Þjóðviljinn - 30.12.1989, Page 9
Hvaö er þér minnisstæðast á árinu
Opið bréf
Birkir Friðbertsson
Vitrænni samskipti
Kristín Jóhannesdóttir
Þorsteinn Jónsson
Hrafn Gunnlaugsson
í opnu bréfi til Páls Skúlasonar
formanns stjórnar Menningar-
sjóðs útvarpsstöðva kemur fram
eftirfarandi:
„Jafnframt hafði menntamála-
ráðherra lofað á fundi með Stjórn
kvikmyndasjóðs að ef aðeins
þyrfti reglugerðarbreytingu
skyldi hann sjá til þess að sjóður-
inn nýttist sjálfstæðum íslenskum
kvikmyndagerðarmönnum. Eftir
að ráðuneytisstjóri menntamála-
ráðuneytisins hafði kynnt sér
málið kom í ljós að hægt var að
breyta reglugerðinni þannig að
sjóðurinn nýttist sjálfstæðri kvik-
myndagerð. Um leið og þetta
upplýstist, gleymdi menntamála-
ráðherra loforði sínu.”
Ekki veit ég hvað þessi athuga-
semd á að þýða en mér er augljós-
lega ætlaður boðskapurinn og því
svara ég fyrir mig með opnu bréfi.
1. Strax og það lá fyrir að
breyta mætti sjóðsreglunu'm að
þessu leyti með reglugerð ræddi
ég það við formann stjórnar
Menningarsjóðsins. Hann
mæltist undan reglugerðar-
breytingu á þeirri forsendu að
unnið væri að uppgjöri á sjóðnum
aftur í tímann meðal annars van-
skilum útvarpsstöðva. Taldi hann
rangt að breyta reglugerð fyrr en
uppgjör lægi fyrir. Ég féllst á
þetta sjónarmið enda virtist þá
skammt í að unnt yrði að knýja
stöðvarnar til uppgjörs. Því mið-
ur var þessi bjartsýni ekki á rök-
um reist eins og ykkur er kunn-
ugt.
2. Kvikmyndagerðarmenn
hafa koniið ítrekað á minn fund í
ráðuneytinu til þess að fjalla um
kvikmyndagerðina í landinu.
Höfum við meðal annars rætt um
aðgang íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna að erlendum sjóð-
um sem kvikmyndagerðarmen
hafa fagnað. Við höfum rætt um
nauðsyn þess að virðisauka-
skattur verði ekki lagður á ís-
lenskar kvikmyndir, en sam-
kvæmt gildandi lögum er sölu-
skattur lagður á íslenskar kvik-
myndir þó enginn hafi rukkað
enn fyrir þær og verður vonandi
aldrei gert. Kvikmyndagerðar-
menn hafa fagnað niðurstöðum
sem fyrir liggja í þessu efni. í
þriðja lagi höfum við rætt um
kvikmyndasjóð og stöðu hans á
árinu 1990. Við erum sammála
um að framlagið í sjóðinn er
mörg ljósár frá þeim veruleika
sem verður að takast á við. Kvik-
myndirnar eru svo mikilvægur
þáttur íslenskrar menningar-
sköpunar að það er með öllu frá-
leitt að búa við kvikmyndasjóð-
inn í þessu formi áfram. Þess
vegna verður að hefna þess á öðr-
um vettvangi sem hallast á kvik-
myndasjóðinn við afgreiðslu fjár-
laga og við ætlum að gera það. í
fjórða lagi höfum við rætt um
framtíðarskipan kvikmynda-
sjóðsins og það augljósa ranglæti
sem felst í því að kvikmynda-
menn hafa orðið að hætta öllum
eigum sínum - og hafa oft misst
þær- meðan aðrir framleiðendur
hér á landi búa við þær aðstæður
að geta jafnvel leitað ríkis-
ábyrgðar fyrir framleiðslulánum
sínum.
Allt þeta höfum við rætt. Hafi
ráðherrann verið gleyminn sem
hann er ekki þó hann segi sjálfur
frá þá hefðu fundarmenn haft
ótal tækifæri til þess að hrista upp
í undirrituðum. Pað að höfundar
hins opna bréfs kjósa heldur að
senda frá sér athugasemdir í bréfi
til Páls Skulasonar er lítt skiljan-
legt. Og þessi svargrein er ekki til
þess skrifuð að biðja um skýring-
ar. En hún er svar.
Svavar Gestsson
29.12. 1989
Af erlendum vettvangi er Birki
Friðbertssyni bónda í Birkihlíð
við Súgandafjörð minnistæðast á
árinu hversu samskipti milli
austurs og vesturs hafa batnað og
orðið vitsmunalegri. Þó finnst
Birki að íslenskir fjölmiðlar
sumir hverjir að minnsta kosti
eigi í erfiðleikum með að fjalla
um þá breytingu á trúverðugan
hátt.
Jafnframt telur Birkir að þeir
atburðir sem gerst hafa í Panama
og í Rúmeníu séu þess eðlis að
áleitin verði sú spurning hverjir
séu sekir og hverjir séu saklausir
og spyr hvort þessi mál séu ekki
eitthvað blendin.
Af innlendum atburðum er hin
mikia úrkoma og jafnframt þau
þungu sjóalög sem voru fram
eftir árinu Birki hugstæð og eftir-
minnileg. En eins og kunnugt er
leysti ekki snjóa fyrir vestan fyrr
en langt var liðið á vorið. Birkir
segist ekki muna eftir annarri
eins ótíð en þó með þeim fyrir-
vara að minnið í þeim efnum sé
kannski ekki alveg óbrigðult.
Af minnisstæðum persónu-
legum atburðum sagði Birkir
hann hafa verið í sama hjólfarinu
í ár sem og undanfarin ár og er í
sjálfu sér alveg þokkalega
ánægðir með sitt hlutskipti á ár-
inu sem er að líða. Jafnvel þó
hann hafi ekki fengið stóra
happdrættisvinninginn í ár.
-grh
Eflirtalin bœjarfélög
senda íbúum og landsmönnum
öllum bestu óskir um farsœlt komandi ör
AKUREYRI
GARÐABÆR
REYKJAVIK
VESTMANNAEYJAR
HAFN ARFJ ÖRÐUR
SIGLUFJ ÖRÐUR
A
KOPAVOGUR
NESKAUPSTAÐUR
GRINDAVIK
Laugardagur 30. desember 1989 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9