Þjóðviljinn - 02.03.1990, Qupperneq 8
Framkvæmdastjórl: Hallur Páll Jónsson
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarma&ur Helgarbla&s: Ólafur Gíslason
Fréttastjórl: SigurðurÁ. Fríðþjófsson
Útllt: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjórl: Olga Clausen
Afgrelðsla: @ 68 13 33
Auglýslngadelld:« 68 13 10- 68 13 31
Simfax: 68 19 35
Verð: í lausasölu 150 krónur
Setnlng og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsls og verkalý&shreyfingar
Síðumúla37,108 Reykjavík
Á kosninga-
tímum
Þessi misseri eru tímar merkilegra kosninga víða um
lönd, kosninga sem haldnar eru í löndum þar sem póli-
tískt valfrelsi hefur alls ekki verið fyrir hendi eða þá mjög í
skötulíki. Það var kosið í Chile og þar með bundinn endir á
stjórn herforingjaklíku, það var kosið í Namibiu og í Pól-
landi, nú síðast fóru kosningar fram í Nicaragua og í
sovétlýðveldinu Litháen, fyrstu margra flokka kosning-
arnar í því risaveldi reyndar. Það er fyrst og fremst um
austanverða Evrópu að kjósandi ríkjum fjölgar ört: senn
verður kosið í Austur-Þýskalandi og Ungverjalandi, í apríl
verður kosið í Slóveníu og Króatíu, tveim sambandslýð-
veldum Júgóslavíu, í Rúmeníu og Búlgaríu í maí og í júní í
Tékkóslóvakíu. Og frelsun Nelsons Mandela flýtir von-
andi fyrir því að í Suður-Afríku verði efnt til kosninga með
jöfnum rétti allra landsins þegna.
Ekki þarf lengi að leita raka fyrir því að þessi þróun
breytir hinu pólitíska landakorti heimsins mjög til batnað-
ar: Hún skerðir áhrifasvæði kúgunar, hún vinnur gegn
misbeitingu þess valds sem ekki þarf að óttast dóm
þjóða, hún getur skapað forsendur fyrir bættri stöðu
minnihlutahópa - og svo mætti lengi telja.
Um leið mega það allir vita að frjálsar kosningar eru
víða erfiðar í framkvæmd og í rauninni þarf alltaf að
berjast fyrir því að fyllsta réttlætis sé gætt í undirbúningi
þeirra og í kosningabaráttu. Ein erfið eilífðarspurning er
tengd því, að flokkar og hreyfingar eru í mjög misjafnri
stöðu til að berjast fyrir sínum málstað. Dæmi Nicaragua
minnir á þetta: þar fékk hin sameinaða stjórnarandstaða
gegn Sandinistum verulegarfjárhæðirtil kosningabaráttu
frá Bandaríkjunum, á þeirri forsendu að það þyrfti að
jafna það mikla forskot sem Sandinistar hefðu náð með
því að hafa haft tögl og hagldir í ríkiskerfinu og fjölmiðlum í
heilan áratug. Vesturþýskir sósíaldemókratar eiga með
fjárhagsaðstoð og skipulagsaðstoð drjúgan þátt í því að
nýstofnaður sósíaldemókrataflokkur í Austur-Þýskalandi
er talinn flokka sigurstranglegastur þar í landi. í flestum
tilvikum álíta menn að slík utanaðkomandi afskipti séu
ósæmileg íhlutun um innanlandsmál ríkis þar sem kjósa
skal - en nú eru bersýnilega uppi undantekningar sem
menn eru reiðubúnir til að sættast á.
í grónum lýðræðisríkjum hafa menn með ýmsum hætti
reynt að svara spurningum um misjafna aðstöðu fram-
bjóðenda, misjafna möguleika til að ná til fjölmiðla eða
hafa það fé sem til kosningabaráttu þarf. í þeim efnum er
verulegur munur á t.d. Bandaríkjunum og velflestum Evr-
ópuríkjum. Evrópuríki hafa reynt að forðast að lenda í
sömu súpu og bandarísk stjórnmál, sem einkennast af æ
grimmari og dýrari auglýsingaslag - sem gerir verðandi
borgarstjóra og þingmenn þeim mun háðari þeim sem
„fjárfesta" í þeim. Evrópuríki hafa veitt pólitískum flokkum
fjárstuðning, ríkisfjölmiðlar hafa með hegðun sinni dregið
úr aðstöðumun og mun á fjárhag flokka - einnig þekkjum
við til þess fordæmi merkileg, til dæmis af Norðurlöndum,
að hið opinbera vill nokkuð á sig leggja til að tryggja það
að blaðaheimurinn verði ekki allur í sama pólitíska lit.
Frekustu frjálshyggjuhanar Sjálfstæðisflokksins skrifa
reglulega greinar um þessi mál sem öllum er stefnt að því
í raun að færa íslenskt stjórnmálalíf sem næst hinum
bandarísku siðum: sá boðskapur er afleitur blátt áfram
vegna þess að hann miðar að því að gera okkar lýðræði
lakara en það er. Fyrir nú utan það að hann er fram settur
af þeim gikkshætti, sem lætur sem allur hægrimálflutn-
ingur sé einskonar hlutlæg upplýsingavísindi meðan það
eru „hinir“ og þeirra blöð sem gera sig seka um þá
smekkleysu að hafa pólitískar skoðanir.
Arnar Herbertsson: Blóðkornin, olía á viðarplötu 1988. Svo fymast ástir sem fundir Um þessar mundir stendur yfir sýnipg á 10 olíu- texta, t.d. er málshátturinn „svo fyrnast ástir sem málverkum eftir Arnar Herbertsson í FÍM-salnum á fundir" á einni myndinni. horni Garðastrætis og Ránargötu. Það er Félag Þetta eru textar sem hafa heillað mig fyrir ein- íslenskra myndlistarmanna sem stendur fyrir þess- hverra hluta sakir, segir Arnar Herbertsson, þannig ari kynningu á verkum Arnars, en hann hefur ekki rata þeir inn í myndirnar. haldið einkasýningu hér í Reykjavík í mörg ár. Arnar Herbertsson var félagi í SÚM-hópnum á Ég hef ekki sýnt svona margar myndir síðan ég sínumtímaogsýndimeðhonumásjöundaáratugn- sýndi í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1979 sagði um og í byrjun þess áttunda. Arnar segist alltaf hafa Arnar í samtali við Þjóðviljann. stundað myndlistina með brauðstritinu í gegnum Myndir Arnars eru málaðar með olíu á viðarplöt- árin, þótt hann hafi ekki sýnt mikið. Myndirnar á ur í skærum litakontröstum með glansandi áferð þessari sýningu eru frá síðustu tveim árum. sem Arnar segir að geri litinn dýpri. f myndunum er Sýningin í FÍM-salnum stendur til 6. mars og er víða notað brons, og sums staðar bregður fyrir opin kl. 14-18 daglega. -ólg