Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 28
Sigur háskóla-
stúdenta
Það var samdóma álit
þeirra sem sátu Háskólaráðs-
fund sem haldinn var í gær að
stúdentar hefðu þar unnið
mikinn sigur. Til afgreiðslu
voru tillögur til lagabreytinga
um stjórnsýslu Háskólans og
fengu stúdentar samþykktar
tvær breytingartillögur, i ann-
arri þeirra felst að námsráð-
gjöf við skólann verður áfram
sjálfstæð eining innan hans
sem heyrir beint undir rektor
og hin breytingartillagan felur
í sér ótvírætt ákvæði um að
Háskólaráð fari með æðsta
ákvörðunarvald innan
skólans. Varðandi námsráð-
gjöfina töldu stúdentar að
sjálfstæði hennar væri ákaf-
lega mikilvægt til að tryggja
áframhaldandi uppbyggingu
starfseminnar og að fullur
trúnaður haldist milli náms-
ráðgjafa og nemenda og með
því að taka af allan vafa um
æðsta vald Háskólaráðs má
m.a. koma í veg fyrir deilur
manna um það hvort nem-
endum leyfist að áfrýja úr-
skurði deildarfunda telji þeir
að á rétti sínum hafi verið brot-
ið en vafi um það atriði kom
einmitt upp síðastliðinn vetur.
Að auki samþykkti Háskól-
aráð í gær að fjölga fulltrúum
nemenda í deildarráðum og
stjórnum skora innan skólans
en það hefur löngum verið
stúdentum mikið kappsmál
að auka áhrlf sín á þessum
stöðum. ■
Gekk út af fundi
Það komu ekki allir jafn
ánægðir út af Háskólaráðs-
fundinum og fulltrúar nem-
enda. Heimspekideildin hefur
haft ýmislegt að athuga við til-
lögurnar um breytingu á
stjómsýslu skólans og báru
fram tillögu á fundinum í gær
þess efnis að afgreiðslu
stjórnsýslutillagna skyldi
frestað til haustsins. Sú tillaga
var felld með miklum meiri-
hluta og vonbrigði Svein-
björns Rafnssonar forseta
heimspekideildar með þá af-
greiðslu mála leyndu sér ekki
þegar hann gekk út af fundi
þegar úrslit mála lágu fyrir.
Og fleiri tillögur voru felldar
á fundinum í gær. Það
skyggði til að mynda nokkuð á
gleði stúdenta að tillaga
þeirra um að kjör deildarfor-
seta færi fram með sama
hætti og varðandi rektor var
felld, en sem kunnugt er vega
atkvæði stúdenta þriðjung á
móti atkvæðum kennara við
rektorskjör. Tillagan var felld
með litlum mun eða 8 at-
kvæðum gegn 7. ■
10 þúsund
áskrifendur
Ekkert lát er á velgengni
fréttatímaritsins Þjóðlífs. Því
hefur ört vaxið ásmegin um
nokkurt skeið og salan aukist
mjög, jafnt í lausasölu sem
áskriftarsölu. Söfnun áskrif-
enda þykir hafa heppnast
með eindæmum vel. Það geta
menn ráðið af því að á dögun-
um bættist 10 þúsundasti á-
skrifandinn í hópinn, Reykvík-
ingurinn Rut Rebekka Sigur-
jónsdóttir, og verður hún
heiðursáskrifandi til æviloka.
Af (Dessu tilefni var efnt til á-
skrifendahappdrættis Þjóðlífs
og sólarlandaferð í vinning.
Hana hreppti Helga Bergs-
dóttirfrá Hofi, Fagurhólsmýri.
Þess má að lokum geta að
sjöunda og síðasta tölublað
Þjóðlífs er í nýjum búningi. ■
Ný stjórn
í haust
Miklar viðræður eru nú í
gangi á milli ríkisstjórnarinnar
og Borgaraflokksins um að
borgarar komi í ríkisstjórnina
og er stefnt að því að þetta
verði klárt í haust. Það eru
flokksformennirnir, Stein-
grímur Hermannsson,
Ölafur Ragnar og Jón Bald-
vin sem taka þátt í þessu bak-
tialdamakki við þá Júlíus og
Óla Þ. Jón Baldvin hefur þó
sér óskir í þessum viðræðum
því talað hefur verið um mikla
uppstokkun í stjórninni og hef-
ur hann m.a. hugleitt að skipta
um stól við nafna sinn Sig-
urðsson. Það rekst þó á við
þau áform Jóns Baldvins að
vera forseti EFTA til næstu
áramóta. Jón Baldvin vill því
ekki ganga frá nýrri ríkisstjórn
fyrr en um áramót. En enginn
má við margnum. Talað er um
að bæði Júlíus og Óli Þ. verði
ráðherrar Borgaraflokksins
en enn er óljóst hvaða ráðu-
neyti þeir muni fá. Borgarar
hafa lýst því yfir að þeir sætti
sig ekki við minna en þrjú
ráðuneyti. ■
Magnað
afmælisár
Eins og kunnugt ér varð
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
90 ára í ár og svo virðist sem
afmælið hafi virkað sem vít-
amínsprauta á félagsmenn en
þó sérstaklega á 1. deildar lið
KR í knattspyrnu. Það hefur
hvorki unnið meira né minna
en þrjá leiki í röð í 1. deildinni
og nú síðast sigur á Stólunum
í bikarkeppnlnni. Þá náði einn
leikmaður liðsins þeim merka
áfanga fyrir skömmu að skora
þrennu í einum og sama
leiknum í 1. deildinni sem
hafði ekki gerst í tvo heila ára-
tugi, en svipaður tími er liðinn
frá því liðið vann síðast Island-
smótið í 1. deildinni. Ennfrem-
ur komst körfuboltalið KR í úr-
valsdeildinni öllum á óvart í
úrslitakeppina um Islands-
meistaratitilinn í vor og var
hársbreidd frá því að vinna
mótið. Þá herma fréttir innan-
húss hjá KR að félagið hafi
einnig náð árangri í öðrum
iþróttagreinum en hér hefur
verið greint frá. ■
Oft ratast
kjöftugum...
Þegar bjórinn var leyfður
hérlendis 1. mars spáðu gár-
ungurnir því að það myndi
hafa veruleg áhrif á tekjur far-
manna og gott ef það mundi
ekki hafa víðtækari áhrif og
jafnvel leiða til verkfalls hjá
þeim. Það fyrrnefnda hefur
komið fram að hluta því undir-
menn á farskipum felldu í síð-
asta mánuði kjarasamning
sem öll önnur stéttafélög
launamanna um land allt hafa
samþykkt og hið síðastnefnda
einnig að nokkru því þeir hafa
boðaö til þriggja og hálfs sól-
arhrings skæruverkfalls í
næstu viku, hafi samningar
ekki tekist fyrir þann tíma. ■
Góð þjónusta
Knattspyrnuáhugamenn fá
heldur betur góða þjónustu
þessa dagana. Það er ekki
aðeins að leikjum sé lýst beint
á Rás 2 heldur einnig á Bylgj-
unni. Fólk getur því skipt að
vild á milli rása eftir því hvern-
ig þeim finnst viðkomandi
íþróttafréttamaður standa sig
í stykkinu og er þetta mikil bót
frá því sem áður var þegar
Gufan var og hét. ■
Smábátaeigendur
í Fjörðinn
Á sama tíma og Reykvík-
ingar stæra sig af góðu gengi
hafnarinnar er mikil ólga með-
al smábátaeigenda, sem gera
út í Reykjavík. Ekkert hefur
verið gert til þess að bæta að-
stöðu þeirra en hinsvegar hef-
ur verið eytt miklum pening-
um í smábátahöfn fyrir sport-
bátaeigendur. Þegar svo
fregnir bárust af framkvæmd-
um við smábátahöfnina í
Hafnarfirði sótti fjöldi smá-
bátáútgerðarmanna í Reykja-
vík um aðstöðu í Firðinum. ■
Konurnar fari
heim
Jón Baidvin Hannibals-
son bauð starfsmönnum
Varnarmáladeildar til veislu
nýlega. Starfsmennirnir eru
nær eingöngu karlkyns en
mökum var boðið með. Þegar
veislugestir höfðu matast
stóð utanríkisráðherrann upp
og sagði: „Nú ætlum við karl-
arnlr að fara að tala leyndó og
konurnarfari heirn." Konurnar
voru ekki par ánægðar með
þessi orð ráðherrans, urðu þó
við skipuninni og strunsuðu á
dyr. ■
Akureyrar innon
I0 sekúndna
Fáar aðrar samgönguleiðir slá
símanum við i hraða ogþœgindum. Þú
ert um 1 klst. að fljúga á milli
Reykjavíkur og Akureyrar ( i meðvindi).
Þú ert 5 klst. að aka sömu leið (á
löglegum hraða) og a. m.k. heilan dag
að sigla (í sléttum sjó).
Fyrir utan þetta er síminn ódýr leið og
þú verður ekkiflugveikur, bílveikur eða
sjóveikur af því að tala í símann. Auk
þess er ódýrara að hringja eftir kl. 18 á
daginn og enn ódýrara eftir kl. 23 og
um helgar.
Langlínutaxtarnir eru tveir. Dœmi um
styttri langlínutaxta er Reykjavík -
Keflavík og dœmi um lengri taxta er
Reykjavík - Akureyri*.
-
____ _______i.........—I--I---
Reykjavík - Keflavík
Lengd símtals 3mín. 10 mín. 30 mín.
Dagtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00
Kvöldtaxti kr. 13,00 kr. 36,33 kr. 103,00
Nætur- og helgartaxti kr. 10,50 kr.28,00 kr. 78,00
' Breytist samkvœmt gjaldskrá
Reykjavík - Akureyri
Lengd símtals 3mtn. lOmín. 30 mín.
Dagtaxti kr. 25,50 kr. 78,00 kr. 228,00
Kvöldtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00
Nætur- og helgartaxti kr. 14,25 kr. 40,50 kr. 115,50
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin