Þjóðviljinn - 02.03.1990, Page 11
Hreint frábær salsatónlist
Síðast liðið miðvikudagskvöld
héldu kúbanska hljómsveitin
Los Noveles og kabarett-
söngkonan Leonor Zayas hreint
frábæra tónleika á Hótel Borg.
Hljómleikarnir eru hluti af
hljómleikaferð tónlistarmann-
anna um Norðurlönd og hingað
til lands koma þeir frá Færeyjum.
Los Noveles og Leonor Zayas hafa
áður farið í Norðurlandaferð en
þá var íslandi og Færeyjum
sleppt.
Fyrst spiluðu Los Noveles
nokkur lög einir og byrjuðu á tja,
tja, tja. Tveir slagverksleikarar
eru í hljómsveitinni, Miguel
Fernandez og Jorge Urbizo.
hljóðfæri sem ekki er algengt að
nota í hefðbundinni kúbanskri
tónlist þá heldur tónlistin sínum
upprunalega tóni.
Það má því segja að hljómur-
inn í tónlist okkar sé nútímalegur
en takturinn hefðbundinn.
Hljóðfæri eins og hljóðgerfil-
linn bæta nýjum hljóm inn í tónli-
stina sem höfðar ef til vill meira
til fólks á alþjóðlegum mælik-
varða. Við náum víðar með okk-
ar tónlist með þessum hætti en
ella.
-Þú talar um að hljómsveitin
hafi orðið meðvituð. Hvers konar
meðvitund var það, pólitísk eða
tónlistarleg?
LeonorZayazersannkölluð kabarettdrottning og heillaði tónleikagesti
með framkomu sinni og söng. Mynd: Jim Smart.
Samspil þeirra var mjög gott.
Saman mynduðu þeir kröftugan
takt sem fékk fólk til að fara á
hreyfingu í stólunum. Hljóm-
borðsleikarinn Adolfo Naquid
framkallaði hefðbundin hljóð-
færi eins og harmonikku út úr
nótnaborðinu og kryddaði suður-
ameríska tónlistina með forvitni-
legum hætti vestrænum hljóm-
um.
Leonor Zayaz kom síðan inn á
sviðið klædd í stutt glimmerpils
og glimmerskyrtu eins og
sannkölluð kabarettdrottning.
Zayas er mjög góð söngkona og
þegar hún var komin á sviðið var
eins og hljómsveitin breyttist
skyndilega í undirleikara.
Rödd Zayaz naut sín best í
þeim fáu rólegu lögum sem tón-
listarmennirnir tóku. Þar var hún
enginn eftirbátur þeirra söng-
kvenna á Vesturlöndum sem
taldar eru syngja hvað best, til að
mynda Whitney Huston.
Þeir sem misstu af tónleikun-
um geta enn bætt það upp. í
kvöld og annað kvöld koma Los
Noveles og Leonor Zayaz fram í
Sukkasalnum á Borginni og á
morgun klukkan þrjú eru tón-
leikar í FÍH-salnum við Rauða-
gerði 27. Þá er öllum velkomið að
mæta á árshátíð Vináttufélags ís-
lands og Kúbu í vélstjórasalnum
Borgartúni 18 á sunnudagskvöld-
inu.
Nýtt Helgarblað hitti hljóm-
sveitarstjórann og gítarleikarann
Pedro Rodriquez og kabarett-
drottninguna Leonor Zayaz að
máli á Hótel Borg í gær.
-Rodriquez, hvenœr var Los
Noveles stofnuð?
Hljómsveitin var stofnuð 1966
þegar við vorum námsmenn og
við höfum haft tónlistina að at-
vinnu síðan 6. júli það ár. í dag
eru fjórir meðlimir í hljóm-
sveitinni sem hafa verið með frá
upphafi en árið 1968 bættist
fimmtfe maðurinn í hópinn og
sjötti meðlimurinn kom 1978.
Tónlist okkar hefur tekið mikl-
um breytingum frá því við byrj-
uðum. Fyrst spiluðum við rokk
en svo kom að því að við urðum
meðvitaðir og skildum að það var
rökréttast fyrir okkur að spila
okkar eigin kúbönsku tónlist.
Við uppgötvuðum að kúbönsk
tónlist er mjög auðug og býður
upp á mikla möguleika. Og þó
við notumst við rafmögnuð ^
D/íGURMAL
Þetta er samtvinnað. Þessi
meðvitund er bæði pólitísk og
tónlistarleg og einnig fagleg.
Hvað snertir pólitísku hliðina þá
er það eitt af kjörorðum okkar
Kúbumanna að „nýta landsins
gögn og gæði“. Einn af helstu
hugsuðum Kúbumanna á síðustu
öld, Jose Martí, sagði: Það má vel
vera að vínið okkar sé beiskt en
það er okkar vín. En þetta á von-
andi ekki við um tónlistina okkar
bókstaflega, ég held að hún sé
ekki beisk.
En hlutirnir gerast alltaf svona
á Kúbu. Ég get tekið son minn
sem dæmi. Hann er 13 ára og
leggur stund á tónlistarnám.
Áður en hann byrjaði að læra var
hann mjög upptekinn af vest-
rænni dægurtónlist og gekkst
mikið upp í rokki og poppi. En
svo kom að því hjá honum eins og
flestum öðrum að hann uppgötv-
aði að kúbanska tónlistin höfðaði
meira til hans. Þetta er ákveðið
þroskastig.
-Leonora, þú varst búin að
vera lengi í tónlist áðurenþú byrj-
aðir með Los Noveles. Hvernig
kom samstarf þitt við hljóm-
sveitina til?
Fyrstu kynni mín af tónlist
voru í gegnum nám mitt í kór-
stjóm í listaháskólanum í Ha-
vana. Árið 1980 hóf svo göngu
sína í kúbanska sjónvarpinu þátt-
ur sem heitir „Allir syngja“, sem
er þáttur þar sem ungir lista-
menn, dansarar, tónlistamenn og
svo framvegis fá tækifæri til að
koma fram. Minn ferill byrjaði í
þessum þætti og í kjölfar þess
ferðaðist ég um landið og söng og
kom fram í kabarettum, útvarpi
og sjónvarpi og ferðaðist einnig
víða um heiminn, bæði Suður-
Ameríku og Evrópu.
Árið 1981 vann ég til verðlauna
á sönghátíð í Austur-Þýskalandi.
Samstarf mitt við Los Noveles
hefst hins vegar ekki fyrr en 1983
eða 1984 þegar við unnum saman
í kaparett í baðstrandarbænum
Varadero á Kúbu. í fyrra var sá
möguleiki orðaður að við ynnum
aftur saman og færum í sameigin-
lega tónleikaferð um Norður-
lönd.
Ég hef fyrst og fremst sungið
kúbanska tónlist og það hefur
Los Noveles einnig gert. En þeg-
ar við vinnum saman reynum við
að gera tónlistina meira alþjóð-
lega. Á prógramminu eru alþjóð-
leg númer þó aðaláherslan sé
lögð á að kynna hefðbundna kúb-
anska tónlist.
Frumkvæðið að ferð okkar um
Norðurlönd kemur frá ICAP sem
er stofnun á Kúbu sem sér um
menningartengsl við aðrar þjóð-
ir. Við höfum bæði í sitthvoru lagi
og saman farið í slíkar ferðir á
vegum ICAP áður.
-Nú er stundum sagt að suð-
rœnt fólk sé blóðheitara en nor-
rœnt. Hver er munurinn að spila-
heima á Kúbu og hér á norð-
lœgum slóðum?
Mér finnst ekki vera mikill
munur á þessu. Alls staðar þar
sem við höfum farið hefur fólk
dansað. Það dansar kannski á
sinn hátt og ekki alveg eins og
við, en það tekur þátt í tónlistinni
engu að síður.
Eg hef heyrt þetta með mis-
munandi heitt blóð í fólki áður,
en ég trúi ekki þeirri kenningu.
-Þú hefur komið mikið fram í
kabarettum. Er sá kabarett sem
við þekkjum í dag sá sami oghann
varfyrr á öldinni?
í fyrsta lagi þá er atvinnuöryggi
okkar sem vinnum í kabarettnum
meira núna en það var fyrir bylt-
inguna. Áður gátu þeir sem ráku
kabarettana ráðið fólk fyrir eitt
kvöld og hent því síðan frá sér. í
dag eru allir í verkalýðsfélagi og á
starfssamningi, og fá sín föstu
Iaun hvort sem þeir eru að ferðast
innanlands eða í öðrum löndum.
Það fer fram stöðugt starfsmat og
það er metið hvernig okkur vegn-
ar.
Innihald kaparett sýninganna
er mismunandi. Heima á Kúbu
fjalla þeir mest um fólkið sjálft.
Sagan sem er sögð í kabettunum
þræðir sig í gegnum hina kúb-
önsku þjóðarsál. Þetta eru glað-
værar sýningar vegna þess að
fólkið sem kemur á sýningamar
er komið til að skemmta sér.
Tónlistin í kabarettunum er af
ýmsum toga, ekki bara kúbönsk-
um. Það er mikið að gerast í sýn-
ingunum og dansinn skipar þar
veglegan sess.
Á Kúbu er síðan mikil hefð
fyrir trúbadúrtónlist eða „tróva“.
Eftir byltinguna kom fram það
sem við köllum „nýja tróvan“,
þar sem textamir hafa mun meira
pólitískt innihald en áður. Kabar-
ettinn er öðravísi, þar er meiri
áhersla lögð á að skemmta fólki.
-En Rodriguz, nú er yfirleitt
talað um rokk, djass og blús sem
alþjóðlegt fyrirbœri. Hvernig er
tónlistarlífið á Kúbu, má finna
þar allt litróf tónlistarinnar?
Ég þekki auðvitað ekkert til ís-
lenskrar tónlistar og hversu gott
er að dansa við hana til dæmis.
En á Kúbu er tónlistin fyrst og
fremst danstónlist og mikill
meirihluti tónlistarmanna flytur
kúbanska tónlist. Síðan má finna
klúbba þar sem eingöngu er
leikinn djass og klúbba þar sem
bara er spilað rokk. Á diskótek-
unum er tónlistin aftur á móti
mjög blönduð. Kúba er alls ekki
tónlistarlega lokað land.
í dag er til að mynda mikill
uppgangur í rokkinu á Kúbu.
Nýjar hljómsveitir spretta upp á
hverjum degi. En þó það sé verið
að spila rokk einhvers staðar þá
endar alltaf á þvi að það er farið
að spila kúbanska tónlist og fólk
fer að dansa. Hún verður alltaf að
vera með, takturinn er svo
skemmtilegur að dansa eftir og
það kunna allir að dansa þessa
flóknu dansa sem fylgja þessari
tónlist.
Það er hins vegar borin mikil
virðing fyrir djassi á Kúbu og
hann er mikið spilaður. Við segj-
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
um gjarnan að djassinn sé tónlist
fyrir tónlistarmenn. Það er líka
auðveldara að spila kúbanska
tónlist ef maður er vel inni í
djassi. Skyldleikinn með djassi
og okkar tónlist er það mikill,
það eru söguleg tengsl þama á
milli.
-Þú talar mikið um dans. Er
dansinn stór hluti af daglegu lífi
fólks á Kúbu? Það er sagt að kú-
banskar konur gangi um dans-
andi.
Leonor: Það er ekki hægt að
hlusta á þessa tónlist án þess að
finna til löngunar til að dansa.
Sjálf kunnum við sporin og þessa
dansa. En meira að segja þeir
sem kunna þetta ekki finna til
þessarar löngunar. Dansinn er
ósköp einfaldlega hluti þessarar
tónlistar, býr í henni. -hmp
1
9! í 9
9
Ódýr hádegismatur
alla virka daga
frá kl. 12—2.
1. Hamborgari dagsins
m/frönskum og salati 2. Samloka dagsins kr. 490
m/frönskum og salati kr. 395
3. Kjötréttur kr. 580
4. Fiskréttur Súpa fylgir. kr. 580
Elskum alla þjónum öllum
s. 689888
w
'ITA-
FYRIR
'TVARP 0G
SJÓNVARP
ATRIÐI TIL UMFJÖLLUNAR:
■ Hvernig verður þáttur til. ■ Hvernig er efni afl-
að. ■ Hvernig er það skipulagt. ■ Viðtalstækni.
■ Upptaka á útvarpsefni. ■ Handritaskrif fyrir
útvarp og sjónvarp.
FJÖLMIÐLASKÓLI
ÍSLANDS
BORGARTÚNI 24
105 REYKJAVlK
SÍMI 626655
FAX 624990
Föstudagur 2. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11
TÍMI:
Laugard. 3. mars-17. mars.
Samtals 32 tímar.
Aðalleiðbeinandi:
Stefán Jökulsson dagskrárgerðarmaður
Upplýsingar og skráning í síma 626655