Þjóðviljinn - 27.01.1989, Qupperneq 27
KYNLIF
/ “S"*Í£
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Hvao er ást?
Ást er sú tilfinning sem við
tengjum oft kynlífi en erfitt er að
skilgreina. Ef unglingur spyrði
fullorðinn að því hvað ást væri,
yrði svarið oft á þessa leið: „t>að
er eitthvað sem erfitt er að út-
skýra en þú veist það þegar þú
upplifir hana.“
Draumaprinsar og
prinsessur
Grikkir til forna töluðu um
fjórar mismunandi tegundir ást-
ar: Eros, Agape, Philia og Stor-
ge. Eros er þessi „blinda“ ást þar
sem maður er ástfanginn. Eros er
rómantíska ástin þar sem maður
lítur framhjá öllum göllum vegna
blindunnar. Þráin til að öðlast al-
gjöran líkamlegan og tilfinninga-
legan samruna er mikil og þekkist
til dæmis hjá pörum sem vilja
klæða sig alveg eins, borða sama
mat, vera alltaf í návist hins og
vilja vita allt um hvort annað.
Maðurfær sinn ástvin „á heilann"
og sér ekkert og hugsar um ekk-
ert nema hann eða hana. Slík
eros ást þekkist hjá fólki sem hef-
ur nýlega kynnst og er í tilhugalíf-
inu - þetta er sko draumaprins/
prinsessan mín! í því sambandi
finnst mér athyglisverð sú skoðun
að eros ást sé nauðsynleg í byrjun
sambanda svo fólk, sem er annars
svo ólíkt, geti laðast að og kynnst
hvort öðru. En blind eros ást
leiðir ekki alltaf góða hluti af sér.
Sumir sem eru í eros „ástandi"
kjósa frekar að láta sér líða illa
með sínum heittelskaða en að
vera aðskilin. Það má segja að
þetta sé öfgahlið eros ástarinnar.
Agape er ást þar sem einstak-
lingur fórnar sér á óeigingjarnan
hátt fyrir aðra, næstum svo mikið
að það mætti túlka atferli hjá slík-
um einstaklingi sem masókist-
ískt. Ástin alltaf til staðar í gegn-
um þykkt og þunnt. Þetta er
strákurinn sem aðstoðar kærust-
una sína ef hún er ófrísk eftir ann-
an þegar hún hélt framhjá eða
eiginkonan sem hvað eftir annað
fyrirgefur atferli manns síns sem
er forfallinn alki. Þolinmæðin í
agape ást er hreint ótrúleg eins og
það að bíða í tuttugu ár eftir að
maki losni úr fangelsi. Fórnfýsi er
annað nafn á agape ást.
Ekki festast við mig
Philia er vináttuást og ekki eins
líkamleg og hinar „ástartegund-
irnar“. Eros elskendur standa á
móti hvor öðrum og dáleiða hvor
annan, en philia vinir standa hlið
við hlið hugfangnir af sama áhug-
asviði. Sumum pörum tekst að
sameina philia og eros ást. Þann-
ig tekst þeim að halda vissu
jafnvægi í samrunaþörfinni og
einstaklingsþörfinni. Eftirfar-
andi vísukorn er um þetta:
Viltu faðma mig öðru hvoru
við erum eitt, ekki tvö.
En ekki festast við mig
við erum tvö, ekki eitt.
Storge er ást sem líkist mest
væntumþykju eða kærleik. Sú ást
sem foreldrar bera til bama sinna
er þannig ást. Storge ást er af-
slöppuð, væntir ekki mikils,
áhersla er lögð á persónulegan
þroska og gagnkvæman stuðning.
Storge elskendur eru eins og góð-
ir vinir sem hafa lært að upplifa
nánd og innileik með tímanum. í
byrjun sambands er kynferðis-
legur áhugi lítill en vex með tím-
anum. Samskiptum storge pars
má líkja við samskipti systkina.
Þó þau rífist er það ekki merki
um að þau elski ekki hvort ann-
að.
Af þessu má sjá að hægt er að
elska á mismunandi vegu og er
ein tegund ástar ekki réttari eða
betri en önnur. Er ekki alveg eins
hægt að hafa mismunandi „ástar-
stíla“ eins og talað er um að hafa
mismunandi stj órnunarstíla?!
Meira um það í næstu viku.
Eflesendur hafa áhuga á að fásvör við ýmsum spurningum varðandi
kynlíf geta þeir sent bréf undir dulnefni. Bréfið skal merkt: Kynlíf
JVýtt Helgarblað, Þjóðviljinn, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
Sævar efstur á Skákþinginu
Þegar átta umferðum af ellefu
er lokið á Skákþingi Reykjavíkur
er Sævar Bjarnason efstur með
sjö vinninga. í öðru sæti er Ró-
bert Harðarson með sex og hálf-
an vinning. Næstu menn eru með
sex vinninga og eru þeir: Snorri
G. Bergsson, Bjarni Magnússon
og Andri Áss Grétarsson en hann
á óteflda skák við Þröst Þórhalls-
son til góða. Þröstur lúrir einmitt
á eftir þessum mönnum ásamt
fleirum, með fimm og hálfan
vinning, og má þar nefna Hannes
Hlífar Stefánsson, Sigurð Daða
Sigfússon, Jón G. Viðarsson, Da-
víð Ólafsson, Áskel Örn Kárason
og Dan Hansson sem á biðskák til
góða.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er þingið mjög vel
skipað að þessu sinni og eru þó
margir kunnir meistarar sem hafa
færri vinninga. Alls munu vera
tuttugu skákmenn með 2000 stig
eða meira, og eru það gleðileg
tíðindi því oft vill bregða við að
sterkir skákmenn hundsi hið
svokallaða Monrad-kerfi sem
notað er við niðurröðun.
Það má gera ráð fyrir að barátt-
an um efsta sæti eigi eftir að
harðna verulega í síðustu um-
ferðunum þó að ljóst sé að Sævar
gefi ekkert eftir enda virðist hann
vera í góðu formi, vann t.a.m.
Hannes Hlífar næsta létt í átt-
undu umferð. Teflt verður í
kvöld, sunnudag og miðvikudag
og hvet ég áhugamenn til að fylgj-
ast nú grannt með framvindu
mála.
Wijk aan Zee
Hið árlega mót í Sjávarvík í
Hollandi er nú hafið og hafa mér
borist úrslit úr fyrstu fjórum um-
ferðunum. Staðan að þeim lokn-
Sævar trónír á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir.
virðist vera í miklu stuði en hann
hefur lítið fengi að tefla á Vestur-
löndum þrátt fyrir ágætis árangur
heimafyrir. Hann er fæddur árið
1944 og kemur frá Omsk í Síber-
íu. Skákir hans eru fjörugar og
hann hefur hvassan sóknarstfl.
Ég læt fylgja hér skák hans við
Indverjann unga, Anand. Þar
beitir Tjeskovskij sjaldgæfu af-
brigði í Spánska ieiknum senni-
lega til að rugla andstæðinginn í
ríminu enda tekur Anand
yfirborðslega á vandamálum
stöðunnar. Eftir skemmtilega
um er sú að Tjeskovskij er efstur
með þrjá og hálfan vinning.
Næstir koma Anand, Benjamin,
Ribli, Sax og Douven meðtvo og
hálfan. Með tvo eru I. Sokolov og
Vaganjan og neðar menn á borð
við Miles, Nikolic og Van der
Wiel en alls eru keppendur fjóft-
án.
Sovétmaðurinn Tjeskovskij
peðsfórn tekst Tjeskovskij síðan
að nýta biskupaparið til
fullnustu.
Hvítt: Anand
Svart: Tjeskovskij
Spánski leikurinn
1. e4-e5
2. RO-Rc6
3. Bb5-a6
4. Ba4-Rf6
5. 0-0-Be7
6. Hel-b5
7. Bb3-0-0
8. c3-d6
9. h3-Ra5
10. Bc2-c5
11. d4-cxd4
12. cxd4-Bb7
13. Rc3-Hc8
14. Bd3-Rc4
15. b3-Rb6
16. Bb2-b4
17. Ra4-Rxa4
18. bxa4-d5
19. exd5
19. -e4
20. Bxe4-Rxe4
21. Hxe4-Bxd5
22. He3-Bd6
23. Dd3-a5
24. Re5-Bb8
25. Df5-g6
26. Dd3-Kg7
27. Hacl-I)d6
28. Bal-f6
29. Rg4-h5
30. He7-Hf7
31. Hxf7-Kxf7
32. Re3-Dh2
33. Kfl-He8
34. Db5-Bxg2
35. Ke2-Bf4
36. Kd2-BO
37. Dfl-g5
38. Bb2-g4
39. Kcl-Be4
40. Kdl-BO
og hvítur gafst upp.
Hastings
Short sigraði á Hastingsmótinu
nú fyrir stuttu og varði þar með
sigur sinn frá í fyrra en mótið er
nú orðið tvöföld umferð. Short
hlaut 9 vinninga af fjórtán mögu-
legum en annar varð Kortsnoj
með hálfum minna. Speelman,
Smyslov og Gulko hlutu allir sjö
og hálfan vinning. Larsen og
Kosten fengu sex vinninga og
Chandler rak lestina með fjóra
vinninga. Áskorendaflokkinn,
sem gefur rétt til að tefla í aðal
mótinu á ári, vann engin önnur
en Judit Polgar.
Titograd
Nýlega var opnaður þar skák-
staður sem ber það frumlega nafn
„Mikhail Tal“ og var guðfaðirinn
að sjálfsögðu fenginn til að vera
við opnunina. Þar tók hann sig til
og tefldi átta skáka atskákar-
einvígi við heimamanninn og
stórmeistarann Ivanovic. Einvíg-
ið var einstefna 8-0, hvor skyldi
nú hafa unnið??
Skák gegn eyðni
Yfirvöld í Bonn hafa hvatt
skákina til liðs við baráttuna gegn
eyðni á all nýstárlegan hátt. Hafa
þau látið útbúa taflmenn og borð
með ímyndum stjórnmálamanna
í stað hefðbundinna manna.
Stjómarandstaðan er hvít með
Vogel sem kóng og er Kohl kansl-
ari kóngur í svarta liðinu. Settin
eru í mjög litlu upplagi eða 500 og
kostar hvert þeirra um 130 þús-
und íslenskar, og rennur féð til
rannsókna.
Föstudagur 27. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27