Þjóðviljinn - 02.03.1990, Qupperneq 26
Ásmundarsalur v/Freyjugötu, Harri
(Höskuldur Harri Gylfason), málverk.
TÍI3.3.14-18daglega.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6, kynn-
ing á verkum Arnars Herbertssonar.
Til 6.3.14-18daglega.
Gallerí Borg, Ingiberg Magnússon,
teikningar og akríl-myndir. Til 6.3.10-
18 virka daga, 14-18 helgar.
Gallerí einn einn, Skólavörðustíg
4a, Jóhann Eyfells, skúlptúrlíkön og
pappírssamfellur, opn lau kl. 15. Til
15.3.14-18daglega.
Gallerí Graf, Logafold 28, verkÁstu
Guðrúnar Eyvindardóttur. Lau 14-18
e/eftirsamkomulagi.
Galleri Sævars Karls, Bankastræti
9, Guðjón Ketilsson, blýantsteikning-
ar. Til 16.3. verslunartími.
Gamli Lundur, Akureyri, Sigurjón
Jóhannsson, Síldarævintýrið, opn
lau. Til 11.3.16-18 virka daga, 14-18
helgar.
Hafnarborg, Hf, Nonaginta: Björn
Roth, Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Kjartan Guðjónsson og Ómar
Stefánsson sýna málverk, opn lau.
Til 18.3.14-19 alla daga nema lau.
Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega,
austursalur: Kjarval og landið, til 4.3.
Vestursalur, formleysismálverk úr
safni Riis. Vesturforsalur, verke/
SvavarGuðnason.
Listamannahúsið, Birgitta Jóns-
dóttir, þurrpastelmyndir, olíumálverk
og punktamyndir, opn lau kl. 16, tón-
list, upplestur og ýmsar uppákomur
við opn. Til 1.4. versl.tími.
Listasafn íslands, salir 1 -5 Uppþot
og árekstrar, norræn list 1960-1972,
farandsýning á vegum Norrænu list-
amiðst. Til 8.4.12-18 alla daga nema
mán. kaffistofa oþin á sama tíma, að-
gangurókeyþis.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga11-17.
Listasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Mokka, Vilhjálmur Einarsson, lands-
lagsmálverk.
Norræna húsið, kjallari, Aurora 3,
samsýn. ungra norrænna lista-
manna. Til 11.3.14-19 daglega.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Gunnar
örn, einþrykk og skúlptúrar. Til 7.3.
10-18 virka daga, 14-18 helgar.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16, lýkur
ífeb.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir
samkomulagi.
SPRON, Álfabakka 14, Gunnsteinn
Gíslason, múrristur. Til 27.4.9:15-16
mán-fö.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11-16.
fsiandsbanki, Skipagötu, Akureyri,
myndir eftir Jón Eiríksson. Til 2.4.
TÓNLISTIN
Sunnudagstónieikar í Hafnarborg:
Ester Helga Guðmundsdóttir sópran
og Guðni Þ. Guðmundsson píanól.
flytja nokkur lög úr velþekktum söng-
leikjum m.a. Porgy og Bess, Show-
boat, Sound of music og Cats, 15:30
su, aðgangurókeyþis.
Tónleikar til stuðnings íslandsdeild
Amnesty International, Bústaðakirkju
su kl. 17, karla-og drengjakór St.
Christophþrs stjórn. Hope Armstrong
Erb, Karen Russo píanóleikari og
strengjahljómsv. St. Catherines og
St. Christophers, stjórn. Anne Bakker
Stokes: íslensk sönglög, Ave Maria,
amerískþjóðlög, negrasálmaro.fl.
Heitl potturlnn, Duus-húsi, su kl.
21:30 T ríó Ólafs Stephensen ásamt
gestum.
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikari haldatónl. ísafnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi mán kl. 20:30.
Sónöture/C.P.E. Bach og Prokofjev
auk verka e/ Árna Björnsson, Atla
Ingólfsson og Béla Bartok.
Rannveig Bragadóttir messósópr-
an og Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari halda tónl. á vegum Tónl-
istarfél. í íslensku óperunni mán kl.
20:30. Gamlar ítalskar aríur, þýsk
þjóðlög í útsetningu Brahms, lög e/
Schubert, Schönberg, Ravel og
Rossini. Miðasala stendur yfir í Ópe-
runni.
íþróttahús Mosfelisbæjar lau kl. 15,
KATLA, karlakórasamb. Suðurlands
15 ára afmæli, Sinfóníuhljómsveit Is-
lands.
Hótel l'sland, jasskvöld í Café fsland
laukl. 23:30, TómasR. Einarssonog
fél.
Kjarvalsstaðir su kl. 20:30: Jón Að-
alsteinn Þorgeirsson klarinettuleik.
og Þorsteinn Gauti Sigurðsson pí-
anóleik. Grand Duo Concertante e/
Weber og sónötur e/ Saint-Saens og
Brahms.
Kúbanska hljómsveitin Los Novels
leikur í Skuggasal Hótels Borgar í
kvöld og annað kvöld og heldur tón-
leika í FIH-salnum, Rauðagerði 27
lau kl. 15.
LEIKLISTIN
Fantasía, Skeifunni 3c, Vagnadans
- í leit að hjómi, í kvöld og su kl. 21 (s.
679192).
íslenska Óperan, Carmina Burana
og Pagliacci, í kvöld og lau kl. 20.
Leikfélag Akureyrar, Heill sé þér
þorskur.
Leikfélag Hafnarfjarðar, Hrói
Höttur, lau kl. 17, su kl. 14 og 17.
Leikfélag Reykjavfkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld og lau kl.
20. Höll sumarlandsins, stóra sviðinu
í kvöld og su kl. 20. Töfrasprotinn lau
og su kl. 14. Kjöt, lau kl. 20.
Þjóðleikhúsið, Endurbygging, lau kl.
20. Stefnumót, frums. í kvöld kl. 20,2.
sýn. su kl. 20.
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmi: Líf og
friður í Langholtskirkju su kl. 20:30,
söngleikur e/ Per Harling og Lars
Collmar, gerist á meðal dýranna í ör-
kinni hans Nóa eftir að mannkynið
hefur eyðilagt lífsskilyrði á Jörðinni.
Hvað á að gera um helgina?
Helgi Arngrímsson
„Það fer nú mikið eftir því hvernig veðrið verður hér eystra um
helgina hvað maður gerir. Ef vel viðrar mun ég ásamt öðrum reyna að
reka smiðshöggið á uppsetningu skíðalyftunnar hér á laugardaginn.
Ætli maður reyni svo ekki á sunnudaginn að gefa sértíma til að sinna
fjölskyldunni," sagði Helgi Arngrímsson, framkvæmdastjóri Álfasteins
hf. í Borgarfirði eystra.
HITT OG ÞETTA
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
bókmenntadagskrá su kl. 15: Þórunn
Valdimarsdóttir ræðir um aðferðir við
ævisagnaritun og beinir athyglinni
einkanlega að landamærunum á milli
skáldskaparog sagnfræði. Þórunni til
aðstoðar verða leikararnir Guðný
Ragnarsdóttirog Karl Guðmundsson
sem lesa óbirtan kaf la úr ævisögu
Þórunnar um Snorra á Húsafelli.
Áheyrendum gefst kostur á að beina
fyrirspurnum til Þórunnar í lok dag-
skrárinnar, sem stendur í um klst.
MÍR, kvikmyndasýn. í bíósalnum v/
Vatnsstíg 10 su kl. 16: Vindarnir sjö e/
Stanislavs Rostotskí (1962). Efni
myndarinnar er sótt í atburði styrjald-
aráranna 1941 -45. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Kvikmyndaklúbbur íslands, Tromp
í bakhöndinni (Ace in the Hole) e/
Billy Wilder (USA1951) sýnd í Regn-
boganum lau kl. 15.
Norræna húsið, hádegisfyrirlestur í
dag kl. 13: Ingibjörg Hafstað, Kvinn-
ene i det islandske samfunnet.
Laugardagskaffi Kvennalistans, lau
kl. 11 að Laugavegi 17. Umræðuefni
dagvistar og öldrunarmál í Reykjavík.
Allirvelkomnir.
Bókmenntahópur MAÍ kemur sam-
an í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3 lau
kl. 15. Mætumöll.
Félag eldri borgara í Rvík og nágr.
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, su:
Kl. 14 frjálst, spil og tafl, dansað frá kl.
20. Danskennsla í Nýja Dansskólan-
umfellurniðurlau.
Félagsvlst og gömlu dansarnir á
hverju föstudagskvöldi ÍTemplara-
höllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir
velkomnir.
Hana nú, lagt upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í
fyrramálið. Hittumst uppúr hálftíu til
að drekka molakaffi og rabba saman.
Konungleg skemmtun í óperunni
íslenska óperan: Carmina Burana
eftir Cari Orff. Hljómsveitarstjóri
David Angus. Leikstjóri og dansahöf-
undur: Terence Etheridge. Leikmynd •
og búningar: Nicolai Dragan. Flyt-
jendur: Kór og barnakór Islensku óp-
erunnar ásamt jjeim Micael Jón
Clarke, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og
Þorgeiri J. Andréssyni. Dansarar úr
íslenska dansflokknum.
Pagliacci eftir Ruggero Leonca-
vallo. Hljómsveitarstjóri David Agn-
us. Leikstjóri Basil Coleman. Leik-
mynd Nicolai Dragan. Búningar: Al-
exander Vassiliev. Hfjóðfæraleikur í
báðum sýningum: Hljómsveit ís-
lensku óperunnar. Stjórnandi kórs og
æfingastjóri: Peter Locke
Kór íslensku óperunnar tók
áhorfendur með trompi á fyrsta
tóninum í Carmina Burana á
frumsýningunni um síðustu helgi.
Slíkur var krafturinn f flutning-
num, og sleppti ekki tökunum á
áhorfendum fyrr en hringnum
var lokað og verkinu lauk í upp-
hafsstefinu um fallvaltleik ham-
ingjunnar.
Carmina Burana er fyrst og
fremst kórverk, en býður jafn-
framt upp á að það sé dansað með
þeim kraftmikla og frumstæða
takti, sem gengur í gegnum verk-
ið. Söngtextar eru gömul alþýðu-
kvæði um lífsnautnina frjóu og
Dansarar úr íslenska dansflokknum í Carmina Burana. Ljósm: Kristinn
fallvaltleik hennar, teknir upp úr
miðaldahandriti frá fyrri hluta
13. aldar, sem munkarnir í
Benediktbeuern-klaustrinu í
Bæjaralandi höfðu varðveitt í
gegnum aldir sem forboðinn og
syndsamlegan texta. Þar játar
óþekkt skáld á sig veikleika sinn
fyrir kvennaástum, spilum og
víni.
Tónlistin er í senn forneskjuleg
og nýtískuleg og má finna skyld-
leika í henni við Stravinsky, en
ÓLAFUR GÍSLASON
verkið var samið og frumflutt
árið 1937. Hin taktfasta hrynj-
andi og sá frumstæði kraftur sem
einkennir verkið gerir það að
verkum að tónlistin grípur
áheyrandann fyrirvaralaust og
nánast kallar eftir hreyfingu. Það
var því vel til fundið að flytja
verkið sem „óperuballett", og
margt gott og hugvitsamlegt í
sviðsetningunni. Einkum skilaði
karldansarinn Hany Hadaya sín-
um hlut vel. Hitt er svo annað
mál hvort tónlist og texti hafi ekki
boðið upp á meiri erótík og
trylltari hreyfingar, og kann að
vera að dansinn hafi í einhverju
goldið fyrir þrengslin á sviðinu.
En Sigrún Hjálmtýsdóttir skilaði
sópranhlutverki hinnar blóðheitu
og heitt þráðu bóndastúlku með
ástríðuhita sem smitaði frá sér
um allan salinn svo að það nálg-
aðist að við værum þarna við-
stödd nútíma blót til heiðurs
sjálfum Díonísos hinum gríska.
Semsagt konungleg skemmtun.
Eftir hléið var farið í allt aðra
sálma. Óperan Pagliacci eftir Le-
oncavallo er með fyrstu óperum í
anda verisma eða raunsæis, sem
fluttar voru á ftalíu, en hún var
frumsýnd í Mflanó 1892. Þetta er
hefðbundin saga um ástir og af-
brýði á S-Ítalíu, en það sem gerir
framsetninguna sérstaka er
hvernig höfundurinn spilar á and-
stæður leiks og alvöru: Farand-
leikarar eru á ferð með leiksýn-
ingu um Kólumbínu og Harlekín
í anda Commedia dell'arte. Can-
io (Garðar Cortes), sem leikur
trúðinn, grunar konu sína Neddu
(Ólöf Kolbrún Harðardóttir),
sem leikur Kólumbínu, um
ótryggð. Þegar að leiksýningunni
kemur á þorpstorginu snýst kóm-
edían yfir í raunverulegan harm-
leik: trúðurinn ræðst að Kólumb-
ínu, ásakar hana um svik og
leggur hana hnífi í raunveruleik-
anum. Og þegar ástmaður henn-
ar birtist fær hann sömu útreið.
Flutningurinn var í stuttu máli
íslensku óperunni til sóma.
Hjálpaðist þar flest að: góð sviðs-
mynd, fagmannleg leikstjórn og
góður söngur, einkum hjá Garð-
ariCortes. Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir sýndi líka að hún er ekki
bara góð söngkona, heldur líka
leikkona sem brá sér fyrirhafnar-
lítið en fagmannlega í hlutverk
Kólumbínu, þannig að unun var
að sjá og heyra. Lófatakinu í lok
frumsýningar ætlaði aldrei að
Iinna og sýndi að áhorfendur
kunnu vel að meta þetta framlag
íslensku óperunnar sem þarna
flutti sitt 19. verkefni frá upphafi
með sóma.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. mars 1990