Þjóðviljinn - 28.07.1989, Síða 23

Þjóðviljinn - 28.07.1989, Síða 23
D/ÍGURMÁL ANDREA JÓNSDÓniR Enn og aftur um John Lennon Ég var töluvert spennt að sjá myndbandið Imagine: John Lennon, sem skráð er á árið 1988, en hefur ekki enn ratað á tjald neins kvikmyndahúss hérlendis. Og víst er að Bítla- og Lenn- on-aðdáendur ættu að kunna að meta það, enda þótt synd væri að segja að í því kæmu í ljós nokkrar þær upplýsingar sem ekki hafa margoft komið fram annarsstað- ar. En eftir á að hyggja er ekki raunhæft að ætlast til slíks, eftir allan þann aragrúa bóka og blaðagreina sem prentaðar hafa verið um Lennon, eftir að hann var myrtur fyrir tæpum níu árum. En það skemmtilega fyrir harða aðdáendur hans er náttúrlega það snjallræði aðstandenda myndarinnar að láta John Lenn- on sjálfan segja sögu sína með því að nota gömul viðtöl við hann og klippa inn í ljósmyndir, frétta- og hljómleikakvikmyndir allt frá fyrstu dögum Bítlanna, úr við- tölum við þá og Lennon og Yoko, og síðast en ekki síst ljósmynda- og kvikmyndabúta úr einkafilm- usafni Yoko. Auk þess er meðal annars rætt við George Martin, upptökustjóra Bítlanna, og fleiri samstarfsmenn þeirra, einnig eru þarna gamlar sennur sem Lennon átti við blaðamenn og svo nýleg viðtöl við fjölskyldur Lennons: Mimi frænku hans sem ól hann upp, Cynthiu, fyrri eiginkonu hans og móður Julians, Julian sjálfan, Sean og ntóður hans, Yoko. Öll syrgja þau Lennon á virðulegan hátt, og viðtölin við þau eru afskaplega hlýleg, en laus við væmni... en ekkert af þessu kemur á óvart og söguþráðurinn í lífi Lennons er manni skýr fyrir hugskotssjónum: Bítlar, Yoko, friðarbarátta háð með ýmsum uppátækjum sem þættu frumleg enn þann dag í dag, skyndilegur viðskilnaður samlokanna Johns og Yoko, sukk Lennons og svo algjör sinnaskipti hans er hann ákvað að gerast faðir öðru sinni og húsfaðir í kjölfar þess - þar sem hann gekk meira að segja svo langt í hlutverki sínu að útiloka umheiminn næstum algjörlega af frjálsum vilja... nokkuð sem hús- mæður eru sagðar lenda í gegn vilja sínum.. sem sagt engar nýjar fréttir eins og áður segir... nema hvað þessi mynd vekur kannski athygli fólks á því sem í fljótu bragði virðist smáatriði í lífi svona frægs fólks en kemur í ljós að er aðalatriðið... það er sam- skiptin við þína nánustu, að vinn- Bítlarnir 1964 uppáklæddir í tiletni af orðuveitingu... þeir fengu MBE-orðuna úr höndum drottningar - John Lennon skilaði henni nokkrum árum síðar og er í umræddu myndbandi sýnt fjörugt orðaskak sem hann átti við blaðamann út af því „uppátæki“... enda þótt Beatles komi auðvitað við sögu í Imagine: John Lennon, er þetta fyrst og fremst saga Lennons og um hann. an á ekki að vera eitthvert einka- flipp, heldur verður að vera í ein- hverju samhengi við maka og börn og heimilishald... og fólk verður að losa sig við þann púka sem hindrar að það uni glatt við sitt; Það má kannski segja að hinn almenni Jón og Gunna hans hafi ekki sömu tækifæri og John og Yoko hafi haft, til dæmis fjár- hagslega sem er ekki lítið atriði; en mér finnst hins vegar það lær- dómsríkasta í ævi Johns Lennon einmitt vera persónulegt og náið samband hans við Yoko, hversu mikið þau lögðu á sig til að laga persónu sína hvort að öðru til að ná saman... þessi fullkomna virð- ing þeirra hvors fyrir öðru og samstaða út á við í einkennileg- ustu uppákomum, sem oft gerði þau að aðhlátursefni í augum fjöldans... ég held nefnilega að þau Yoko Ono og John Lennon sé það fólk sem lengst hefur gengið í að leggja til atlögu við meðalmennskuna og þorað að hegða sér og segja sinn hug opin- berlega á „asnalegan“ og „ólærðan" hátt, án þess að skam- mast sín fyrir hvort annað, heldur styðja við bakið hvort á öðru, sama hvað „aðrir“ hugsuðu eða sögðu... ég held jafnvel að þau hafi haft meiri áhrif í þá átt en í sambandi við blessaðan heimsf- riðinn - eða hvað?... Það væri að minnsta kosti verðugt verkefni fyrir aðdáendur þeirra, og virð- ing við minningu hans, að reyna að feta þar í fótspor hans. ... Myndbandið Imagine: John Lennon er sem sagt ekkert merki- legt í þeim skilningi orðsins, en fallegt og virðulegt að því leyti sem það undirstrikar hvað það gefur fólki mikla reisn að leggja sig fram í umgengni við sína nán- ustu... ... og líklega tpkst aðstandend- um þessarar kvi^myndar að gera það sem til stóð - að sýna John Lennon í réttu ljósi - með fullri reisn þrátt fyrir mannlegan breyskleika - en kvikmyndin er andsvar við bók æsingaskrifarans Goldman um Lennon, en hann kvað leggja sig fram um að gera athafnir Johns sem sorafyllstar, þótt ekki takist honum að sverta hann eins og Presley... en sá var líka munurinn á þeim tveim, að John Lennon var lítt að pukrast með sína „lesti“, og fólki því kunnugt um ýmsar þær athafnir sem Goldman reynir að gera enn æsilegri í frásögn sinni... öfugt við Presley blessaðan sem átti að vera þvílíkur engill, og lenti auk þess í slíkri einangrun með líf sitt, að öllu er hægt að ljúga upp á hann dauðan... en ekki skil ég af hverju myndin er bönnuð innan 12 ára, sem er þó skárra en 15 ára sem er markið í USA... reyndar sjást þau John og Yoko nakin stutta stund í fallegum atlotum, og ijósmyndir sjást af þeim kviknöktum framanfrá í sam- bandi við útgáfu á plötunni Two Virgins og rifrildi þar um við kan- adískan skopteiknara (með litla kímnigáfu reyndar...) Mynd- bandið er með íslenskum texta, bærilega þýddum, ef horft er fram hjá ónákvæmni á stöku stað í sambandi við lýsingarorð. A John Lennon og Yoko Ono bönnuð innan 12-15: Ijósmynd úr þeim kvik- myndabút sem þvi aldurstakmarki veldur...eða hvað? Föstudagur 28. júlí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SIÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.