Þjóðviljinn - 28.07.1989, Page 2

Þjóðviljinn - 28.07.1989, Page 2
SKAÐI SKRIFAR deili um hundsins Æ vitið þið, elskurnar mínar, mér finnst þetta allt svo mikið rugl, það er blátt áfram skelfilegt Hvað meinarðu Skaði, gætuð þiö þá spurt. Æ þið vitið. Þetta jukk og juð og hringsól á mönnum í ráðuneytunum sem halda að þeir séu ttil einhvers, segi ég þá. Eins og hvað? Ja eins og til dæmis þetta að nú ætlar ríkissjóður, sem segist vera skítblankur, að spreða út peningum í allar áttir. Þrem komma sex miljörðum. Viðtakendur eru annarhver maður í landinu skilst mér. Þetta sagði ég reyndar ekki við ykkur lesendur svona almennt, heldur við gest sem kominn var í morgunkaffi. Já og hvað með það, sagði gesturinn, Guðjón, sem er stjórnarsinni og finnst allt gott sem Ólafur Baldvin Hermannsson gerir, eða hvað hann nú heitir þessi þríhöfða þurs sem er með nef sín í hvers manns koppi, buddu og ísskáp. Hvað með það? hváði ég. Þetta er bara rugl og háborin vitleysa í ríkiskassanum. Það er verið að verðlauna fólk fyrir að vera aftarlega á húsnæðismerinni og kaupa sér íbúð fyrir verðtryggða peninga nú á síðustu og verstu tímum eins og asnar. Aldrei hefði ég gert annað eins. Það er líka verið að verðlauna fólk fyrir að eiga börn með þessum bjánaskap semheita barnabætur, rétt eins og það hefði ekki alltaf verið sjálfsagt mál aö eiga börn. Og þetta pakk sem á börn í lausu lofti, það fær barnabótaauka, það var þá íslenskan á þessu, jesúsminn. Þú ert íhaldsþurs, Skaði minn, og andvígur réttlætinu, sagði Guðjón. Réttlætinu, sagði ég. Nei lagsi. Eg er ekki andvígur réttlætinu heldur heimskunni, ruglinu, bjánaskapnum og vitleysunni. Þarna er barasta verið að taka skatta sem búið var að innheimta af fólki og skila þeim að nokkru leyti aftur undir fallegum nöfnum og mitt á því ferli sitja svo skriffinnar allskonar og fitna eins og púkar á fjósbita. Réttlætið kostar fórnir, sagði Guðjón þetta líka litla ábyrgur á svip- inn. Ég skal segja þér eitt Guðjón, sagði ég. Þetta minnir mig allt saman á litla myndasögu eftir Storm P. Áfyrstu myndinni situr feitur maður við borð og étur steik, en við fætur hans liggur svangur hundur og dillar rófunni í bæn um bita. Á annarri mynd hefur sá feiti snúið sér að greyskarninu, tekið hníf og sker af hundinum rófuna. Á þriðju myndinni eru þeir báðir að éta, sá feiti sína steik og hundurinn rófu sína. Svona eru nú samskipti ríkisvaldisns við alþýðuna, Guðjón minn. Þetta er fals og lygi í þér Skaði, sagði Guðjón, enda hefi ég fyrir satt að myndasagan hafi verið búin til um danska íhaldsstjórn en alls ekki félagshyggjustjórn á fslandi. En segjum nú bara, segjum nú baratil að hafa þig til friðs, að myndirnar séu um okkar stjórn í dag. Þá er samt í myndinni margt merkilegt og jákvætt fyrir alþýðuna sem þú tekur ekki eftir. Eins og hvað? spurði ég. í fyrsta lagi: alþýðan læriraf þeirri styrku hönd sem hnífnum stjórnar, að hún á ekki að búast við náö að ofan. Þetta er eins og í Nallanum, þar segir að hvorki guð, kóngurinn né hetjan muni frelsa hinn vinnandi lýð. Alþýðan lærir um leið vissa útsjónarsemi: þegar allt annað um þrýtur má svo sannarlega naga sína eigin rófu. í þriðja lagi er sá matar- skammtur sem fæst með þessum hætti alveg mátulega stór, sálfræði- lega og pólitískt séð. Hann er nógu stór til að hundurinn, það er að segja alþýðan, ferst ekki úr hungri. Hann er hinsvegar ekki sú feita steik af borði kerfisins sem gerir það að verkum að alþýðuhundurinn sofni í lífsþægindaværð, gleymi þeim frumburðarrétti sínum að rísa upp í fyllingu tímans, stökkva upp á borðið og bíta hausinn af þeim sem þar situr! Svona er nú díalektíkin í þessu, Skaði minn. I ROSA- GARÐINUM OG OLAFUR RAGN- AR ER ROBESPI- ERRE Læknirinn taldi ekki ólíklegt að fólk liti á landsfeðurna sem nokkurs konar ógnvalda. Þá má líka á sama hátt líta á ríkisstjórn- ina sem eins konar ógnarstjórn. DV STEINGRÍMUR GRUNAÐUR UM GÆSKU Er það skynsamlegt fyrir ríkis- stjórnina að hala inn Borgara- flokk við núverandi aðstæður? Hvers konar stjórngæska er það að draga inn á dekk sjódregið flak þess sem einhvern tíma var? Alþýðubladið LANGRÆKNIN í KVENFÓLKINU! Næst knýr dyra kona að nafni Lucía, sem stóð í ástarsambandi við ívan fyrir tuttugu árum. Hann hafði barnað hana og stungið svo af. Nú á Lucía þá ósk heitasta að kála ívan. Morgunblaðið. HVAÐGERAMENN EKKIFYRIRPEN- INGA VÆNI MINN? Það felur engin ríkisstjórn með sómatilfinningu öðrum þjóðum að „sjá um varnir landsins", ekk- ert frekar en eignmaður myndi fela öðrum að sjá um samlíf við eiginkonu sína. Morgunblaðið GUÐHJÁLPIOKK- UR: NÝ BÚGREIN? Þrastarhjón á skrifstofu Bún- aðarsambandsins. Fyrírsögn í Morgunblaðinu LOKS FANNST LAUSNIN! Öflugasti atvinnuvegur íslend- inga á að vera stjörnusambands- stöð á Þingvöllum. Tíminn AUMINGJA BLESS- AÐAR MANNESK J- URNAR Abrantes er búsettur í Dan- mörkuog þar rekur hann hunda- þjálfunarstöð. „Þar reynum við að hjálpa hundaeigendum til að lifa góðu lífi með hundunum sín- um.“ Tíminn OG AUMINGJA BLESSAÐIR HUND- ARNIR Við reynum að venja hundana á daglegt líf og það þjóðfélag sem þeir lifa í. Tíminn HIÐ JARÐBUNDNA TUNGUTAK LIFI Efnahagsráðgjafi fjármálaráð- herra segir að Þorsteini (Páls- sym) hafi verið mikið mál að láta Ólaf Ragnar pissa í skóna. Tíminn NÚ ER ÉG HISSA! Þeir sem taka að sér verk eiga að vinna það edrú. 2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. júlí 1989 Tíminn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.