Þjóðviljinn - 12.04.1990, Síða 16
Listdans
Vowinda veröld
íslenski dansflokkurinn sýnir fjóra dansa undir heitinu Vorvindar á sumardaginn fyrsta
VindarfráMerkúráVorvindasýningu íslenska dansflokksins. Mynd-Jim Smart.
íslenski dansflokkurinn frumsýnir
fjögur dansverk í Borgarleik-
húsinu á sumardaginn fyrsta.
Þetta er í fyrsta skipti sem list-
dans er stiginn á fjölum hins nýja
leikhúss og einnig í fyrsta sinn
sem Dansflokkurinn hefursam-
vinnu við Leikfélag Reykjavíkur.
Svo vill til að frumsýningin í Borg-
arleikhúsinu kemur einmitt upp á
fjörutíu ára afmælisdegi jóðl-
eikhússins.
Sýningin er bæði fjölbreytt og
forvitnileg. Höfundarverkanna
eru Svíarnir: Birgit Cullberg, Per
Jonsson og Vlado Juras.
Vorvindar
Ekkert verkanna hefur verið
sýnt á íslandi áður. Verkin fjögur
eru: Adam og Eva eftir Birgit
Cullberg, Myndir frá íslandi eftir
Vlado Juras og tvö verk eftir Per
Jonsson: Gjá og Vindar frá
Merkúr. Þótt erfitt sé að gera
upp á milli höfunda er óhætt að
fullyrða að Birgit Cullberg sé
þeirra þekktust. Islendingár hafa
áður fengið tækifæri til að sjá
verk hennar þegar hún kom hing-
að og setti upp Fröken Júlíu og
Mánahreininn (Mánrenen) 1960.
Fröken Júlía var aftur sýnt hér
1983 af ísienska dansflokknum,
það er jafnframt langþekktasta
verk höfundar. Adam og Eva var
samið árið 1961 og vakti mikla
athygli. Adam og Evu dansa þau
Ásdís Magnúsdóttir og Joakim
Keusch.
Svo skemmtilega vill til að Vla-
do Juras var gestadansari í nokkr-
um sýningum á Fröken Júlíu þeg-
ar það var sýnt hér 1983. Hann er
nú listdanstjóri í Norrköping.
Verkið sem flutt verður eftir
hann kallast Myndir frá íslandi
(Intryck frán Island) og fjallar
um fimm sjómannskonur sem
bíða komu manna sinna. Verkið
samdi hann eftir dvöl sína hér á
landi. Það var frumsýnt í Svíþjóð
1986 en hefur aldrei verið sýnt á
íslandi.
Pær sem túlka sjómannskon-
urnar eru: Helena Jóhannsdóttir,
Ólafía Bjarnleifsdóttir, Guðm-
unda H. Jóhannesdóttir, Helga
Bernard og Lára Stefánsdóttir.
Per Jonsson er rétt hálffer-
tugur en hefur þegar náð umtal-
sverðum frama utan heimalands
síns. Hann er ein skærasta stjarna
Svía í danslistinni. Á Vorvindum
verða flutt eftir hann tvö verk.
Annað kallast Göng (Schakt) og
er samið fyrir þrjá karidansara,
hitt er sérstaklega samið fyrir
kvendansara Dansflokksins og
kallast Vindar frá Merkúr.
Dansarar eru þær Asta Hen-
riksdóttir, Ásdís Magnúsdóttir,
Auður Bjarnadóttir, Guðmunda
H. Jóhannesdóttir, Guðrún Páls-
dóttir, Lára Stefánsdóttir og
Ólafía Bjarnleifsdóttir auk Lilju
ívarsdóttur sem ekki er félagi í
Dansflokknum.
Vindar frá Merkúr er stutt en
afar áhrifamikið verk og verður
frumsýnt á sérstakri dagskrá í til-
efni afmælis frú Vigdísar Finn-
bogadóttur 14. apríl næstkom-
andi.
Cullberg og Jonsson eru tveir
þekktustu danshöfunda Svía,
Cullberg er aldursdrottningin í
þeim hópi komin á níræðis- aldur
og Jonsson með þeim yngstu.
Danshöfundamir þrír koma
allir til landsins í tilefni sýningar-
innar. Per Jonsson dansar sjálfur
í Gjá ásamt Kenneth Kvarnström
og Hany Hadaya. Það er sjald-
gæft að Islendingar fái tækifæri til
að berja augum dansa sem ein-
göngu eru dansaðir af körlum.
Hughrif eða
ádeila?
Birgit Cullberg er fædd 1908 og
er án efa meðal elstu starfandi
danshöfunda í heimi. Hún lætur
aldurinn ekki aftra sér og semur
enn af fullum krafti og setur upp
verk víðs vegar um heiminn. Á
síðasta ári frumsýndi hún ballett-
inn Maríu guðsmóður í Búda-
pest. Verkið er pólitískt eins og
flest verka hennar. Hún deilir í
dansinum á kristindóminn og
kúgun kvenna. Adam og Eva er
einnig þjóðfélagsgagnrýnið, í
verkinu deilir Culíberg á kirkj-
una og viðhorf Biblíunnar til
samskipta kynjanna. Cullberg
telur dansinn vera tæki til að
túlka óréttlæti og þjáningar
manna en dansarnir eru samt
ekki þrungnir alvöru, öðru nær,
lífsgleðin og kærleikurinn eru
einnig skammt undan.
Per Jonsson er á öndverðum
meiði við Cullberg. Hann forðast
pólitík og bókmenntatilvísanir í
dönsum sínum. Hann er úr þeim
hópi listamanna, sem áberandi
hafa verið meðal yngri kynslóða
listamanna á Vesturlöndum síð-
ustu ár, og vilja kalla fram tilfínn-
ingaleg viðbrögð hjá áhorfendum
fremur en vitsmunaleg. Hann er
rómantískur og leitast við að
vekja þau hughrif hjá áhorfend-
um sem þeir geta síður skilið eða
haft stjórn á.
Cullberg, eins og títt er um
listamenn af hennar kynslóð, tel-
ur listina aftur á móti hafa hlut-
verki að gegna í að vekja athygli á
því sem miður fer í þjóðfélaginu
eins og kúgun kvenna og minni-
hlutahópa. Mætti segja að Cull-
berg sé raunsæ og pólitísk en
Jonsson aftur á móti rómantískur
og dulúðugur.
Þótt hér hafi þeim Cullberg og
Jonsson verið stillt upp sem and-
stæðum er ekki þar með sagt að
þau séu andstæðingar í listinni.
Eins og allir sem á eftir Cullberg
hafa komið í danslistinni í Sví-
þjóð hefur Jonsson orðið fyrir
áhrifum frá þeim hrífandi og af-
kastamikla listamanni.
Vlado Juras er fæddur í Júgósl-
avíu og ferðaðist vítt og breitt um
heiminn og sinnti hinum ólíkleg-
ustu störfum áður en hann kom
til Svíþjóðar með fjölleikaflokki,
settist þar að og tók að semja og
dansa ballett.
Hann dansaði lengi við Cull-
berg ballettinn og varð fyrir mikl-
um áhrifum frá Cullberg sjálfri.
Þau eiga það sameiginlegt að
semja dansa um kúgun og upp-
risu gegn henni. Juras vill segja
sögu með dansinum og samdi ný-
lega ballettinn Dikt till váver-
skorna, dans um konurnar sem
slógu vefinn fyrr á öldum í Nor-
rköping, sem var mikill iðnaðar-
bær.
Norræn
samvinna
Þessi sýning íslenska dans-
flokksins er eitt af skemmtilegri
verkefnum flokksins í langan
tíma. Salvör Nordal, fram-
kvæmdastjóri dansflokksins,
segir það fremur tilviljun en ann-
að að danshöfundarnir að þessu
sinni væru allir Svíar. í upphafi
hefði flokkurinn ætlað að ráðast í
allt annað verkefni í Þjóðleikhús-
inu en af því varð ekki.
Per Jonsson hafði komið
nokkrum sinnum tii íslands og
lýst yfír áhuga sínum á að vinna
með flokknum, verk Vlado Juras
Myndir frá íslandi hafði aldrei
verið sýnt hér og aðeins tvö verka
hinnar þekktu Birgit Cullberg.
Allir höfundarnir voru áhuga-
samir um samstarf við íslenska
dansflokkinn og að sögn Salvarar
reyndust Svíar þeim afskaplega
vel hvað varðar allan undirbún-
ing. Búningar og fleira var góð-
fúslega lánað og hefði undir öðr-
um kringumstæðum reynst erfitt
að setja slíka sýningu á fót af því
að peningar Dansflokksins eru af
skornum skammti.
Tónlistin við dansana er eftir
Hildgren, Rosenberg, Billgren,
Bentson og Pétur Grétarson.
Tónlist hins síðastnefnda leika
þeir Árni Áskelsson og Eggert
Pálsson. Leikmynd og búninga
hönnuðu þau Per Jonsson, Inger
Arvidsson og Agneta Skarp. Lýs-
ingu annast Yvonne Brosset, Ell-
en Ruge, Monica Syversen og
Hákan Jansson. Sýningarstjóri er
Kristín Hauksdóttir.
Aðeins verða fimm sýningar á
Vorvindum í Borgarleikhúsinu,
frumsýningin er, eins og áður
sagði, á sumardaginn fyrsta 19.
apríl. j
BE
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 12. april 1990