Þjóðviljinn - 12.04.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Side 2
SKAÐI SKRIFAR Ég segi: Eigi skal bvggja! RÓSA- GARÐINUM ÁÓVISSUNNAR TÍMUM Ólafur (biskup Skúlason) sagði að aldrei væri trygging fyrir því að öll börn færu til kirkju ef íþrótt- aæfingar væru felldar niður á messutíma. DV Ég fór í fermingarveislu hjá stórfjölskyld- unni um daginn og það er eins og venjulega með þetta hyski mitt: aldrei getur það verið til friðs. Einu sinni var rifist svo grimmt um sjóstígvélin hans afa míns og afdrif þeirra í svona veislu að þrír menn fengu blóðnasir og einn varð að láta tönn. Nú fóru þeir Gísli og Eiríkur að rífast um breytingar á Þjóðleikhúsinu. Gisli vildi sitja þægilega i þessu leikhúsi og vildi því nýjan sal með miklum halla og næs. Eiríkur vildi aftur á móti sitja listrænt í húsinu: Ég vil, sagði hann, una mér við hið fagurræna rými Guðjóns Samúelssonar í öllum víddum eins þótt mín hné verði helaum af næsta stólbaki og þótt hárprúð kona byrgi mér sýn. Enginn verður óbarinn listabiskup! Þar að auki sá Eiríkur í breytingaráformum Svavars kommúnískt ríkissamsæri gegn frelsi listamannsins. Þeirfrændururðu mjög heitirog hefði þurft að fara með þá út og hella yfir þá köldu vatni eins og lóðahunda ef ég hefði ekki setið þarna í faðmi fjölskyldunnar í minni upphöf nu ró og sagt: Eigi skal byggja. Hvað áttu við maður? spurðu ættingjarnir og sperrtu eyrun, því alltaf vill þetta lið vera að fræðast eitthvað af mér, það má það eiga. Byggingar eru bölvun, sagði ég. Hvaða rugl, sögðu þeir allir, Gísli, Eiríkur og Helgi, Karl Marx Jónsson og Villa litla í Kvennó. Án er illt gengi nema hús reisi, sagði ég. Góði vertu ekki að þessu íhaldsfjasi, sagði Kalli. Ég skal sanna mál mitt, sagði ég. Hvernig ætlarðu að fara að því? spurði Villa litla. Það liggur í augum uppi, sagði ég. Sporin hræða. Ríkisútvarpið barðist lengi lengi fyrir að fá sitt eigið stórhýsi, og þegar búið var að reisa það, þá var akkúrat að því komið að íslendingar hættu að hlusta á hljóðvarp. Leikfélagið slóst fyrir sínu Borgarleikhúsi í tuttugu ár - og þegar það loksins kom, þá voru menn hættir að fara í leikhús. Þegar kúluhúsið veður komið í gagnið í Öskjuhlíð- inni þá verða menn hættir að fara út að borða í Reykjavík, það megið þið bóka. Ég ætla bara aö vona að þessum bjálfum sem ætla að reisa tónlistarhús verði aldrei að ósk sinni - það liggur í augum uppi hvernig það fer. Interessant, sagði Kalli Marx Jónsson, sem þykist nú vera opinn fyrir öllum kenning- um. Ög hvernig skýrir þú þetta Skaði frændi? Það er einfalt mál, sagði ég. Það er ein- semdin og firringin sem býr í stórum húsum sem spillir allri starfsemi sem í þeim fer fram. Þegar t.d. Leikfélagið var í litlu Iðnó var alltaf fullt og mönnum fannst þeir allir í nánum og sterkum félagsskap með straumum á milli sálnanna og augnanna og kannski fleiri lík- amsparta. Svo kemur sami fjöldi í helmingi stærri sal og þá finnst mönnum þeir náttúr- lega vera einir og yfirgefnir eins og hverjir aðrir útburðir á lífsins hausti. Og koma ekki meir. Já en að byggja ekki.. byrjaði Helgi örvíln- aður, en hann er í mubluframleiðslu eins og þið munið. Eigi skal byggja, endurtók ég. Ég á ekki barasta við þessar opinberu byggingar sem aldrei skyldu verið hafa. Mest er bölið í íbúð- arhúsunum stóru. Meðan íslendingar bjuggu þröngt máttu þeir sáttir sitja í mikilli og magn- aðri návist hvers annars. En þegar allir fara að byggja stórt þá má enginn vera að því að vera heima, og þó einhver skyldi slæðast heim þá hittir hann engan fyrir, eða stofan svo stór að menn fá víðáttubrjálæði og hlaupa út á krá til að komast að því að annað fólk ertil og drekka sig fulla í feginleik, og svo verður fólk stressað og skilur og þá þarf að byggja enn meira undir enn færri. Það er sem ég segi: Eigi skal byggja. Ættingjarnir horfðu á mig með virðingu eins og vera ber. Kalli Marx, sem er alltaf að fiska eftir smávon um að einhverntíma komi aftur vinstrisveifla í tilverunni, hann ræskti sig varlega, og spurði með kurteisri illkvittni: Já en Skaði, hvað heldurðu að verði þá um Sjálfstæðisflokkinn þinn þegar búið er að reisa Ráðhúsið? HEILBRIGÐ SÁL í HRAUSTUM LÍKAMA Biskupinn er alltaf velkominn á æfingar. íþróttafrömuður í DV LEYFIÐ BÖRNUN- UMAÐ KOMATIL MÍN Við hjá íþróttafélögunum erum að hafa ofan af fyrir börnunum og það er greinilegt að þau vilja koma til okkar. SamiíDV OG ÞEIMDÓMI VERÐUR EIGI ÁFRÝJAÐ Eftir grein þinni þykist þú vita allt um ástina. Ég vil bara segja þér það að ef tengdamóðir þín væri risin upp úr gröfinni, þá mundi hún ekki trúa sinni heyrn, að þú værir fær á því sviði frekar en öðr- GLÆFRALEGAR ÖFGARSAK- LEYSISINS Unglingsstúlka í Reykjavík varð fyrir þeirri lífsreynslu á dögunum að fæða barn án þess að hún hefði áttað sig á því að hún var þunguð. DV FLASEREKKITIL FAGNAÐAR Ertu Sjálfstæðismaður? Ég var með Sigurði Eggerts í Sjálfstæðisflokknum gamla þversum, en hætti þegar íhalds- flokkurinn gamli tók yfir. Þessi nýi Sjálfstæðisflokkur er ekki nema 60 ára og nálægt honum hefi ég ekki komið. Viðtal í Morgunblaðinu ÖLLU FER AFTUR En nú hefur dregið verulega úr áfengiskaupum og við liggur að sum ráðuneytin séu að þurrkast upp. Tíminn ...sem hefur gamla allaballarúsínu í öðru sæti... NEIBARAEINU SINNI í VIKU Halldór (Ásgrímsson) skiptir ekki um skoðun daglega. Fyrirsögn í DV AÐ HVERJUM? Ég fór út í þetta prófkjör með því að halda einn kaffifund á Hress- ingarskálanum og fyrst að einn slíkur fundur skilar manni jafn- miklu fylgi og 70 ára gamall stjórnmálaflokkur fær þá hlytur eitthvað að vera að, sagði Ásgeir (Hannes Eiríksson). 2 SlÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Flmmtudagur 12. apríl 1990 DV

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.