Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 10
Þá vil ég heldur taka mér frí - Það er erfitt að fá ný tónverk leikin, segir norska tónskáldið Olav Anton Thommessen. Hann hlaut tónlistarverðlaun Norður- landaráðs fyrir verkið Gegnum prisma (Gjennom prisme), sem er konsert fyrir selló, orgel og hljómsveit, saminn árið 1983. - Ég samdi Gegnum prisma fyrir Tónlistarhátíð í Bergen, segir Olav Anton, - en það var afþakkað. Hefur sjálfsagt þótt vera bæði langt og leiðinlegt. Ég mátti svo bíða í sex ár eftir að fá að heyra það flutt. Frumflutning- ur var í útvarpinu 1989 og enn sem komið er er það í eina skiptið, sem Gegnum prisma hef- ur verið leikið opinberlega. Svo það var útvarpskonsert sem vann til verðlaunanna. Tónlistarverðlaun Norður- landaráðs eru mjög mikilvæg, þó ekki sé nema vegna þeirrar at- hygli, sem þau draga að nútíma- tónlist. Fjölmiðlar og allur al-' menningur virðast nefnilega hafa þá fyrirfram ákveðnu skoðun að þessi verk séu svo leiðinleg að það taki því ekki að fjalia um þau eða leggja sig eftir því að hlusta á þau. Þaö er því mjög erfitt fyrir tónskáld að fá verk sín flutt, í það minnsta í Noregi. Ég held að ástandið sé eitthvað skárra á hin- um Norðurlöndunum þó ég viti ekki nákvæmlega hvernig málum er háttað í hverju landi fyrir sig. En ég veit að Svíar sýna nútí- matónlist mun meiri áhuga en Norðmenn gera, að minnsta kosti er þeirra tónlistarlíf mun betur skipulagt og betur styrkt. Én í Noregi er það svo að tón- skáld hefur helst möguleika á að fá verk sín flutt ef þau eru mjög stutt, því þá þora þeir sem raða saman tónleikaskrám eða út- varpsdagskrám frekar að lauma þeim að. En á tónleikum fáum við nútímatónskáldin verk okkar yfirleitt ekki leikin nema í undan- tekningartilvikum. Ætli meðal- talið sé ekki svona eitt verk á misseri. Við erum teknir með eftir svipuðu kerfi og sumir skólar í Bandaríkjunum nota til að sýna hvað þeir séu frjálslyndir. þess að dauður maður skiptir sér ekki af því hvernig verkin eru leikin og hann krefst hvorki höf- undarréttar né launa. En mér er lítill akkur í því að vita að verk mín verði leikin eftir minn dag, þegar þau eru orðin fimmtíu ára, eða svo. Ég er ekki að semja fyrir komandi kynslóð- ir. Tónskáld hljóta að beina máli sínu til nútímans. Eftir fimmtíu ár verða þessi verk orðin forvitni- legur hluti af tónlistarsögunni. Fyrirbæri frekar en lifandi tón- verk. Nútímatónlist er ekki söluvara og er ekki samin út frá markaðs- lögmálum. Hún beinir máli sínu til tilfinninga og kallar fram stemmningar og maður þarf að gefa sér tíma tii að njóta hennar. Því erum við tónskáldin heppin að ríki og bæir styrkja okkur, styrkirnir eru nauðsyn, ekki síst nú þegar meira og meira af tón- listarflutningi, til dæmis í útvarpi, er stjórnað af kaupahéðnum eins og stórum hljómplötufyrirtækj- um, sem leggja allt kapp á að selja sína vöru. Við semjum ekki okkar tónlist til að græða á henni og því þrífumst við ekki án styrkja. En það er ekki nóg að styrkja fólk til að semja verk, sem aldrei heyrast. Það þarf að gera þessa tónlist aðgengilega öllum svo þeir sem vilja geti notið hennar og þetta gildir um alla listsköpun. Þjóðfélag án lista er menningar- snautt og það að hafa frjálsan að- gang að menningu eru sjálfsögð mannréttindi. Ég veit ekki enn hvort þessi verðlaun koma til með að hafa einhver áhrif á mitt verkefnaval. Ég er nú að vinna að stuttu verki, sem var pantað frá Svíþjóð og ég hef mikið af hugmyndum en vandinn er alltaf sá að ég veit ekki hvort þau verk sem ég sem verða leikin. Mig langar til að fara að skrifa lengri verk en ég hef gert undanfarið, en ég nenni ekki lengur að skrifa eitthvað, sem ég hef kannski ekki möguleika á að fá flutt. Þá vil ég heldur taka mér frí. LG Olaf Anton Thommessen: Það er ekki nóg að styrkja fólk til að semja verk sem aldrei heyrast Olav Anton Thommessen: Mér er lítill akkur í því að vita að verk mín verði leikin eftir minn dag. Mynd: Jim Smart. Þeir hleypa einum svertingja í hvern bekk. Norsk nútímatónskáld verða að búa yfir þolinmæði fflsins. Við verðum að vera tilbúin til að sitja og bfða þess árum saman að heyra verk okkar. Gegnum prisma er ekkert undantekning- artilvik. í Osló stendur til dæmis til að frumflytja eftir mig verk, sem ég samdi árið 1982. Hinsveg- ar getum við öll verið örugg um að þessi verk verði leikin eftir að við erum dauð og reyndar erum við í stöðugri samkeppni við þá dauðu. í þeirri samkeppni hljót- um við, sem enn erum lifandi að verða undir, því verk dauðra tón- skálda hafa ekki einungis hlotið þá viðurkenningu, sem við höf- um ekki fengið heldur líka vegna Lausar stöður heilsugæslulækna Lausar eru til umsóknar stöður heilsugæslu- lækna sem hér segir: 1. Fáskrúðsfjörður H1, ein læknisstaða frá og með 1. júlí n.k. 2. Patreksfjörður H2, tvær læknisstöður frá og með 1. maí n.k. 3. Stykkishólmur H2, ein læknisstaða frá og með 1. maí n.k. 4. Flateyri H1, ein læknisstaða frá og með 1. júní n.k. eða eftir samkomulagi. 5. Þingeyri H1, ein læknisstaða frá og með 1. apríl n.k. eða eftir samkomulagi. 6. Þórshöfn H1, ein læknisstaða frá og með 1. júní n.k. eða eftir samkomulagi. 7. Siglufjörður H2, ein læknisstaða frá og með 1. apríl n.k. eða eftir samkomulagi. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist ráðu- neytinu fyrir 26. mars 1990 á sérstökum eyðu- blöðum, sem fást í ráðuneytinu og hjá land- lækni. í umsókn skal koma fram hvenær um- sækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að um- sækjendur hafi sérfræðileyfi í heimilislækning- um. Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir ráðu- neytið og landlæknir. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 26. febrúar 1990 10 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. mars 1990 Fæðingarheimili Reykjavíkur -nýttsímanúmer Föstudaginn 2. mars breytist símanúmer Fæð- ingarheimilis Reykjavíkur. Nýja símanúmerið er 622544 ALÞÝÐUBANDALAGID Æskulýösfylkingin Sameiginiegur stjórnarfundur Sameiginlegur stjórnarfundur Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins og Æskulýðsfylkingar Reykjavíkur verður haldinn laugar- daginn 3. mars kl. 16.00 á Hverfisgötu 105. Á dagskrá er m.a. norðurlandaþing æskunnar og málefni EFTA og EB, auk æskulýðsstarfs Alþýðubandalagsins. Oddviti AB Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi Kvöldskemmtun í Gaflinum Alþýðubandalagsfélögin í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi halda sameiginlega kvöldskemmtun í Gaflinum föstudaginn 9. mars kl. 20. Léttur kvöldverður og skemmtiatriði. Ræðustúfa flytja Magnús Jón Árnason og Hilmar Ingólfsson. Miðaverð kr. 1300. Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. Stjórnirnar Alþýðubandalagið Ólafsvík Almennur félagsfundur Alþýðubandaiagið Ólafsvík heldur almennan félagsfund í Mettubúð sunnudaginn 4. mars kl. 14. Dagskrá: 1. Tillaga uppstillingarnefndar á framboðslista. 2. Kosning í blaðstjórn. 3. Kynning á fjárhagsáætlun fyrir 1990. Stjórnin if! Húsdýragarður Laus eru til umsóknar eftirtalin störf við Hús- dýragarðinn í Laugardal: 1. Dýrahirðir (yfirmaður). Ráðning frá 1. apríl 1990. Menntun og starfsreynsla á líffræði- sviði æskileg. 2. Umsjónarmaður fræðslu. Ráðning frá 1. júní 1990. Uppeldisfræðileg menntun á líffræði- sviði æskileg. Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstu- daginn 16. mars 1990. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Garðyrkju- deild borgarverkfræðings í síma 18000. TRESMIÐJAN STOÐ Smíðum hurðir og glugga í ný og gömul hús. Önnumst breytingar og endurbætur á gömlum húsum úti sem inni. Smíðum sumarbústaði og seljum sumarbústaðalönd. Trésmiöjan Stoð gffiSSSSSo.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.