Þjóðviljinn - 20.01.1989, Qupperneq 14
\
/
Myndir í bókinni eru eftir Guðjón Inga Hauksson og Þorra Hringsson.
Fyrir jólin kom út bókin
Mamma! Hvað á ég að gera
eftir Jón Karl Helgason, hand-
bók fyrir alla sem eru að
stofna sjálfir heimili í fyrsta
sinn. Ekkert mannlegt er höf-
undi óviðkomandi, og aftast í
bókinni er meira að segja atr-
iðisorðaskrá þar sem maður
getur flett upp á múrtöppum,
dropahlíf og hafragraut til
dæmis og séð hvar upplýs-
ingar eru um þessi atriði í bók-
inni.
Að útvega húsnæði
„Einn daginn er tímabært að
flytja úr foreldrahúsum og hefja
búskap upp á eigin spýtur," segir
í upphafi bókar. „Aðstæðurnar
eru misjafnar eftir því hver á í
hlut. Sumir leggja vel nestaðir af
stað, aðrir miður,“ rétt eins og
karlssynirnirþríríævintýrinu. En
áður en flutt er út er nauðsynlegt
að tryggja sér þak yfir höfuðið og
fyrsti kafli bókarinnar fjallar um
að kaupa og leigja og talið upp
það helsta sem heimili verður að
hafa nú til dags:
Góðar upplýsingar er að finna
um íbúðakaup og íbúðaleigu,
hvernig maður á að skoða íbúð til
að láta ekki plata sig til að taka
eitthvert rusl, hvernig á að gera
samninga og hver eru réttindi og
skyldur leigutaka.
En hirðum ekki um það. Hugs-
um okkur að við höfum þegar
fengið inni í tveggja herbergja
íbúð í kjallaranum hjá ömmu
hennar Gullu sem er vinkona
hans Jóa mannsins hennar
Hönnu og við ætlum að flytja eins
fljótt og við getum!
Fyrst þarf að
undirbúa
Áður er þó rétt að athuga hvort
íbúðin þarf einhverra lagfæringa
við. Það er þægilegra að bæta og
Húsgögn og -búnaður: □ Rúm □ Eldhúsborð og stólar □ Fataskápur/kommóða □ Hægindastólar □ Sófi □ Stofuborð □ Gluggatjöld □ Skrifborð □ Skrifborðsstóll Heimilistæki: □ Kæliskápur með frystihólfi ’ □ Eldunarhella/eldavél* □ Þvottavél □ Ryksuga □ Brauðrist □ Hraðsuðuketill
* Eldavél fylgir þegar íbúö er keypt frágcngin eða leigö.
Eldhúsáhöld: Önnur áhöld: Ajk
□ Pottur eða pottar □ Uppþvottabursti ’
□ Sleif □ Diskaþurrka
□ Leirtau □ Sópur
□ Hnífapör □ Fægiskófla
□ Bithnífar □ Afþurrkunarklútar
□ GIös □ Skúringarfata
□ Panna □ Tuskur
□ Pönnuspaði □ Salernisbursti
□ Pískur til að hræra með □ Drullusokkur
□ Ostaskeri
breyta áður en flutt er inn en eftir
að allt er orðið fullt af dóti. Þótt
það sé freistandi að flytja strax er
betra að mála fyrst.
í kaflanum „Völundurinn" eru
nákvæmar upplýsingar um við-
gerðir og íbúðamálun. Hvaða
áhöld þarf að útvega, hvernig
maður notar spartl, hvernig mað-
ur fer með málningu, hvernig
mála á hurðir og gluggapósta,
ofna og ofnrör. „Rör upp við
vegg er unnt að mála með teppis-
bút. Bútnum er dýft í málning-
una, smeygt bak við rörið, tekið í
báða enda bútsins og hann dreg-
inn fram og aftur."
Vel er lýst hvernig maður ber
sig að við að flytja, þótt ekki séu
gefnar leiðbeiningar um hvernig
húsgögnum verði komið fyrir. En
þegar kemur að því að festa upp
myndir finnum við gagnlegar
upplýsingar um hvernig á að
negla nagla:
„Þegar mjög litlir naglar eru
negldir aukast líkur á að fíngurnir
verði fyrir höggi. Þetta vandamál
er hægt að leysa með því að stinga
naglanum í gegnum þykka
pappírs- eða kartonræmu og
halda í ræmuna meðan neglt er.
Einnig má notast við hárgreiðu
eða hárnælu með sama árangri.“
Þegar húsgögn eru komin á sinn
stað, myndir á nýmálaða veggi,
litríkar bómullarmottur til að
hylja verstu blettina á gólftepp-
inu, gluggatjöld fyrir gluggana og
reykskynjari í loftið, kaupum við
pottaplöntur til að hýrga íbúðina
ennþá betur. í bókinni eru
leiðbeiningar um meðhöndlun al-
gengustu jurta. Kaktusar, júkka,
ananas og ýmsir þykkblöðungar
þola til dæmis mikið sólskin og
eiga að þorna milli þess em þær
eru vökvaðar. Úrvals plöntur
fyrir fólk sem er heima á óreglu-
legum tímum.
Svo bjóðum við gestum í heim-
sókn þegar allt er orðið fínt.
Gestaboð
Við bjóðum bestu vinunum í
mat og verðum alls fjögur. í mat-
inn höfum við lauksúpu, kjötsósu
með spaghettí og heimatilbúinn
ís með þeyttum rjóma og súkku-
laðispæni. Uppskriftir að þessu
öllu eru í bókinni ásamt ótal holl-
ráðum varðandi matseld,
geymslu á mat og fleira. Til dæm-
is er kennt hvernig á að skera
lauk án þess að fara að skæla.
Maður getur annaðhvort skorið
hann inni í plastpoka eða sett upp
sundgleraugu. En byrjum að
elda.
Uppskriftirnar í bókinni eru
miðaðar við einn, en við marg-
földum léttilega með fjórum. í
lauksúpu handa fjórum þarf þá 2
matskeiðar af matarolíu, 4 stóra
lauka, lítra af vatni, 2 súputen-
inga, 2 teskeiðar af tómatkrafti,
hálfa teskeið af timian-kryddi, 4
franskbrauðsneiðar og 200
grömm af rifnum osti. Og aðferð-
in er þessi:
„Matarolíu er hellt í pott,
kveikt undir og olían látin hitna
vel. Söxuðum lauk er bætt út í og
mýktur í olíunni þar til hann
verður gullinn. Þá er vatni, súpu-
teningum, tómatkrafti og timian-
kryddi aukið við. Suðan er látin
koma upp. Á meðan eru
franskbrauðsneiðarnar ristaðar í
brauðrist og skornar í teninga.
Þegar súpan sýður er henni hellt í
eldfasta súpuskál eða eldfastan
pott. Ristuðu brauðteningunum
er stráð yfir yfirborð súpunnar og
rifna ostinum stráð ofan á tening-
ana. Þetta er bakað við 200
gráður C yfirhita í ofni í fimm
mínútur, eða þar til osturinn er
orðinn ljósbrúnn."
Uppskriftirnar að kjötsósunni
og spaghettíinu verðið þið að
margfalda sjálf, en uppskriftin að
ísnum nægir áreiðanlega fyrir
fjóra.
Ef eitthvað kemur fyrir meðan
á eldamennskunni stendur er
kafli í bókinni um slys á heimili.
Lítinn bruna má kæla undir bunu
úr krana, en stórbruna þarf að
kæla ofan í köldu vatni í minnst
hálftíma.
Gestirnir koma auðvitað með
afskorin blóm til að óska til ham-
ingju með nýja heimilið. Vel er
14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989
Langar þig að
flytja
að heiman?
Nokkur hollráð úr bókinni Mamma! Hvað á ég að gera?
kennt í bókinni hvernig á að fara
með þau til að þau lifi lengi.
Og ef einhver verður eftir þeg-
ar gestaboðinu er lokið eru gefin
góð ráð til að koma í veg fyrir
ótímabærar afleiðingar.
„Greindur notar gúmmí“.
Nýjabrumiö ffer aff
Þegar hvunndagurinn tekur
við eftir tilhlökkun flutninganna
má hafa gagn af bókinni áfram.
Hún kennir öll venjuleg heimilis-
störf, eldhúsverk, meðferð á
þvotti, viðgerðir á fatnaði og
hvernig maður nær blettum úr.
Einnig er ráðlagt að halda
heimilisbókhald til að hafa betri
yfirsýn yfir útgjöld heimilisins.
Þá færum við inn í bók hvað fer í
mat, hvað í reikninga fyrir raf-
magn, hita, síma, blöð, útvarp,
tryggingar; hvað í föt,
skemmtanir, afborganir af lán-
um, húsgjald og síðast en ekki síst
- leigu.
Allt er þetta kostnaðarsamt,
en þegar þið eruð alveg að gefast
upp skuluð þið minnast þess að
þið eruð ekki fyrsta fólkið sem
stendur í þessu basli. Ótal kyn-
slóðir hafa flutt að heiman á
undan ykkur, en til dæmis gömlu
ævintýrin sýna að mönnum hefur
ævinlega þótt þetta erfitt. Sjáið
bara Hans og Grétu, það var ekki
efnilegur leigusali sem þau lentu
hjá.
Boðskapurinn til þeirra sem
trúa ekki að þetta sé hægt er loka-
kafli bókarinnar:
„Flutt aftur heim? Margvísleg-
ar ástæður geta valdið því að
maður gefist upp á eigin búskap
og flytji heim í foreldrahús að
nýju. Fólk er engu að síður hvatt
til að gefast ekki upp við minnsta
andstreymi. Vitanlega krefst það
átaks að flytja að heiman, en
þetta er erfiðast fyrst. Með tím-
anum venst fólk á að lifa lífinu á
eigin forsendum. Það er notalegt
að geta tamið sér lifnaðarhætti
óháð venjum eða reglum ann-
arra, jafnvel þótt það kosti pen-
inga, svita og einstaka tár.“