Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 14
Hvaö er þer minnisstæðast á árinu
Jón Loftsson
Fyrsta ríkisstofnumn
flutt út á land
Jón Loftsson, sem verið hefur
skógarvörður á Hallormsstað
undanfarin ár, var í haust skipað-
ur skógræktarstjóri ríkisins frá og
með 1. janúar 1990 og á sama
tíma flyst aðsetur Skógræktarinn-
ar til Egilsstaða. Þessi tímamót
eru Jóni eðlilega efst í huga við
áramót:
- Ákvörðun Alþingis á vor-
dögum um að flytja Skógræktina
á Fljótsdalshérað var mér náttúr-
lega mikið gleðiefni, bæði sem
skógræktarmanni og sveitar-
stjórnarmanni, en ég sit í hrepps-
nefnd Vallahrepps. Skógræktin
er fyrsta gamalgróna ríkisstofn-
unin sem flutt er út á land. Sumir
hafa að vísu brugðist við þessu
eins og verið sé að flytja síðasta
atvinnutækifærið frá Reykjavík.
En margar umsóknir hafa borist
um störfin og ég er bjartsýnn.
Á árinu var markað með laga-
setningu stærsta skógræktarátak
hingað til hérlendis. Allt er þetta
jákvætt, þótt manni sárni að við
afgreiðslu fjárlaga skuli fjár-
veiting upp á 60 milljónir hafa
verið skorin niður í 15. Skógrækt-
arátakið á Héraði skiptir miklu
fyrir þessar byggðir en verður
ekki framkvæmt á þennan hátt.
Af erlendum vettvangi standa
atburðir austan jámtjalds upp úr,
og einnig sú andstæða perestrojk-
unnar sem heimurinn frétti af í
Kína. Gorbatsjof og stefna hans
eru að baki þessum óskaplega
hröðu breytingum í A-Evrópu,
hann er að minnsta kosti sam-
nefnarinn, þótt rangt sé að rekja
HAGKAUP
* 1/ið óskiim
Candsmönnum öííum „
* árs og friðar
* *
★ *
Opnum aftur miðvikudaginn 3. janúar
til eins manns. Á tímum tölvu-
tækni og upplýsingastreymis
verður fólki ekki haldið í lögregl-
uríkjum lengur. qht
Ragnhildur
Guðmundsdóttir
Kjaramálin
aldrei
jafn erfið
og1989
Kjaramálin hafa verið pláss-
frekust í huga mínum nú sem
endranær, segir Ragnhildur Guð-
mundsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra símamanna, en hins veg-
ar hefur mér sjaldan á 10 ára ferli
mínum í verkalýðsbaráttunni
fundist þetta jafn erfitt og nú og
jafn litlum skilningi að mæta hjá
ráðamönnum. Þeir hafa höggvið
að okkur launþegum með tali um
atvinnuleysi og slæma stöðu ríkis-
sjóðs, til að kalla fram sektar-
kennd hjá okkur. Ýmsu er um að
kenna, ríkisstjórnin hefur til
dæmis fengið of frítt spil vegna
lélegrar og ábyrgðarlausrar
stjómarandstöðu sem skapar
lítið aðhald.
Ég er líka mjög ósátt við fram-
komu Rafiðnaðarsambandsins
gagnvart Félagi íslenskra síma-
manna. Þeir hafa verið á sálna-
veiðum og lokkað fólk á fölskum
forsendum úr okkar félagi í sitt,
með gylliboðum sem ekki stand-
ast.
Slys á Akureyri og Skaga-
strönd nýlega snertu mig djúpt,
þar misstu eiginkonur menn og
heimili. Maður þakkar samt bet-
ur fyrir það sem maður hefur við
að heyra um svona áföll.
Við erum ekki búin að sjá fyrir
endann á atburðunum í A-
Evrópu, sem auðvitað eru merk-
ilegustu viðburðir ársins erlendis.
Átökin í Panama vekja líka til
umhugsunar. Það er ógnvekjandi
að menn sem selja og ef til vill
nota eiturlyf hafi svo mikil völd
sem dæmin hafa sannað. Þótt
ólíku sé saman að jafna eru hér-
lendis líka veruleg vandamál
vegna áfengis og eiturlyfja. Allt
slíkt smitar út frá sér.
Ég hef tröllatrú á því að sam-
vinna kynjanna beri mikinn ár-
angur á næstunni ef þau ná að
starfa saman á jafnréttisgrund-
velli. ÓHT
14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ