Þjóðviljinn - 20.01.1989, Qupperneq 7
samkvæmt því kostar þotuflotinn
um 450 miljónir dollara eða 22
miljarða króna. Auk þess eru
stöðugt á Vellinum 2-3 af þeim 18
AWACS-vélum sem eru í eigu
NATO og munu vera einhver
dýrasti og fullkomnasti flugfar-
kostur sinnar gerðar. Þá eru á
vellinum 9 Orion P-3C kafbáta-
leitarvélar sem geta borið stýri-
flaugar með kjarnorku-
sprengjum, ein KC-135 tankvél
sem getur gefið eldsneyti í lofti,
þrjár björgunarþyrlur af gerðinni
HH-3 „Jolly Green Giant“ og ein
Hercules herflutningavél.
Pær framkvæmdir sem nú
standa yfir á vegum hersins eru
að sögn flotaforingjans allar
nauðsynlegar til stuðnings þess-
um mikla flugflota, þannig að
hann komi að fullu gagni.
Rekstrarkostnaður
7,5 miljarðar á ári
En stofnkostnaður alls þessa
vígbúnaðar segir þó ekki alla sög-
una. Á Vellinum búa nú um 5000
Bandaríkjamenn, þar af um 3200
hermenn. Auk þess eru um 2000
íslenskir starfsmenn sem koma til
starfa á herstöðina daglega, þar
af um 1100 fastir starfsmenn hers-
ins. Hinir eru starfsmenn verk-
taka. Rekstur herstöðvarinnar á
Miðnesheiði, þar sem allur
kostnaður annar en fjárfesting er
talinn, kostaði 150 miljónir doll-
ara á árinu 1987 eða 7,5 miljarða
ísl. króna. Þar af greiddi herinn
35 miljónir dollara eða 1,7 milj-
arða króna í rekstur Keflavíkur-
flugvallar að sögn Friðþórs
Eydal, blaðafulltrúa.
140 „óvinaflugvélar“
á ári
Talsmenn hersins eiga ekki í
erfiðleikum með að réttlæta
nauðsyn þessara miklu hernaðar-
umsvifa hér á landi, og beinast
rök þeirra einkum að tvennu:
nauðsyn á eftirliti með umferð
sovérskra herskipa og flugvéla og
nauðsyn á því að skapa svokall-
aða „fælingu“ er hindri sovéska
ævintýramenn í að espa til ófriðar
á Atlantshafi.
Gildi fælingar er sem kunnugt
er orðið afar umdeilt í nútíma
samskiptum þjóða, eins og hern-
aðarbandalögin hafa að hluta til
viðurkennt með samningum um
gagnkvæma fækkun vopna. Það
verður að minnsta kosti ekki
mælt tölulega, en öðru máli gegn-
ir um eftirlitið. Þar er hægt að
mæla fjölda þeirra óboðnu sov-
ésku herflugvéla og kafbáta, sem
koma inn á eftirlitssvæði hersins
frá Kola-skaga, þar sem um
helmingur sovéska flotans er
staðsettur.
Friðþór Eydal var því spurður
að því hve tíðar slíkar heimsóknir,
væru. Og svarið er að slíkar heim-
sóknir „óvinaflugvéla" teljast að
meðaltali um 140 á ári, og mætti
kannski hugsa sér minni viðbún-
að til þess að finna þær. Hvað
varðar kafbátaheimsóknirnar, þá
er fjöldi þeirra ekki gefinn upp,
þar sem slíkar upplýsingar gætu
gefið óvininum færi á að meta
getu eftirlitskerfisins.
Framkvæmdaáætlunin
Sú framkvæmdaáætlun sem nú
er í gangi á vegum Nato og
Bandaríkjahers hér á landi kom
til framkvæmda 1983 og á henni
að ljúka 1994. Þá á eftirtöldum
framkvæmdum að vera lokið:
1) Byggingu fjögurra ratsjár-
stöðva á fjórum landshornum og
Flugskýli fyrir F-15 orrustuþotur af „hertri" gerð. Slíkskýli vorureistá Vellinum fyrir25miljónirdollara. Ein F-15 orrustuþota kostar álíka mikið og öll flugskýlin,
og þvíkostar þotuflotinn á Kefla-víkurflugvelli um 22 miljarða Íslenskra króna.
nýrrar ratsjármiðstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli. Stöðvarnar verða
tengdar við stjórnstöð með ljós-
leiðurum lögðum í jörð, sem
Póstur og sími leggur til. Auk
þess verður vararatsjármiðstöð
byggð skammt fyrir ofan Grinda-
vík. Þessi framkvæmd er þannig á
vegi stödd, að búið er að reisa
ratsjárstöðvarhúsin á Gunnólfs-
víkurfjalli og Bolafjalli og fram-
kvæmdir hafnar við ratsjármið-
stöð á Vellinum en framkvæmdir
við byggingu nýrrar stöðvar í
Hornafirði munu hefjast í vor.
Alls eiga þessar framkvæmdir að
kosta um 500 miljónir dollara eða
25 miljarða ísl. króna.
á stórstraumsfjöru.
4) Byggingu nýrrar stjórnstöðvar
af „hertri“ gerð þar sem safnað
verður saman öllum upplýsingum
frá ratsjárstöðvunum, kafbáta-
eftirlitinu og frá nálægum her-
stöðvum og þaðan sem boð verða
send til yfirstjórnar Atlantshafs-
flotans í Norfolk í Bandaríkjun-
um. Bygging stjórnstöðvarinnar
er þegar hafin inni á vallarsvæð-
inu nálægt þeim stað þar sem nú-
verandi stjórnstöð er. Þetta er
tveggja hæða bygging, glugga-
laus, og er neðri hæðin að mestu
niðurgrafin. Byggingin á að geta
staðist hnjask allvel, þótt hún sé
ekki talin fullkomlega sprengju-
Vöílinn. Því væri aukning fjöl-
skylduíbúða aðkallandi og lægju
nú umsóknir fyrir Bandaríkja-
þingi um byggingu enn fleiri
íbúðarhúsa.
Meira hangir á spýtunni
Eric McWadon flotaforingi
tjáði fréttamönnum að leyfi ís-
lenskra stjórnvalda hefði fengist
fyrir lagningu hliðarbrautar með-
fram norður-suðurbrautinni á
Keflavíkurflugvelli. Slík hliðar-
braut mun stytta aðkeyrslu
farþegavéla að suðurenda
brautarinnar og verða þannig til
hagræðingar fyrir farþegaflugið.
En hún verður hins vegar byggð
Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkurfjalli við Þistilfjörð. Myndin er tekin Ijúlí 1988, en nú er búið að Ijúka byggingunni og hægt að
flytja tækni -búnaðinn inn í vor. Samskonar bygging hefur verið reist á Bolafjalli við ísafjarðardjúp. Hafist verður handa
við byggingu sambærilegra stöðva við Sandgerði og Stokksnes í sumar. Þá er ný ratsjármiðstöð í byggingu á
Miðnesheiði skammt frá „Rockville". Vararatsjármiðstöð verðursíðan reistskammt fyrirofan Grindavík. Ljósm. Banda-
rikjaher
breiðari en tíðkast um slíkar að-
keyrslubrautir, þannig að hún
mun einnig gagnast sem varab-
raut og mun það vera áhugamál
hersins að auka þannig öryggi og
afkastagetu flugvallarins á stríð-
stímum. Að sögn McWadons er
nú verið að leita heimildar hjá
NATO og Bandaríkjastjórn um
fjárveitingu í þetta verkefni.
Verkfræðilegur undirbúningur
verksins stendur nú yfir hjá SAC-
LANT flotastjórninni í Norfolk,
en ljóst er, að sögn flotaforin-
gjans, að framkvæmdir geta ekki
hafist í sumar.
Aðspurður um óskir NATO
varðandi lagningu varaflugvallar,
sagði flotaforinginn að frá sjónar-
miði þeirra á Miðnesheiði væri
æskilegast að leggja þennan flu-
gvöll í Aðaldal í N-
Þingeyjarsýslu. Austurströnd
Grænlands kæmi einnig til
greina, en þangað væri þó of
langt að mati flugmanna í Kefla-
vík. Varaflugvöllur þessi myndi
taka við hlutverki því sem
Reykjavíkurflugvöllur og Akur-
eyrarflugvöllur gegna nú, en þeir
hafa þá ókosti annars vegar að
vera of nálægt Keflavík og hins
vegar að vera of hættulegar í að-
flugi. Persónulega sagðist
McWadon einnig óska þess að
varaflugvöllurinn yrði lagður hér
á landi, þar sem með því myndu
íslendingar eignast ókeypis nýjan
flugvöll.
Af öllu þessu má ráða að um-
svif Bandáríkjahers og NATO
hér á landi eru orðin umfangs-
meiri en nokkurn gat órað fyrir í
fyrstu, og verður seint fullséð
hvaða áhrif þessi miklu umsvif
hafa á íslenskt efnahagslíf í bráð
og lengd. -óig
2) Byggingu flugskýla af „hertri“
gerð yfir 18 F-15 orrustuþotur.
Flugskýlin eru þegar komin í
gagnið og var kostnaður við þau
um 25 miljónir dollara eða 1,25
miljarðar króna.
3) Byggingu hafnar, olíubirgðast-
öðvar, dælustöðvar og olíul-
eiðslna í Helguvík. Höfnin hefur
þegar verið byggð af íslenskum
aðalverktökum, og var hún af-
hent hernum í desember s.l. Alls
verða 11 tankar fyrir þotubensín,
olíu og bílabensín í Helguvík, og
hafa 2 fyrstu tankarnir þegar ver-
ið í notkun í 2 ár. Byggingu dælu-
húsa er sömuleiðis lokið og bygg-
ing 3 tanka langt komin, en alls
eiga þessar framkvæmdir að
kosta um 244 miljónir dollara eða
12,2 miljarða ísl. króna. Höfnin í
Helguvík á að geta tekið á móti
35-40 þúsund lesta olíuskipum,
og dýpið í höfninni verður 13,5 m
held að sögn flotaforingjans.
Hún á jafnframt að geta staðist
eiturefnahernað. Varastjórnstöð
verður byggð skammt frá
Grindavík, þar sem einnig verður
vararatsjármiðstöð og eftirlits-
og viðhaldsmiðstöð fyrir hug-
búnaðarkerfi stjórnstöðvar og
ratsjárbúnaðarins. Við
hugbúnaðarviðhaldið eiga 20 ís-
lenskir kerfisfræðingar að fá
vinnu. Ekki er upplýst um kostn-
að við byggingu stjórnstöðvar-
innar.
5) Bygging fjölbýlishúsa með 248
íbúðum fyrir hermenn og fjöl-
skyldur þeirra stendur nú yfir.
Fram kom í máli flotaforingjans
að skortur á viðunandi húsnæði
gæti aftrað herstöðinni frá að ná
til sín hæfum starfskrafti og að
algengt væri að hermenn þyrftu
að b ')a í marga mánuði eftir því
að g a fengið fjölskyldur sínar á
Póstur og sími leggur Ijós-
leiðara fyrir herinn
Eric McWadon flotaforingi
sagði á fundi með íslenskum
fréttamönnum að samningar
stæðu nú yflr á milli Bandaríkja-
hers og Pósts og síma hér á landi
um lagningu tvöfaldrar Ijós-
leiðaralagnar umhverfls landið
frá ratsjárstöðvunum á Langa-
nesi, Vestfjörðum og Stokksnesi
til Keflavíkurflugvallar. Af þessu
tilefni snerum við okkur til Ólafs
Tómassonar póst- og símamála-
stjóra og spurðum hann um þessa
framkvæmd.
Ólafur taldi að hér væri um
misskilning að ræða, þar sem mál
þetta væri allt á umræðustigi enn
og væntanleg þjónusta Pósts og
síma fyrir ratsjárstöðvarnar yrði
ekki önnur en að leigja hernum
afnot af línum í því ljósleiðara-
kerfi sem Póstur og sími væri að
leggjá umhverfis landið. Sagði
Ólafur að Póstur og sími ynni
samkvæmt langtímaáætlun um
lagningu ljósleiðara, sem myndi
með tímanum valda byltingu í
öllum fjarskiptum hér á landi.
Enn sem komið er hafa ratsjár-
framkvæmdir hersins ekki raskað
framkvæmdaáætlun okkar, sagði
Ólafur, en við munum verja 100
miljónum króna á þessu ári til
lagningar ljósleiðara frá Borgar-
nesi til Blönduóss.
-ólg
Föstudagur 20. janúar 1989
f HELGARBLAÐ - SIÐA 7