Þjóðviljinn - 30.12.1989, Side 2
SKAÐI SKRIFAR
Ég, Skaði, er nú frekar jarðbundinn maður og jólamaturinn hefur
styrkt enn frekar í mér þyngdaraflið og jarðtengslin eins og vonlegt er.
Samt fer ekki hjá því að stundum svífur hugur minn hátt og leitar að
svörum við eilífðarspursmálunum sem eru mikil spursmál. Hvað var
nú á undan eilífðinni? spyr ég og klóra mér í hnakka. Til hvers er ég ég
en ekki einhver allt annar?
Maður verður soldið ringlaður af þessum vandamálum en það gerir
ekkert til meðan maður er jólasaddur og liggur út af og er að sofna með
Blaðið Sitt á nefinu.
Ég hitti núna milli jóla og nýjárs hann Ólaf frænda minn sem er
afskaplega mikið fyrir eilifðarmálin, ekki bara miðlana og draugana og
allt þetta venjulega heldur meira að segja guðfræðina. Óli var í góðu
skapi og ég spurði hví væri svo uppi á honum hið andlega typpið.
Ég var að lesa þýðingar lærðar, sagði hann. Og þarna fann ég í
miðaldaguðfræðinni afskaplega góða kenningu sem passar alveg
fyrir mig.
Óg hver er hún Óli minn? spurði ég.
Hún er um að allir hlutir hafi tilgang, sagði hann.
Jæja, sagði ég.
Já, sagði hann. Veistu til dæmis hvers vegna guð skapaði mý og
maura af sömu vandvirkni og menn og engla?
,Nei, sagði ég.
Pað skal ég segja þér, sagði Ólafur og fletti upp í „Þrjár þýðingar
lærðar". Mý og meinkvikindi eru sköpuð gegn drambi manna, að þeir
stylji hve lítið þeir mega sín er þeir hljóta mein af hinum smæstu
kvikindum.
Þú segir nokkuð, sagði ég.
Ekki ég, heldur heilagur Anselm af Kantaraborg að öllum líkindum,
sagði Ólafur. En ég fór svo að hugsa áfram í þessum sama anda og
spurði sjálfan mig si sona: Til hvers er til dæmis allur þessi jólamatur?
Og hvað fékkstu út úr því? spurði ég.
Það er mjög einfalt. Jólamaturinn er til þess að saklaus börnin vaxi,
góðir menn styrki sig til dáða en illir fái í magann þegar þeir með ofáti
falla fyrir sinni svínslegu náttúru.
Ég fékk i magann, sagði ég dálítið hneykslaður.
Það er ekki af því þú sért vondur maður, Skaði minn, sagði Ólafur.
Heldur vegna þess að jólaátið er líka áminning góðum mönnum um að
þeir geti alveg eins beðið til annars heims með að éta kláravín, feiti og
merg með.
En til hvers eru þá jólin sköpuð? spurði ég.
Jólin, sagði Ólafur með svip sem gaf glöggt til kynna hve langt hann
væri kominn i tilgangsheimspekinni. Jólin eru sköpuð til að rétt verði
að reisa arkitektaskóla á íslandi.
Bittinú, sagði ég.
Þú hlýtur að sjá það Skaði, sagði Ólafur. Jólin halda uppi mikilli
verslun. Án þeirra viðskipta færu kaupmenn á hausinn. En fyrir tilstilli
jólaviðskipta geta þeir fjárfest í nýjum og flottum húsum bæði fyrir
búðirnar sínar og sjálfa sig. Þessi hús skapa fullt af verkefnum fyrir
arkitekta. Þeim fjölgar við þetta og verða svo margir að það verður rétt
að flytja arkitektanám inn í landið svo að nóg verði til af fólki til að teikna
nýjar búðir til að versla í á jólunum. Svona er allt tengt innbyrðis í lífinu
og tilganginum, Skaði minn.
Þú segir nokkuð, sagði ég. En geturðu þá sagt mér annað, Óli minn.
Til hvers heldurðu að Guð hafi skapað Alþingi?
Það liggur nú í augum uppi, sagði Óli. Það er til að íslensk þjóð mæli
þarft eða þegi.
Er það fordæmi Alþingis? spurði ég. Mæla menn þar þarft eða
þegja?
Nei, alls ekki, sagði Óli frændi minn. Eg meina það, að á Alþingi er
óþarfa hjali beint inn í fastan og ákveðinn og opinberan farveg, sem
þar með bætir meðalstandardinn á bæði þvi tali og þeirri þ’ögn í
landinu, sem fram fer utan Alþingis.
Veistu hvað mér dettur í hug? spurði ég.
Nei Skaði minn, sagði Óli.
Ég held að Guð hafi skapað Alþingi af sömu ástæðu og hann
skapaði mýfluguna. Til að vinna gegn drambi mannsins. Til að íslensk
þjóð fari nú ekki að halda að hún sé gáfuð og vel innrætt og guð má vita
hvað. Allt var gott sem gjörði hann...
2 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 30. desember 1989
RÓSA-
GARÐINUM
ERGUDÍ VIRÐIS-
AUKASKATTINUM?
Eigum við þá ef til vill að sjá vilja
Guðs í vangaveltum á Alþingi
undanfarna daga? Skyldi einhver
sögurýnandi eftir hæfilega langan
tíma geta greint Guð að verki í
ákvarðanatöku þingmanna og
ríkisstjórnar?
Jólahugvekja í Morgun-
bla&inu
MENNINGIN ÚTÁ
VIÐ ÉYKST
Sauðkindin er að verða menning-
aratriði í landinu eins og Þjóð-
leikhúsið en ekki atvinnutæki
Bændablaðió
ENDALOK
MANNÚÐAR.
STEFNU
Skömmu fyrir jól höfðaði ríkis-
saksóknari mál á hendur forráða-
mönnum Stöðvar tvö fyrir
klám... Þessi málshöfðun er í
senn hlægileg og hættuleg...
Ríkissaksóknari hefur margt
annað þarfara að gera en að
reyna að meina okkur að horfa á
það, sem heldur mannkyninu
JÓLABARN ALÞÝÐ-
UFLOKKSINS
Jæja vinur sæll, þú varst fímm-
tugur í gær, þriðjudag, og heldur
upp á afmælið á Gaflinum á
morgun, fimmtudag. Þar sem þú
varst erlendis á afmælisdaginn
taldi ég eðlilegra að birta bréfíð í
dag, miðvikudag. Við hjónin
munum maeta til veislunnar á
fimmtudag.
Afmælisbréf til Kjartans
Jóhannssonar í Alþý&u-
bla&inu
ÆEREKKINÓGAF
REFSKAP FYRIR?
Hér þarf að hefja friðarsókn til
verndar villtum dýrum. Og áran-
gurs mun helst að vænta ef menn
reyna að setja sig í spor dýranna.
Morgunbla&id
ÞJÁLFUN FYRIR
SAMEINAÐA EVR-
ÓPU
Síðasta menningarbylgjan sem
reið yfír okkur felst í þeirri al-
þjóðahyggju að fara að berja fólk
og stinga í miðbænum likt og í
miðbæjum annarra stórborga.
Þetta sýnir hvað við fylgjumst vel
Morgunbla&i&
ÍSLANDS
ÞÚSUND ÁR
Verður verðbólgan 20-30% að ei-
h'fu?
Morgunbla&i&
VÍSINDIN EFLA
ALLA DÁÐ
Niðurstaða: Það er betra að
strjúka niður eftir andliti við-
skiptavinarins en uppeftir því ogx
vænlegra til að græða á honum en
se öfugt að farið.
Tíminn. um námskeid
hjá Stjórnunarfélaginu
Ég skoða tilgang
hlutanna