Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 10
LEIÐARI
FYRR
Er engin
fyrirstaða?
í Þjóðviljanum í gær og dag eru fréttir og greinar um
aukningu í umsvifum Bandaríkjahers á íslandi sem er
svo mikil að venjulegum íslendingi fellur allur ketill í eld.
Bandarísk yfirvöld virðast vera gersamlega viss um
sinn sess hér á landi og horfa ekki í fúlgurnar sem
framkvæmdirnar kosta, vitandi að ekki muni hróflað við
aðstöðu þeirra. Þeir vita sem er að íslenskum yfirvöld-
um þykir lofið gott, þau vilja heita góðir gestgjafar með-
al þjóða, og þeir þurfa ekki að spara daðrið og smjaðr-
ið, nóg er til af því.
Það eina sem bendir til þess að einhverjir séu enn
uppi á þessu landi sem andæfa veru hersins og bram-
bolti hans er að enn kemur stundum fyrir að talsmenn
hersins reyni að blekkja, slá ryki í augu fólks. Það er
þegar þeir segja að ratsjárstöðvarnar verði til gagns
fyrir íslenska sjómenn eða að flugvöllur í Aðaldal komi
sér svo prýðilega fyrir Þingeyinga, herinn þurfi ekki að
nota hann nema einstaka sinnum og það verði ekki
ónýtt fyrir heimamenn að geta flogið beint til útlanda.
Og allt ókeypis, gleymum því ekki.
Ef ekki tekst að telja fólki trú um að allar séu fram-
kvæmdir hersins í okkar þágu, þá verður að grípa til
þess gamla bragðs að búa til óvin. Nauðsynlegt er,
segja talsmennirnir, að fylgjast með umferð sovéskra
flugvéla og kafbáta. Nauðsynlegt er að halda „óvinin-
um“ óttaslegnum og uggandi til að hann vaði ekki uppi.
Þetta heitir „fæling“ á hernaðarmáli og er nú orðið talið
býsna vafasamt tæki til friðar. í stað þess að sýna
reiddan hnefann þykir viturlegra að draga upp hvíta
fánann. Auk þess sem Sovétmenn hafa aldrei verið
neinir óvinir okkar sem þjóðar.
Undanfarin ár hafa Sovétmenn og Bandaríkjamenn
gengið á undan með góðu fordæmi og rætt saman um
afvopnun og frið í heiminum. Auðvitað ber hvorugu
stórveldinu að treysta, því önnur eru orðin en gerðirnar
oft á tíðum, og báðir gæta hagsmuna sinna með ofbeldi
á sínum áhrifasvæðum. En það er fáránlegt í Ijósi und-
angenginna og yfirstandandi viðræðna um slökun og
afvopnun að leyfa orðalaust mannvirki undir stríðstól
og nýjan tæknibúnað á þessu friðsama eylandi.
Ratsjárstöðvar, stjórnstöðvar, kjarnorkuheld flug-
skýli, olíuhafnir fyrir herskip, olíubirgðastöðvar her-
skipa. Þetta eru óaðlaðandi orð yfir andstyggileg
mannvirki og sýna og sanna svo ekki verður um villst
hvað við erum: útvörður Bandaríkja N-Ameríku, til þess
ætluð að taka við fyrstu árásum á þau meðan Banda-
ríkjamenn koma sér í viðbragðsstöðu heima fyrir.
Samningarnir um þessi mannvirki voru aldrei bornir
undir íslenska alþýðu. Ekkert virðist vera hægt að gera
til að stöðva framkvæmdir við þau. Sumum er meira að
segja lokið. En varaflugvöllur í Aðaldal hefur ekki verið
lagður ennþá. Eins og bent var á í grein í Þjóðviljanum
4. janúar yrði beinlínis lögbrot að leggja 3000 metra
langa flugbraut með tilheyrandi olíubirgðastöð og
kjarnorkuheldum flugskýlum í Aðaldal vegna þess að
vatnasvæði Laxár í Aðaldal er friðlýst í náttúruverndar-
lögum. Það samræmist þeim ekki að ryðja burt kjarri,
lyngmóum, hraunbollum og lautum til að rýma fyrir
herflutningavélum og sprengiþotum.
Skagfirðingar stóðu einarðir gegn framkvæmdum í
sínu héraði. Ekki verða Þingeyingar síðri baráttumenn
gegn víghreiðri í Aðaldal.
SA
Þessar myndir, sem við birtum hér nú, eru mjög frábrugðnar þeim, sem birst hafa að
undanförnu og mun kuldalegri, enda eru Landmælingarnar ekki við eina fjölina felldar við val á
myndefni. Hér er viðfangsefnið jökull og ekki ófyrirsynju, svo mjög sem þeir setja svip sinn á
þetta blessaða land okkar. Og jöklarnir eiga það til að breyta um háttu, rétt eins og þeir væru
lifandi verur. Þegar kuldaskeið ganga yfir þykkna þeir og þenjast út, þegar hlýviðri ganga
þynnast þeir og hopa á hæli.
Þessa loftmynd tóku Landmælingar íslands af Breiðamerkurjökli og Jökulsárlóni 30. ágúst
1945. Breiðamerkurjökull gengur, sem kunnugt er, suðaustur úr Vatnajökli og er sá íslenskur
jökull, sem næst hefur komist því aðnáfram ísjó. Þegarjökullinn tók að hopa myndaðistjökuilón
og frá því fellur Jökulsá á Breiðamerkursandi til sjávar.
OG NU
Þessa mynd tóku Landmælingar íslands af Breiðamerkurjökli og Jökulsárlóninu 37 árum
síðar, eða 20. ágúst 1982. Breytingin er það mikil á þessu árabili, að vel mætti ætla að myndirnar
væru alls ekki af sama staðnum. Jökullinn sjálfur hefur tekið miklum stakkaskiptum, hann er
mikið sprunginn og allmikið dimmleitari en á fyrri myndinni. Jökulsporðurinn hefur styst og af
honum brotna öðru hvoru stórir ísjakar, sem fljóta fram á lónið, sem einnig hefur stækkað að
miklum mun. Jökulgarðarnir sýna hvað jökullinn breiddi mest úr sér um síðustu aldamót.
Sá, sem kemur að Jökulsárlóninu og lítur hin hvítu og tignarlegu ísskip, sem sigla þar um,
gleymir trauðla þeirri sjón. Undanfarin sumur hafa þeir feðgar á Hala, Torfi og Fjölnir, verið með
bát á lóninu og siglt með ferðamenn um þessa sérkennilegu friðarhöfn. Það þykir mikið og
eftirminnilegt ævintýri.
-mhg
Viljið þið ekki, lesendur góðir, vera nú svo vcenir að senda blaðinu gamlar myndir, sem þið kunnið að eiga í fórum
ykkar? Allar 40-50 ára gamlar myndir og ekki síður þaðan af eldri, eru vel þegnar. Myndunum þurfa að fylgja
nauðsynlegar upplýsingar svo sem um aldur ef hann er kunnur o.s.frv. - Myndina skal senda til umsjónarmanns Nýs
Helgarblaðs, Pjóðviljanum, Síðumúla 6, 108 Reykjvík. - Við munum að sjálfsögðu senda myndirnar til baka, ásamt
ókeypis eftirtöku. Leitið þið nú í pokahorninu.
Síðumúla 6 * 108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
RitstjórarrÁrni Bergmann, MörðurÁmason, SiljaAðalsteinsdóttir.
Umsjónarmaður Nýs Heigarblaðs: Sigurður Á. Friðþjófsson.
Fréttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Biaðamenn: Dagur Þorieifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pótursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Páll Hannesson,
Sœvar Guðbjörnsson, Þorfinnur Ómarsson (íþr.).
Handrita-og prófarfcaíestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: Jim Smart, ÞorfinnurÓmarsson.
Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ. Pótursson
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrif stof ustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir.
Sfmavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Husmóðlr: Anna Benediktsdóttir
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Ipnheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Sföumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýslngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð f lausasölu: 70 kr.
Nýtthelgarblað: 100kr.
Áskrlftarverð á mánuði: 800 kr.
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989