Þjóðviljinn - 09.03.1990, Side 11
Kasparov marði sigur í Linares
— en Boris Gelfand vakti mesta athygli
Úrslit stórmótsins í Linares á
Spáni sem lauk um síðustu helgi
koma ekki á óvart. Garrí Kaspar-
ov varð einn efstur en sigur hans
var ekki jafn eindreginn og á
skákmótunum í Tilburg og Bel-
grad sl. haust. Hinn ungi sovéski
stórmeistari Boris Gelfand veitti
Kasparov mikla keppni og það
var ekki fyrr en í síðustu umferð
að sigur heimsmeistarans var í
höfn. Þá tefldi Gelfand með
svörtu við Vasily Ivantsjúk en
Kasparov með hvítu við heima-
manninn Illescas.
Skák Ivantsjúks og Gelfands
var tvíbent barátta. Með sigri gat
Ivantsjúk náð Gelfand að vinn-
ingum og staðfest frábæran ár-
angur sinn frá mótinu í fyrra er
hann lenti óvænt fyrir ofan Anat-
oly Karpov. Fæstir áttu von á að
Kasparov yrði í erfiðleikum með
Illescas en annað kom á daginn.
Illescas beitti Tarrasch-vörninni,
vopni sem Kasparov notaðist við
með frábærum árangri í áskor-
endakeppninni 1983-‘84. Þessi
skák bar þess öll merki að tapið
fyrir Gulko hafði haft sín áhrif á
heimsmeistarann. Byrjunartafl-
mennska hans var ekki nándar
nærri eins markviss og oftast áður
og með hárbeittri skiptamuns-
fórn fékk iílescas prýðilega
stöðu. Um svipað leyti þráléku
Ivantsjúk og Gelfand. Það leit
lengi vel út fyrir að Kasparov yrði
að sætta sig við jafntefli gegn hin-
um sókndjarfa Spánverja en út-
haldið brást Illescas, hann sá allt í
þoku og algerlega ónauðsynlega
Íeyfði hann Kasparov að virkja
hróka sína og ráðast síðan inn í
stöðuna. Eftir 54 leiki var allt við-
nám þrotið og Kasparov hrósaði
sigri.
Hann hefur orðið efstur á
hverju einasta móti sem hann
hefur tekið þátt í frá og með So-
vétmeistaramótinu 1981-‘82. Tví-
vegis hefur hann orðið jafn Karp-
ov í efsta sæti, tvívegis jafn Lju-
bojevic en í öðrum mótum hefur
hann orðið einn efstur og yfirleitt
með feiknarlegum yfirburðum.
Þrátt fyrir sigurinn var tafl-
mennska Kasparovs varla jafn
þróttnmikil og oft áður. Hann
hefur verið að vasast í ýmsu uppá
síðkastið og til þess að vera ör-
uggur með að verja titil sinn í
haust í einvíginu um heimsmeist-
aratitilinn sem samkvæmt síðustu
fréttum hefst í New York í októ-
ber en endar í Lyon í Frakklandi.
Lokaniðurstaðan í Linares
varð þessi:
1. KasparovSv. 2. Gelfandy'A
v. 3. Salov7 v. 4. Ivantsjúkó Viv.
5. Short 6 v. 6.-7. Jusupov og
Gulko 5 Vi v. 8. Beljavskí 5 v.
9.-11. Illescas, Portisch og Spas-
skí 4 v. 12. Ljubojevic 3 v.
Taflmennskan í þessu móti var
æði gloppótt og furðu mikið um
einföldustu yfirsjónir. Portisch
lék af sér drottningunni gegn
Gulko og algengt var að skipta-
munur fyki í hafið fyrir litlar eða
engar bætur. Spasskí tefldi lit-
laust þrátt fyrir skriflegar yfirlýs-
ingar um hið gagnstæða og Lju-
bojevic var alveg úti á þekju.
Fjórir efstu menn koma væntan-
lega til með að skipa framtíðar-
sveit sovéskra. Karpov verður
væntanlega með í för en Jusupov
og Beljavskí virðast vera að gefa
eftir. Beljavskí hefur ítrekað
reynt að flytjast búferlum frá So-
vétríkjunum en mætt alls kyns
erfiðleikum. Hálfgerð upplausn
virðist ríkja í sovésku skáklífi og
skáksambandið hefur ekki sömu
heljartök á mönnum og áður.
Heilsteyptasta skák Kasparovs
kom í 5. umferð er hann lagði
Artur Jusupov að velli. Þessi
skák fylgir hér á eftir:
Artur Jusupov -
Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
6. 0-0 Rbd7
7. Rc3e5
8. h3c6
9. e4 Db6
10. c5
Rf3 Rf6
c4 g6
g3 Bg7
Bg2 0-0
d4 d6
(Þessi skarpi leikur hefur
aldrei valdið svörtum verulegum
1.
2.
3.
4.
5.
vandræðum. Traustast er 10.
Hel. Kasparov hefur áður mætt
leiknum 10. dxe5 sem veldur eng-
um vandkvæðum en leiðir til
fremur jafnteflislegrar stöðu.)
10. .. dxc5 14. Dc2 Re6
11. dxe5 Re8 15. Hfdl He8
12. Ra4 Da6 16. Hd6 Da5
13. Bf4 Rc7 17. Hadl Rb6!
(Það er ekki að sjá að alger
yfirráð hvíts eftir d-línunni hafi
fært honum umtalsverð færi. Nú
nær Kasparov hinsvegar hag-
stæðum uppskiptum á drottning-
arvæng.)
18. Rxb6 axb6 21. De3 b4
19. a3 Da4 22. axb4 Dxb4
20. De2 b5 23. H6d2 Ha2!
(Með markvissri taflmennsku
hefur svartur hrifsað til sín frum-
kvæðið. Jusupov hefur teflt án
sérstakrar áætlunar og það kem-
ur honum í koll.)
24. Hbl c4 28. Bxg7 Kxg7
25. Hc2 b5 29. Rxd4 Dxd4
26. Bh6 Dc5 30. b3
26. Dcl Rd4!
(Þessi leikur ber þess glöggan
vott að hvítur hefur tapað þræð-
inum og gerir nú örvæntingar-
fulla tilraun til að klóra í bakk-
ann. Eina von hans liggur í því að
koma peðunum á kóngsvæng á
skrið.)
30. .. Hxc2 35. Hxc3 c4
31. Dxc2 c3 36. f4 Dc54-
32. Hdl Dc5 37. Kh2 Dd4
33. b4 Dxb4 38. HO b4!
34. Hd3c5
(Djúphugsaður leikur.)
39. Da4c3!
P ' x - « « « IH
jpxfl 1.
ifc » » P8
SKÁK
,... y „ ■
HELGI
ÓLAFSSON
(Kasparov er samur við sig.
Hann gat vitaskuld reynt að þoka
frípeðunum áfram án
hróksfórnar en treystir útreikn-
ingum sínurm Hugmynd hans er
að svara 40. Dxe8 með 40. ..
Dd7! og eftir 41. Dxd7 Bxd7
verður svart peð að drottningu.)
40. Hxc3!
(Besta tilraunin en allt kemur
fyrir ekki.)
40. .. Bd7! 43. Bfl Bc2
41. Hc4 Bxa4 44. Bc4 b3
42. Hxd4 Hb8! 45. Bxb3 Hxb3
(Svartur hefur unnið mann og
úrslitin eru ráðin. Engu að síður
er úrvinnsla Kasparovs á þessari
stöðu lærdómsrík.)
46. g4 He3 55. Hb3 Be2
47. f5 gxf5 56. Hb2 Bfl
48. exf5 Hxe5 57. Hh2 Kf6
49. Hd2 Ba4 58. Hhl Ke5
50. Kg3 He3+ 59. Hh2 f6
51. Kh4 Bb5 60. Hhl Ke4
52. Hd5 Bd3 61. Hh2 Kf4
53. Hc5 h6 62. Hhl Bg2
54. Hc3 HO 63. Hh2 Hg3
- og Jusupov gafst upp.
Boris Gulko sem teflir á 1.
borði bandarísku sveitarinnar í
Stórveldaslagnum sem hefst í dag
má vel við sinn árangur una og
sigurinn yfir Kasparov er vita-
skuld sérstaklega sætur. Eftir að
Kasparov vann titilinn af Karpov
haustið 1985 hafa aðeins örfáir
skákmenn unnið heimsmeistar-
ann að Karpov undanskildum:
Timman, Seirawan, Short, Sok-
olov og Jusupov. Gulko byrjaði
frekar illa en náði sér vel á strik
undir lok mótsins. Lítum á viður-
eign hans við Beljavskí í 1. um-
ferð:
Alexander Beljavskí -
Boris Gulko
Grúnfelds vörn
1. d4 Rf6 7. Bc4 0-0
2. c4 g6 8. Re2 Rc6
3. Rc3 d5 9. 0-0 b6
4. cxd5 Rxd5 10. Bg5 Bb7
5. e4 Rxc3 11. Dd2 Dd6
6. bxc3 Bg7 12. Hadl
(Þekkt er gildran 12. e5? Rxe5
13. dxe5 Dc6 og svartur vinnur
manninn til baka með yfirburða-
stöðu.)
12. .. Ra5 15. c4 Ba6
13. Bd3 c5 16. Dcl
14. d5 e6
(Endurbót Beljavskís á skák
Jusupovs og Gulkos í Hastings
um síðustu áramót en þar var
leikið 16. Dc2. Þarna er drott-
ningin í betra sambandi við
kóngsvænginn.)
16. .. exd5 19. Hfel f5
17. exd5 Hae8 20. Re2!
18. Rg3 Dd7
(Það verður að kenna slæmri
byrjun um þá miklu erfiðleika
sem svartur stendur nú frammi
fyrir. Riddarinn er á leiðinni til e6
og við því er í raun ekkert að
gera.)
20. .. Rb7 22- Hxel He8
21. Rf4 Hxel 23- Re6 Bh8
m—mr
P*J
a b c d e f g h
24. Rc7!
(Glæsilegur leikur sem krefst
nákvæmraútreikninga. Beljavskí
varð að sjá fyrir 27. leikinn og
raunar 30. leikinn en þeir brjóta
niður varnir svörtu stöðunnar.)
24. .. Hxel+ 26. De8+ Kg7
25. Dxel Dxc7 27. Bd2!
(Lykilleikurinn í sóknaráætlun
hvíts.)
27. .. I)d8
28. Bc3+ Kh6
29. De3+ Dg5 33. Dh3+ Dh5
30. f4! Dg4 34. Dc3 Re8
31. Bxh8 Ddl+ 35. d6!
(Þetta peð ræður svo að lokum
úrslitum. Hótunin er 36. d6 og
35. .. Bc8 má svara með 36. De5
Bd7 37. De7 og vinnur.)
35. .. Ddl
36. Dh3+
- og Gulko gafst upp.
Lausn á skákþraut:
í síðasta þætti birtist eftirfar-
andi skákþraut:
^ M ■
a b c d e f g h
Hvítur leikur og mátar f öðrum
leik.
Lausn: 1. Dh3 Ke4 2. Hc4 mát.
Víða pottur brotinn
Alloft hefur verið fjallað í þessum'
þáttum um þau vandamál sem geta
skapast þegar svæðamót eru haldin
víðsvegar um landið, án þátttöku
keppnisstjóra. f slíkum tilvikum eru
yfirleitt skipaðar dómnefndir, skip-
aðar hagsmunaaðilum eða keppend-
um í mótinu sjálfu. Nú gefur auga
leið, að við slíkar aðstæður eru
bridgelögin oft þverbrotin eða gróf-
lega mistúlkuð. Á stundum er leitað
tilmanna sem sinnt hafa þessu á opin-
berum vettvangi, með símtölum síðar
um kvöldið eða daginn eftir. Undir-
ritaður hefur f ófá skipti fengið slík
samtöl að undanförnu. Erfitt er að
gefa ráð í gegnum síma, sérstaklega
þegar upplýsingar eru af skornum
skammti, að ekki sé talað um að þær
séu beinltnis rangar. En hvað er þá til
ráða? Afhverju eru ekki vanir menn
fengnir til að sinna þessu, eða koma
sér upp slíku fólki innan hvers svæð-
is? Því miður eru keppnisstjórar afar
fáir hér á landi. Og það sem verra er,
fjöldinn af þeim sem starfandi er,
kann lítið sem ekkert fyrir sér í
bridgelögum. Dæminerumörg. Þetta
eru hörð orð, en því miður sönn.
Nú eru uppi vandamál sem spilarar
af Norðurlandi vestra eru ekki sáttir
við. í bréfi frá Unnari A. Guðmunds-
syni frá Hvammstanga, til þáttarins,
rekur Unnar vandamál sem kom upp
á svæðamóti. Úrskurði dómnefndar
var áfrýjað til dómnefndar BSÍ, sem
tók kæruna fyrir og gaf sinn úrskurð
frá dómnefndinni en þeirri beiðni var
hafnað, án raka. Nú er það svo, að
álit mitt (greinarhöfundar) er það, að
dómnefnd BSf hlýtur að vera skylt að
gefa skriflegan úrskurð í hverju því
máli sem nefndin tekur fyrir. Og að
auki, halda til haga úrskurðum þeim
sem kveðnir hafa verið. Það er ekki
gert, eftir því sem ég best veit.
Nánar verður fjallað um þessi mál í
næstu þáttum.
Aðalbjörn Benediktsson og Jó-
hannes Guðmannsson sigruðu síðasta
konfektmót hjá Skagfirðingum sl.
BRIDGE
Ólafur
Lárusson
þriðjudag. Næstu þriðjudaga verður
á dagskrá eins kvölds tvímenningur,
með konfekt t verðlaun.
Ármann J. Lárusson og Ragnar
Björnsson uru Reykjanesmeistarar í
tvímenning 1990, í keppni sem haldin
var um síðustu helgi. 20 pör tóku þátt
í mótinu, en kolvitlaust veður (að
venju) var á meðan mótið stóð yfir.
Spilað var í Keflavík.
Fyrir skemmstu lauk fslansmóti
kvenna og yngri spilara í sveita-
keppni. Þátttaka var mjög góð í
kvennamótinu. Sigurvegarar í þeim
flokki varð sveit Rauða sófans,
skipuð Esther Jakobsdóttur, Valg-
erði Kristjónsdóttur, Hjördísi
Eyþórsdóttur og Önnu Þóru Jóns-
dóttur. Tvímælalaust besta kvenna-
sveit landsins þar á ferð. f flokki yngri
spilara (25 ára og yngri) var þátttaka
mjög dræm. Er það áhyggjuefni fyrir
stjórnendur bridgemálefna hér á
landi. Sigurvegarar urðu sveit Still-
ingar hf., en hana skipuðu Hrannar
Erlingsson, Matthías Þorvaldsson,
Steingrímur G. Pétursson og Sveinn
R. Eiríksson. Einnig tvímælalaust
besta lið yngri manna þar á ferð. f
úrslitakeppninni spiluðu 4 sveitir til
úrslita allar v/allar, sem að mínu mati
er skynsamlegri lausn en verið hefur í
þessum flokkum. Að ósekju mætti þó
fyrirkomulag liggja fyrir, áður en
undankeppni hefst. Ekki er hægt að
skilja við þessi mót, nema geta þess,
að það hlýtur að vera lágmarkskrafa
að hæfur keppnisstjóri stjórni land-
smótum sem þessum. Umræddur
keppnisstjóri hefur getið sér gott orð
fyrir útreikning í stórmótum, en alh-
liða stjórnun er ekki hans sterka hlið.
Um það vitna vafasamir dómar, svo
ekki sé fastar að orði kveðið.
Agnar Jörgensson hefur úrskurðað
(sem keppnisstjóri) að Símon
Símonarson og Hörður Arnþórsson
skuli hljóta 2. sætið í tvímennings-
keppni á Bridgehátíð, en eins og
kunnugt er, voru þeir úrskurðaðir í 4.
sæti, vegna mistaka þeirra í síðustu
umferð mótsins. Spilarar í sætunum
fyrir ofan þá félaga sættu sig ekki við
þennan úrskurð og áfrýjuðu til dómn-
efndar Bridgesambandsins. Þar
stendur málið þessa dagana. Heyrst
hefur að vilji sé til þess innan sam-
bandsstjórnar að miðla málum, svo
allir geti unað við sitt. Sannarlega
óheppilegt atvik, en vonandi verður
þetta mál leyst á farsælan hátt.
Umsjónarmaður leggur til að þeir
Jakob R. Möller og Hermann Lárus-
son, tveir okkar bestu dómnefndar-
menn og lagasérfræðingar, verði
fengnir til að skóla til mannskap, sem
áhuga hefur til að stjórna bridgespila-
mennsku. f kjölfarið verði síðan
stofnað félag keppnisstjóra. Þessi mál
þola litla bið og yrði nv. sambands-
stjórn til sæmdar, ef eitthvað yrði (í
alvöru) gert í þessum málaflokk.
Hér er ein þrautin af „léttara" tag-
inu:
S: K96 H: 73 T:DG1087 L: 964
S: 1042 S: 875
H: ÁDG9 H: 105
T: 96 T: 432
L: ÁKG8 S: ÁDG3 L: D10752
H: K8642 T: ÁK5
L: 3
Suður spilar 4 spaða og Vestur spil-
ar laufaás og síðan laufakóng. Hvern-
ig á Suður að spila spilið?
Suður trompar laufakóng með háu
trompi, spilar trompþristi og nía/
blinds á slaginn, en láti Vestur tíuna,
er tekið á kónginn. Nú er síðata lauf
blinds trompað, síðan spilað háu
trompi, þá tígulás og tígulfimmu og
blindur á slaginn. Blindur á nú hæsta
tromp og er því spilað og tígulkóng
kastað í. Þarmeð eru tígulslagir blinds
fríir og sagnhafi gefur tvo síðustu
slagina á hjarta (fær 5 á tromp og 5 á
tígul.). Athyglisvert spil.
Föstudagur 9. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11