Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 20
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
BARNAKOM PAN
Þjódsögur
og
ævintýri
Yfirleitt verða þjóðsögur
til sem munnmælasögur
og eru síðan skráðar í bók.
Munnmælasögur eru
sögur sem fólk segir hvert
öðru og þannig er sagan
geymd í minni þeirra sem
segjahana. Stundum bæta
sögumenn við sögurnar og
þannig breytast þær oft frá
upprunalegu frásögninni.
Þjóðsögur eru sögur sem
þjóðin segir. Síðan hafa
menn tekið sig til og safnað
sögunum í bækur sem ger-
ir sögurnar eilífar og
óbreytanlegar. Á fjörur
Barnakompunnar rak
þjóðsagnahefti frá ellefu
ára krökkum í Æfingaskól-
anum. Þessar sögur höfðu
þeir samið og skráð þannig
að þar eru þjóðsögur sem
sagðar eru af þeim sem
best þekkja þær, höfu-
ndunum sjálfum. Við ætl-
um að kíkja í ævintýra-
heiminn hjá krökkunum og
birtum í dag tvær sögur
sem gerast á ólíkum stöð-
um.
Draugurinn í Kringlunni
Einu sinni var maður sem átti þrjá syni. Dag
einn fór yngsti sonurinn til bæjarins til að kaupa í
matinn í Kringlunni. Karlinn og elstu drengirnir
sem hétu Malti og Palti voru heima. Pabbinn var
veikur og dó og varð að draugi. Pabbinn vissi
ekki að hann væri orðinn að draugi. Hann fór út í
Kringlu að gá að syni sínum sem hét Birgir. Hann
var sá eini sem sá pabba sinn. Þeir fóru að
kaupa föt á pabbann. Fólkið varð svo hissa á því
að Birgir var að klæða ósýnilegan mann í föt.
Svo komu þeir heim og allt var svo kyrrt og hljótt
og inn fóru þeir og sáu Malta og Palta gráta.
Álfurinn
Siggi
Ég heiti Siggi álfur og bý í Vestmannaeyjum.
Þar er mjög gaman að vera nema á veturna þá er
svo kalt. En á ég að segja ykkur eitt. í fyrra þá var
ég að elda mat og skildi hann eftir í smá tíma.
Þegar ég kom aftur var búið að borða hann og
vitið þið? Ég veit hver borðaði matinn. Það var
tröll, ég veit hvað hann heitir. Hann heitir Fúsi.
Asnalegt nafn á trölli er það ekki? Hann býr í helli
og hann þvær sér aldrei. Það er ógeðsleg fýla af
Pabbinn kom til þeirra og spurði af hverju þeir
væru að gráta.
- Ertu ekki dáinn?
- Ég veit það ekki.
- Sjáðu þú ert þarna líka, sagði Birgir.
- Ég er þá dáinn og er þá draugur, sagði pabb-
inn.
- Ekki vera hræddir.
- Ætlar þú í gröfina eða vera hjá okkur? spurðu
strákarnir.
- Vera hjá ykkur og þú ferð alltaf út í búð með
mér Birgir. Guðrún Ása Jóhannsdóttir 11 ára
honum. Það er hægt að þekkja hann úr mílufjar-
lægð. Svo er hann mesti óþokki í
Vestmannaeyjum, allir hræðast hann, líka ég.
En þegar Þór kemur með Mjölni þá verður hann
hræddur svo hann felur sig og þá hlæja allir hátt.
Olafur Jónsson 11 ára
Hver felur sig í þessari mynd?
Litaðu 1 grænt, 2 rautt 3 svart, 4 blátt og 5 gult. I I M
20 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989 L L
Pappírsföndur
Til þess aö búa til pappírshesta þarftu stífan pappír. Þú færö
efni í þrjá hesta úr einu A-4 blaði því allt sem þú þarft eru tveir
renningar 30 sm. langir og 3 sm. breiðir. Síðan brýtur þú þá
saman eins og myndirnir sýna, límir hestinn saman á réttum
stöðum, setur á hann fax, tagl, augu og reiðtygi og þá er ekkert
eftir nema setjast á bak.
©
<3>
<£>