Þjóðviljinn - 02.03.1990, Page 7
Vopnað valdatafl á Filippseyjum
Handtaka Enrile fyrrverandi varnarmálaráðherra nægir tæpast til að tryggja stöðugleika á Filippseyjum
Corazon Aquino forseti Filipps-
eyja ákvað loksins að láta til
skarar skríða gegn Enrile fyrr-
verandi varnarmálaráðherra nú í
vikunni. Hann var handtekinn og
ákærður fyrir að hafa skipulagt
blóðuga uppreisnartilraun hers-
ins í desember.
Uppreisnartilraunin, sem hófst
1. desember og lauk ekki fyrr en
sjö dögum seinna, var sú blóðug-
asta af þeim sex uppreisnartil-
raunum sem herinn hefur gert
gegn stjórn Aquino frá því að hún
komst til valda árið 1986. Að
minnsta kosti 113 manns féllu og
600 særðust.
Allt frá upphafi lék grunur á að
þessar tíðu uppreisnir hersins
stæðu í tengslum við Enrile og
sumir leiðtogar þeirra lýstu
beinlínis yfir stuðningi við hann.
Hann hefur hins vegar einatt
neitað að hann beri ábyrgð á upp-
reisnartilraununum þótt hann
hafi samúð með málstað upp-
reisnarmanna.
Nú tæpum þremur mánuðum
eftir síðustu uppreisnartilraunina
telur ákæruvaldið sig loksins hafa
nægjanleg sönnunargögn til að
sanna að Enrile hafi átt aðild að
henni.
Hann neitar því hins vegar
ennþá staðfastlega. Hann tárfell-
di og sagði að sagan myndi sanna
sakleysi sitt þegar hann hitti mörg
hundruð stuðningsmenn sína á
leiðinni í fangelsið á miðvikudag.
Orsakir valda-
ránstilrauna
Ekki er víst að handtaka Enrile
dugi til að koma í veg fyrir frekari
uppreisnartilraunir hópa innan
hersins jafnvel þótt hann kunni
að hafa staðið á bak við þær.
Mikil óánægja er innan hersins
með framistöðu Aquino. Herinn
átti á sínum tíma þátt í að koma
henni til valda og yfirmenn hans
telja sig eiga skilið að fá nokkra
umbun fyrir ómakið. En Aquino
hefur unnið kerfisbundið að því
að minnka völd hersins sem hafði
verið helsti valdastólpi einræð-
isstjórnar Marcosar á síðustu
valdaárum hans.
Foringjar í hernum gagnrýna
að herinn skuli ekki vera efldur
enn frekar til að geta bælt niður
uppreisn kommúnískra skæru-
liða í eitt skipti fyrir öli. Komm-
únistahættan var einmitt ein
helsta átylla Marcosar fyrir
eflingu hersins.
Uppreisnaröfl innan hersins
hafa líka nærst á almennri óá-
nægju með hvað Aquino hefur
gengið illa að standa við loforð
sín um bætt lífskjör og útrýmingu
spillingar í stj órnkerfinu. Leið-
togi desemberuppreisnarinnar
Eduardo Alenina hershöfðingi
sagði markmið uppreisnarinnar
meðal annars vera að útrýma
skrifræði, spillingu, bæta efna-
hagsástandið og útrýma komm-
únistum.
Þeir þóttust hafa stuðning um
sextíu prósenta hermanna í
stjórnarhernum sem telur
147.500 menn. Það reyndist ekki
rétt þegar til kom en víst er að
stór hluti hersins hafði samúð
með málstað uppreisnarmanna
þótt hann væri ekki reiðubúinn til
að grípa til vopna gegn stjórn-
inni, sérstaklega eftir að ljóst var
að Bandaríkjamenn studdu
hana.
Skæruhernaður
kommúnista
Ólíklegt er að krafa hersins um
fleiri vopn og meiri mannafla til
AÐ UTAN
Alexander Aguirre yfirmaður 15 þúsund manna lögregluliðs höfuð-
borgarFilippseyja, Manila.veitir mönnum sínumtilsögn ívopnaburði.
Stjórnvöld á Filippseyjum vinna aðeflingulögreglunnartiimótvægis
við herinn.
að berjast gegn kommúnískum
skæruliðum sé Iíkleg til að skila
árangri. Miklu frekar ber að líta á
hana sem átyllu fyrir herinn til að
auka mikilvægi sitt. Reynslan
sýnir að skæruliðar hafa sótt í sig
veðrið fremur en hitt við aukna
vígvæðingu stjórnahersins.
Þegar Marcos setti herlög árið
1972 voru skæruliðar kommún-
ista sárafáir og illa vopnaðir. En
hertar hernaðaraðgerðir bitnuðu
ekki hvað síst á óbreyttum bænd-
um svo að stöðugt fleiri bættust í
hóp skæruliða eftir því sem her-
inn var efldur.
Þegar Marcosi var steypt er
talið að skæruliðar hafi haft hátt á
annan tug þúsunda manna undir
vopnum auk fjölmenns varaliðs
úr hópi smábænda á áhrifasvæði
þeirra.
Fall Marcosar og valdataka
Aquino virðist lítil áhrif hafa haft
á uppreisn kommúnista. Þeir
sökuðu hana strax í upphafi um
að ganga erinda stóreignar-
manna.
Samningaviðræður við komm-
únista fyrst eftir valdatöku Aqu-
ino runnu út í sandinn þegar ljóst
var að hún var ekki tilbúin til að
skipta landi stóreignarmanna á
milli smábænda eins og kommún-
istar kröfðust.
Kommúnistar hafa aukið hern-
aðaraðgerðir sínar á þéttbýlis-
svæðum að undanförnu. Þeir eru
taldir hafa um eða yfir tólf þús-
und manns undir vopnum jafnvel
þótt nokkur fækkun virðist hafa
orðið í her þeirra á síðastliðnu
ári.
Þeir eru sagðir fylgjast grannt
með þróuninni í Austur-Evrópu
þar sem hver kommúnistastjórn-
in á fætur annarri hefur fallið.
Þeir segja að það hafi samt engin
áhrif á nauðsyn áframhaldandi
byltingarbaráttu á Filippseyjum
þar sem þorri fólks lifir á algjörri
örbirgð á meðan landeigendur og
stórkapítalistar safna auði.
Vera tæplega tuttugu þúsund
bandarískra hermanna í tveimur
herstöðvum á Filippseyjum gefur
líka baráttu kommúnista þjóð-
ernissinnað inntak. Bandaríkja-
menn njóta ýmissa forréttinda á
Filippseyjum og skæruliðar hafa
að undanförnu beitt spjótum sín-
um æ meira að þeim.
Spilling
Aquino hefur sjálf viðurkennt
að ásakanir uppreisnarmanna í
hernum og stjórnarandstæðinga
um spillingu í stjórnkerfinu eigi
við rök að styðjast. Hún réttlætir
það með því að hún hafi erft emb-
ættismannakerfið frá Marcosi.
Það var meðvituð stefna Marc-
osar að hafa laun opinberra emb-
ættismanna svo lág að þeir yrðu
að drýgja tekjurnar með ein-
hverjum hætti. Það var bæði gert
með ýmiss konar styrkjum og
greiðslum sem yfirmenn þeirra
réðu yfir og einnig með mútum
sem þeir tóku fyrir fyrirgreiðslu.
Meira að segja opinber laun
háskólaprófessora voru svo lág
að þeir urðu að betla kennslu- og
rannsóknastyrki frá embættis-
mönnum.
Þrátt fyrir fögur loforð um að
hún ætli að útrýma spillingu hafa
tilraunir Aquino til að breyta
þessu kerfi enn lítinn árangur
borið.
Foringjum í hernum finnst erf-
itt að horfa upp á að á sama tíma
og fjárframlög til hersins eru
skorin niður maka stjórnmála-
menn og embættismenn krókinn
RAGNAR
BALDURSSON
Föstudagur 2. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
eins og ekkert hafi breyst þegar
Marcosi var steypt.
Óbreytt ástand í
sveitum
Aquino hefur heldur ekki get-
að staðið við loforð sín um að
úthluta landi til smábænda og
leiguliða. Landeigendur eru öfl-
ug þjóðfélagsstétt þrátt fyrir að
þeir séu tiltölulega fámennir. Aq-
uino hefur ekki þorað að leggja
til atlögu við þá. Reyndar er vafa-
samt hversu mikinn áhuga hún
hefur á raunverulegri endurupp-
skiptingu lands til smábænda þar
sem hún er sjálf af auðugri land-
eigendaætt.
Áætlun Aquino um að gefa
smábændum land felst í því að
ríkið skuli kaupa það af land-
eigendum og endurúthluta því til
leiguliða. Hagsmunir land-
eigenda eru þannig tryggðir
jafnvel þótt þeir missi landið.
Þetta er svo kostnaðarsamt að
filippseyska ríkið hefur engan
veginn bolmagn til að hrinda
Þungvopnaður hermaður sem
tók þátt í uppreisn filippseyska
hersins í desember.
áætluninni í framkvæmd nema á
takmörkuðum svæðum. Aqu-
ino hefur farið fram á alþjóðlega
aðstoð í þessu skyni en erlend ríki
hafa sýnt takmarkaðan áhuga á
að gefa landeigendum stórfé fyrir
að úthluta landi til þeirra sem
yrkja það.
Stjórn Aquino hefur þannig
lítið sem ekkert gert til að bæta
kjör almúgans sem lepur
dauðann úr skel. Áróðursmeist-
arar stjórnarinnar leggja þess
vegna höfuðáherslu á persónu-
lega kosti Aquino fremur en ár-
angur hennar í starfi. Margir Fil-
ippseyingar líta á hana sem
líkamlegan holdgerving guðs-
móðurinnar og hengja myndir af
henni við hliðina á myndum af
Maríu mey.
Fátæktin er samt svo mikil til
sveita að slíkar áróðursaðferðir
bera takmarkaðan árangur. Hún
er aðalástæðan fyrir því hvað
skæruliðar kommúnista njóta
mikils fylgis á sumum svæðum.
Stór hluti hermanna í stjómar-
hernum þekkir líka fátæktina í
sveitum af eigin raun sem líka á
þátt í því hvað margir óbreyttir
hermenn hafa reynst fúsir til að
taka upp vopn gegn stjórn Aqu-
ino.
Erfiðleikar
framundan
Erfiðleikar Aquino era síður
en svo úr sögunni jafnvel þótt
henni takist að fá Enrile dæmdan
fyrir landráð.
Allar orsakir óróa innan hers-
ins eru enn fyrir hendi og stjórn-
arandstæðingar eru nú þegar
farnir að búa sig undir næstu fors-
etakosningar sem verða haldnar
eftir tvö ár. Jafnvel þótt Aquino
segist ekki ætla að gefa kost á sér
til endurkjörs segja aðstoðar-
menn hennar að hún haldi öllum
möguleikum opnum.
Uppreisnartilraunin í desemb-
er hafði slæm áhrif á efnahagslíf
Filippseyja sem hafði sýnt nokk-
ur batamerki undanfarin þrjú ár.
Efnahagsbatinn hafði reyndar
lítil áhrif á kjör almennings. Aqu-
ino hefur sýnt tilhneigingu til að
bregðast við aukinni þjóðfélags-
ólgu og óánægju innan hersins
með eflingu annarra löggæslu-
sveita.
Um þessar mundir er verið að
sameina sveitalögregluna og rík-
islögregluna jafnframt því sem
fjölgað verður í lögreglunni úr 90
þúsund í 120 þúsund. Jafnframt
verða tengsl lögreglu við herinn
rofin, og lögreglumenn fá ekki
lengur þjálfun í hernum. Þannig
kemur lögreglan til með að
mynda mótvægi við herinn sem
stjórnvöld geta reitt sig á.
Erfitt er að sjá hvernig þessi
efling lögreglunnar getur leyst úr
vandamálum sextíu miljón
manna þjóðar þótt hún styrki
kannski stjórnina í sessi.
Vamaimálaráð-
hena í 17 ár
Juan Ponce Enrile er 66 ára
gamall óskilgetinn sonur lög-
fræðings. Hann er sjálfur lög-
fræðingur að mennt og á valda-
tíma Marcosar auðgaðist hann
mjög á timburviðskiptum og
fjármálabraski.
Enrile hefur verið ráðherra í
alls 23 ár. Hann hafði yfirumsjón
með framkvæmd herlaga 1972 til
Juan Ponce Enrile hafði áður
vald til að hneppa menn í fang-
elsi. Nú er hann sjálfur kominn í
tugthúsið.
1981 og var varnarmálaráðherra í
stjórn Marcosar í rúm sextán ár.
Þegar Marcos riðaði til falls
1986 snerist Enrile gegn honum
og beitti sér fyrir hallarbyltingu
hersins sem kom Corazon Aqu-
ino til valda. Hann var áfram
varnarmálaráðherra í stjórn
hennar í níu mánuði þar til hún
rak hann vegna meintra tengsla
við uppreisnarmenn innan hers-
ins gegn stjórn hennar.
Síðan hefur Enrile verið einn
helsti forystumaður stjórnar-
andstæðinga. Hann hefur verið
harðorður í garð stjórnar Aquino
og sakað hana um spillingu og
svik á kosningaloforðum.
Áhrif Enrile eru ennþá mikil
innan hersins þar sem margir yfir-
menn eru persónulega skuld-
bundnir honum frá því að hann
var varnarmálaráðherra. Enrile
nýtur líka stuðnings öflugra
fjármálaafla sem nutu góðs af
stjórn Marcosar.
Ólíklegt er að handtaka hans
dragi úr áhrifum hans og er óttast
að stuðningsmenn hans reyni að
bjarga honum úr fangelsi ef hann
verður sekur fundinn.