reyndist aldrei vera heima. En það var svosem engin nýj- ung að líf Haraldar væri ekki dans á rósum, frekar en títt erumfólksemer ekki nema einn og fimmtíu á hæð. Þegar drykkjufélagarnir reyndu að koma honum í skilning um að þeir ættu líka við vissa erfiðleika að stríða, sagði hann með dramblæti þess sem þekkir mikla ósigra: „Hvað eruð þið að segja mér fyrir verkum! Þið vitið ekki hvað það er að svelta! Hvenær hafið þið þurft að skúra gólf í heilt ár?!“ Svo stökk hann á píanóið. Og veislugleðin í Stúdentakjallar- anum dvínaði. Sú friðhelgi stamm- knæpunnar sem Haraldur truflaði er ekki síður heilög en friðhelgi heimilis- ins og einkalífsins. Olaf hinn norski var farinn að herða drykkjuna og skar nú meira í puttana á sér en í trédúkk- una, trompetleikarinn talaði um að fara í bindindi, Mario velti því fyrir sér hvort hann ætti nokkuð að hafa fyrir því að læra íslensku, heimspeki- neminn var að lúffa á hinstu rökum tilverunnar og sagðist kannski ætla á sjóinn. Dagur var hættur að sjást og ungu gáfnaljósin voru búin að komast að því að Haraldur þekkti Ginsberg, Kerouac og Burroughs ekki neitt, heldur hafði hann eitt sinn séð auka- mynd um þá í bíói í Toronto, en Corso hafði reyndar hent honum út úr partíi í New York. Áð lokum tók einhver sig til og læsti píanóinu. Þrátt fyrir mikla eftir- grennslan fannst lykillinn ekki. En Haraldur Clayton hafði séð það svartara. Gamall kunningi hans, framúrstefnumaður sem var orðinn handgenginn borgarastéttinni, hafði slysast til að vera heima þegar hann hringdi. Hann sá þann kost vænstan að kaupa sér frið með því að útvega Haraldi hljómleikasal. Haraldur bauð vinum sínum úr Stúdentakjall- aranum á tónleikana. Hann leigði sér smókíngföt. Til að komast í réttan ham snæddi hann kvöldverð á Hótel Loftleiðum. Þvínæst pantaði hann stöðvarbfl og hélt upp á Kjarvalsstaði til að spila. Það kom enginn á tónleikana. Fræðimaðurinn með stóru kenning- una lá heima, sárþjáður af gigt. En á meðan sátu hinir væntanlegu tónleikagestir í Stúdentakjallaranum og drukku í óbrotinni rósemd. Sögðu fátt, en leið vel. Nokkrum dögum síðar hitti ég Har- ald aftur. Hatrið á íslandi var orðið ástinni yfirsterkara. En hann var ekki búinn að gefast upp. Hann var með stærri plön en nokkru sinni fyrr. Hann ætlaði að setjast að í klaustri á eyju í Grikklandshafi. Þar ætlaði hann að semja svokallaða „ping- pong“ sinfóníu; tónverk fyrir fjórar sinfóníuhljómsveitir og átta blandaða fflharmóníukóra. Hann lét það ekki aftra sér þótt eftilvill þyrfti að byggja sérstaka tónlistarhöll til að flytja hljómkviðuna. Hann taldi ekki ólík- legt að Svisslendingar myndu hafa áhuga á að byggja slfkt hús. Og að lokum sagði hann: „Ég ætla bara að byrja á níundu sinfóníunni minni. Beethoven var byrjaður að semja níundu sinfóníuna áður en hann samdi þá fyrstu.“ Þannig ætlaði Haraldur Clayton að stytta sér leiðina til dýrðar. Föstudagur 20. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.