Þjóðviljinn - 21.04.1990, Qupperneq 3
Voríð
í Moskvu
Fráfréttaritara
Þjóðviljans,
Þórunni
Sigurðardóttur
Rauða torgið var iokað af
hernum á útifundi í gær, sem
haldinn var á meðan Æðstaráðið
þingaði í Kreml um málefni lög-
fræðinganna Telan Gdlian og Al-
exanders Ivanov. í síðustu viku
sendi sjónvarpsstöðin í Lenin-
grad út þátt um uppljóstranir
þeirra, sem sjónvarpsstöðin í
Moskvu hafði neitað að senda út
og vakti þátturinn mikla athygli
og hefur enn orðið til að beina
athygli manna að brottrekstri
þeirra af sovéska þinginu.
Mótmæli við
innanríkisráðuneytið.
Mynd: Þórunn.
í þættinum var sýnt fram á
spillingu og mútuþægni ýmissa
háttsettra embættismanna og var
að margra áliti brotið blað í sov-
éskri fjölmiðlun með þessari út-
sendingu.
Andrúmsloftið á þessum
geysifjölmenna fundi utan við
hótelið þar sem fulltrúar Æðsta-
ráðsins búa, rétt við Kreml, var
þó engan veginn ógnvekjandi,
jafnvel ekki fyrir okkur útlend-
ingana sem vorum þarna stödd af
tilviljun á þessum fallega vor-
degi.
Stórir herbílar umkringdu
fundinn og bak við gluggatjöldin
á rútum sem stóðu aðeins fjær,
mátti sjá hermenn með alvæpni í
viðbragðsstöðu. Hræðslan við að
fá ekki að mynda fundinn í friði
var óþörf. Það var engu líkara en
bæði lögreglan og hermennirnir
væru ánægðir með að þennan
fund væru útlendingar að festa á
filmu og þrátt fyrir ótrúlegan
fjölda hermanna á fundinum var
eins og þeir fylgdust með ræðu-
mönnum af engu minni áhuga en
almenningur.
Á nýja MacDonald staðnum,
sem er skammt frá, var sama bið-.
röðin og alla daga og mönnum
meira í mun að fá hamborgarann
sinn og kók með, en að hlusta á
fundinn. Svona hefur Perestrojk-
an mörg andlit. En það leynir sér
ekki að það er komið vor í Mos-
kvu.
Sagnfræði
og töh/ur
Einhvern veginn er erfitt að
ímynda sér sagnfræðing við tölv-
uskjá. Eiga slíkir menn ekki
heima í rykmekkinum á Þjóð-
skjaiasafni eða Handritadeild
Landsbókasafns? Skrifa þeir ekki
allt sem þeir þurfa að skrifa með
fjaðurpenna?
Eitthvað mun þessi ímynd
sagnfræðingsins vera farin að
breytast. I það minnsta telur
Sagnfræðingafélag íslands tíma-
bært að halda ráðstefnu um sagn-
fræði og tölvur. Ráðstefnan verð-
ur haldin í Odda á Háskólalóð-
inni í dag, laugardag, og hefst kl.
1°.
Á ráðstefnunni munu ýmsir
sagnfræðingar og fræðimenn
miðla af reynslu sinni af tölvu-
notkun, sagt verður frá tölvuvæð-
ingu safna og háskólastofnana,
notkun töflureikna, gagnagrunns
og umbrotsforrita osfrv. Ráð-
stefnan stendur með matar- og
kaffihléum til kl. 17 og er opin
öllum þeim sem áhuga hafa á við-
fangsefninu. -ÞH
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3
Frá og með 15. maí 1990 stendur húsbréfakerfið
öllum opið við kaup og sölu notaðra íbúða.
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hvemig fara íbúðarkanp fram?
vGreiðslumat.
Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
/\ \ Skrifleg umsögn.
L—~~\ __\ Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
Jbúð fundin - gert kauptilboð.
Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
\Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
____A Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
vænfanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
/\ \ Kaupsamningur undirritaður -
L—V2i_A fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. maf 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugefa hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
t§i
rHÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
ijU
SUDURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVIK SIMI ■ 696900
Kaupandinn lætur þinglýsa
\ kaupsamningnum.
1 \ Seljandi lætur þinglýsa
x fasteignaveðbréfinu.
/\ Q \ Seljandi skiptir á fasteigna-
...........\ veðbréfi fyrir húsbréf.
\ Q^\Greiðslur kaupanda hefjast.
\ Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.
, U i i i i 1 r I i i
ií
&
1»
fi
ir
*