Þjóðviljinn - 02.03.1990, Blaðsíða 17
Fulltrúi Afríska þjóðarráðsins á Islandi
Pritz Dullay, fulltrúi Afríska
þjóöarráðsins í Danmörku, kom
til íslands í gær til að taka þátt í
tónleikum tileinkuðum frelsun
Mandela.
í dag mun Dullay hitta
Steingrím Hermannsson forsæt-
isráðherra og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra að
máli. Líklegt er að hann muni
fara fram á að engin slökun verði
á innflutningsbanni á s-afn'skar
vörur á meðan Apartheid ríkir í
landinu, en Afríska þjóðarráðið
hefur hvatt til þess að ekki verði
hróflað við efnahagslegum refsi-
aðgerðum á S-Afríku á meðan
kynþáttastefnan er við lýði.
Á morgun kl. 17 rnun Dullay
tala á fundi sem Vináttufélag ís-
lands og Kúbu og Pathfinder-
bóksalan standa fyrir í Sóknar-
salnum Skipholti 50A.
Á fundinn kemur einnig Ama-
do Rivero frá Kúbu, en hann er
yfirmaður Norðurlandadeildar
ICAP, stofnunar um vináttu-
tengsl Kúbu við aðrar þjóðir.
Kynnt verður sérstaklega rit-
gerðasafn Fidels Castro, „In De-
fence of Socialism“, sem
Pathfinder-bókaforlagið gaf út á
síðasta ári. Þar er m.a. fjallað um
þátt Kúbana í baráttunni gegn
Apartheid-stefnunni í S-Afríku.
Auk þess munu um 50 bókatitlar
liggja frammi á fundinum, ásamt
með veggspjöldum og merkimið-
um. Túlkað verður á íslensku á
fundinum og hægt verður að
kaupa kaffiveitingar.
-Sáf
ánudaginn 5. mars, opnar
Iönlánasjóður í nýju hús-
næði á þriðju og fjórðu hæð húss-
ins við Ármúla 13a. Flutningur og
sjálfstæður rekstur sjóðsins leiðir
af sér ný framtíðarmarkmið til
bættrar þjónustu við viðskipta-
menn og betri árangurs til hags-
bóta fyrir íslenskt atvinnulíf.
Skrifstofan er opin frá kl. 9.00 til kl. 16.30 alla virka daga.
Ur Armúla 7 í Armúla 13a
iðniAnasjóður
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVlK SlMI 680400
TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950