Þjóðviljinn - 20.01.1989, Síða 5
Miljarða skoðanaágreiningur
milli bankakerfisins og
fjármálaráðherra
Er óráðsía í bankakerfinu
svo mikil að út úrflói?
Ólafur Ragnar Grímsson
Már Guðmundsson
Þórður Ólafsson
Stefán Pálsson
Geta bankamir
sparað tvo miljarða?
Mikiö stríð hefur staöið undanfarna daga
um vaxtamál, hvort bankarnir eigi eða
megi hækka vexti eða ekki. í framhaldi af
því hefur umræðan beinst að kostnaði
bankanna sjálfra og að óhóflegur kostnað-
ur við íslenskt bankakerfi sé einn orsaka-
valda þess hversu vextir séu háir. í því
sambandi hafa þeir Ólafur Ragnar Gríms-
son, fjármálaráðherra og efnahagsráðgjafi
hans Már Guðmundsson bent á tvö dæmi.
Annars vegar að væri vaxtamunur hér
Þegar því er haldið fram að
spara megi um 2 miljarða í ís-
lensku bankakerfi þaif fyrst að
líta hvaða útreikningar liggja að
baki þeim samanburði sem gerð-
ur er og síðan hvort sá saman-
burður sé réttur og raunhæfur. Er
sérstaða íslands slík að ekkert
mark er á samanburði við önnur
lönd?
Vaxtamunur
Lítum fyrst á dæmi fjármála-
ráðherra um vaxtamun. Því er
haldið fram að vaxtamunur hér sé
á bilinu 7,0-7,5%, en að vaxta-
munur erlendis í sambærilegri
bankastarfsemi sé hins vegar 4,5-
5%. í lok október 1988 hafi
innlán innlánsstofnana numið
tæplega 80 miljörðum og væri
vaxtamunur hérlendis sambæri-
legur við það sem gerist í ná-
grannalöndunum, þ.e. 2,5%
lægri þýddi það að íslenskar
innlánsstofnanir hefðu tekið um
2 miljörðum króna minna í vaxta-
mun.
sambærilegur viö erlenda banka mætti
spara um 2 miljaröa króna og hins vegar aö
væri hægt aö ná fram sparnaöi upp á 2,2,
miljaröa króna væri rekstrarkostnaöur hér
sambærilegur viö rekstrarkostnaö banka í
nágrannalöndunum. Fulltrúar bankanna
hafa ekki veriö alls kostar ánægöir meö
þessar röksemdir og þó þeir séu flestir á
því aö þaö megi ná fram sparnaöi í íslenska
bankakerfinu, þá sé samanburöur viö út-
lönd óraunhæfur.
Sú tala sem tekin er fyrir vaxta-
mun hérlendis í ofangreindu
dæmi 7,0-7,5%, er nokkurs kon-
ar meðaltalstala. Seðlabankinn
reiknar út svokallaðann „hiut-
fallslegan vaxtamun" og hefur sú
tala verið breytileg í gegnum
árin. Borin eru saman einstök
innlána og útlánaform bankanna
og vægi hvers um sig fundið og
síðan er fengið hlutfall þar á milli.
Árið 1982 var vaxtamunur
reiknaður á þennan hátt 5,6%,
1983 var hann 6,9%, 1984 5,5%,
1985 5,1%, 1986 6,4% og 1987
var hann 7,1%. Á árinu 1988
hækkaði þessi vaxtamunur fyrri
hluta ársins þannig að fyrstu átta
mánuðina mældist þessi vaxta-
munur 8,3% en hefur síðan hríð-
fallið. Stefán Pálsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans og for-
maður Sambands íslenskra við-
skiptabanka sagði í viðtali við
Nýja Helgarblaðið að þessi
vaxtamunur væri nú kominn nið-
ur í 4,0% sem að þýddi einfald-
lega að bankarnir væru reknir
með tapi. Til þess að geta staðið
undir rekstri og viðhaldi á eigið
fé, sem samkvæmt lögum má
ekki vera minna en 5% þyrfti
vaxtamunurinn að vera um 6%.
Þetta þýddi að bönkum væri upp
á lagt að skila umtalsverðum arði
og nefndi að Búnaðarbankinn
þyrfti sennilega um 150 miljónir
lcróna í gróða á ári til að geta
staðið undir þessum skuldbind-
ingum.
Mismunandi
aðferðir
En það eru til fleiri aðferðir við
að reikna vaxtamun heldur en sú
sem að ofan er greint frá. Sam-
band íslenskra viðskiptabanka
hefur látið útbúa töflu sem sýnir
vaxtamun á Islandi með saman-
burði við vaxtamun í öðrum Evr-
ópulöndum og Bandaríkjunum.
Þeirri aðferð sem þar er beitt og
er reyndar öllu algengari er sú að
vaxtamunur er reiknaður út frá
niðurstöðutölum efnahagsreikn-
ings. „Við tökum niðurstöðu-
tölur efnahagsreiknings og finn-
um heildarvaxtatekjur og
heildarvaxtagjöld og fáum út
vaxtamun. Inn í dæmið eru sem
sagt teknir allir liðir sem gefa
bankanum vexti, t.d. eru
reiknaðir vextir af eigið fé bank-
ans og allar vaxtagreiðslur sem
bankinn þarf að standa skil á. Þar
sem stofntölur eru með þessu
móti hærri fæst vaxtamunur sem
er minni en með hinni aðferðinni.
Þetta er féð sem við höfum til
rekstrar og gefur sambærilegar
tölur við útlönd og raunhæfa
mynd af því hvernig bankarnir
koma út í rekstri,“ sagði Stefán
Pálsson.
Ómarktækur
munur?
í þeim útreikningum sem við-
skiptabankarnir hafa lagt upp á
þennan hátt er vaxtamunur við-
skiptabanka (ekki sparisjóða) að
meðaltali fyrir árin 1981-1986
3,78%, sem er eins og sjá má öllu
#'östudagur 20. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5