Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 18
Gulko hefur tak á Kasparov - Rúnar Sigurpálsson Akureyrarmeistari og Norðurlandameistari Stórmeistarinn Boris Gulko er sennilega þekktari hér á landi sem andófsmaður en fyrir skákafrek. í u.þ.b. átta ár mátti hann ásamt eigin- konu sinni Önnu Akmurusovu þola allskyns bolabrögð Brésnefs-tíma- bilsins með tilheyrandi fangelsunum, hungurverkföllum o.s.frv. Öll él styttir upp um síðir, og Gulko- hjónunum var leyft að fara úr landi. Þau settust að f Bandaríkjunum og hafa þar haslað sér völl á skáksviðinu og notið virðingar fyrir reisn og prúðmannlega framkomu. Gulko mun ef að líkum lætur tefla á 1. borði bandarísku sveitarinnar í stórveldaslagnum sem hefst eftir viku. Hann hefur nokkra sérstöðu meðal stórmeistara heims; hefur nán- ast hreint borð í viðureignum sínum við Garrí Kasparov, þrír sigrar og eitt jafntefli og skákirnar allar unnist á frægðartímabili undramannsins frá Baku. Kasparov virtist ætla að stinga af keppinauta sína á stórmótinu í Lin- ares sem nú stendur yfir því eftir sjö umferðir hafði hann vinnings forskot á næsta mann, Boris nokkurn Gelf- and. En Gulko stöðvaði kappann og Gelfand komst upp við hliðina á heimsmeistaranum með því að leggja ágætan kunningja íslendinga: Boris Spasskí. Það kann svo að fara að Gelfand þessi veiti Kasparov harðvítuga kepp- ni um efsta sætið. Þeir gerðu jafntefli í 1. umferð en unnu síðan báðir næstu fjórar skákir. í sjöttu umferð gerði Kasparov jafntefli við Ljubojevic en Gelfand tókst á furðulegan hátt að missa úr höndum sér gjörunna stöðu gegn Nigel Short og tapaði og í sjö- undu umferð jók Kasparov bilið með því að vinna Vasily Invantsjúk í eitr- aðapeðs-afbrigði Sikileyjarvarnar- innar. En í áttundu umferð mætti hann Gulko eins og áður sagði. Áhorfendur á heimsbikarmóti Stöðvar 2 í Reykj avík héldu vart vatni er Kasparov sigraði Jan Timman í einni af lokaumferðum mótsins og hlaut skákin verðlaun sem sú besta í mótinu. En Boris Gulko lét ekki glæsileg tilþrif Kasparovs villa um fyrir sér. Hann hafði sitthvað við tafl- mennskuna að athuga eins og eftirfar- andi skák ber með sér. Það vakti at- hygli að Kasparov var hinn rólegasti að skákinni lokinni. Hann er greini- lega orðinn vanur því að tapa fyrir Gulko: Linares, 8. umferð: Boris Bulko - Garrí Kasparov Kóngsindversk vörn 1. d4-Rf6 2. c4-g6 3. Rc3-Bg7 4. e4-d6 5. Í3-0-0 6. Be3-c6 7. Bd3-e5 8. d5-b5 (Leikur Timmans sem Kasparov tók í þjónustu sína gegn höfundinum sjálf- um í 14. umferð heimsbikarmótsins.) 9. cxb5-cxd5 10. exd5-e4! (Kasparov notaði óratíma á þennan ieik í Borgarleikhúsinu forðum og leikurinn gafst vei. En nú er mesta nýjabrumið farið af.) 11. Rxe4-Rxd5 12. Bg5-Db6?! (Kasparov vill verða fyrri til með endurbætur en hann lék 12. .. Da5+ gegn Timman. Það merkilega við 12. .. Db6 er að Kasparov gefur leiknum spurningamerki í aths. sínum í Infor- mant einmitt vegna 13. Dd2 með hug- myndinni 14. Bc4! Gulko fylgir upp- ástungu andstæðingsins í hvívetna.) 13. Dd2-Rd7 14. Bc4-R5f6 15. Rxf6+ (15. Rxd6-Re5! er alltof hættulegt.) 15. .. Bxf6 16. Bxf6-Rxf6 17. Re3-He8 18. 0-0-0 (Hvíti kóngurinn er ekki í neinni stór- kostlegri hættu og hvítur getur litið björtum augum til framtíðarinnar. Þó vildi Kasparov verja stöðu svarts eftir skákina og skellti allri skuldinni á 21. leikinn.) 18. .. d5 19. Bd3-a6 20. bxa6-d4 21. Kbl-He3? (Hugmyndin er góð: 2. .. Hxd3 23. Dxd3 Bf5, en svona gildru þýðir ekki að bera á borð fyrir Gulko. Svartur varð að freista gæfunnar í stöðunni sem kemur upp eftir 21. .. Bxa6 22. Bxa6-Dxa6 23. Rcl o.s.frv.) SKÁK HELGI ÓLAFSSON a b c d e f g h 22. Bc4!-Bxa6 23. Bxa6-Hxa6 (23, .. Dxa6 var engu skárra því eftir 24. Rcl fellurd4-peðiðt.d. 24... Hd8 25. Dxe3+-dxe3 26. Hxd8+ og hvítur vinnur létt.) 24. Rxd4-He8 (Tími:Hv.: 1.30Sv.. 1.48 Kasparov á enga möguleika í þessari stöðu og úr- vinnsla Gulkos er örugg og sannfærandi) 25. Re2-Hb8 26. Rc3-Db4 27. Hhel-Hd6 28. Dc2-Hdb6 29. He2-Df4 30. h3-Hc6 (Meira viðnám veitti 30. .. Hxb2+ 31. Dxb2 Hxb2+ 32. Kxb2 þó hvítur eigi frábæra vinningsmöguleika.) 31. Dd2-Df5+ 32. Kal-Hb7 33. Dh6-Hc8 34. Hed2-Da5 35. De3-Kg7 36. g4-He8 37. Dd4-Hd7 38. Df2-Hc7 39. Hd3-Ha8 40. Dd2-h6 41. Hd6-Hc4 42. Hd4-Hac8 43. Kbl-De5 44. f4-De6 45. De2-Hxd4 46. Hxd4-Db6 47. Dd2-Da6 48. Dd3-Dc6 49. a3-Dg2 50. Hd6-Hb8 51. De2-Dhl+ 52. Ka2-He8 53. Dd3-Hel 54. Dd4 - og Kasparov gafst upp. Framhaldið gæti orðið 54. ... Hal+ 55. Kb3 Db7+ 56. Hb6 De7 57. g5 og vinnur. Einhver magnaðasta maraþonskák seinni tíma, viðureign Shorts og Sal- ovs úr 3. umferð, endaði sl. mánu- dagskvöld með sigri Salovs í 162 leikjum. Þennan sama dag vann Sal- ov svo Jusupov í 72 leikjum og blandaði sér þar með í baráttuna um efsta sætið. Staðan að loknum átta umferðum: 1.-2. Kasparov og Gelfand 6 v. 3. Sal- ov SVi v. 4.-5. Short og Ivantsjúk 4Vi v. 6. Beljavskí 4 v. 7.-8. Gulko og Jusupov 3Viv. 9-10. Portisch, og III- escas 2 Vi v. og biðskák 11. Spasskí 2 Vi v. Ljubojevic 2 v. Spennandi lokaumferðir eru fram- undan. Kasparov á eftir að tefla við Salov, Beljavskí og Illescas en Gelf- and við Jusupov, Invantsjúk og Lju- bojevic. Rúnar Sigurpálsson tvöfaldur meistari Akureyringar hafa eignast mikið skákmannsefni í hinum 17 ára gamla Rúnari Sigurpálssyni sem um helgina bætti enn einum titlinum í safnið er hann varð skákmeistari Norðlend- inga á 55. mótinu sem haldið var á Sauðárkróki. Rúnar hlaut 6 vinninga af 7 mögulegum og var hinn öruggi sigurvegari. Rétt viku áður hafði hann tryggt sér sigur á Skákþingi Ak- ureyrar með því að verða efstur ásamt Magnúsi Pálma Örnólfssyni frá Bol- ungarvík. Þeir hlutu 6'/2 v. af 9 mögu- legum en Rúnar telst Akureyrar- meistari því Magnús tefldi sem gest- ur. í 3. sæti varð Bogi Pálsson með 6 vinninga. Leiðrétting á skákþraut Prentvilla eyðiiagði skákþraut síð- asta þáttar. Hvítur átti í raun að máta í þrem leikjum í stað tveggja eins og haldið var fram fuilum fetum. a b c d e f g h Hvítur mátar í 2. leik. Skipulagt stjómleysi Innri málefni Bridgesambands ís-' lands; ákvarðanataka, upplýsinga- streymi, ónægur undirbúningur, hringlandaháttur, heimildaöflun o.fl. eru á dagskrá þáttarins í dag. Seina- gangur í skráningu og útgáfu meist- arastigaskrár og styrkleikaröðun fyrir fslandsmótið í sveitakeppni. f síðasta þætti var tekin fyrir sú ákvörðu að færa undanrásir mótsins til Akur- eyrar, öllum að óvörum, eftir að undanrásum var lokið um land allt. f næstu þáttum verður fjallað frekar um þessi mál, enda af nógu að taka. Dráttur í riðla undankeppni íslandsmóts í sveitakeppni 1990: A-riðill: 1. Pálmi Kristmannsson Austurl. 2. Gunnlaugur Kristjánsson Rvk. 3. Brynjólfur Gestsson Suðurl. 4. Jón Þorvarðarson Rvk. 5. Samvinnuferðir/Landsýn, Rvk. 6. Jón Andrésson R.nes. 7. B/M Vallá Rvk. 8. Trésfld Austurl. B-riðill: 1. Modem Iceland Rvk. 2. Þorsteinn Bergsson Austurl. 3. Friðþjófur Einarsson R.nes. 4. Delta Rvk. 5. Harðar Bakarí Vesturl. 6. Grettir Frímannsson Norð.Ey. 7. Örn Einarsson Norð.Ey. 8. Sigurpáll Ingibergsson Rvk. BRIDGE C-riðill: 1. Ólafur Lárusson Rvk. 2. Ármann J. Lámsson Rvk. 3. Kristinn Kristjánsson Vestf. 4. Guðlaugur Sveinsson Rvk. 5. Ólafur Steinason Suðurl. 6. Tryggingamiðstöðin Rvk. 7. Sigmundur Stefánsson Rvk. 8. Ragnar Jónsson R.nes. D-riðilI: 1. Sjóvá/AImennar Vesturl. 2. Þórarinn Andrewsson R.nes. 3. Júlíus Snorrason Rvk. 4. Ásgrímur Sigurbjörnss. Norð.Ve. 5. Ævar Jónasson Vestf. 6. Sveinn R. Eiríksson 7. Anton Lundberg Austurl. 8. Símon Símonarson Rvk. fslandsmótið í parakeppni (blönd- uðum flokki) verður spilað í Reykja- vík (ekki á Raufarhöfn eins og frést hefur) helgina 17.-18. mars. Skráning er hafin hjá BSÍ. Eftir 5 umferðir í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur, er staða efstu sveita þessi: Verðbréf ísl.banka 105, Jón Þorvarðarson 100, Púl og Basl, 92 og Tryggingamiðstöðin 91. Og sigurvegarar síðasta konfekt- kvölds Skagfirðinga urðu Ármann J. 18 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Ólafur Lárusson Lámsson og Láms Hermannsson. Konfektkvöldum verður framhaldið næstu þriðjudaga. Allt spilaáhuga- fólk velkomið, en næsta þriðjudag mun spilamennska hefjast kl. 20.3Ö (vegna landsleiksins í HM.) fslensk meistarastig í bridge em meingölluð. Helsta meinsemdin er sú, að sem spilara í skipulögðum, Ieik er þér úthlutað stigi, eftir árangri, í félagakeppni svokölluð bronsstig, í svæðamótum og opnum mótum silfurstig, í landsmótum og annarri keppni á vegum bridgesambandsins gullstig. Þróunin er því svipuð og hjá snjóbolta á leið niður fjallshlíðina, sífellt hleðst meira á hann. Spilari sem skorar ógrynni af stigum á ámn- um 1976-1980, gæti því hæglega verið í efstu sætum 15-20 ámm síðar. f skákinni er þessu á annan veg farið. Þar er mældur styrkleiki spilara (skákmanna) reglulega, miðað við ár- angur þeirra í nýjustu mótunum hverju sinni. Til að mæta þessum vanköntum, var uppi umræða um þessi mál í stjórnartíð Jóns Steinars og Björns Theódórssonar, um að breyta þessu þannig, að rcikna út stig spilara fyrir' árangur þeirra sl. 5 ár (hverju sinni) og fá þannig fram raunhæfari mynd af getu þeirra, til röðunar í styrkleika- flokka, til þátttöku í landsmóti eða á bridgehátíð. Eftir þeirri reglu var t.d. raðað í styrkleikaflokka á síðasta ári í undanrásum fslandsmótsins í sveita- keppni. Núverandi stjórn bridgesam- bandsins (hluti hennar) virðist hins vegar hafa aðrar skoðanir á þessum málum og vill hverfa aftur til fortíðar í þessum efnum. Láta heildarstig spil- ara frá upphafi ráða styrkleikaröðun, sem þýðir að spilari sem náði sér í stig á árunum 1976 til 1980 telst vera í fullu fjöri, þótt á elliheimili sé. Nú er það svo, að í almennri keppnisreglugerð fyrir fslandsmót segir, að farið skuli eftir nýjustu meistarastigaskrá, þegar að röðun í styrkleikaflokka kemur. Nú er engin meistarastigaskrá enn komin út og þar með hefur afgreiðsla þessa máls dregist úr hömlu. Hins vegar trúi ég því ekki að stjóm Jóns Steinars hafi ekki gert formlega bókun um þessa afgreiðslu, eða mótanefnd hans, eða hvað? Það er hins vegar óskiljanlegt að hringlandaháttur sem þessi skuli koma upp. Hvað liggur að baki er óútskýrt, nema einhverjir í þessu máli hafi beina hagsmuni af þeirri af- greiðslu, sem stjórn BSÍ virðist ætla að beita í þessu máli. Ókunnugleiki stjómarmeðlima er engin afsökun, hvorki í þessu máli né öðrum. Það er hægt að verða sér úti um þær upplýs- ingar ef áhugi er fyrir hendi. Að síðustu legg ég til að almenn reglugerð fyrir fslandsmót verði endurskoðuð og yfirfarin, til að fyrir- byggja slys sem þessi. Um það atriði ættu menn að geta orðið sammála. Að hafa takmarkaða skoðun, litla skoðun eða alls enga skoðun á hlut- unum (þekkist innan stjórnar BSÍ) er fyrirbæri sem einnig fyrirfinnst í leiknum sjálfum. f miðju spili geta hlutirnir allsnarlega breyst og alla spilaáætlun verður að endurmeta (sambandsstjórnin ætti að íhuga þetta fyrirbæri...) Eftir þessar sagnir: Norður Suður 2spaðar 3 tíglar 4 spaðar 7 grönd þá spilum við tígulkóng og blindur kemur upp: S: 109732 S: ÁKDG865 H: 8 H: K963 T: KD95 T: - - - L: DG10 L: K4 Spaða er kastað úr blindum, félagi setur þristinn (þið sýnið lengd með „gamla“ laginu, eða hátt/ lágt með jafna tölu í lit), og sagnhafi tekur á ás. Næst kemur hjartás, hjartadrottning, hjartagosi (sem við hendum tveimur tíglum í og félagi fylgir lit) og loks hjartatvistur frá sagnhafa. Þar fór í verra. Eftir yfirlegu látum við laufatíu fjúka og áhugaglampi kemur í augu sagnhafa. Inni á hjartakóng spilar sagnhafi laufakóng og síðan fjarka, sem hann tekur á ás og þar á eftir kemur laufanían (þetta er ekki brand- ari - les áfram). Hvað nú? Hvað megum við missa í laufaníuna? Er spaðahótunin í blindum aðeins risa- blekking eða erum við algerlega vamarlausir? Hvað ef félagi á tígul- gosa? Eða, hvað átti félagi í tígli í upphafi? Lausnin er enmitt þar. Það samkomulag sem þið félagarnir kom- ið ykkur saman um. Með G763 fáum við ekki þristinn í? Með 763 fáum við þristinn. (Við vitum jú, að sagnhafi á 4 hjörtu, 3 lauf og 5-6 tígla. Á hann spaða?) Hvert sem vandamálið er, liggur lausnin í smáatriðunum, sem í raun skipta jafn miklu máli og þau stóru, sem hiuti af heildinni. Sagnhafi átti í raun þessa hendi: - - ÁDG2 ÁG10842 Á93. Afar vönd- uð blekkingartilraun hjá sagnhafa, sem hefði tekist gegn þeim sem ekki gæta að lágspilunum í vörninni. Tekið úr Vígreif Vörn eftir Kelsey, í þýðingu Þórarins Guðmundssonar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.