Þjóðviljinn - 02.03.1990, Síða 13

Þjóðviljinn - 02.03.1990, Síða 13
ddurnar leiki t.d. fyrir hendi að stórfyrir- tæki innan EB geti fjárfest í ódýru vinnuafli í A-Evrópu og skapað þannig hagsmunaá- rekstra á milli launþega í austur- og vesturhluta álfunnar. Þegar fjármagnið er orðið svo alþjóð- legt sem raun ber vitni, skapast nauðsyn á að setja reglur um lág- markslaun, mengunarkröfur, at- vinnuleysisbætur o.s.frv., þannig að ekki verði hægt að etja saman hagsmunum launþega ólíkra ríkja. Við eigum líka að nota EFTA í þessum tilgangi og við eigum að berjast fyrir því að sam- vinna Evrópuþjóða verði opin og á jafnréttisgrundvelli. Ég var á sínum tíma andstæð EB vegna þess að þetta var klúbbur ríkra landa, sem mynduðu lokað bandalag gegn þeim sem voru fá- tækari. Sú hætta er enn fyrir hendi, en reynslan hefur kennt okkur að nota þá möguleika sem fyrir hendi eru til þess að hafa áhrif á þróunina. Sjálfsímynd sósíalista Mörgum vinstri-sósíalistum verður tíðrætt um að kreppt hafi að sjálfsímynd sósíalista á síðustu tímum. Gamlar leiðir hafi brugð- ist og menn viti ekki lengur hvar þeir standi... Jú, slík kreppa hefur verið greinileg til dæmis í Finnlandi undanfarin ár og að nokkru marki innan VPK í Svíþjóð, þar sem nokkur hópur eldri komm- únista er ennþá innan borðs. Við losuðum okkur hins vegar við þetta á sjötta áratugnum. En það er rétt, að gömlu leiðirnar duga ekki lengur. Ekki bara þær leiðir sem reyndar hafa verið í A- Evrópu, heldur líka Júgóslavn- eska forskriftin að sósíalisman- um. Við innan SF viljum svara þessu með opnum huga og með því að leita nýrra leiða. Við höf- um viljað leggja áherslu á að fólk- ið á vinnustaðnum öðlist meðá- kvörðunarrétt, meðeignarrétt og einnig samábyrgð á rekstrinum. Eitt af því sem varð austur- evrópska hagkerfinu að falli var einmitt skortur verkafólks á sam- ábyrgð um reksturinn, allt var á ábyrgð ríkisins. Við höfum góða reynslu hér í Danmörku af samvinnurekstri, einkum í landbúnaði, en sam- vinna í húsnæðismálum hefur einnig gefist vel. Hvort tveggja er dæmi um samhjálp og samábyrgð án þátttöku ríkisins, og ég tel að við þurfum að finna fleiri leiðir að því marki. Kreppa velferð- arríkisins Nú hefur velferðarríkið átt í erf- iðleikum. Hvernig bregðist þið við því? Það er rétt, velferðarkerfið hefur gengið í gegn um kreppu. Fólk er orðið þreytt á að borga stöðugt hærri skatta. Við verðum að horfast í augu við þetta sem staðreynd í stað þess að slá höfð- inu við steininn. Ríkisrekstur er engin trygging fyrir því að allt gangi vel. A vissum sviðum getur samvinna á ábyrgð einstakling- anna verið æskilegri. Til dæmis er hugsanlegt að lífeyrissjóðirnir standi milliliðalaust að bygging- um íbúða fyrir aldraða í stað þess að ríkið innheimti skatta til þess- ara framkvæmda. Það er verkefni okkar að leysa mál eins og þessi, en ekki sitja föst í gömlu kredd- unum, því þær duga ekki lengur og unga fólkið sættir sig ekki lengur við þær. Hitt er svo annað mál að grundvallarþarfir eins og ellilaun, námslán og heilsugæsla verða að vera tryggð af ríkinu. Af öðrum málum sem við höf- um haft forystu um innan danska þingsins má nefna jafnréttismál kynjanna, umhverfismál og mannréttindamál, það er að segja réttindi einstaklingsins, en auknar kröfur eru nú gerðar í þá Lilli Gyldenkilde: Sósíalíski þjóðarflokkurinn var stofnaður í kjölfar uppreisnarinnar (Ungverjalandi 1956 og þess uppgjörs sem þá átti sér stað innan danska kommúnistaflokksins. Mynd - Kristinn. átt. Þannig höfum við átt í merki- legri umnræðu um rétt starfs- manns á tilteknum vinnustað til þess að tilheyra öðru verka- lýðsfélagi en er á staðnum. Þetta er spurning um annars vegar rétt einstaklingsins til þess að kjósa sér félag og hins vegar rétt félags- ins til að einoka vinnustaðinn. Málið snýst um rétt einstaklings- ins gagnvart heildinni. Þetta er erfið spurning að glíma við og þess vegna verðugt verkefni fyrir stjórnmálin. Líka hér þarf að líta á málin í nýju ljósi en ekki út frá gömlum kreddum og vanahugs- un. Það er þetta sem er áhugavert við stjórnmálin. -ólg mark á okkur lífsgæði. Og við megum ekki gleyma pvi að vaxtar-hugsjónin heáir þar verið við lýði, líka hjá gömlu valdhöfunum, þótt áhersl- ur og árangur hafi verið annar en hjá okkur. Þeim spurningum er hins vegar alveg ósvarað enn, hvernig brugðist verður við auknum kröfum um umhverfi- svernd og ýmis réttindi og staðla sem við höfum komið á. Norðurlandabúar eiga nú að kappkosta að mynda frekari tengsl við þjóðir A-Evrópu, stjórnmálaleg, efnahagsleg og menningarleg. Við getum lagt fram tækniþekkingu, án þess að vera að segja þessu fólki neitt fyrir verkum. Og við megum ekki fordæma þrá þess eftir hagvexti og meiri lífsgæðum og tengja hana við neysluhyggjuna ein- tóma. Hins vegar hafa eins- flokkskerfið og hrakfarir áætlun- arbúskaparins eystra komið alltof neikvæðum stimpli á áætl- anagerð og skynsamlegt skipu- lag. Markaðshyggjumenn gera líka áætlanir og trúa á þær aðferð- ir. - Kjellbjörg Lunde, hvað segir þú um möguleikana á nánara samstarfi vinstrisósíalista og sósí- aldemókrata hér á Norður- löndum og í Noregi sérstaklega? - Þetta er nú gamalt og gott umræðuefni. Auðvitað er okkar hefð sú að reyna að ná sem mestri samstöðu. Hins vegar hefur nor- ski Verkamannaflokkurinn hreyfst til hægri. Við samþykkt- um samt á landsfundi SV sl. vor að sækjast eftir nánari tengslum og samvinnu við kratana. Við setjum á hinn bóginn fram ýmis póltísk skilyrði, sem okkur finnst grundvallaratriði að sættast á. Við höfnum tækifærismennsku í þjóðarbúskapnum, við viljum tryggja aukið fé til velferðar- mála, niðurskurð til varnarmála og auka áhersluna á umhverfi- svernd. Við föllumst ekki á neinar málamiðlanir í þessum efnum. - Nú verða bœjar- og sveitar- stjórnarkosningar í Noregi 1991. Hafa SK og Verkamannaflokkur- inn einhverja samvinnu um fram- boð? - Já, og meira að segja bjóðum við stundum fram með fólki úr Miðflokknum. Þetta er afar mis- jafnt eftir landshlutum og að- stæðum á hverjum stað, rétt eins og hér hjá ykkur. í Osló ráða Hægri flokkurinn og Framfara- flokkurinn, en SV og Verka- mannaflokkurinn gætu sam- kvæmt skoðanakönnunum náð meiri hluta þar 1991. Ég tel að það hafi góð áhrif á kjósendur og auki traust þeirra á okkur, ef þessum flokkum tekst að standa vel saman um sameiginleg barátt- umál. - Hvernig er staða SV í norsk- um stjórnmálum núna? - Við erum á hraðri uppleið. í síðustu þingkosningum fengum við 10% atkvæða, samkvæmt skoðanakönnunum núna höfum . við 13% yfir allt landið og 15% atkvæða í Osló. Þar með erum við fjórði sterkasti stjórnmála- flokkur Noregs. - Hver er ástœða vinsœlda- aukningarinnar? - Okkur hefur tekist að móta nútímalega línu í okkar málflutn- ingi og sérstaklega náð vel til unga fólksins. Æskan tekur eftir því á hvaða verðmæti við leggjum áherslu, samstöðuna, mýkri gild- in. Við höfum líka lagt kapp á að taka raddir æskunnar alvarlega. Auk þess höfðum við markvisst til hópa sem fallast ekki á að láta egna sig í neyslukapphlaupið. Við setjum skýrt fram þá trú okk- ar, að réttlátari skipting gæðanna sé forgangsatriði. Byggöastefnan og atvinnuleysið - Hvað ber efst í norskuþjóðfé- lagi núna að þínu mati? - Norskt samfélag hefur breyst mikið á undanförnum árum. Þenslan í framhaldi af olíuvinns- lunni hefur nú hjaðnað verulega og byggðamálin komist í brenni- punkt, einkum í Norður-Noregi, þar sem fiskveiðarnar hafa brugðist og fólk sækir burt. Ef svo fer sem horfir þá grisjast byggðin þar verulega, landbún- aður leggst víða af, en eftir verða einstaka þorp, þannig að allar vegalengdir verða meiri og ein- angrunin áþreifanlegri. Stefna SV í byggðamálunum varðandi Norður-Noreg er þessi: Við lítum á hrunið í fiskveiðun- um sem tímabundið vandamál. Hvorki fískeldi né loðdýrarækt verða stórir liðir í byggðunum þarna, loðdýraræktin er búin að vera að nokkru leyti hvort eð er. Af þessum sökum viljum við láta þjóðfélagið borga fyrir ákveðinn biðtíma byggðanna fyrir norðan, fleyta þeim yfir þennan erfiða hjalla. Það þarf að hagræða betur í atvinnurekstrinum en um leið að létta sköttum af fyrirtækjum og einstaklingum að einhverju marki. Við viljum veita styrki til ákveðinnar hagræðingar og verk- efna, en einnig hjálpa þeim til að flytja sem neyðast til þess. Hins vegar er okkur mikið í mun að hamla gegn þeirri þróun að unga fólkið flytji allt á Osló-svæðið, eins og reyndin hefur verið und- anfarið, heldur viljum við efla staði eins og Bodö og Tromsö. Norður-Noregur þarf að vera í byggð og ekki bara af sjónarhóli landvama. SV leggur líka áherslu á að uppbygging og samsetning skipa- og bátaflotans verði skynsam- legri en verið hefur. Útgerðin fyrir norðan hefur byggst að miklu leyti á smærri bátum og lausnir hafa verið of tilviljana- kenndar. Við viljum girða fyrir að flotinn vaxi án tillits til rek- strarmöguleika, eins og oft var raunin. SV vill tryggja hagsmuni veiða og vinnslu með skynsam- legri áætlanagerð. Hins vegar er atvinnuleysið einna skæðasta þjóðfélagsmeinið hjá okkur um þessar mundir. Það hefur aukist á sama tíma og dreg- ið hefur úr áhrifamætti verka- lýðshreyfingarinnar. Atvinnu- leysið bitnar helst á þeim sem minnst mega sín, ófaglærðum verkamönnum og konum. Þessir hópar eiga fáa sterka málsvara, vega ekki þungt í hugum stjórnsýslumanna og verkalýðs- leiðtoga, atvinnuleysingjarnir eru ekki félagslegt afl. Atvinnu- lausir, fullorðnir iðnverkamenn eru td. alveg á köldum klaka. Menn eru að reyna ýmsar lausnir, að gefa fólki tækifæri til að fara fyrr á eftirlaun osfrv., en aðstað- an hjá mörgu þessu fólki er hörmuleg. - Umrœðan um Evrópusam- starfið hefur verið áberandi á Norðurlöndum undanfarið. Eru Norðmenn almennt jafn áhuga- samir um þessi mál núna og fyrir þjóðaratkvœðagreiðsluna 1972, þegar Noregur ákvað að hafna EB-aðild? - Nei, úmræðan er miklu þrengri, fátæklegri og sérhæfð- ari. Sannleikurinn er sá, að sér- fræðingarnir einoka að miklu leyti skoðanamyndun um þessi efni. Hvort tveggja er, að þeir einir geta haft yfírsýn yfir alla málaflokka og sett sig inn í málin, og svo hitt, að þeir vilja beinlínis halda þessari umræðu hæfilega lokaðri. Þannig tekst þeim að ráða sem mestu. /Swt Föstudagur 2. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.