Þjóðviljinn - 27.01.1989, Side 11
Danski teiknarinn
Herluf Bidstrup látinn
Danski teiknarinn Herluf
Bidstrup lést á annan í jólum,
fyrir mánuði, 76 ára að aldri.
Bidstrup teiknaði skopmyndir
í Social-Demokraten, Frit Dan-
mark, og - lengst af - í Land og
Folk, og birti Þjóðviljinn tíðum
teikningar hans, sem meðal ann-
ars voru fastur þáttur sunnu-
dagsblaðs á sjöunda áratugnum.
Pólitísk afstaða Bidstrups kom
vel fram í teiknuðum athuga-
semdum hans við atburði líðandi
stundar, - hann var félagi í dan-
ska kommúnistaflokknum, og
fjalla ófáar teikningar hans um
samskipti verkalýðs við burgeisa
ýmsa, um yfirgang stórvelda
gagnvart minnimáttarríkjum, -
eða baráttu almennings við
„kerfið", því Bidstrup hafði ekki
síður auga fyrir kímni í daglega
lífinu og átti þá ýmsa strengi í
hörpu sinni, iðulega gráglettinn
en beitti þó enn oftar góðlátlegu
gríni sem lýsti hlýjum skilningi
hans á mannlegu eðli.
Þrátt fyrir hátækni í fjar-
skiptum og harðasamgöngum nú-
tímans hendir það ennþá að tíð-
indi berast yfir Atlantsála með
göngulagi liðinna alda, en þótt
seint sé vill Þjóðviljinn sam-
hryggjast aðstandendum Bid-
strups, og birtir hér í minningar-
skyni nokkrar af hinum frægu
myndröðum teiknarans.
/S
'fhÐft
Mltu r V
flr & U I K 1
'v
frtí
A :T, c f oX kAR, t
FLÖSKUSKEYTI
Meistarahrotur
Kanadamaðurinn Mark Hebb-
ard er mikill meistari í að skera
hrúta og vonast hann til þess að
komast í Heimsmetabók Guinn-
ess sem hávaðasamasti hrjótandi
veraldar. Hljóðstyrkurinn í hrot-
um meistarans mældist 90 desibil
í háskólanum í Bresku Kólumb-
íu. Mesti hávaði sem leyfður er á
vinnustöðum er 70 desibil og há-
vaðinn í mótorsög mælist um 110
desibil. Hebbard fór í fínstilling-
Fitandi
tónlist
Kjúklingar vaxa hraðar hlusti
þeir á klassíska tónlist og verða
feitari en félagar þeirra sem ekki
fá jafn menningarlegt uppeldi.
Rannsóknir sýna að kjúklingar
sem hlusta daglega á ljúfa tóna
verða um 4 prósentum feitari en
venjulegir kjúklingar.
Fórnarlamb
araðgerð á raddböndunum á síð-
asta ári. Þvf má svo bæta við að
eiginkona hans, sem hann hefur
verið giftur í 15 ár, er orðin
heyrnalaus á hægra eyra.
eyðni
Brunaliðsmaður í Los Angeles
í Bandaríkjunum hefur fengið
rúmar fjórar miljónir í skaðabæt-
ur fyrir að hafa veitt eyðnisjúk-
ling neyðarhjálp með munn við
munn aðferðinni. Hann fékk þó
ekki skaðabætur vegna þess að
hann hafi smitast af sjúklingnum
heldur vegna þess að hann var
lagður í einelti af vinnufélögum
sínum og að lokum hrakinn úr
starfi.
Zenith
12x Preflex
35 mm, kr.
5.900,-
Linsur!
margar gerðir.
SKIPHOLTI 7 i SlMAR 20080 « 26800
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11