Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 30
Mokka v/ Skólavörðustíg, Rikey
Ingimundardóttir sýnir um óákv
tíma.
Gallerí Gangskör, opið þd.-fd.
12-18, verk Gangskörunga til sýnis
og sölu.
MYNDLIST
TÓNLIST
„Birta“ - Vatnslitamyndir Kristínar
Þorkelsdóttur í Nýhöfn, Hafnar-
stræti, hefst ld., opið virka 10-18,
helgar 14-18. Stendur til 8.2.
I ngileif Thorlacius sýnir málverk í
Ásmundarsal, opið 14-20, síðasta
sýningarhelgi.
Ljóðatónleikar Margrétar Bóas-
dóttur í Listasafni Sigurjóns á
Laugarnesi Id. 17.00, undirl. Step-
han Kaller.
Einlýsingar. GuðmundurThor-
oddsen sýnir vatnslitamyndir í
Nýlistasafninu,16-20virka, 14-20
helgar. Til 29.1.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6,
samsýning.oftskiptum, 12-18
virka, 14-18helgar.
Gallerí List, nýjar myndir og ker-
amik, 10-18 virka, 10.30-14
laugard.
Gal er í Sál, T ryggvagötu 18, sýn-
ing T ryggva Gunnars Hansens,
17-21 daglega.
Listasafn Einars Jónssonar, lok-
að des. og jan. Höggmyndagarður-
inn opinn daglega 11-17.
Gallerí Borg: grafík, leir, glerog
olía eftir ótal listamanna til sölu.
Listasafn íslands. Salur 1: Jón
Stefánsson, Jóhannes Kjarval,
Gunnlaugur Scheving. Salur 2:
Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur
Jónsson. Aðrirsalir: Nýaðföng.
Leiðsögn sd. 15.00. Opið nema
md. 11-17.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
á Laugarnesi, 50 verk Sigurjóns,
14-17 um helgar. Söngur Margrét-
ar Bóasdóttur Id. 17.00.
Norrænn þriæringur í veflist Kjar-
valsstöðum, 81 verk e. 64 lista-
menn þar af 4 ísl. Opið 11-18, lýkur
sd.
SPRON, Álfabakka 14, Breiðholti,
damaskmyndvefnaður Sigríðar Jó-
hannsdóttur og Leifs Breiðfjörð til
27.1. mánu- til fimmtud. 9.15-16,
föstud.9.15-18.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, þjóðsagna- og
ævintýramyndir Asgríms til febrúar-
loka, sunnu-, þriðju-, fimmtu- og
laugard. 13.10-16.
Helgi Björnsson og Hanna María
Karlsdóttir í Maraþondansinum á
Broadway. Mynd: Jim Smart.
Hvað á að gera um helgina
Hallveig Thorlacius
Ég verð önnum kafin við að leika Theodóru Thoroddsen í sýningu
Leikfélags Skagfirðinga á Uppreisninni á ísafirði í Varmahlíð. Við
leikum bæði á laugardagskvöld kl. 9 og sunnudag kl. 3, en því miður
eru þetta síðustu sýningar. Þetta hefur gengið alveg stórkostlega og ég
kem til með að sakna Theodóru sárt. í>að er ekki vegna þess að
aðsóknin sé að minnka sem við erum að hætta, hún hefur verið
gríðarlega mikil, en leikararnir eru allir svo önnum kafnir að við
neyðumst til að setja punkt.
Ekki verður helgin eintómt strit því á laugardagskvöldið ætla leikar-
ar og aðrir aðstandendur sýningarinnar að borða saman eftir sýningu.
SA
Finnska sópransöngkonan Soile
Isokoski syngur Ijóð i Óperunni Id.
14.30, undirl. Marita Viitesalo.
Tónlistarfélagið.
Kammersveit Reykjavíkursd.
16.00 Óperunni. Signý Sæmunds-
dóttir syngur, með píanói og níu m.
hljómsv., verk eftir Saint-Saéns,
Fauré, Ravel, Franck.
LEIKLIST
Sjang-Eng í Iðnó föd. 20.00, sd.
20.00.
Allt í misgripum, Leikfélag Hafn-
arfjarðar í Bæjarbíói, Id. 20.30.
Sveitasinfónían í Iðnó Id. 20.30.
Fjalla-Eyvindur og kona hans,
Þjóðleikhúsi föd. 20.00.
Ævintýri Hoffmanns, Þjóðleikhúsi
Id, sd. 20.00.
Koss kóngulóarkonunnar í Al-
þýðuleikhúsinu, kjallara Hlaðvarp-
ansföd.Jd. 20.30.
Maraþondansinn í Broadway Id.
20.30.
Uppreisnin á ísafirði, Leikfélag
Skagfirðinga, Id. 21.00, sd. 15.00,
Varmahlíð.
HITT OG ÞETTA
Á rauðu Ijósi - Jón Baldvin og
Ólafur Ragnar með fundi í Sindra-
bæ Höfn í Hornafirði föd. 20.30, Eg-
ilsbúð Neskaupstað Id. 14.00, Al-
þýðuhúsinu Akureyri sd. 14.00,
Hótel Höfn Siglufirði sd. 20.30.
MÍR-bíó Vatnsstíg 10sd. 16.00,
„Bréf látins manns", ný mynd og
umtöluð um kjarnorkuvetur eftir
gereyðingarstríð, enskt tal.
Okeypis inn.
Félag eldri borgara, opið hús í
Tónabæ laugard. frá 13.30, dan-
skennsla 14.30-17.30 (ath. breytt),
20.30 diskótek. Opið hús sd. í Goð-
heimum, Sigtúni 3, spjall, spil og tafl
frá 14, dansað 20-23.30. Opið hús í
Tónabæ mánud. frá 13.30, félag-
svistfrá 14.00.
Laugardagsganga Hana nú, lagt
af staö 10.00 frá Digranesvegi 12.
Samvera, súrefni, hreyfing.
Ferðafélagið, sd. 13.00, Vífilsstað-
avatn - Vífilsstaðahlíð, 2-3 tíma
ganga, 300 kr. (frítt undir 15), brott-
för austanvið Umfmst.
Útivist, tunglskinsganga sunnan
Hafnarfjarðar Id. 20.00, brottför
vestanvið Umfmst., við sjóminjas.
og kirkjug. í Hfirði, 400 kr. Land-
námsganga ‘89 sd. 13.00
Elliðabrýr-Blikastaðakró, farið frá
Grófartorgi (Vesturgötu 2-4), Páll
Líndal segirfrá.
Ljósmyndasýning í tækjasal
Heilsustúdíósins Skeifunni 19,
myndir af vaxtarræktarfólki. Opnað
sd.,opið 14—17sd., 12—16 ld., 8-22
virka.
Borgfirðingafélaglð, -félagsvist
sd. 14.00, aðalfundureftirspil,
Skipholti 50a.
Tíno Constantinou hárgreiðslu-
meistari sýnir á Hótel Borg sd. frá
14.00.
Víkingar í Jórvík og Austurvegi í
Norræna húsinu og Þjóðminjasafni
hefst ld.Stendurtil3.4. DavidWil-
son frá British Museum talar um
víkinga á Mön og í Kúmbríu NH Id.
17.15, Helge Ingstad fornlfr. talar
um víkinga í Ameríku NH sd. 17.00.
Víkingamatur í kaffiteríu NH.
Lífshamingja og lifibrauð: Vandi
velmegunarsamfélaggs. Ráð-
stefnaá vegumSUJ, Hótel Borg Id.
14-17. Frmsm.: HörðurBergmann,
Jón Sigurðsson, Magnús Skúla-
son, Skúli G. Johnsen.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. Evrópukeppni
meistaraliða, kvenna, Höllin, föd.
20.00 og sd. 20.00 Fram-Spartak
Kiev.2.d.ka.sd. 14.00 ÍH-ÍR,
21.15, Grótta-Þróttur, 1 .d.kv. sd.
15.15 FH-Stjarnan, 15.15 ÍBV-Þór
Karfa. Akureyri sd. 20.00 Þór-ÍBK
Grindavík sd. 20.00 UMFG-KR
Hlíðarendi sd. 20.00 Valur-UMFT
Kennarahásk. sd. 20.00 (S-Haukar
Njarðvíkkl.20.00UMFN-ÍR
Frjálsar, meistaramót innanhúss.
Höllin Id. hástökk ka. 11.20,11.40
800mka.,kv.,sd. 13.301500 m
ka., hástökk kv. Baldurshagi Id.
13.30 50 m ka., kv., langstökk ka.,
sd. 10.0050 m gr. ka.,kv., þríst. ka.,
langst. kv., Reiðhöllin Id. 11.20 kúl-
uv.ka.,kv.
FJÖLMIÐLAR^^I HARAiDSSON
Fréttir úr stríðinu
Blaðamaðurinn í mér skemmti
sér vel yfir myndinni sem sjón-
varpið sýndi á mánudaginn og
gerð var eftir sögu enska skálds-
ins Evelyn Waugh. Ævintýri
draumlynda sveitamannsins í
hinu stríðshrjáða ríki Ishmaelíu
voru kostuleg og ekki síður grínið
sem haft var uppi um stjórnendur
hinnar daglegu Skepnu.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim
kvikmyndum þar sem hlutverk
stríðsfréttamannsins er hafið upp
til skýjanna. Samkvæmt þeim eru
þar á ferð miklar hetjur sem
leggja líf sitt í hættu oft á dag.
Veruleikinn er að ég held dálítið
öðruvísi. Mér skilst að blaða-
menn í stríðshrjáðum löndum
eyði mestum tíma á börum hótela
og fyigist þar hver með öðrum
eins og í myndinni á mánudaginn.
Af og til komast þeir kannski í
hann krappan en oftar en ekki er
lífsháskinn blásinn dálítið út.
í myndinni var einnig bent á
hversu tilviljanakennt það getur
verið hvað kemst í fréttir og hvað
ekki. Söguhetjan í myndinni
komst fyrir tilviljun í kynni við
fólk sem stóð nærri atburðarás-
inni og skildi hana betur en
samanlagt blaðamannastóðið á
barnum. Fyrir vikið gat hann sent
hverja heimsfréttina á fætur ann-
arri heim til Lundúna.
Og að sjálfsögðu var einnig
bent á það hvernig blaðamenn
geta orðið leiksoppar valda-
manna sem þurfa á aðstoð þeirra
að halda við að móta atburðarás-
ina. Sumar fréttir draumlynda
sveitamannsins voru samdar af
hinum alþjóðlega auðmanni sem
einnig hafði lagt sitt af mörkum
til að breyta valdahlutföllunum
sér í hag.
Þetta beindi huganum að grein
eftir Agnesi Bragadóttur blaða-
mann í Morgunblaðinu síðasta
sunnudag. Agnes skrifar þar fast-
an pistil um stjórnmálaviðburði
vikunnar og í næsta sunnudags-
blaði á undan hafði hún birt frétt
um að Óla Þ. Guðbjartssyni þing-
manni Borgaraflokksins á Suður-
landi hefði verið boðið fyrsta sæti
á framboðslista Alþýðuflokksins
í kjördæminu ef hann vildi ganga
í flokkinn og styðja ríkisstjórn-
ina. Alla vikuna linnti ekki látun-
um út af þessari frétt því allir sem
með einhverju móti töldu sér
málið skylt hömuðust við að bera
hana til baka.
Um síðustu helgi segir Agnes
okkur undan og ofan af því
hvemig þessi frétt hafi orðið til og
fjallar í leiðinni um sígildan
vanda fréttamannsins: samband
hans við heimildarmenn. Hún
klykkir út með þeirri ábendingu
að „verði heimildarmaður uppvís
að því að misnota samstarf sitt við
fréttamanninn, með því t.d. að
mata hann á röngum upplýsing-
um eða afvegaleiða, hefur orðið
trúnaðarbrestur, sem ekki verður
bættur, að minnsta kosti ekki um
langa hríð.“ Og taki nú sá til sín
sneiðina sem á hana.
Það sem mér fannst hins vegar
athyglisvert við þessa frétt Agn-
esar var meðferð Morgunblaðs-
ins á henni. Ekki þótti nóg að gert
að birta hana í pistli Agnesar á
bls. 6 heldur var henni einnig
slegið upp á baksíðu blaðsins.
Morgunblaðið hefur átt við
nokkurn tilvistarvanda að glíma
að undanförnu. Blaðið hefur
haldið uppi æ háværari sjálfstæð-
isbaráttu gegn forystu Sjálfstæð-
isflokksins og leitast við að sinna
heiðarlegri fréttamennsku sem
ekki tekur mið af því hverjir
verma ráðherrastóiana hverju
sinni. Þessi viðleitni hefur borið
töluverðan árangur, til dæmis var
blaðið ekkert sérlega stjórnar-
hollt meðan Þorsteinn Pálsson
var forsætisráðherra og eftir að
hann lét af því starfi hefur blaðið
sjaldan dottið ofan í heiftina og
móðursýkina sem svo oft hefur
einkennt fréttaflutning Moggans
í stjórnarandstöðu.
En þegar Agnes kom með
fréttina um Óla Þ. og tilboð krat-
anna var freistingin of stór. Með
henni var hægt að koma höggi á
tvo svikara í einu. Fyrir vikið
komst fréttin á aðalfréttasíðu
blaðsins sem vill telja sig virtasta
fréttamiðil landsins. I öðrum
blöðum hefði hún sennilega
hvergi náð lengra en í slúðurdálk-
ana.
Svona getur nú sauðargæran
verið vandmeðfarið plagg. Ég
vona hins vegar í einlægni að
Mogginn láti ekki af viðleitni
sinni til að skrifa fréttir sem ekki
eru pantaðar af skrifstofunum í
Valhöll.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989