Þjóðviljinn - 09.03.1990, Side 16

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Side 16
Áætlunin sem mistókst Stefán F. Hjartarson sagnfræð- ingur varði á síðasta ári dokt- orsritgerð við háskólann í Upp- sölum í Svíþjóð, sem fjallaði um baráttu sósíaldemókrata og kommúnista/sósíalista innan ís- lenskra verkalýðsfélaga. Ritgerð hans, „Kampen om fackfören- ingsrörelsen - Ideologi och polit- isk aktivitet pá Island 1920-1938“ kom út á vegum Uppsalaháskóla síðastliðið sumar. Þar sem Stefán hefur víða yfirsýn yfir þá umræðu sem átt hefur sér stað í þrem síð- ustu tölublöðum Nýs Helgar- blaðs um klofninginn í íslenskri verkalýðshreyfingu, þá leituðum við til hans með spurningar um það hvort, og að hve miklu leyti, þessi klofningur hafi verið af er- lendri rót og fyrirmynd, og að hve miklu leyti hann hafi skapast af innlendum aðstæðum. Jafnframt fýsti okkur að leita skýringa á því, hvers vegna klofningurinn í ís- lenskri verkalýðshreyfingu hafi orðið með öðrum hætti en til dæmis á hinum Norðurlöndun- um, þar sem vinstri-sósíalistar náðu sterkari stöðu innan ís- lenskrar verkalýðshreyfingar en sósíaldemókratar. Nauöhyggja Stalíns og páfans Stefán, í umræðunni sem fram hefur farið hér í blaðinu um klofninginn í íslenskri verkalýðs- hreyfingu hafa meðal annars þau orð fallið, að stofnun Kommún- istaflokks íslands hafi á sínum tíma verið „sögulegt slys“, og hins vegar að um „sögulega nauðsyn“ hafi verið að ræða. Er bara um þessa tvo valkosti að ræða, eða á málið sér kannski fleiri hliðar? Eins og málið var sett fram í fyrirsögnum þeirra viðtala sem hér er vitnað til við þá Hjalta Kristgeirsson og Þorleif Friðriks- son, þá er um tvískipta hugsun að ræða með einu viðmiði: annað hvort slys eða söguleg nauðsyn. Þetta er í rauninni sami hugsun- arháttur og tíðkaðist bæði hjá Jósef Stalín og kaþólsku kirkj- unni: annað hvort ertu með mér eða á móti, annað hvort er stríðið réttlátt eða ranglátt. Þetta er hugsunarháttur hinnar svart- hvítu heimsmyndar. Jósef Stalín var tamt að tala um sögulega nauðsyn, eins og Þorleifur gerir, hann aðhylltist lögmáls- eða nauðhyggju, sem hann reyndi að klæða í vísindalegan búning marxismans. íslenskar og alþjóö- legar forsendur í rannsóknum mínum á þessari sögu hef ég litið á þennan klofn- ing út frá sjónarhóli fræðimanns við erlendan háskóla, þar sem ég leitaðist meðal annars við að gefa erlendum fræðimönnum svar við þeirri spurningu, að hvaða leyti stefna Alþýðuflokksins í þessari deilu hafi verið skynsamleg frá sjónarhóli sósíaldemókrata. Þar á meðal vildi ég leita skýringa á því, hvers vegna forysta Alþýð- uflokksins hefði gert þær skipu- lagsbreytingar innan Alþýðu- sambandsins sem leiddu til út- skúfunar kommúnista. Þessar tvær spurningar eru meginatriði í doktorsritgerð minni. í þessu sambandi leitaðist ég við að bera atburðarásina hér á landi saman við það sem gerst hafði og gerðist á sama tíma í öðr- um Evrópulöndum og finna hlið- stæður og að hvaða leyti aðstæð- ur á íslandi voru sérstæðar. Klofningurinn á milli sósíal- demókrata og kommúnista hér á landi gerðist seinna en í nágrann- alöndunum, var ekki svo? Jú, og það skiptir miklu máli þegar við ætlum okkur að skilja afstöðu forystu Alþýðuflokksins á 4. áratugnum. Hún var eins konar endurómun af því sem hafði gerst inn'an hinnar sósíal- demókratísku hreýfingar í Evr- ópu á þriðja áratugnum með at- hyglisverðum árangri. Þar hafði sú stefna verið mörkuð að útiloka kommúnista frá allri þátttöku í fulltrúastarfi innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Til dæmis var þessi ákvörðun tekin í belgíska alþýðusambandinu 1924 og því breska 1925. Á þessum áratug höfðu sósíaldemókratar náð undirtökunum í verkalýðshreyf- ingunni í öllum nágrannalöndum okkar og voru alls staðar með kjörfylgi frá 25-40% í þingkosn- ingum. Breski kommúnistaflokk- urinn var stofnaður árið 1920 og hafði því starfað í áratug þegar sá íslenski var stofnaður. Hann var þó fámennari árið 1930 en við stofnunina 10 árum áður. Svo vel hafði verkamannaflokknum orð- ið ágengt í baráttunni við komm- únista. Klofningurinn á Noröurlöndunum Hvernig gerðist þessi klofning- ur á hinum Norðurlöndunum? Aðstæðurnar í Noregi voru nokkuð sérstakar, þar sem starf- andi voru tveir flokkar, norski verkamannaflokkurinn og norski sósíaldemókrataflokkurinn, en sá fyrrnefndi stóð utan alþjóða- sambanda þegar sameining þeirra kom á dagskrá 1926. Það má vel skilja áhuga danskra jafn- aðarmianna á því að fá Alþýðu - flokkinn td að ganga íAnnaðal- þjóðasambandið út frá því, að þeir vildu þannig auka á þrýsting- inn á Norðmenn um að gera slíkt hið sama, svo að þeir stæðu ekki einir Norðurlandanna utan sam- bandsins. Þegar fundurinn um sameiningu þessara flokka í Nor- egi var haldinn þá gat fulltrúi Al- þjóðasambandsins flaggað með því að íslendingar væru nýbúnir að stíga þetta skref, sem jafn- framt markaði ákveðna útilokun kommúnista sem fylgdu Komint- ern, alþjóðasambandi kommún- ista, að máli. Norski verkamann- aflokkurinn var á þessum tíma sósíalískur flokkur með þjóðlega skírskotun, sem hafði sagt skilið við alþjóðasamband kommúnista 1923. Hann sameinaðist svo sósí- aldemókrataflokknum, sem var smáflokkur, 1927, en sameinaður gekk flokkurinn ekki í Alþjóða- samband jafnaðarmanna fyrr en 1938. Á þessum tíma var líka starfandi kommúnistaflokkur í Noregi, en hann náði ekki um- talsverðu fylgi. Önnur athyglisverð hliðstæða er frá Finnlandi. Þar var sá að- skilnaður flokks og faglegrar hreyfingar fyrir hendi, sem kommúnistar höfðu krafist að yrði framkvæmd hér á landi. Þetta leiddi jafnframt til þess að kommúnistar náðu völdum með lýðræðislegum hætti í verkalýðs- hreyfingunni í Finnlandi þegar 1920. Kommúnistar hér á. landi eygðu þennan sama möguleika og Alþýðuflokkurinn um leið þessa sömu hættu. í Svíþjóð var kommúnista- flokkurinn smár frá upphafi, m.a. vegna innri ágreinings, og hann náði því aldrei að verða pólitískt afl innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Þar voru yfir- burðir sósíaldemókrata algjörir með skylduaðild verkalýðsfélag- anna að jafnaðarmannaflokkn - um. Sama má segja að gilt hafi um Danmörku. Þar voru yfir- burðir jafnaðarmanna afgerandi. Ofmat á fjárstuöningi Þorleifur Friðriksson heldur því fram að danskir jafnaðar- menn hafi haft áhrif á forystu Al- þýðuflokksins og þá ákvörðun hennar að ganga í Annað alþjóð- asambandið 1926, meðal annars með skilyrtum ijárstuðningi. Hvernig mctur þú þá ákvörðun? Ég held að það megi ekki of- meta áhrif erlends fjárstreymis á inntak þeirrar stefnu sem mótuð var innan Alþýðuflokksins. Stefnuskrá flokksins var umbóta- sinnuð en ekki byltingarkennd. Ekki þurfti breski Verkamann- aflokkurinn að betla peninga til þess að taka þá ákvörðun að úti- loka kjörgengi kommúnista í fulltrúastöður. Rannsókn Þor- leifs á fjárstuðningi norrænna og evrópskra jafnaðarmanna við Al- þýðuflokkinn er góðra gjalda verð, en hann ofmetur þýðingu þeirra fyrir pólitískar ákvarðanir og þá beinu braut sem virtist framundan fyrir jafnaðarmenn á íslandi eins og annars staðar í álf- unni. Það hefur einmitt verið vanrækt að líta á þessa stefnu- niörkun í ljósi þess sem gerðist annars staðar í álfunni. Já, sú beina braut sem þú talar um að sósíaldemókratar hafi séð fram á hér á landi reyndist ekki jafn bein og menn héldu. Hvað olli því að íslenskir sósíaldemókr- atar náðu ekki sömu ítökum í verkalýðshreyfingunni hér og víðast annars staðar í álfunni? Ástæðurnar liggja meðal ann- ars í tímasetningunni. Kommún- istar fengu að starfa lengur innan íslenska Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins en víðast annars staðar, og þeir kepptu ekki við sósíaldemókrata um atkvæði í Alþingiskosningum fyrr en 1931. Þá var heimskreppan skollin á og aðstæður allt aðrar en verið höfðu áratuginn á undan, sem var uppgangstími í Evrópu í efna- hagslegu tilliti. Þá voru kommún- Frá kröfugöngu kommúnista í Reykjavík 1. maí. Myndin er talin vera frá 1924. Aðildin að ööru og þriðja alþjóðasambandinu markaði klofninginn í íslenskri verkalýðshreyfingu. istar víðast hvar í álfunni búnir að keppa við sósíaldemókrata um atkvæði í 10 ár, og höfðu alis stað- ar borið lægri hlut. Önnur skýring er sú, að komm- únistar stóðu föstum fótum í verkalýðshreyfingunni, þar sem þeir voru hinir fórnfúsu baráttu- og hugsjónamenn. Þeir lögðu ávallt megináherslu á starfið í verkalýðsfélögunum og grund- völlur þeirra stefnu þar var að varðveita stéttarlega einingu. Strassborgaryfir- lýsingin En hafði tilskipun Komintern frá 1928 um að sósíaldemókratar væru hækja auðvaldsins innan verkalýðshreyfingarinnar ekki áhrif hér á landi? Jú. í kjölfar hennar gaf Al- þjóðasamband rauðra verka- lýðsfélaga, sem hafði aðalbæki- stöðvar sínar í Moskvu, út sér - staka tilskipun, sem kölluð er Strassborgarkenningin og hét í ís- lenskri þýðingu „Leiðarvísir í baráttuaðferð verkalýðsins í hagsmunabaráttu". Þessi til- skipun var gefin út í ársbyrjun 1929, en elsta íslenska prentaða eintakið sem ég hef fundið er frá 1933. Hvort sem Strassborg- arkenningin var gefin út fyrst þá eða fyrr á íslensku, þá vissu bæði íslenskir kommúnistar og for- ystumenn Alþýðuflokksins um inntak hennar þegar 1929. En þar var sagt að kommúnistum bæri að mynda rauð verkalýðsfélög þar sem þeir væru útilokaðir frá þátt- töku í þeim verkalýðsfélögum sem fyrir voru. Samkvæmt þess- um leiðbeiningum bar flokksfé- lögum einnig að starfa af einurð í verkfallsbaráttu og nýta verkföll- in til þess að auka á stéttarvitund verkfallsmanna og leita leiða til þess að þróa verkföllin upp í stéttastríð. Eitt aðalatriðið í Strassborgarkenningunum var líka að kommúnistar áttu aldrei að vinna með kjörnum fulltrúum sósíaldemókrata, því að þeir myndu alltaf svíkja þegar á hólm- inn væri komið. Því ætti meðal annars að reyna að útiloka alla kjörna fulltrúa sósíaldemókrata frá verkfallsstjórnum. Einnig áttu atvinnuleysingjar að fá að sækja stéttarfélagsfundi, en það þótti sósíaldemókrötum óhæft með öllu. Þessi stefnumótun Alþjóða- sambands rauðra verkalýðsfé- laga var mörkuð út frá biturri reynslu. Meðal annars hafði til- raun til samstarfs á milli kom- múnista og sósíaldemókrata í Kína árið 1927 endað með ósköpum og sósíaldemókratar tekið upp þau vinnubrögð að úti- loka kommúnista í evrópskri verkalýðshreyfingu. Hér var því um gagnkvæma útilokun að ræða, þar sem erfitt er að skella sökinni einhliða á annan aðilann. Sjálfstæöi íslenskra kommúnista Haföi þessi yfirlýsing mikil áhrif á gang mála hér á landi? Ekki eins miklar og ætla mætti. Ég tek undir það með Þorleifi Friðrikssyni, að íslenskir komm- únistar höfðu sýnt sjálfstæði gagnvart Komintern með því að draga það að stofna kommúnista- flokk þar til árið 1930. Því sam- kvæmt hinni opinberu stefnu bar kommúnistum skylda til að stofna flokk, helst 10 árum áður. Málin gengu einfaldlega ekki þannig fyrir sig eins og oft er haldið fram að um einhliða boð- skipanir frá Moskvu hafi verið að ræða. Þær ályktanir og skýrslur 16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.