Þjóðviljinn - 20.01.1989, Page 26
r~ z 3 £T (? 7- 8 7 )0 )l S' 9 2
)Z I3> )0 <7 7 )3 j 7 T~ )Ý >s 7 Ý
? /? 2 9 !S fí )4 ZD y )0 1 (d 7 2i II
22 S? 23 Zl 2.1 Z'D 7 F zo )D 7 )b ) )Z
2Y 12. )7- 7 Zi II zs 7 20 2 2? 7
JZ Zo W zo 7 Zo )? Z‘ö Ý T~ 7 )0 u> 7
7 íf >Z Z<i 7 )(* fí 7 fí 29 X 7 )Z
5~ 7 )0 )Z zo 1 7 29 1? 9" )Z 7 50
w~ 20 fí fí $ 7 )Id Y- 10 7 fí /3 22 7
zo )Z 7 ZG )Z Zo ze 7 ? s~ 9 7 S~ 2?
sr 7 ZÍH 7T~ )sr 7 J z 3 )7 Ý V- 7 n 9
7 T~~ nÐ lv 7 V ZPT )2 2o 7 A' )b 10 9 /2
Zb 29 'F 7 3>Z 2S 4 <?■ 32 6 zo )Z Á0 )? 7
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunakrossgáta Nr. 27
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmanns-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 27“. Skilafrestur er þrjár
vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Lausnarorðið fyrir krossgátu nr. 24 var INGVELDUR. Dregið var úr
réttum lausnum og upp kom nafn SigurðarS. Sigurðssonar, Fossheiði
15, Selfossi. Hann fær senda bókina Á miðjum vegi í mannsaldur,
Ólafs sögu Ketilssonar, eftir Guðmund Daníelsson.
s á> )S 2! 2Y )2
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 27 er
bókin Steinaríkið eftir Dr. R.F.
Symes í þýðingu þeirra Ara
Trausta Guðmundssonar og
Halldórs Kjartanssonar. Vaka-
Helgafell gaf út.
SASÍMÍ, hrátt fiskmeti að japönskum sið
Japanskir fiskmatsmenn, sem
koma til íslands til að fylgjast
með fiskveiðum íslendinga og
fiskverkun fyrir Japansmarkað,
koma íslendingum oft á óvart
með því að stinga upp í sig lifandi
rækju eða hráum fiskbitum. Jap-
anar eru hins vegar undrandi á
því að íslendingar skuli ekki
borða slíkt lostæti. Sasímí, það er
hrár fiskur af ýmsum tegundum,
er uppáhaldsmatur flestra Jap-
ana, og alls staðar í Japan er að
finna fjölda veitingahúsa sem sér-
hæfa sig í hráu fiskmeti. Þótt
margar þeirra fisktegunda, sem
Japanar nota til að búa til sasími,
séu ekki til við ísland eru ýmsar
íslenskar fisktegundir ágætar í sa-
símí. Það er best á sumrin og
haustin þegar fiskurinn er feitur.
Sasímí
Tvö til þrjú hundruð grömm af
blönduðu fiskmeti á mann.
Eftirfarandi fisktegundir eru
góðar í sasímí en óþarft er að bera
þær allar fram í einu. Fiskurinn
verður að vera glænýr, helst enn-
þá spriklandi.
Karfi, smálúða, skötuselur, út-
hafsrækja, humar, ýsa og Iax sem
hefur verið frystur þar sem hættu-
legt getur verið að borða hráan
lax án þess að frysta hann fyrst.
hálf agúrka
ein til tvær gulrætur
riiin engiferrót
nokkrar radísur
og kínversk radísa ef hún fæst
(Yfirleitt nota Japanar grænt
sterkt krydd sem heitir wasabi
með hráum fiski, en þar sem það
er ekki fáanlegt hér á landi enn
sem komið er verður að notast við
rifna engiferrót eða rifnar radís-
ur.)
Skerið agúrkuna, gulræturnar
og kinversku radísuna í örmjóar
lengjur, sjö til átta sentimetra
langar. Það getur verið ágætt að
skola þær síðan í vatni.
Hreinsið rækjurnar og takið
skelina af. Flakið fiskinn og roð-
flettið, kljúfið flakið endilangt og
skerið síðan um sentimetra þykka
bita þvert á vöðvann (örlítið hall-
andi en þó ekki með eins miklum
halla og þegar reyktur lax er
skorinn). Bitarnir eiga gjarnan
að vera um fjögurra eða fímm
sentimetra langir svo að þægilegt
sé að stinga þeim upp í sig með
matarprjónum.
Raðið fískinum og skorna
grænmetinu á disk eða fat og
leggið hann á borð. Hellið örlítilli
soyasósu á litla diska eða undir-
skálar hjá hverjum matargesti,
blandið síðan þegar byrjað er að
borða smávegis af rifinni engif-
errót og/eða rifnum radísum (ef
wasabi er ófáanlegt) við soyasós-
una. Notið svo matarprjóna til að
borða og dýfið fískbitunum og
grænmetinu í soyasósuna með
engiferrótinni.
Heitt japanskt sake á einstak-
lega vel við með þessum mat og að
sjálfsögðu má ekki gleyma hris-
grjónunum.
DRAUMSTAFIR
Draumur Andrésar
Mig dreymdi að ég var á sam-
komustað, sem ég þekkti ekki.
Þar var saman kominn hópur, um
20 manns, flest karlar og þekkti
ég engan þeirra. Þá kom til mín
gamall kunningi minn (hann var
dáinn fyrir 2-3 árum), hann segir
við mig: „Farðu sem allra fyrst
héðan ef þú vilt lífi halda. Þetta
eru nasistar sem sitja um líf þitt.“
Lengra varð samtalið ekki, en ég
fór strax að reyna að forðast
þennan hóp, en fann að nokkrir
veittu mér eftirför, og eltu mig
hvert sem ég fór. Loks komst ég
út úr húsinu, þar sá ég nálægt
nokkuð hátt fjall og þaut þar upp.
Sá ég þá að smá hópur manna var
kominn áleiðis upp í mitt fjall.
Ekki fannst mér unnt að bíða
þeirra. Sá ég þá að fyrir neðan
fjallið gekk fjörður inn í landið
(frá sjó) og held ég að ég sjái •
þarna einu leiðina til bjargar. Þýt
ég nú niður af fjallinu og að þess-
um firði, og ég steypi mér þegar
til sunds í fjörðinn. Þegar ég var
kominn yfir sá ég að hópur
manna var á hinum bakkanum,
og bjóst ég ekki við að þeir færu
að synda yfir. Þrátt fyrir það þótt-
ist ég viss um að ég væri ekki laus
við þá að fullu, eða endanlega.
Þeir dreymendur sem vilja fá drauma sína ráðna sendi
, þá ásamt fullu nafni, heimilisfangi og dulnafni til
KRISTJAN blaðsins merkt: Draumstafir, Nýtt helgarblað, Þjóð-
viljinn, Síðumúla 6, 1Q8 Reykjavík.
Seiður þess sem var.
eru illu andarnir sem reyna sitt
versta til að flækja málin, rugla
rímið og eyða því sem hægt er.
Sögur og ævintýri verða oft til úr
þessum draummyndum góðs og
ills, eins og dæmin sanna.
Grimms ævintýri eru uppfull af
púkum og pamfflum. „Drengur-
inn sem kunni ekki að hræðast“,
„Púkarnir sjö“ og fleiri sögur eru
umskapaðir draumar Grimms
bræðra, af samskiptum þeirra við
andaheiminn. Draumur þinn
Andrés er eins og saga úr ævin-
týrabók, hann fjallar um baráttu
illra og góðra anda yfir lífsvegi
þínum. Það virðist eins og heldur
hafi hallað á neikvæðu hliðina á
tímabili í lífi þínu, og af þeim
sökum hafir þú misst einn kæran
streng úr tiörpu þinni. Þessi
ófarnaður virðist hafa haft það í
för með sér að nú sértu á ein-
hverjum á stað án þíns vilja, með-
al fólks sem þér er lítt gefið um,
en þú færð litlu um ráðið. Tíma-
mót eru í nánd, þér býðst færi á
nýrri leið. Þú losnar úr viðjum og
ferð nú að njóta þeirra ávaxta
sem þú hefur orðið að dylja svo
lengi.
Rádning
Ef rétt er sem trúin segir, eru
andar, góðir og illir, hér á sveimi
okkur um kring. Andar sem vilja
okkur vel og reyna sitt besta til að
greiða götu okkar í þessu lífi. Svo
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989