Þjóðviljinn - 30.12.1989, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 30.12.1989, Blaðsíða 18
IÞROTTAANNALL Landsliðin í eldlínunni Atburðir vinsœlustu íþróttagreina hérlendis lítillega rifjaðir upp íþróttir hafa verið mun minna í heimsfréttunum á þessu ári en í fyrra og skal engan undra yfir því. Annað hvert ár eiga tveir stærstu íþróttaviðburðir heims fastan sess, þe. ólympíuleikar og heimsmeistarakeppni í knatt- spyrnu, og hefur því ríkt einskon- ar millibilsástand á þessu ári. Þá hafa hinir tíðu stórviðburðir í al- þjóðamálum vitaskuld dregið úr fréttagildi íþróttanna. íslenskir íþróttamenn hafa hinsvegar haft í nógu að snúast þetta árið sem önnur og hrifu oft á tíðum þjóð- ina með sér í leik sínum. Við skulum stikla mjög á stóru um nokkrar vinsælar íþróttagreinar. Hlutu uppreisn æru í upphafi árs höfðu íslendingar varla náð sér eftir áfallið á ól- ympíuleikunum haustið áður og fór heldur lítið fyrir íþróttaanda þjóðarinnar. Enda hefurþað loð- að við landann að leggjast undir feld þegar verr gengur en óskað er eftir. Strákunum okkar einu sönnu í handboltalandsliðinu tókst að rífa upp þjóðarstoltið á ný með glæsilegum árangri í B- heimsmeistarakeppninni í Frakk- landi. Eftir alltof lítinn undirbún- ing léku þeir aldrei betur og fóru eftirminnilega með sigur af hólmi. íslendingar flykktust í hundruða tali til Parísar til að hvetja sína menn og hefur það varla skemmt fyrir. Eftir þetta hefur landsliðið tekið því mun rólegar en við eigum að venjast en undirbúning- ur er rétt að hefjast fyrir A- keppnina í Tékkóslóvakíu í fe- brúar næstkomandi. Enda þótt ýmsir landsliðsmannanna hafi ætlað að hætta eftir B-keppnina hefur tekist að smala öllum hópn- um á ný og fer vel á því að kjam- inn í besta landslið okkar fyrr og síðar endi á meðal þeirra allra bestu. Landslið okkar 21 árs og yngri stóð sig mjög vel á árinu, Liðið vann sér þátttökurétt í loka- keppni heimsmeistaramótsins og tryggði sér rétt til að leika í næstu keppni með fimmta sætinu. Þetta lið verður að líkindum uppistað- an í landsliði okkar á næsta ára- tug og verða þessir leikmenn að nálgast toppinn árið 1995 þegar heimsmeistarakeppnin verður haldin hér á landi (ef guð lofar, því það á eftir að leysa hnútinn varðandi handboltahöllina). Það Iofar góðu að eiga svo frambæri- legan mannskap, en framganga HSÍ fyrir úrslitakeppni 21-árs liðsins var til skammar og alröng í alla staði. Árangur liðsins var svo sannarlega ekki sambandinu að þakka. íslandsmótið í 1. deild karla var sérlega skemmtilegt sl. vetur. Nýju blóði hafði verið hleypt í deildina með heimkomu nokkura atvinnumanna og státuðu einstök félög af liðum á heimsmæli- kvarða. Eftir harða keppni fram- an af við KR og FH höfðu Vals- menn þó lang sterkasta liðið og unnu mjög sanngjarnan sigur í sterkri 1. deildinni. Þeir voru einnig grátlega nálægt úrslitum í Evrópukeppni meistaraliða. { undanúrslitunum lék liðið gegn Magdeburg frá A-Þýskalandi og vann fyrri leikinn hér heima nokkuð auðveldlega, 22-16. Óheppnin elti Valsmenn í síðari leiknum og töpuðu þeir 21-15 og féllu þannig úr keppni vegna færri marka á útivelli. Nægir að kenna vítanýtingu Valsmanna um ósköpin en alls fóru sjö víti forgörðum í leikjunum tveimur! Mikill uppgangur er nú í íþróttalífi Garðbæinga, einsog reyndar hjá grönnum þeirra í Firðingum einnig. Stjarnan vann eftirminnilega sigur í bikar- keppnum karla og kvenna í hand- bolta, en andstæðingarnir í úrs- litaleik beggja kynja voru FH. Nokkuð stór biti fyrir Gaflara að kyngja. Og í knattspyrnunni komst lið Stjömunnar í fyrsta skipti í 1. deild karla eftir aðeins eins árs dvöl í 2. deild. Nú í haust hefur handboltinn í 1. deild verið mun jafnari og eiga fjögur liða ágæta möguleika á sigri: Valur, FH, Stjarnan og KR. í 1. deild kvenna hafa Fram- arar sýnt yfirburði á þessu ári einsog undanfarin ár, en Stjarnan virðist eina liðið sem getur veitt þeim einhverja keppni. Stórleikir landsliösins Landslið okkar í knattspyrnu átti viðburðarríkt ár, þótt aðeins væru leiknir sex leikir, og voru lengi bundnar vonir við að liðinu tækist að komast í úrslitakeppni HM á Ítalíu næsta sumar. íslandi hefur nefnilega aldrei gengið bet- ur en samt fór svo að lið okkar hafnaði í neðsta sæti. Fyrsti leikur þessa árs í keppn- inni var gegn Sovétmönnum í Moskvu. Þar náði ísland þeim undraverða árangri að skora hjá heimamönnum - sem ekki höfðu fengið á sig mark í 24 ár á heima- velli - og að hafa með sér annað stigið frá Moskvu - fyrst allra liða frá upphafi í keppninni. Halldór Áskelsson skoraði þetta sögulega mark á síðustu mínútunum eftir að Dobrovolskíj hafði riáð föryst- unni beint úr aukaspyrnu. Næst gerðu íslendingar marka- laust jafntefli við Austurríki í Laugardalnum eftir að hafa mis- notað fjölda marktækifæra og var staðan í 3. riðli þá mjög tvísýn. Tap gegn sömu þjóð, 1-2 í Salz- burg í ágúst, minnkaði mögu- leikana talsvert og vonir okkar fóru endanlega fyrir bí þegar A- Þjóðverjar unnu 0-3 sigur í Laugardalnum. í síðasta leik sín- um hlaut landsliðið uppreisn æru með öruggum sigri á Tyrkjum, 2-1. Þá var Siegfried Held hættur með landsliðið og Guðni Kjart- ansson gaf Pétri Péturssyni tíma- bært tækifæri með liðinu, en hann þakkaði fyrir sig með tveimur mörkum. Vonandi semur ný stjórn KSÍ ekki svo illilega af sér og fyrri stjóm með fáránlegum samningi við Herr Held. Löngu er kominn tími til að leggja meiri metnað í landslið okkar en að tryggja því neðsta sætið í sífellu. Hjá öðmm landsliðum vakti glæsilegur árangur 21-árs lands- liðsins athygli en hafnaði í öðru sæti í sínum riðli í Evrópukeppn- inni. Ma. sigraði liðið Hollend- inga ytra og gerði tvö jafntefli við V-Þjóðverja, en minnisstæðastur er 4-0 sigur gegn Finnum þarsem Sauðkrækingurinn Eyjólfur Sverrisson skoraði öll mörkin. Þessi frammistaða hans vakti mikla athygli og hefur hann nú gengið til liðs við Stuttgart í V- Þýskalandi. íslandsmótið í 1. deild hefur varla nokkurn tíma verið meira spennandi en í sumar og andstætt árinu 1988 var ómögulegt að spá fyrir um hvaða lið myndi hreppa titilinn. Fyrir síðustu umferðina áttu fjögur lið enn möguleika á sigri og önnur fjögur voru í fall- hættu. Þannig voru allir fimm leikir lokaumferðarinnar úrslita- leikir á sinn hátt. Augu manna beindust einna helst að leik efsta liðsins, FH, og þess neðsta, Fylki. Úrslitin fóm á annan veg en flestir héldu. Fylkir vann með stórglæsilegu marki nýliðans Kristins Tómassonar og þannig var fslandsmeistaratitillinn í höndum KA, sem sígraði 0-2 í Keflavík. Þessi sigur Fylkis dugði liðinu sk'ammt því Þór vann IA óvænt á Akureyri. Árbæingar féllu því í 2. deild - ásamt ÍBK - á lakara markahlutfalli en Víking- ar. Þegar öllu er á botninn hvolft var sigur KA á íslandsmótinu mjög sanngjam. Liðið tapaði að- eins tveimur leikjum, báðum nokkuð snemma í keppninni. Þeirra besti leikmaður, Þorvald- ur Örlygsson var valinn knatts- pymumaður ársins og hélt síðan utan til liðs við Nottingham For- est í Englandi. Það var ekki síður ánægjuleg tilbreyting sl. sumar að einræði Vals, Fram og ÍA í Evrópu- keppnunum verður úr sögunni á næsta ári. Framarar verða reyndar áfram í keppninni þar- sem þeir sigmðu KR-inga í fjör- ugum bikarúrslitaleik, en KA og FH hafa aldrei tekið þátt í keppn- inni fyrr. Það verður ágætt að hleypa nýju blóði í þessa leiki en íslensku félagsliðin máttu sín lítils í Evrópukeppnum á árinu. í keppni meistaraliða glímdu Framarar við fyrmm Evrópum- eistara Steaua Búkarest frá Rúm- eníu og töpuðu 4-0 og 0-1. Vals- mönnum gekk nokkuð betur gegn Dynamo Berlín í keppni bikarhafa, en töpuðu þó 1-2 og 2-1. Þá töpuðu Skagamenn 0-2 og 4-1 fyrir FC Liege frá Belgíu. í 1. deild kvenna höfðu Vals- stúlkur yfirburði og sigrðu örugg- lega, en Skaginn sigraði í bikar- keppninni. Hinsvegar þótti Arna Steinsen KR-ingur besti leikmað- ur deildarinnar í ár. íþróttamenn ársins í körfuknattleiknum mistókst Njarðvíkingum enn að sigra í úrslitakeppninni og fóm Keflvíkingar með sigur af hólmi eftir skemmtilega keppni. Sú breyting var gerð í haust að er- lendum leikmönnum er á ný heimilt að leika með liðunum og hefur það sett meiri svip á keppn- ina í haust. Styrkur liðanna hefur breyst lítillega eftir getu þessara leikmanna sem leika vitaskuld lykilhlutverk með liðum sínum. í haust. hafa Njarðvíkingar síðan borið höfuð og herðáf yfil' önnur lið og hljóta þeir að sigra í keppn- inni í vor. Sá íslenski ; íþróttamaður sem vann hvað stærst afrek á árinu vár ' án vafa spjótkastarinn Sigurður Einarsson. Hann stóð sig frábær- lega á stigamótum erlendis og náði loks að skyggja á keppinaut sinn Einar Vilhjálmsson. Sigurð- ur hafnaði í þriðja sæti stigamót- anna, þarsem allir bestu kastarar tóku þátt, og var í kjölfarið valinn fulltrúi Evrópu á heimsleikum. Hann sýndi mjög stígandi fram- farir á keppnistímabilinu og náði mjög jafn góðum árangri á stór- mótum. „Stóra kastið“ virðist Sigurður þó enn eiga eftir og verður fróðlegt að fylgjast með honum í framtíðinni, rétt einsog Einari Vihjálmssyni. Nú er rétt í þessu verið að velja íþróttamann ársins og kemur Sig- urður vissulega sterklega til greina í því kjöri. Einnig eru margir knattspymu- og hand- knattleiksmenn sigurstranglegir í kjörinu sem ávallt vekur mikla athygli. Fatlaðir hafa þegar valið íþróttamann ársins í sínum röðum og varð Sigrún Huld Hrafnsdóttir fyrir valinu. Hún sýndi einstakan árangur á árinu og vann til fjölda gullverðlauna á Norðurlanda- og heimsmeistara- mótum. Þegar talað er um íþróttamenn ársins má minna á að Bjarni Friðriksson hefur 11 sinnum í. röð verið valinn júdó- maður ársins, þótt aldrei hafi hann náð að sigra í kjörinu. -þóm 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 30. desember 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.