Þjóðviljinn - 12.04.1990, Page 14

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Page 14
Primavera Brúðkaup Merkúrs og Venusar í málverki Sandro Botticelli Eftir Ólaf Gíslason Einhver skemmtilegasta og margræðasta ráðgáta listasög- unnar er hið allegóríska táknmál málverksins Primavera, sem flór- enski listmálarinn Sandro Bottic- elli (1445-1510) málaði í kringum 1480. Myndin er slíkt augnayndi, að sérhvert barn kann að njóta hennar án frekari skýringa, en táknmál hennar er engu að síður svo flókið, að um það hafa verið skrifuð hundruð ritgerða og heilar bækur. Myndina má því skilja og túlka út frá ólíkum og mismunandi „lærðum" forsend- um, en í stuttu máli þá leiðir táknmál myndarinnar og fram- setning okkur inn í hugarheim og andrúmsloft þess tíma, þegar flórensk menning stóð hvað hæst og veldi Medici-ættarinnar í Flór- ens var hvað glæstast. Það var myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Giorgio Vasari sem fyrstur manna getur þess í skráðri heimild að málverkið heiti Primavera eða Vor. Þótt nafngift þessi geti í sjálfu sér stað- ist, þá segir hún ekki nema hálfa söguna. Því það er ekki vorgyðj- an eða blómagyðjan sem er í að- alhlutverkinu í þeirri „sögu“ sem myndin segir, heldur ástargyðjan Venus, sem er fyrir miðri mynd. Sögulegt brúökaup Líkur hafa verið að því leiddar, að Lorenzo il Magnifico (1440- 1492), sem var ættarhöfðingi Medici-ættarinnar og æðsti valds- maður í Flórens á þessum tíma, hafi pantað myndina sem brúð- kaupsgjöf handa frænda sínum, Lorenzo di Pierfrancesco de'Me- dici (1463-1507), sem gekk að eiga Semiramide Appiani þann 19. júlí 1482 (sjá Mirella Levi D‘Ancona: Botticelli's Prima- vera - a Botanical Interpretation Including Astrology, Alchemy and the Medici, Flórens 1983). Brúðkaup þetta var ekkert venjulegt brúðkaup, þar sem þetta var fyrsta kirkjubrúðkaup Medici-ættarinnar frá því að Six- tus páfi IV. hafði bannfært Medici-ættina alla árið 1478 í kjölfar samsæris Pazzi-ættarinnar gegn Medici-höfðingjunum. En í þeirri uppreisn var Giuliano Me- dici, bróðir Lorenzo il Magnifico, myrtur. Uppreisnin var engu að síður barin niður af fullkomnu miskunnarleysi, og einn af for- sprökkum hennar, erkibiskupinn í Pisa, var í kjölfarið hengdur í öllum biskupsskrúðanum í gálga sem stungið var út um glugga á ráðhúsinu í Flórens. Þessi meðferð á embættis- manni Guðs og páfans varð til þess að valdamesta ættin á Ítalí- uskaganum var sett út af sakra- mentinu í einu lagi af Sixtusi IV. (en það var páfinn sem lét reisa Sixtínsku kapelluna í Róm). Bann þetta hafði komið illa niður á Medici-ættarveldinu, og það voru í raun Tyrkir sem komu Lorenzo til hjálpar á örlaga- stundu: með innrás sinni í Otr- anto 1479 skutu þeir páfanum skelk í bringu, þannig að hann sá sér vænna að gera bandalag við veraldlega höfðingja á Ítalíusk- aganum gegn þessari heiðnu innrás og taka Medici-ættina í sátt. Brúðkaup Lorenzo yngri hafði því vissa sögulega þýðingu. Allegóría um ástina og vorið Sú sennilega tilgáta, að mál- verkið hafi í upphafi verið hugsað sem brúðkaupsgjöf, setur okkur strax á sporið við túlkun allegóri- unnar, sem í myndinni er falin. En í myndinni eru faldar gamlar grísk-rómverskar goðsögur, sem Botticelli notar til þess að túlka hugmyndir sínar um ástina, feg- urðina og sannleikann á grund- velli þess heimspekiskóla sem blómstraði í Flórens á þessum tíma, og kenndur er við nýplatón- isma. Myndin lýsir öðrum þræði vor- komunni og vaxtarmætti náttúr- unnar, sem birtist okkur í blóm- agyðjunni Flóru, sem stráir blómskrúði sínu um þennan skógarlund, sem er vettvangur sögunnar. Meginatriðið er þó engu að síður að Botticelli er þarna að sýna okkur þann vaxtar- mátt sem í ástinni er falinn sam- kvæmt hinni nýplatónsku kenn- ingu um tvíþætt eðli ástarinnar: hið líkamlega og hið andlega eða trúarlega. Höfuðpersónur myndarinnar eru ástargyðjan Venus (fyrir miðju), guðinn Merkúr (lengst til vinstri) og Flóra (hægra megin við Venus). Ólíkar eigindir Venusar Hvaða merkingu hafði hin heiðna gyðja ástarinnar fyrir Botticelli? Hin rómverska ástargyðja, Venus, er eftirmynd Afródítu hinnar grísku, sem aftur átti sér fyrirmyndir í austrænum trúar- brögðum. Það var á dögum pún- versku styrjaldanna á 2. öld fyrir Krist sem Venusardýrkun varð almenn í Róm. Hugmyndir manna á heiðnum og kristnum tíma um eðli þessarar gyðju höfðu tekið á sig ýmsar myndir þegar komið var fram á endur- reisnartímann, enþegar í verkum Cicero var talað um fjórar mynd- ir gyðjunnar, og ein þeirra var sú Venus sem fædd var af froðu sjávarins og hafði getið Kúpíðinn eða ástarengilinn með guðinum Merkúr. í riti rómverska skáldsins Lúkretíusar (97-55 f. Kr.) „Um eðli alheimsins" er talað um komu vorsins og Venusar í sömu andrá í fylgd með Kúpíðnum eða ástarenglinum og „eftir slóð þeirra fer Flóra og þekur spor Zefírs með blómahafi sem á sér ekki líka“, stendur þar. Marsilio Ficino var áhrifamesti heimspekingurinn af skóla ný- platónista í Flórens á 15. öld. Hann talar um tvíþætt eðli Ven- usar í þýðingu sinni á Sam- drykkju Platós: „Hverjar eru hin- ar tvær Afródítur? Önnur er eldri og er dóttir Úrans en móðurlaus. Við köllum hana Himneska Afr- ódítu. Hin er yngri, dóttir Seifs og Dione, og er kölluð hin alþýð- lega Afródíta." Hin himneska og jarðneska Venus Þessi tvö afbrigði Venusar voru hið andlega og hið líkam- lega. En Ficino, sem var meðal annars kennari Lorenzo di Pierf- rancesco, brúðgumans sem eignaðist mynd Botticellis, segir einnig í bréfi til þessa nemanda síns að hann eigi að fylgja þeim vegi sem lagður sé af þeirri per- sónu sem hann kallar Venus- Humanitas, hinni mannlegu ást- argyðju, en „sál hennar og hugur séu ást og kærleikur, augu hennar virðing og göfgi, hendur hennar frjálslyndi og glæsileiki og fætur hennar friðleiki og hæverska.“ Botticelli gerði fleiri myndir af Venusi, sem hver um sig sýnir ólíka hlið ástargyðjunnar. Sú frægasta auk Primaveru er „Fæð- ing Venusar", þar sem ástargyðj- an kemur nakin af hafi á hörpu- skel sem tákn hreinleikans, rétt eins og sálin endurskírð í vígðu vatni. Hefðbundin myndræn tulkun Venusar er sú, að hin nakta mynd hennar sé jafnframt hin himn- eska Venus, Venus Coelestis, þar sem nektin er tákn himnesks hreinleika. í hinu fræga málverki Tizians, „Amor sacro e Amor profano" (Veraldleg og heilög ást) frá 1515 er hin veraldlega (og fallvalta) ástargyðja táknuð með íburðarmiklum fatnaði (hégóma) en hin andlega eða heilaga ást- argyðja höfð nakin. En þessi Venus Botticellis hefur ekki sama yfirbragð og veraldleg ást- argyðja Tizians. Hún leikur ekki hlutverk freistingarinnar. í klæð- aburði og stellingu er hún hlið- stæða Merkúrs í myndinni. Hún er heldur ekki ólík þeirri túlkun á Maríu Guðsmóður, sem algeng var á þessum tíma í Flórens. Ef ekki væri fyrir þær heiðnu per- sónur sem umlykja hana í mynd- inni gæti hér vel verið um Maríu- mynd að ræða. Það er athyglisvert að Venus og María Guðsmóðir eiga sér mörg sameiginleg tákn. Meðal þessara tákna eru tunglið, rósin, hörpuskelin og fleiri. Það er einn- ig athyglisvert að á sama hátt og María Guðsmóðir er hvort tveggja í senn, móðir og jómfrú, þá er Venusi einnig eignaðir mót- sagnakenndir eiginleikar eins og það að vera hinn mikli skapandi og endumýjandi móðukraftur náttúrunnar (Mater genetrix) og ímynd þess hreinlífis, sem er ein- kenni hinnar helgu ástar (amor sacro). Venus í mynd Botticellis virðist eiga meira skylt við Maríu Guðsmóður en hina veraldlegu Venusarimynd, sem gjarnan er táknuð með ímynd failvaltleikans og hégómans: íburðarmiklum fötum og spegli. Merkúrsem sendiboöi og vegvísir Áður en lengra er haldið er rétt að huga að fleiri persónum sög- unnar, og þó einkum Merkúr. Merkúr, eins og Venus, á upp- tök sín í grískum goðaheimi sem Hermes, sem upphaflega var dýrkaður sem mflusteinn með- 14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 12. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.