Þjóðviljinn - 09.03.1990, Qupperneq 26
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
D/EGURMAL
Salif Keita rekur ættir sínar til stofnanda Malíska heimsveldisins á 13.
öld. Hann kemur á Listahátíð í sumar ásamt Les Negresses Vertes
hinum frönsku.
krónur. En Listahátíð þarf að staða hennar er á vissan hátt
hyggja að fleiru, þannig að af- skiljanleg. -hmp
Salif Keita & Grænu
blökkukonumar
Listahátfð ætlar að bregða
þægilega út af vananum í ár og
fara nýjar leiðir varðandi val á
dægurhljómsveitum á hátíðina í
júní. í stað þess að flytja inn
dæmigerðar engilsaxneskar
hljómsveitir eins og oftast áður,
er netunum kastað í Frakklandi
og á Malí.
Allt bendir til þess að franska
nýrokksveitin Les Negresses
Vertes verði gestir hátíðarinnar
ásamt albínóanum Salíf Keida frá
Malí á vesturströnd Afríku.
Þessu vali Listahátíðar ber að
fagna. Les Negresses Vertes er
ein sárafárra franskra hljórn-
sveita sem vakið hefur athygli
utan Frakklands og plata þeirra
„Mlah“ sem kom út í fyrra var
kosin ein af bestu plötum ársins
af flestum tónlistartímaritum
Bretlands. En það er mjög sjald-
gæft að aðrar hljómsveitir en
enskumælandi hljóti náðir í þeim
ritum. Undirritaður hafði
ómælda ánægju af plötunni og gaf
henni gott orð á haustmánuðum
hér á síðunni.
Les Negresses Vertes, sem út-
leggst Grænu blökkukonurnar,
er fiölskipuð sveit. Margur mör-
landinn kannast við sveitina frá
Hróarskelduhátíðinni síðastliðið
sumar, þar sem hljómsveitin
vakti mikla athygli. Hljóm-
sveitarmeðlimir eiga fjölbreyti-
legan bakgrunn, sumir störfuðu
áður með sirkus, voru málarar,
sátu í fangelsi eða voru förðun-
armeistarar. Sameiginlegar rætur
þeirra liggja þó í skuggahverfum
Parísarborgar. Hljóðfæraskipan
hljómsveitarinnar er um margt
óvenjuleg og er eitt mest áber-
andi hljóðfæri þeirra dragspilið
eins og hjá The Band Of Holy
Joy.
Textar hljómsveitarinnar eru
uppfullir af gáskafullum og svört-
um húmor sem ýmist byggir á
eigin lífsreynslu meðlimanna eða
sérkennilegu ímyndunarafli
þeirra.
Salif Keida er hins vegar afrík-
ublúsari af malískum aðalsætt-
um. Eins og landi hans Ali Farka
átti hann í basli með tónlistarfer-
ilinn af því hann var ekki fæddur
inn í tónlistarætt landsins. Hann
rekur ættir sínar í karllegg til So-
undjata Keita, bardagahetjunnar
sem stofnaði heimsveldið Malí
árið 1240 og ríkti yfir því sem
konungur. Tónlist Salifs Keida
hefur unnið honum þjóðhylli í
Malí og víðar um Afríku. A átt-
unda og níunda áratugnum bjó
hann á Fílabeinsströndinni.
Tónlist Keida er bræðingur
vestur-afrískra áhrifa, frá Gíneu,
Senegal, Kúbu, Spáni og Por-
túgal. Hingað til lands kemur
hann með 17 manna fylgdarlið
hljóðfæraleikara, meðsöngvara
og dansara.
Undirritaður hefur heyrt fyrstu
plötu Salifs Keida á Vestur-
Íöndum, sem kom út í Bretlandi
árið 1987. Platan heitir „Soro“ og
hefur að geima dulrænan, heitan
og hráan blús, bræðing sem að-
eins afríkubúi gæti framkallað.
Það er eitthvað frumstætt við tón-
list Salifs Keida. Ef af tónleikum
hans verður, sem Listahátíð hef-
ur ekki endanlega fengið stað-
fest, verða þeir veisla fyrir ís-
lenska tónlistarunnendur.
Ég get ekki ekki stillt mig um
að tjá mig um þær fréttir að Bob
Dylan hafi verið til í að koma á
Listahátíð fyrir 15 milljónir
króna og hátíðin hafi talið sér það
um megn. Bog Dylan er lifandi
goðsögn. Ég er ekki í nokkrum
vafa um að hann hefði kjaftfyllt
Laugardalshöllina. Fimmtán
milljónir eru ekki mikill peningur
í þessu sambandi, miðinn hefði
aðeins þurft að kosta 4-4,500
krónur til að dekka kostnaðinn,
sem er svipað og á frumsýningar
Óperunnar. Erlendis eru menn
að kaupa miða á Paul McCartney
og Clapton fyrir allt að 10 þúsund
Góðir mánudagar eða iðrun
í Þjóðleikhúskjallaranum
í Bretlandi gengur nú yflr
bylgja sem kölluð er „Indi“ sem
er stytting á orðinu „Independ-
ent“, eða sjálfstæður. Ástandið í
okkar heimshluta er þannig að
það þykir eftirsóknarvert að vera
sjálfstæður og það þykir sérstakt.
Þessi tíska byggir á því að vera
„sjálfstæður“ frá öllum viður-
kenndum fyrirbærum, - í tónlist,
klæðnaði, skoðunum og lífsstíl.
Umburðarlyndi innan vissra
marka er þess vegna fylgifiskur
indíbylgjunnar.
í kring um 1967 var svipað
tímabil kallað sýrutímabil eða
sækadelik. Tónlist Happy Mon-
days, indífyrirbærisins frá Manc-
hester, er náskyld því sem The'
Beatles gerðu á Sgt. Pepper og
mörgu því sem aðrar hljómsveitir
og tónlistarmenn gerðu um svip-
að leyti. Alls kyns hljóðeffektar
eru notaðir og þeim hrært saman
og leikið er með upptökutæknina
sjálfa í frumatriðum.
í Manchester eru tónlistar-
menn, ungir listamenn almennt
og námsmenn komnir á eitt alls
herjar sýruflipp. Samt er þetta lið
upptekið af því að sverja af sér
allt sem kenna má við hippa.
Annars væri það ekki indí. Indí-
fyrirbærið er náskylt Acid
House- og partýmenningunni
sem skotið hefur rótum í hugsan-
ahætti bretans undanfarin miss-
eri, ef til vill ekki svo furðuleg
tilviljun.
Happy Mondays er á fyrsta
farrými á M.s. Indí. sem siglir
hingað loftleiðina þann 17. mars.
Þeir sem ekki hafa hugsað sér að
fara á tónleika þeirra í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
þann dag, eru eins og þeir sem
aldrei upplifðu hippatímabilið af
einhverjum ástæðum, en hittast
nú árlega í Þjóðleikhúskjallaran-
um og láta eins og þeir hafi gert
það.
Nýjustu afkvæmi Happy
Mondays sem væntanleg eru í
hljómplötuverslanir innan
skamms, eru lagasmíðar sem eiga
eftir að skjóta Happy Mondays
kirfilega upp á sjálfstæða stjörnu-
himininn, ef spákúlan mín virkar
rétt.
Hljómsveitin flytur nýja
blöndu af þekktum hráefnum.
Fönki er af mikilli kostgæfni
laumað saman við danstónlist og
rokk. Nýjustu lög og hljóð-
blöndur Happy Mondays eins og
„Hallelujah" og „Rave On“, eru
slíkar efnablöndur að flestar aðr-
ar núverandi virka gamaldags.
Líferni Happy Mondays með-
lima hefur verið með skrautlegra
móti. Hljómsveitin hefur verið
að síðan 1980 en sendi ekki frá sér
sína fyrstu smáskífu, „Delig-
htful“, fyrr en 1985 þegar Factory
Records þóttist sjá eitthvað í tón-
list þeirra Saun Ryder söngvara
hljómsveitarinnar og félaga hans.
Ónnur smáskífa þeirra „Freaky
Dancing“ vakti hins vegar fyrst
verulega athygli á Happy Monda-
ys. Melody maker kallaði „Fre-
aky Dancing“ frumstætt fönk-
meistaraverk.
John Cale upphafsmaður og
lagasmiður Velvet Underground
hreifst af Happy Mondays og
stjórnaði upptökum fyrstu breið-
skífu þeirra, „Squrrel and G-man
Twenty Four Hour Party People
Plastic Face Can‘t Smile (White
Out)“.
Fyrir þá sem hafa hlustað á
aðra breiðskífu Happy Mondays,
„Bummed", skal tekið fram að
hljómsveitin hefur tekið stökk-
breytingum síðan. Tónlist hennar
í dag er miklu aðgengilegri, á
mjög sérstæðan hátt.
Happy Mondays frá Manchester, eða Madchester eins og tónlistartíma
ritin bresku kalla borgina. Þeir halda tónleika í MH 17. mars.
Látið ykkur ekki vanta í
Hamrahlíðina þann 17. mars.
Ekki viljið þið iðrast þess í Þjóðl-
eikhúskjallaranum eftir 20 ár?
Heimsblúsari á förum kemur hingað
Þann 18. apríl heldur Ali Farka
Toure tónleika á Hótel Borg. Ali
Farka kemur frá Malí í Vestur Afr-
íku þar sem hann þurfti að berjast
fyrir því að fá aö leika tónlist,
vegna þess að tónlistarflutningur
tilheyrir einni ákveðinni ætt í Malí
samkvæmt ævagamalli hefö.
Hann byrjaði fyrst að eiga við
eins strengs afrískan gítar sem
kallast „Gurkel" árið 1950, en
kynntist klassískum gítar árið
1956. Eftir það var hann um
nokkurt skeið trommuleikari í
hljómsveit sem sérhæfði sig í
lögum Charles Aznavour, um
tíma vann hann á sjúkrabát, sem
tæknimaður í útvarpi og hljóm-
sveitarstjóri Útvarpshljóm-
sveitarinnar í Malí, sem menning-
armálaráðuneyti landsins lagði
niður án skýringa.
Ali Farka hefur verið kallaður
John Lee Hooker Afríku.
Blústónlist hans sem komið hefur
út á Vesturlöndum hefur vakið
geysimikla hrifningu og aflað
honum virðingar. Aður var hann
frægúr á gervallri vesturströnd
Afríku. Hann gaf þó ekki mikið
fyrir þá frægð heldur kaus að lifa
venjubundnu lífi í litlu heima-
þorpi sínu og huga að korn-
uppskerunni og skepnunum.
Fyrsta plata hans á Vestur-
löndum, „Ali Farka Toure“
(1987) var sögð vera besta plata
sem komið hefði frá Afríku og
eitt af meistarastykkjum blúss-
ins. Raunar er tónlist Ali Farka
flokkuð með því sem í tónlistar-
heiminum er kallað „heimstón-
list“, þar sem vísað er til þess að
tónlistin eigi sér svæðisbundnar
menningarrætur, sé ein af rödd-
um heimsins en ekki hluti af al-
þjóðlegum iðnaði.
Enda segir Ali Farka sjálfur
þegar hann var spurður hvort
hann spilaði blús: „Ég myndi
ekki segja að ég væri blúsgítar-
leikari en tónlist mín er ósvikin
tónlist kynstofnsins þaðan sem
blúsinn kom. Blús er tónlist sem
vísindavæðir þig, hann er vísindi
lífsins. Blúsinn er hin gullna tón-
list, hann er um ást, trú, vísindi,
list, jörðina, skýin, plönturnar og
beitilandið. Sá sem býr með
skepnum sínum í sveitinni, lifir í
blús. Vegna þess að þar er blús-
inn á hvers manns vörum.“
Koma Ali Farka til íslands er
tónlistarlegur heimsviðburður.
Þessi einstæði tónlistarmaður
hefur nefnilega ákveðið að snúa
algerlega baki við tónlistinni á
þessu ári þegar hann verður
fimmtugur. Hann hafði strengt
þess heit og ætlar að standa við
það. Akrarnir og búpeningurinn,
friðsæld sveitarinnar kallar, og
hann stenst ekki mátið. Ali Farka
segist heldur ekki endalaust geta
haldið því áfram sem hann gat á
yngri árum. „Þess vegna er eins
gott að að æla öllu sem ég hef upp
fyrir lærisveina mína. En ég vil að
þeir spili betur en ég, þá yrði ég
stoltur," segir Ali Farka.
Aðeins einn maður treður upp
með Ali Farka á Hótel Borg. En
gítarleikur hans er sagður ó-
gleymanlegur af þeim sem heyrt
hafa og skrifa um tónlist.
-hmp
26 SfÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. mars 1990