Þjóðviljinn - 12.04.1990, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Qupperneq 6
Ungverjar kjósa til þings Hjalti Kristgeirsson skrifar um kosningarnar í Ungverjalandi en þar var hann á ferð á dögunum Þaö var að morgni kjördags í Ungverjalandi. Ég gekk inn til Pista vinar míns með blað í hendi sem ég hafði krotað á spá mína um úrslit kosninga. - Nei, gerið þið þetta uppi á íslandi? Ég er hræddur um að við Ungverjar kunnum ekki á svona getspár nema þá úti á veðreiða- vellinum, sagði Pista. Að þessu sinni voru það ekki hestar heldur flokkar sem við veðjuðum á, og veitti ýmsum betur i hita bardagans. Allt frá árinu 1947 hafði ekki verið ástæða til að fylgjast með kosning- um í Ungverjalandi eða gera kosningaspá. Megindrættir í f lokkafylgi voru orðnir nokkuð Ijósir þegar líða tók á kosningabaráttuna, þökksé viðhorfskönnunum rannsóknastofnana og fjölmiðlaframmistöðu stjórnmálamannanna. Eitt var það þó sem við Pista flöskuðum alvarlega á: Við höfðum báðir gert ráð fyrir því að Anna Petrasovits í endurreistum flokki sósíaldemókrata fengi umtals- vert fylgi og kæmist á þing, en svo varð ekki. Hún varð fyrir neðan 4%-markið og deildi þar kjörum með flokki stalínista, embættis- mannaliði föðurlandsfylkingarinnarog landbúnaðarsambandi sam- yrkjubústjóra. Er þá reyndar ýmissa ógetið sem ekki höfðu heldur árangursem erfiði: kristilegir ýmissa tilbrigða, alþýðuvinir, græningjar, byltingarmenn, andbyltingarmennog ábúðarmiklir Athafnamenn (ent- repreneurs). Forystumenn þeirra sex stjórnmálaflokka sem komu mönnum á þing í Ungverjaíandi. Stærð mannanna er nokkurn veginn í samræmi við hlutfallslegt kjörfylgi flokkanna í fyrri umferð. Efst til vinstri er József Antal frá Ungverska lýðræðisvettvanginum, til hægri er formaður Sambands frjálsra lýðræðissinna, á milli þeirra mun minni er formaður Óháða smábændaflokksins. Pozsgay ríkisráðherra, helsti forystumaður umbót- anna í Sósíalistaflokknum, heldur á sínu kratablómi (nelliku reyndar) neðst til hægri, en á milli þeirra teygir kristilegur lýðræðissinni upp krossinn sinn. - Heildarúrslit kosninganna að síðari umferð lokinni eru á þá lund að Lýðræðisvettvangurinn fær mun fleiri þingmenn en svarar til flokkslistafylgisins, en þingstyrkur annarra flokka er í samræmi við listafylgið. Konan féll Skrítið með sósíaldemókrata! Þeir höfðu orðið á vegi mínum á rölti um borgina daginn áður og mér virtist þeir fjölmennir þar sem þeir óku um á fánum skreyttum bílum, ósköp austur- evrópulegum flestum, en innan- um voru fallegar drossíur á austurrískum og vesturþýskum númerum. Það orð lék á að al- þjóðasamband krata styddi dug- lega við bakið á henni Önnu sinni, þangað sækti hún ráð og einhvern fjárstyrk, og ekki heyrði ég neinn öfundast yfir því. Við Pista höfðum báðir orðnir nokkuð hrifnir af sjónvarpsbrosi Önnu þessarar þar sem hún sat innanum dálítið fúla karlfauska, og ekki sakaði það að ræða henn- ar var áheyrileg og rökvís. En hún var kona skelfing einsömul, Anna, ekki aðeins eina konan á áberandi pósti í ungverskri flokk- apólitík, heldur virtist hún engan frambærilegan mann hafa í eigin flokki til að styðjast við. Mér var sagt að flokk hennar þjáðu alvar- legar innanmeinsemdir, deilur á milli ungra af kynslóð Önnu og aldinna sem mundu hina þving- uðu sameiningu við flokk komm- únista 1949. Að vísu höfðu í fyrra komið til liðs nokkrir vaskir menn úr valdaflokknum, en þeim var vísað á bug af mikilli forakt. Menn máttu ekki hafa flekkaðar hendur. Fortíöin hrein eða óhrein Þetta að hafa flekkaða fortíð eða hreina virtist reyndar mikil markalína í ungversku kosninga- baráttunni. Þeir sem voru flekk- aðir, það voru menn valdaflokks- ins sáluga, kommúnistarnir eins- og sagt var, harðstjóramir, ein- valdarnir, afæturnar eða úlfar í sauðargæru. Aðrir voru að öllum jafni hreinir, dyggðum prýddir, sannferðugir og sómakærir, traustsins verðir og karlmenn náttúrlega. Með þessum hætti voru línur dregnar á milli hins nýja rísandi Ungverjalands markaðsbúskapar og vestrænna gilda og þess gamla sem kannske var aldrei Ungverjaland heldur hjálenda grannans volduga í austri, markað pólitískri ein- stefnu, kúgun, vöruskorti, fá- tækt, úrræðaleysi. Þetta taldi Só- síalistaflokkurinn, reistur á rúst- um gamla kommúnistaflokksins í nýjum klæðum lýðræðislegrar jafnaðarstefnu, að hefði einang- rað hann og fælt frá fylgi sem honum hefði eðlilega borið. Hvað var hér vinstri og hvað var hægri? Sannleikurinn var sá að pólitísk umræða í Ungverja- landi í vetur sniðgekk að veru- legu Ieyti þessi hugtök. Nýju flokkarnir einkenndu sig ekki með slíkum merkjum; dæmi: Ungverski lýðræðisvettvangur- inn sagðist vera sóknarafl þeirra sem tryðu á ungverska menningu og ungverska þjóð, þeirra sem vildu tengja Ungverjaland á ný inn í evrópskt samfélag, þeirra sem vildu standa saman að efna- hagslegri endurreisn með tilstyrk allra hagþátta, þe. vinnu, fjár- magns og framtaks. En allt skyldi gerast án þjóðfélagslegrar upp- lausnar, án hefndaraðgerða en með sigurvissu lýðræðislegs sam- starfs almennings. Ekki veit ég hvort nokkur skilur þessa orða- leppa hérlendis, þetta er mín endursögn á langdregnum, voð- felldum ummælum landsföður- legra leiðtoga, en eitthvað hafa Ungverjar gripið af þessu, því að einmitt Lýðræðisvettvangurinn varð stærsti flokkur landsins, og flokksformaðurinn, József Ant- al, er væntanlegur forsætisráð- herra meirihlutastjórnar þriggja flokka. Hveitiö guölega Hinir tveir flokkarnir sem ætla að standa að fyrstu þingbundnu ríkisstjórn Ungverja í meira en mannsaldur eru Óháði smábænda-, landbúnaðarverka- manna, og borgaraflokkurinn (venjulega kallaður Smábænda- flokkurinn) og Kristilega lýðræð- issinnaði alþýðuflokkurinn sem bindur pólitík sína við kristilegar dyggðir og stuðning við kirkjuna (mér skilst kaþólskra og mótmæl- enda í senn, hvernig sem það er nú hægt). Raunar vandséð hvor flokkurinn er hinum Ukristilegri, því að kjörorð Smábændaflokks- ins eru þessi: Vín, hveiti, landsf- riður - guð, föðurland, fjöl- skylda! En bíðum við: Lýðræðis- vettvangurinn fetar einnig guðs vegu, því að forystumennirnir segja hann bróðurflokk kristi- legra fjöldaflokka vestursins svo sem þýska CDU/CSU; eftir því hefir Kohl kanslari ekki aðeins unnið austurþýsku kosningarnar heldur einnig þær ungversku! Reyndar kom miðflokkamaður- inn Giscard d'Estaing fyrrum Frakklandsforseti á stórfund Lýðræðisvettvangsins um daginn og kvaðst fagna Evrópustefnu ungverskra skoðanabræðra sinna. Þannig er Lýðræðisvett- vangurinn ansi rúmgóð þjóð- kirkja. Smábændaflokkurinn er eigin- lega eini þingflokkurinn sem á fortíð handan slyssins mikla, 40 ára tilraunar sovétlenínískrar of- stjórnar. Hann varatkvæðamikill fyrst eftir styrjöldina, var með hreinan meirihluta þingliðs 1945 en fór niður í 15% í síðustu mark- tæku kosningunum 1947. Nú sem þá leggur hann aðaláherslu á jarðeign; það var dálítið skrítið að sjá ævafornan formælanda flokksins kljást í sjónvarpi við fulltrúa Lýðræðisvettvangs, Frjálra lýðræðissinna og sam- yrkjubústjóra um landbúnað- armálin. Eina mál Smábændafl- okksins var það að allar jarð- eignir skyldu ganga aftur til þeirra er þær áttu 1947 (eða erf- ingja). Slfk einkaeign mundi lag- færa allan vanda landbúnaðarins, tryggja fylgi almennings við hið endurreista réttarríki, skapa grundvöll að einkarekstri í at- vinnustarfsemi almennt. Samyr- kjubústjórinn sagði eitthvað í þá veru að jörðin snerist nú samt! meinandi það að ungverjar eru eina samyrkjubúskaparþjóðin sem býr við ofgnótt landbúnað- arafurða. Lýðræðisvettvangs- maðurinn og frjálsi lýðræðissinn- inn voru sammála um það að stefna smábænda væri kreddu- bundin, ósannfærandi og ófram- kvæmanleg. Meirihluti þeirra sem fengu úthlutað jörðum eftir styrjöldina byggi nú í borgum (eða afkomendur); ættu bændur nú að greiða borgarbúum land- skuld? Hinsvegar kæmi til greina að leysa upp samyrkjubúin, en endurúthlutun jarðeigna áður en nýtt þing setti jarðalög leiddi til ófarnaðar. Sveitamenn — menntamenn Já, í mörgum greinum virtust þeir mér býsna sammála og sam- líkir, flokkarnir tveir sem bitust um forystuna í kosningunum, Bandalag frjálsra lýðræðissinna ogLýðræðisvettvangurinn. Báðir bundu trúss sitt við markaðsbú- skap, predikuðu endurreisn lýð- ræðis og réttarríkis, opnun vestur til Evrópu. En brigslin gengu á víxl. Lýðræðisvettvangurinn sagði um hina að þeir hugsuðu ekki um þá sem undir yrðu í þjóðfélaginu, það yrði að vera fé- lagslegt svipmót yfir markaðsbú- skapnum. Vitleysa, gegndu frjálsir lýðræðissinnar, við viljum einmitt öflugt net félagslegra ráð- stafana, en grundvöllur þess er frjáls markaðsbúskapur, annars heldur fátæktin og eymdin áfram að einkenna landið og þjóðina. Báðir réðust á sænska „módel- ið“, það gæti sko ekki verið okkar fyrirmynd, en með því voru þeir að gera Sósíalistaflokkinn tor- tryggilegan; meint Rússaþjónk- un hans í nútíðinni var hinsvegar lítið nefnd. Það var einsog maður væri kominn heim! Ég vík aftur að vinstri og hægri. Það voru einhverjir vesturevr- ópumenn, fastir í slíkum hug- tökum, sem reyndu mjög að fá stóru flokkana tvo til að játast undir þau. Með miklum semingi kváðu báðir upp úr með það að þeir væru miðjuflokkar, Lýðræð- isvettvangurinn kvaðst líklega vera ögn hægramegin við miðju, og Frjálsir lýðræðissinnar sögðu þá að þeirra staður væri svolítið þar til vinstri. En megineinkenni þeirra væri frjálslyndi, líberalismi (ég nota ekki orðið frjálshyggja, því að þá hefðu þeir þurft að segja ný-íhaldssemi, neokonser- vatismi, en það gerðu þeir ekki). Frjálsir lýðræðissinnar - frjáls- lyndir Evrópumenn, það erum við! Eðlilegur samstarfsflokkur okkar er Frídemókratar í Vestur- þýskalandi. í samræmi við þetta buðu Frjálsir lýðræðisssinnar heim Genscher utanríkisráðherra Vesturþýskalands. Svo illa vildi til að Genscher átti ekki heimangengt fyrr en daginn fyrir kosningar (fyrri umferð), og þá voru allar kosningasýningar bannaðar. Genscher gerði sér hinsvegar títt við starfsbróður sinn, Horn utanríkisráðherra og sósíalistaflokksmann, og sæmdi hann heiðursmerki. Það var víst ekki það sem Frjálsir lýðræðis- sinnar ætluðust til. Það var eðlilegt að styrkur okkar reyndist tiltölulega mikill í vesturhluta landsins, sögðu Frjálsir lýðræðissinnar eftir fyrri umferð kosninganna. Þar býr 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 12. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.