Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 13
gaman að kanna hve stór sá þátt- ur er í heildaraðsókninni; þar til skólayfirvöld lokuðu fyrir alla leikhúsmiðasölu innan skólanna vegna ágangs leikhúsa sem seldu miða án þess að hafa um það samráð við þau. Reyndar læðist að mér sá grun- ur við lestur greinar Páls Baldvins (og af málflutningi hans á öðrum vettvangi) að hann sé að gera kröfu um að hér sé rekið búlevarð-leikhús, söluleikhús sem hefur engar aðrar skyldur en fá fólk til að borga sig inn í leikhús til að gleyma sér eina kvöldstund við tóman gleðskap. Það er vissu- lega ein skylda góðs leikhúss, en það er ekki skyldan eina. Skyld- uraar eru margfalt fleiri. Líkast til ættum við engan nóbelshöfund ef Halldóri Laxness hefði í önd- verðu verið gert skylt að vinna samkvæmt markaðslögmálum. En höldum áfram að skoða vangaveltur PBB um liðinn vet- ur. Næst nefnir hann leikförina með Bflaverkstæði Badda, sem nú er nýlokið, og talar um það sem „eitt af fjórum verkum frá fyrri leikárum sem lífguð voru við á verkefnaskrá sem taldi alls 22 sýningar.“ Þarna er ekki aðeins á ferðinni niðrandi orðalag, eins og PBB er reyndar tamast, heldur og villandi upplýsingar. í fyrsta lagi er Bflaverkstæði Badda verk frá síðasta leikári og því ekki ýkja gamalt, og var fjarri því útgengið. Það þætti líklega óðs manns æði í leikhússtjóm að sýna ekki verk sem hefur jafn- mikla aðsóknarmöguleika. Enda réttlætti leikförin það rækilega og það þótt vinsælir skemmtikraftar á borð við Bubba, Megas og Kristján Jóhannsson væm á ferð um landið á sama tíma án þess að nálgast sambærilegan árangur í aðsókn. Sýningar leikhússins í vetur voru alls 239, en ekki 22, eins og Páll lætur liggja að, en verkefnin vom hinsvegar 23. Á stóra sviðinu var 161 sýning í vet- ur, 41 á litla sviðinu við Lindarg- ötu og 37 á öðmm stöðum innan lands og utan. Áhorfendur á sýn- ingar á stóra sviðinu í vetur urðu 65.462, en heildaraðsóknartalan 78.009. Og hvaða fjögur verk voru „lífguð við“ frá fyrra leikári? Á listahátíð 1988 vom haldnar tvær forsýningar á Marmara og tvær á Ef ég værí þú. Þessi verkefni em eftir sem áður verkefni nýliðins leikárs, enda sýningar tæpast hafnar á þeim vorið áður. For- sýningar á verkefnum næsta leikárs hafa verið hefð á Listahá- tíðum um árabil. Þarna eru sem sagt komin þrjú verkefni sem PBB virðist álíta að leikhúsið hafi endurvakið í „vandræðum“ sín- um. Hvert er þá fjórða verkið? Væntanlega ballettinn Af mönnum, eða hvað? Sá ballett var ekki á verkefnaskrá Þjóðleik- hússins fyrr en nú í vetur að hann varð hluti uppfærslu sem bar heitið Hvörf. Þá segir PBB að íslenski dans- flokkurinn hafi átt „þrjár sýning- ar á liðnum vetri“. Hið rétta er að íslenski dansflokkurinn átti tvö verkefni á liðnum vetri, Faðir vor, sem var sýnt 4 sinnum í Hall- grímskirkju og Hvörf sem var sýnt 9 sinnum á stóra sviðinu. Hér er e.t.v. ástæða til að benda PBB á að verkefni er annað heiti yfir uppfærslu. Hvert verkefni er hægt að sýna oft, vonandi sem oftast, þannig að á hverju verk- efni em margar sýningar. Sýning varir að jafnaði eina kvöldstund, en verkefni (uppfærsla) lifir að jafnaði talsvert lengur, oftast nokkra mánuði. Ekki ætla ég að deila við PBB um listrænan árangur vetrarins en fullyrði þó þvert á yfirlýsingu hans um slælegan árangur að fjöl- margt var vel gert í vetur þrátt fyrir allt, án þess að ég vilji rekja hér einstök dæmi um slíkt, og læt ég mér í léttu rúmi liggja hvort PBB skilur ástæður mínar til þess eða ekki. Auðvitað hefði maður kosið,eins og ævinlega, að árang- urinn yrði meiri og betri. Og ég ætla að Vona að umræðan um leikhúsið eigi líka eftir að snúast um það raunveralega hvers vegna hlutimir ganga ekki upp þegar þeir ganga ekki upp. Og gleymum því ekki að oft gengur allt upp. Ég get heldur ekki fallist á að verkeftiavalið sé handahófs- kennt. Þar er farið að lögum sem gera ráð fyrir eðlilegri fjöl- breytni. Og leikhópurinn er ekki „tíndur saman í sýningamar“. Þar er reynt með ítarlegri um- fjöllun að manna hvert verkefni sem best, þótt vitaskuld greini leikhússtjóra og viðkomandi leikstjóra oft á og niðurstaðan sé stundum byggð á málamiðlun. En það er engin tilviljun sem ræður hlutverkaskipan, eins og PBB gefur í skyn með orðalagi sínu. Þá kemur enn ein mótsögn PBB, eða orðhengilsháttur, að þessu sinni um markaðssetningu: „Leikhúsið reynir að halda í trausta ímynd sem er glötuð.“ Hvemig getur traust ímynd verið glötuð, Páll? Þetta er óskiljan- legt. Leikarar í framhaldi af þessum vanga- veltum vitnar PBB í ónafn- greindan „ungan leikara" sem á að hafa hvíslað að honum að hann yrði „þeirri stund fegnastur þegar (hann) losnaði þaðan“, þ.e. úr Þjóðleikhúsinu. Meðan umræddur leikari er ónafn- greindur lít ég á þessa fullyrðingu sem ósannindi, enda er greinin þannig skrifuð að ég sé ekki á- stæðu til að leggja trúnað á ós- annaðar fullyrðingar PBB. Auk þess er enginn ungur leikari svo fastur við Þjóðleikhúsið að hann geti ekki horfið þaðan þegar hon- um sýnist. Hinsvegar og það kann að koma á óvart - hafa ung- ir leikarar sóst eftir að leika í Þjóðleikhúsinu, sem sést m.a. þegar leikhúsið auglýsir lausar leikarastöður og nokkrir tugir hæfra leikara sækir um. Við hljó- tum að vona að það sé ekki ein- ungis vegna launatrygg- ingarinnar heldur af listrænum áhuga. Litlu síðar í greininni fjallar PBB um velferð og þroskamögu- leika listamanna Þjóðleikhúss- ins. Þar komum við ef til vill að þeim punkti sem er og verður við- kvæmastur í þeirri umræðu sem nú er hafin. Hin grimmilega staðreynd er nefnilega sú að mið- að við fjárframlög virðist hrein- lega ekki vera unnt að fylgja laga- ákvæðum um þessi mál. Þó er jafnan leitast við að hafa tilburði í þá átt. Til þess að sinna af alefli velferð hvers og eins hinna 38 fastráðnu leikara þarf leikhúsið að fjölga verkefnunum, en til þess hefur það ekki fé. Kanntu svar við því, Páll? Hinu held ég að allir geti verið sammála að „æviráðningar hafa sungið sitt síðasta“. Hugsanlega er eina skynsamlega ráðningar- fyrirkomulagið nú á tímum að sérhver nýr leikhússtjóri komi að hreinu borði, þ.e.a.s. að hann geti myndað fastráðinn leikhóp til jafnlangs tíma og hann er sjálf- ur ráðinn (eða skemur). Með því móti hefur hann væntanlega fyrst raunveralegt tækifæri til að móta sína stefnu innan ramma þeirra laga sem í gildi era. Þannig ætti að vera tryggt að nýjum leikhús- stjóra fylgdi fastur kjami leikara, leikstjóra, leikmyndahönnuða, dramatúrga o.fl., og viðbúið að góð eining skapaðist um starfið. Vegna þess að menn væra ráðnir til ákveðinna hluta í afmarkaðan tíma. Leikstjórar Næst fjallar PBB um „leikstjórakrísuna", sem hann nefnir svo, og lætur ýmislegt flakka. Hér er margt að leiðrétta og tíni ég fátt eitt til. Vinna leik- stjóra við uppsetningu, þ.e. undirbúnings- og æfingatími, telst lágmark sex mánuðir (sem jafngildir hálfu ári, Páll), oft meira, en er ekki ársfjórðungs- verk. Og öfugt við það sem PBB heldur fram hefur leikhúsið á undanförnum áram reyndar leitað út fyrir einhvern ímyndað- an fastan hóp. Á nýliðnu leikári kom að auki fram mjög eindreg- inn vilji til að breikka leikstjóra- hópinn og settu þá þrír leikstjórar upp sínar fyrstu sýningar í Þjóð- leikhúsinu, þau Pétur Einarsson, Guðjón P. Pedersen og Þórann Sigurðardóttir. Tveir þessara leikstjóra settu sínar sýningar upp á stóra sviðinu, sem væntan- lega er til vitnis um talsvert áræði. Og nýju leikstjórarnir hefðu orð- ið fjórir í vetur ef ekki hefðu komið til alvarleg veikindi. Varð- andi meinta lélega nýtingu á leik- stjórahæfileikum Bríetar Héðins- dóttur er því til að svara að hún setur ekki upp sýningu nema hún vilji það sjálf. Bríet starfaði með L.R. um tíma og setti þar upp leiksýningar auk þess að leika. Á þeim tíma starfaði hún ekki við Þjóðleikhúsið. Hún kom ekki aftur til Þjóðleikhússins fyrr en á síðasta leikári og hefur að auki undanfarið óskað þess að setja mun sjaldnar upp. Þjóðleikhúsið þvingar engan til leikstjómar. Það era skýringar á öllum hlutum, Páll. Það þarf bara að kynna sér þær. PBB telur upp nöfn nokkurra leikstjóra sem hafa látið að sér kveða í leikhúslífi borgarinnar undanfarin ár og lætur að því liggja að þetta fólk hafi ekki feng- ið tækifæri til að spreyta sig í Þjóðleikhúsinu. Á þessum lista eru m.a. María Kristjánsdóttir, Lárus Ýmir Óskarsson, Stefán Baldursson og Haukur J. Gunn- arsson. Öll hafa þau sett upp leiksýningar í Þjóðleikhúsinu, María og Lárus tvö verkefni hvort, og þeir Stefán og Haukur eiga fjölda verkefna í Þjóðleik- húsinu á undanfömum árum. Hvers vegna þessa ónákvæmni, Páll? Leikhússtjómin hefur, engan áhuga á að „draga æfingar von úr viti, jafnvel um mánuði og miss- eri“ (!), eins og PBB heldur fram. Þvert á móti vilja menn koma sýningum í sölu eins fljótt og auðið er. Vitaskuld, Páll. Þetta átt þú að vita með þína reynslu af leikhússtjórn. Og þetta á gagnrýnandi að vita. Dráttur á framsýningum (þegar hann verð- ur) kemur til af öðram orsökum, t.a.m. fjárskorti sem tefur fram- vinduna þar sem deildir leikhúss- ins era undirmannaðar og anna ekki verkefnum á því sem telja má eðlilegan vinnslutíma, svo eitthvað sé nefnt. Og dráttur kann að verða af ýmsum öðrum orsökum, m.a. þeim að viðkom- andi sýning er hreinlega ekki til- búin leiklega eða tæknilega, nema hvorttveggja sé. Hvers vegna ætli það sé, Páll? Það kostar ekkert að spyrja Síðar í greininni endurtekur PBB niðurstöðu Agnesar Braga- dóttur blaðamanns um meira en 30 miljóna króna kostnað við uppfærsluna á óperanni Ævintýri Hoffmanns nú í vetur, án þess að bera við að komast að hinu sanna í málinu, en þessi tala er stórlega ýkt. Sýningin var vitaskuld dýr og bar þess vonandi merki, en kostnaður nær engan veginn 30 miljónum. Hitt er rétt að þar til fyrir fáum árum var illmögulegt í bókhaldi leikhússins að sjá beinan út- lagðan kostnað við hverja upp- færslu fyrir sig, en við núverandi aðstæður er það hinsvegar hægt. Þetta gat Páll fengið að vita með því einfaldlega að spyrja þá sem annast fjárreiður leikhússins. Loks skil ég ekki síðustu milli- fyrirsögn PBB, en þar segir: „Fleipur, persónuníð og rógur.“ Þegar málsgreinin eina sem á eftir kemur er lesin er ekki eitt orð um fleipur, persónuníð og róg! Er þetta enn eitt dæmið um sleifarlag þeirra Þjóðviljamanna, eða valdir þú fyrirsögnina, Páll? Ef þetta er þín fyrirsögn, Páll, hvað vakti þá fyrir þér með þessu orðavali? Hvað er skandall? Að lokum vona ég að ljóst sé að ég er einungis að svara van- hugsuðum yfirlýsingum PBB um Þjóðleikhúsið með þessari grein. Ég er ekki að halda því fram að allt sé í himnalagi í Þjóðleikhús- 'inu. Það er það ekki og hefur að líkindum sjaldnast verið, ef marka má skrif í dagblöð allt aft- ur til ársins 1950, en leikhúsið var ekki einu sinni tekið til starfa þegar nafngreindir og ónafn- greindir blaðamenn tóku að æpa um skandal við hvert tækifæri. Of oft að tilefnislausu. Slíkir menn hafa þagað þunnu hljóði ef vel hefur gengið eða góður listrænn árangur orðið. Þjóðleikhúsið hefur mátt búa við slíkt alla tíð og svo verður að líkindum áfram. Þegar ég kom til starfa við leikhúsið fyrir 10 áram var einn „skandallinn" nýafstaðinn og fór mikill sköpunarkraftur í að fá fólk til að horfa fram hjá því og beina athyglinni að því sem vel var gert. Það tók tvö til þrjú ár að lyfta leikhúsinu upp úr þeim pytti í huga almennings. Þessi „skand- all“ var uppsetningin á söng- leiknum Prinsessan á bauninni. (Ég set „skandall“ í gæsalappir í þessu samhengi, vegna þess að ég sá ekki sýninguna og er því ekki dómbær um hana.) í öllum hama- ganginum og Þórðargleði rann- sóknarblaðamannanna vildi eng- inn láta þess getið að leikárið sem „Prinsessan“ var sýnd var næst- besta leikár Þjóðleikhússins frá upphafi. Að því er varðar að- sókn. Og það þó einungis sé mið- að við aðsókn á sýningar á stóra sviðinu. Nei, skandall var feitari frétt. Velgengni eins leikhúss sel- ur ekki dagblöð. Ef til vill er það mergurinn málsins, því miður, og kemur í veg fyrir að umræða um Þjóðleikhúsið geti orðið æsinga- laus, málefnaleg og uppbyggj- andi. Við þurfum á þannig um- ræðu að halda núna. Árni Ibsen i(Árni er leiklistarráðunautur Þjóð- lleikhússins.) Föstudagur 7. júlí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.