Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 4
Gro Harlem Brundtland Flytjum út umhverfis- vemd og félagslegt öryggi Gro Harlem Brundtland, formaöur norska Verkamannaflokksins, er ekki meðal þeirra sem telja að vægi samstarfs Norðurlanda muni minnka á næstu árum. Þvert á móti telur hún Norðurlönd hafa miklu hlutverki að gegna og vill að þau taki utanríkis- og öryggismál á dagskrá Norðurlandaráðs auk þess sem nú er á verksviði ráðsins. „Það samstarf sem við eigum í nú er mjög mikilvægt, en við eigum líka að fjalla um utanríkismál. Þróunin í alþjóðamálum skiptir okkur öll sífellt meira máli. Það hefur skaðað ráðið út á við að sífellt kemur upp ágreiningur um utanríkismál á þingum þess án þess að nokkur niður- staða fáist. Við verðum því að taka af- stöðu til þess hvort utanríkisráð- herrar og þeir sem fara með þró- unaraðstoð og viðskipti eigi ekki að eiga aðild að ráðinu og taka þátt í skoðanaskiptum. Jafnframt tel ég að við eigum að koma upp utanríkismálanefnd á vegum ráðsins," segir Gro í samtali við Nýtt Helgarblað. Hún segir að þegar komið hafi verið á sameiginlegu öryggiskerfi í Evrópu, verði Norðurlönd sterkt svæði í hinni nýju Evrópu, vegna samvinnu landanna og vegna þess að þau geta talað einni tungu um gildi og forgangsmál. En þá verði starf ráðsins einnig að ná til utanríkismála. Alþjóöleg viðurkenning Gro Harlem Brundtland er meðal fárra norrænna stjórnmálamanna sem náð hafa alþjóðlegri viðurkenningu fyrir störf sfn. Hún hafði forystu fyrir nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fjallaði um umhverfísmál. Nefndin fékk raunar nafn hennar og kallast Brundtland-nefndin. Gro hefur fengið ýmis alþjóðleg verðlaun, m.a. á sviði umhverfis- mála, enda þótt umhverfisvernd- arsinnar í heimalandi hennar séu að mörgu leyti óánægðir með störf hennar að þeim málum. Þeim fínnst vanta á að samræmi sé milli orða hennar og athafna. Gro varð formaður Verka- mannaflokksins í Noregi árið 1981 og forsætisráðherra sama ár. Hún varð aftur forsætisráð- herra árið 1986 og gegndi því embætti þar til í fyrra, en þá tók Jan P. Syse, formaður Hægri- flokksins, við stjórnartaumun- um. Skoðanakannanir sýna þó að flestir Norðmenn vilja Gro aftur í stól forsætisráðherra. Hún er algjörlega á öndverð- um meiði við Jan P. Syse, sem telur að utanríkismál eigi ekki heima í Norðurlandaráði. Hún vísar jafnframt á bug þeirri skoðun danska forsætisráðherr- ans, Pouls Schlúters, að Norður- landaráð muni fá minna vægi á næstunni vegna þróunarinnar í Evrópu. Stærri Evrópa „Schlúter talar frá sjónarhóli sínum í Evrópubandalaginu. Það er staðreynd að Danir hafa starf- að með hálfum huga í Norður- landaráði allar götur síðan þeir gengu í EB og hafa í auknum mæli litið þannig á að hagsmun- um þeirra sé best borgið í EB. Við verðum því að skoða ummæli Schlúters út frá sérstöðu Dan- merkur. En á næstu tíu árum munu Danir kannski komast að því að hinum sameiginlegu gildum Norðurlanda er betur borgið í svæðisbundnu, norrænu sam- starfi í Evrópu sem er víðari en sem nemur EB. Þá á ég við að samskipti Evrópuríkja austan og vestan munu aukast mjög á sviði „Það er staðreynd að Danir hafa starfað með hálfum huga í Norður- landaráði allar götur síð- an þeir gengu í EB “ menningarmála, efnahagsmála og öryggismála. Allir geta séð að það stefnir í þetta á þessum ára- tug og þá erum við að tala um samstarf 30 landa en ekki 12 eins og nú. Við þessar aðstæður gæti Dan- mörk horfið út af kortinu og þá getur verið gott að njóta stuðn- ings Norðurlanda." Pað er mikið rœtt um hlutverk Norðurlanda í Austur-Evrópu um þessar mundir. Hvert getur þetta hlutverk verið að þínu mati? „Norræn fyrirtæki geta farið með reynslu og tækni austur og komið á samstarfí við fyrirtæki þar til þess að stuðla að mengun- arvörnum, sem þeir hafa fulla þörf fyrir. Þátttaka norrænna fyr- Gro Harlem Brundtland í viðtali við Nýtt Helgarblað: Umhverfisvernd, neytendamál og félagslegt öryggi verða helstu verkefni Norðurlanda í framtíðinni. Þetta er það sem við stöndum helst fyrir og það sem er mikilvægast að mínu mati. Mynd Kristinn. irtækja getur flýtt fyrir því að þjóðir Austur-Evrópu leysi um- hverfisvandamál sín. Auk þess skapast þarna möguleikar fyrir norræn fyrirtæki á að komast inn á stóran markað. Það eru vissu- lega stór verkefni fyrir höndum í Austur-Evrópu.“ Forysta í um- hverfismálum Verður umhverfisvernd helsta hlutverk Norðurlanda í framtíð- inni? „Já, umhverfisvernd, neyt- endamál og félagslegt öryggi. Þetta er það sem við stöndum helst fyrir og það sem er mikil- vægast að mínu mati. Við getum flutt út hugmyndir.“ Sérðu þá fyrir þér að ríki Austur-Evrópu muni taka upp hið norrcena velferðarkerfi? „Ekki bara þjóðir Austur- Evrópu. Það búa ekki allar þjóðir Vestur-Evrópu við þetta félags- lega öryggi sem við höfum komið upp.“ Þú hefur verið ásjóna Norður- landa út á við í umhverfismálum. Finnst þér Norðurlandaráð leggja ncegilega áherslu á umhverfis- vernd? „Mér þykir Norðurlandaráð hafa verið mjög virkt í umhverf- ismálum og sýnt að Norðurlönd hafa mikinn áhuga á þeim.“ En er árangurinn í samræmi við það? „Árangur af umhverfisvernd „Það er erfitt að spá um Varsjárbandalagið, þar eru innviðirnir fúnir. En ég held ekki að NA TO sé á förum á nœstunni. En það fœr nýtt hlutverk “ sýnir sig ekki strax. En við á Norðurlöndum höfum nokkuð góða stöðu í þessum efnum. Norðurlönd eru ekki meðal „Norðurlönd hafafor- ystu í umhverfismálum nú og það er alveg raun- hœft að œtla að svo muni verða í framtíðinni“ menguðustu landa og ef áætlun- um okkar í umhverfismálum verður fylgt eftir munum við sjá fram á mikinn árangur á næstu fimm til tíu árum. Norðurlönd hafa forystu í um- hverfismálum nú og það er alveg raunhæft að ætla að svo muni verða í framtíðinni." Bjartsýn á samn- inga EFTA og EB Poul Schlúter spáði því á þingi Norðurlandaráðs að Norðurlönd œttu eitt aföðru eftir að sækja um aðild að EB. Er ekki hætt við að Norðurlönd verði að slá af kröf- um sínum í umhverfismálum ef svo fer? „Eg heid það sé engin hætta á því. Það er hins vegar ekki víst að allir aðrir muni fylgja okkur eftir í umhverfismálum. Hvort sem við verðum í eða utan EB mun enginn hindra okk- ur í að fylgja eftir okkar eigin kröfum. Með hliðsjón af þeim málum sem Danir hafa unnið fyrir Evrópudómstólnum held ég að við þurfum ekki að óttast þetta. Þótt við fáum ekki allt sem við viljum þýðir það ekki að það sé tilgangslaust að vinna með EB.“ Pú hefur verið mjög áfram um að EFTA gangi til samninga við EB. Ertu bjartsýn á árangur af vœntanlegum samningaviðræð- um? „Ég held að við munum ná við- unandi samkomulagi við EB þannig að vörur og þjónusta EFTA-landanna nái inn á þenn- an stóra markað og að jafnrétti ríki á milli landanna átján.“ Hernaðarbanda- lögin ekki langlíf Menn ræða mikið um sam- eiginlegt öryggiskerfi Evrópu. Heldurðu að þróunin í Evrópu muni skapa forsendur fyrir því að hægt verði að leggja hernaðar- bandalögin niður í náinni fram- tíð? „Það er erfitt að spá um Var- sjárbandalagið, þar eru innvið- irnir fúnir. En ég held ekki að NATO sé á förum á næstunni. Það hlýtur þó að vera hlutverk bæði austurs og vesturs að koma á breiðara samstarfi í öryggismál- um og gera hernaðarbandalögin óþörf. Hið sameiginlega öryggiskerfi Evrópu verður að byggjast á samningum og það getur orðið hlutverk hernaðarbandalaganna að sjá til þess að þeir verði haldn- ir. Hernaðarbandalögin munu þannig fá nýtt hlutverk. En ég held ekki að NATO muni lifa til lengri tíma. Norski Verkamannaflokkur- inn hefur haft það langtímamark- ð að hægt verði að leggja hernað- arbandalögin niður. En áður en það getur gerst verður að koma á sameiginlegu öryggiskerfi austurs og vesturs. Fyrir fimm til tíu árum var litið á þessa skoðun sem barnaskap og jafnvel ógnun við öryggið, en nú eru menn sam- mála um þetta markmið." -gg 4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.