Þjóðviljinn - 18.08.1989, Qupperneq 8
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Ritstjóri: Árni Bergmann
Umsjónarmaður Nýs Helgarbiaðs: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Afgreiðsla: @68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Verð: 140krónur
Viðbrögð við
tillögum
fiskifræðinga
Hafrannsóknastofnun hefur sent frá sér tillögur um
mikinn niðurskurð á sjávarafla. Þar eru færð sterk rök að
því, að ekki megi leyfa á næsta ári að veiða meira en 250
þúsund tonn af þorski, en gert er ráð fyrir því að þorskafl-
inn á þessu ári verði 340 þúsund tonn, ennfremur skuli
grálúðuafli skertur úr 60 þúsund tonnum á þessu ári í 30
þúsund á því næsta.
Þetta þykja vitanlega mikil tíðindi og ill. Svo mikill sam-
dráttur í afla setur stór strik í búreikninga samfélagsins og
einstaklinga. Blöð eru að reikna það út, að tekjuskerðing
þjóðarbúsins verði ekki minni en tíu miljarðir króna og má
svo sannarlega sjá minna grand í mat sínum.
Eins gott að menn horfist hiklaust í augu við það, að
þessi uppákoma er sjálfskaparvíti að mestu. Jakob Jak-
obsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, dregur saman
niðurstöður af rannsóknum sinna manna með þeim ein-
falda boðskap, að „við teljum þorskstofninn nýttan langt
umfram það sem eðlilegt er“. Hörð sókn hefur leitt til
þess, að árgangar eru fá ár í veiði, og aflinn byggist
mestan part á þriggja til sex ára gömlum fiski. Þegar það
svo fer saman, að árgangar næstliðinna ára eru lélegir og
syndgað hefur verið upp á það að „allt reddist" með því
að veiða árum saman meira en fiskifræðingar hafa lagt til
- þá er ekki von á góðu. Þeir sem til þekkja og hagsmuna
eiga að gæta viðurkenna reyndar að þeir hafi búist við
vondum tíðindum. En ekki alveg eins slæmum og þeir
fengu.
Það er ekki að undra þótt menn kveinki sér. Haft er eftir*
utanríkisráðherra að það sé „hrikalegt áfall ef fara þarf
eftir tillögunum." Framkvæmdastjóri frystihúss segir, að
á dagskrá séu „harkalegri aðgerðir en þjóðarbúið þolir".
Morgunblaðið segir í leiðara í gær, að það sé nær útilokað
að samstaða náist um tíu miljarða samdrátt. Heildartónn-
inn í viðbrögðunum er eitthvað á þá leið að menn vilja
sýna tillögum fiskifræðinga fulla virðingu, en biðja hver
um sig um einhverskonar afslátt frá þeim. Þær raddir
heyrast aðeins, að ekki sé að marka fiskifræðinga, eða
þá að vísað er í aðra átt eins og þegar Matthías Bjarna-
son, fyrrum sjávarútvegsráðherra, kennir tillögur fiski-
fræðinga við uppgjöf og vill einna helst kenna fjölgun
hvala og sela um hvernig komið er. En slíkar raddir eru
ekki sérlega áberandi í þessari lotu, sem betur fer.
Þegar á heildina er litið virðast menn fúsari en oft áður
til að taka mark á viðvörunum af því tagi sem í tillögum
Hafrannsóknastofnunar felast. Og mun ekki af veita:
framtíð þessarar þjóðar er í húfi. í leiðara í DV í gær sagði
á þá leið, að nú reyndi á styrk stjórnmálamannanna. Það
er alveg rétt- en það eru fleiri sem á reynir. Allir þeir sem
nálægt koma útgerð og fiskvinnslu eiga beinan hlut að
máli, hvorki þeir né aðrir þegnar eiga að komast upp með
það að kasta öllum sínum vanda og sínum syndum á bak
við ráðherrastólana. Um leið og menn búa sig undir að
taka mið af niðurskurðartillögum fiskifræðinga í verki
þurfa þeir, hver á sínu sviði, að leita allra færra leiða til að
svara efnahagslegu skakkafalli fyrst og fremst með bættri
meðferð á sjávarafla og þeim breytingum á kvótakerfi,
sem ýmsir hagfróðir menn og gæðafróðir telja að gæti
skilað sér í mikilli aukningu aflaverðmætis - ef til vill sem
svarar þeim tíu miljörðum sem öllum hrýs nú hugur við að
tapa.
ÁB.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18. ágúst 1989
m
Nú er það dökkt maður
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
tappaði á fyrsta (slenska dökka
bjórnum í gær. Hingað til hefur sá
dökki einungis verið seldur úr
krönum á nokkrum veitingastöð-
um en ætti að vera kominn í allar
verslanir ÁTVR á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir næstu helgi.
Myndir: Kristinn.
Þeir hjá Agli hafa frá upphafi
haft bruggmeistara frá Þýska-
landi en þar í landi er bruggaður
mesti gæðamjöður heimsins að
margra mati. Egils dökkur er af-
kvæmi núverandi bruggmeistara
Egils, Klaus Scmith, sem starfað
hefur hjá fyrirtækinu á þriðja ár.
í fyrstu voru forráðamenn Egils
ekki vissir hvort þeir vildu hefja
framleiðslu á dökkum bjór en á-
kváðu síðan að leyfa meistara sín-
um að gera tilraun. Móttökurnar
á nýja miðinum hafa verið mjög
góðar á þeim veitingastöðum sem
hann hefur fengist á krönum og
því var ákveðið að tappa honum
fyrst á dósir, en flöskurnar koma
seinna.
Nýtt Helgarblað skoðaði verk-
smiðju Egils og komst að því að
hún er ein sú fullkomnasta í
heiminum. Hvorki fleiri né færri
en 30 þúsund dósir eru fylltar á
hverjum klukkutíma og það án
þess að mannshöndin komi þar
nærri. Hlutverk starfsmanna er
nánast aðeins það að hafa eftirlit
með vélunum. í dag framleiða
um 70 starfsmenn fjórum sinnum
meira en 123 starfsmenn gerðu
fyrir nokkrum árum og vegna
þess hvernig vélarnar vinna á að
vera útilokað að súrefni komist í
ölið og skemmi það.
Það kom þó fyrir þegar ný vél
var fyrst notuð en úr þvf hefur
verið bætt
-hmp
Helgarveðrið
Lægð á leið NA fyrir austan land á laugardag og önnur kemur úr suðvestri fyrir sunnan land á sunnudag.
Horfur á laugardag Hæg, breytileg átt. Víðast þurrt og helst léttskýjað um austanvert
Horfur á sunnudag HægSAogA-átt. Sumsstaðarsúldviðausturströndinaenþurrt
í öðrum landshlutum.