Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 20.01.1989, Blaðsíða 15
Tíðarandinn breytist stöðugt og nýir siðir, oftast ættaðir erlendis frá, halda innreið sína í menninguna. Inn í umferðarmenninguna hefur á síðustu árum læðst gestur, sem yfirleitt vekur mikla athygli akandi sem fót- gangandi vegfarenda. Þetta er fagurlega innpakkaður bíll, með slaufum og blómas- kreytingu. Fyrst þegar hann birtist lá við umferðaröngþ- veiti en í dag kippir sér enginn lengur upp við þessa sjón. Þarna eru brúðhjón á ferð og hjartað lyftist um nokkra þumlunga og vegfarendur óska nýgifta parinu velfarnað- ar í huganum velfarnaðar. Vonandi bara að þetta endist eitthvað hjá þeim því sam- kvæmt tölfræðinni endar þriðja hvert hjónaband á ís- landi með skilnaði. Það hefur mikið breyst á tveimur áratugum. Undir lok sjö- unda og í upphafi áttunda áratug- arins þótti ungu fólki ekki hlýða að vera með mikið tilstand í kringum það að láta pússa sig saman. Margir bjuggu í óvígðri sambúð og aðrir fóru til borgarfó- geta eða sýslumanns og drifu þetta af á hálftíma. Nú er hins- vegar öldin önnur og brúðkaupið aftur orðið að þeirri miklu athöfn sem það var fyrir daga blóma- barnanna. Nýja Helgarblaðið ákvað að kanna nútímabrúðkaupið og blaðamaður komst fljótt að þeirri niðurstöðu að það er ekkert gam- anmál að standa fyrir brullaupi, margt að varast og enn fleira sem ekki má gleymast. Það er ekki nóg að útvega maka, prest og kir- kju. t>að er kannski minnsta mál- ið. Það er allt hitt sem er margra daga vinna fyrir einn mann, að hringja út og suður, í Pétur og Það gerist æ algengara að fólk biðji prest að blessa hringana en það er inn- fluttur siöur og gætir þar áhrifa frá engilsaxneskum sjónvarpsmyndum. Pál, sem sjá um að aðstoða við brúðkaupið þannig að hvergi sé örðu á því að finna. Auðvitað bregðast allir vel við og eru allir af vilja gerðir til að þessi stund verði ógleymanleg brúðhjónun- um og þeirra nánustu, enda er þjónusta þeirra ekki gefin. Það eina sem ekki er tekin greiðsla fyrir er sjálf kirkjan. Að finna réttan maka Það fyrsta sem þarf til að hægt sé að halda brúðkaup er að piltur og stúlka hrífist hvort að öðru (eða við skulum ganga út frá því). Flesta þjónustu er hægt að kaupa en ástarfunann tæpast. Þó er hægt að setja auglýsingu í einka- máladálk síðdegisblaðsins og auglýsa eftir maka, eða glugga í bæklinga frá aðila sem býðst til að koma íslenskum einstaklingum í samband við einmana sálir. „Yfir 1000 eru á okkar skrá. Fjöldi finnur hamingjuna. Því ekki þú? Fáðu lista, skráðu þig. Trúnaður.“ En við skulum ganga út frá því að pilturinn og stúlkan finni ham- ingjuna án hjálpar slíkrar skrár og hafi áhuga á að ganga í það heilaga. Margir hafa reyndar haf- ið búskap áður en þeir láta prest um að biessa sambandið. Séra Bragi Friðriksson, sókn- arprestur í Garðasókn, sagði að það hefði aukist töluvert að fólk sem búið er að vera í sambúð í einhvern tíma haldi kirkjulegt brúðkaup. „Það er greinilegt að ungt fólk vill byrja sambúð og síðan þegar reynsía er komin á sambandið lætur það prest helga sambúðina." Við altarið í Hallgrímskirkju. Myndirnar með þessari grein eru sviðsettar nema annað sé tekið fram. Fólkið á myndunum er ógift en í sambúð. Brúðarkjólaleiga Katrínar Óskarsdóttur lánaði föt- in. Myndir Jim Smart. Séra Þórir Stephcnsen, staðar- haldari í Viðey, sagði allan gang á þessu. Að hans sögn er ekki óal- gengt að fólk sem hefur verið gift borgaralega áður láti gifta sig aft- ur við kirkjulega athöfn. Yfirleitt er þetta þó fólk sem giftist til þess að leysa einhver vandamál, t.d. kemur það fyrir að námsfólk er- lendis giftist borgaralega til að misbjóða ekki siðferðiskennd nágranna sinna, en notar svo tæk- ifærið þegar það kemur heim og lætur prest leggja blessun sína yfir sambandið og heldur upp á giftinguna með vinum og vanda- mönnum. Hvorki séra Bragi né séra Þórir minntust þess að fólk sem hefði verið borgaralega vígt lengi hefði komið til þeirra og beðið um kirkjulega giftingu. „Hinsvegar hef ég gift fólk sem var gift áður en hafði skilið og gifst öðrum í millitíðinni. Þau voru svo bæði skilin aftur þegar þau hittust fyrir tilviljun og það er engum blöðum um það að fletta að ástin kviknaði strax aftur hjá þeim. Ég hef sjaldan gift ham- ingjusamara par en þau,“ sagði séra Þórir. Þá sagði Þórir að það hefði færst í aukana að fólk biðji um blessun á hjónabandinu aftur þegar það heldur silfurbrúðkaup hátíðlegt. Slíkar athafnir eru þó yfirleitt mjög látlausar. Þessi siður er nýr hér á landi en vel þekktur t.d. í Bandaríkjunum. Tölffræðin Það er ekki bara tilfinning undirritaðs að giftingum hafi fjölgað undanfarin ár, heldur taldi séra Bragi það einnig. „Ég hef reyndar engar tölur fyrir mér en ég held að giftingum hafi fjölg- að á undanförnum árum.“ Tölur frá Hagstofunni segja þó aðra sögu. Samkvæmt þeim hefur hjónavígslum fækkað á undan- förnum 10 árum. Árið 1978 voru 1585 hjónavígslur en árið 1987 einungis 1160. Hagstofan hafði þessar vígslur ekki sundurliðaðar í borgaralegar og kirkjulegar víg- slur þannig að bæði séra Bragi og Hagstofan geta haft á réttu að standa, hafi borgaralegum víg- slum fækkað mest. Tölur Hagstofunnar eru mjög athyglisverðar. Samkvæmt þeim endar þriðja hvert hjónaband á fslandi með skilnaði. Taflan hér á eftir talar sínu máli: Ár Hjónavígslur Skilnaðir 1.585 411 1.451 394 1.306 441 1.357 463 1.303 421 1.396 495 1.344 471 1.252 527 1.229 498 1.160 477 m j % - ? ' -•<! ■ / ,V. . - : Kirkjuleg brúðkaup, með veglegum veislum eru í tísku í dag. Ýmsir erlendir siðir hafa gert innreið í brúðkaupsathöfnina. Þriðja hvert hjónaband endar með skilnaði. Heildarkostn- aður við brúðkaup á bilinu 200 til 400 þúsund ef veisluföng eru aðkeypt. Föstudagur 20. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.