Þjóðviljinn - 30.12.1989, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 30.12.1989, Blaðsíða 7
Ný heimsmynd Hrun kommúnismans Sigur lýðræðisins Árið 1989 verður í sögunni helgað lýðræðisbyltingunni í löndum Austur-Evrópu. Fólkið tók völdin í eigin hendur og krafðist frelsis og réttlætis. Kommúnisminn var hrópaður niður. Leiðtogar flokksins voru reknir úr valdastólum, dæmdir fyrir svik og spillingu. Persónu- gervingur siðleysis og stalínisma, einræðisherrann í Rúmeníu, sem gert hafði flokkinn að eign fjöl- skyldu sinnar var tekinn af lífi að kvöldi jóladags. Hin unga kynslóð í Aust- ur-Evrópu birtist baráttuglöð á sjónvarpsskjám um heim allan, táknmynd frelsis og hugdirfsku, fyrirheit um nýja tíma. Dagur lýðræðiskynslóðanna var runn- inn upp. Saga kommúnismans að kvöldi kominn. Unga fólkið sem söng og hló á rústum Berlínar-múrsins, fulltrú- ar Samstöðu sem tóku við stjórn- inni í Póllandi, frjálsar kosningar í Ungverjalandi, afhjúpun spill- ingarinnar og hóglífisins í heim- kynnum flokksaðalsins í Aust- ur-Pýskalandi, barátta óbreyttra borgara við ógnarsveitir Ce- ausescus - ótal atburðir hafa á fáeinum vikum gjörbreytt heimsmyndinni. Einstök ártöl verða tákn mik- illa atburða. Sprengikraftur síð- ustu vikna ársins 1989 er slíkur að áhrifanna mun gæta í marga ára- tugi. Á fáeinum vikum hrundi kommúnisminn í Austur-Evrópu eins og spilaborg. Fólkið feykti burt því stjórnarkerfi sem margir töidu að yrði eilífðarvél. Sagan verður aldrei söm. Ný og gjör- breytt heimsmynd er að skapast á rústum hruninna múra. Gjjaldþrot lenínismans Kenningin um úrvalsflokkinn og alræði öreiganna hefur í ára- tugi verið helsti þátturinn í skipt- ingu hreyfingar jafnaðarsinna í andstæðar fylkingar. Þeir sem fylgdu braut lýðræðis og fjöl- flokkakerfis vildu hafa í heiðri leikreglur þingræðisins og treysta fólkinu sjálfu til að skapa söguna og varðveita valdið. Byltingar- sinnarnir, lærisveinar Leníns, trúðu hins vegar á úrvalssveitina og boðuðu að alræði öreiganna í höndum kommúnistaflokksins væri lykillinn að hliðum fyrirheita landsins. Kommúnisminn var grundvall- arþátturinn í stjómkerfiskenn- ingu Sovétríkjanna og í kjölfar heimsstyrjaldarinnar síðari var honum komið á með hervaldi í mörgum löndum Austur- Evrópu. Lenínisminn var formúl- an sem kommúnistaflokkarnir beittu til þess að réttlæta vald sitt. Úrvali verkalýðsstéttarinnar væri best treystandi til að móta sög- una. Flokkurinn væri vettvangur hinna útvöldu. Kommúnistarnir bæra af öðrum mönnum. Flokk- ur þeirra væri siðferðisgrund- völlur ríkisvaldsins. Lenín varð að tákni hinnar nýju yfirstéttar. Hann varð hinn nýi guð. Styttur voru reistar, myndir og merki borin honum til dýrðar. Saga mannkynsins geymir fjöldamargar frásagnir af kenn- ingum sem reyndust ekki annað en villuljós og blekkingarvefur. Þeirra blómaskeið var stutt því veruleikinn sjálfur er miskunnar- laus gagnrýnandi. Hrun komm- únismans í löndum Austur-Evr- ópu - frelsishreyfing fólksins sjálfs - hefur dæmt kenningar Leníns í úreldingardeild mann- kynssögunnar og sett þær á haug- inn með falshugmyndum fyrri alda. í tæpa öld hefur jafnaðarhreyf- ingin liðið vegna mótsagnarinnar milli lenínismans annars vegar og lýðræðisins hins vegar. Veru- leikinn sjálfur hefur nú kveðið upp sinn ótvíræða dóm. Komm- únisminn, framlag Leníns og So- vétríkjanna til hugmyndasögu veraldarinnar, hefur beðið end- anlegan ósigur. Fólkið sjálft svipti honum burt á fáeinum vik- um. Jafnaðarstefna lýðræðissinn- anna hefur reynst sigursæl. Sam- tvinnun jafnaðar og lýðræðis er sú kenning sem ber í sér frelsisþrá fólksins og kraft nýrrar sköpun- ar. Jafnaðarhreyfing Evrópu get- ur nú á ný sameinast undir einu merki, tákni frelsis, jafnréttis og bræðralags. Hin spillta yfirstétt Austur- Evrópu gerði að lokum sjálf útaf við kommúnismann. Hinar nýju kynslóðir lýðræðissinna og hug- djarfra andófsmanna vefa nú saman á ný hugsjónir jafnaðar- stefnu og lýðræðis. Handhafar flokksins: Hin spillta yfirstétt Kommúnistaflokkamir sóttu tilverurétt sinn í kenninguna um úrvalssveit verkalýðsstéttarinn- ar. Alræði öreiganna var fest í sessi með einokun Flokksins á öllu valdi. Lýðræðislegar kosn- ingar voru úr sögunni. Sjálfstæð- um fjöldahreyfingum var útrýmt. Áramótagrein Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Al- þýðubandalags- ms Gagnrýnendur voru ýmist hnepptir í fangelsi, settir í þræla- búðir eða teknir af lífi. Kommún- istaflokkarnir breyttust á skömmum tíma í spillta yfirstétt. Flokksmennirair voru sviptir sjálfstæðum vilja. Foringjarnir urðu handhafar flokksviljans. Á sama tíma og skortur á flest- um lífsnauðsynjum og hversdags- legum þægindum nútímans varð hlutskipti alþýðunnar í lýðveld- unum sem við hana voru kennd bjó yfirstétt kommúnistaflokk- anna í vellystingum og skóp sér forréttindi sem skáru sig svo úr hversdagslegu hlutskipti fjöldans að helst verður líkt við líf aðalsins í lénsveldum fyrri alda. Handhaf- ar flokksins hófu sjálfa sig til vegs og dýrðar. Þeir bjuggu í sérstök- um hverfum þar sem ekkert skorti. Þeir einir höfðu aðgang að sérverslunum með lystisemdum Vesturlanda. Þeir voru fluttir í glæsibifreiðum á sérstökum ak- brautum og höfðu einir aðgang að umheiminum. Kenning Lem'ns um úrvals- flokkinn reyndist hentugt tæki í höndum hinnar nýju yfirstéttar. Hún fól í sér réttlætingu forrétt- inda og sérstöðu. Hún tryggði valdið og skóp vopn til að berja niður andstöðu. Flokkurinn og Hreyfingin voru myndbirting hins æðsta valds. í ádeiluritum fyrr á öldinni vöruðu lýðræðissinnarnir við af- leiðingum Lenínismans. Þeir á- réttuðu að kenningin um úrvals- flokkinn myndi á skömmum tíma breytast í afskræmingu. Bylting- arflokkurinn myndi gera sjálfan sig að aðalstétt alþýðunnar. Sag- an hefur gert þessa viðvörun að sannleiksorðum. Myndirnar frá heimkynnum Honeckers og öðr- um höfðingjum kommúnista- flokks Austur-Þýskalands skópu reiðiöldu sem reis svo hátt að fall- þungi hennar braut í mél valda- kerfi kommúnistaflokksins. Af- taka Ceausescus var fordæming á kenningunni sem að lokum gerði stjómkerfið og flokkinn sjálfan að fjölskyldueign. Lýðræ&iskynslóð og andófshreyfingar Sannleikurinn um valdakerfi kommúnismann hefur lengi verið ljós öllum þeim sem hann vildu í raun og veru þekkja. Andófs- hreyfingar hafa í áratugi verið málsvarar réttlætis og lýðræðis í Sovétríkjunum og öðrum lönd- um Austur-Evrópu. Gúlagið er löngu kunnugt þeim sem vildu vita. Þar var tilvist þeirra sem dirfðust að orða sjálfstæða hugs- un. Pastemak og Soltsénitsín voru fordæmdir og bækur þeirra bannaðar. Sakharov var settur í stofufangelsi í Gorkí. Dubcék sat í einangrun umlukinn opinberri þögn. Lech Walesa var sviptur öllum rétti. Havek var á skrá hinna útskúfuðu og Charta-77 of- sótt hreyfing ofurhuga sem sífellt áttu útlegðina á hættu. Vonameisti andófshreyfing- anna slokknaði þó aldrei með öllu. Ljós lýðræðisins logaði í myrkrinu. Ný kynslóð óx úr grasi. Árið 1968 varð tákn lýð- ræðishreyfingar í hugmynda- heimi Vesturlanda og einnig vorsins í Prag. Hin vestræna kyn- slóð frá árinu 1968 skóp sjálf sína sögu en vorið í Prag varð að löngum vetri á fáeinum dægrum. Tíminn leið og nýjar kynslóðir uxu úr grasi í austurvegi, böm að aldri þegar vetur harðstjómar- innar frysti vonir vorsins. Sókn- djörfustu lýðræðissinnamir frá árinu 1968 gerðust forystumenn andófshreyfinganna. Tækniöld nýrrar fjölmiðlunar dró smátt og smátt máttinn úr hugmyndaein- okun flokksræðisins. I Sovétríkj- unum gerðist Gorbatsjov braut- ryðjandi afhjúpunarinnar. Lyg- um fortíðarinnar var varpað burt. Ógnir Stalínstímans voru ekki lengur leyndarmál. Einokun Flokksins á öllu valdi var vikið til hliðar. Kommúnistaflokkamir gátu ekki framar skákað í skjóli hervalds. Varsjárbandalagið var ekki lengur samtryggingarkerfi kommúnistaflokkanna í Aust- ur-Evrópu. Þeir urðu að standast dóm fólksins eða tortímast ella. Uueántaour30.dMM)bw19eaNÝTTHELaARBUU>>SlBA7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.