Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 16
Hvenær mega íþróttamenn sofa hjá? Svissnesk rannsókn slátrar gömlum ognýjum fordómum um kynlíf og kraft í íþróttaheiminum hefur verið mikið deilt um það, hvort afreks- menn megi stunda kynlíf áður en þeir leggja í harða keppni: það er gömul hugmynd, allt frá ólympíu- leikum þeim sem haldnir voru í Grikklandi til forna, að við sam- farir missi karlmaðurinn svo mikinn kraft að hann verði lítt til afreka lengi vel. Tekið er dæmi af svissneskum lyftingamanni. Hann vaknar við vekjaraklukku klukkan sex að morgni og grípur af sannri skyldurækni til kærustu sinnar. Að lokinni ástaglímu við hana ekur hann í loftinu á þrekþjálfun- arstöð þar sem margskonar mæli- tæki bíða eftir honum og mæla allt hans líkamlega ástand meðan hann hamast á þrekhjólum og pumpar hin ýmsu járn þar til hann er að niðurlotum kominn. Og allt er þetta gert í þágu vís- indanna, sem efla alla dáð eins og kunnugt er. Lyftingamaðurinn, Daniel Tschann að nafni, er einn sextán svissneskra íþróttamanna úr ýmsum greinum sem hafa, ásamt með konum sínum og kær- ustum, gengist undir að sannp- rófa það hve „skaðlegt" kynlífíð er fyrir árangur í íþróttakeppni. Öll voru þau sammála um að þetta væri spurning sem brynni heitt á þeim. Tilraunirnar fara fram þannig, j að annan hvern dag hófst íþrótta- dagurinn á samförum, en hinn daginn var þeim sleppt og síðan báru vísindamenn saman sem innvirðulegast allar staðreyndir um líkamlegt ástand sportmannaanna við æfingar og þrekþjálfun. fyrrnefndri rannsókn stóðu kom- ast hinsvegar að þeirri niður- stöðu, að kynlíf dragi miklu síður úr mönnum orku en haldið hefur verið. Þeir telja það alveg nóg að íþróttamenn láti tíu klukkustund- ir líða á milli bólfara og keppni - nema hvað það sé ráðlegt að lengja þann tíma nokkuð ef menn þurfa að standa í langri þrekraun - t.d. langhlaupum eða fótbolta. Aftur á móti dragi það ekkert úr snerpu til dæmis spretthlaupara að njóta ásta svo sem tveim tím- um áður en rásbyssan kallar þá upp úr startholunum. Lyftingamaðurinn Tschann: að gera það eða gera það ekki... Fótboltagarpur með sinni kærustu: yfirmennirnir höfðu það fyrir sið að gefa út samfaraleyfi. Ekki verður því fram haldið að menn hafi til einskis unnið. Sem fyrr segir er það gömul og ný trú að karlmaður sólundi sínum krafti í konu skauti og sé lítt til dáða eftir slíkan munað. Þeir sem reka atvinnumenn, til dæmis í knattspyrnu, hafa oft tekið sér strangt vald yfir þeirra einkalífi - geymt konur þeirra í hæfilegri fjarlægð fyrir leiki og þar fram eftir götum, beinlínis skammtað þeim gleðistundir í rúmi. Berl- usconi fjölmiðlakóngur á Ítalíu, sem er stjórnarformaður Milano, bannaði sínum knattspyrn- mönnum kynlíf í tvær vikur áður en þeir færu í úrslitaleik um Evr- í ópubikarinn. Þettabindindiávíst j að gera menn sterka og grimma ' og árásargjarna. Svissnesku læknarnir sem að M er óverjandi flð hringja ehhi í ömmu ó Ahur- eyri d afmœlinn hennor íminn er tilvalin leið til að eiga persónuleg samskipti við œttingja og vini í öðrum landshlutum. Síminn er líka skemmtilegur og þœgilegur samskiptamáti. Vissir þú, að það er ódýrara að hringja eftirkl. 18 og enn ódýrara að hringja um helgar. Dagtaxti er frá kl. 08 til 18 mánudaga til föstudaga. Kvöldtaxti er frá kl. 18 til 2j. Nætur- og helgartaxti er frá kl. 23 til 08 virka daga og frá kl. 23 á föstudegi til 08 nœsta mánudag. Fyrir þá sem staddir eru á landsbyggðinni, en þurfa að sinna 'erindum við fyrirtœki og stofnanir á höfuðborgarsvœðinu, er síminn einfaldasta og fljót- virkasta leiðin. Síminn er til samskiþta. Því ekki að not’ann meira! PÓSTUR OG SÍMI Dœmi um verð á símtölum: Lengd símtals 3 mín. 10 mín. 30 mín. Reykjavík — Kc flavík Dagtaxti kr. 17,94 kr. 52,82 kr. 152,49 Kvöldtaxti kr. 12,96 kr. 36,21 kr. 102,66 Nætur- og hclgartaxti kr. 10,47 kr. 27,91 kr. 77,74 Reykjavík — Akureyri Ðagtaxti kr. 25,42 kr. 77,74 kr. 227,24 Kvöldtaxti kr. 17,94 kr. 52,82 kr. 152,49 Nætur- og helgartaxti kr. 14,20 kr. 40,37 kr. 115,12 Við spörum þér sporin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.