Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 5
Sigurjón Pétursson
Við Ólafur ekki
lengur samherjar
Eg hef aldrei verið í aðdácnda-
klúbbi Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, en við höfum reynt að
starfa eins og samherjar og ég hef
ekki gagnrýnt hann opinberlega
fyrr en nú. Hann hóf þennan leik
og ber ábyrgð á því, en ég lít á það
sem seinni tíma verkefni að koma
honum frá. Við erum ekki sam-
herjar lengur.
Þetta sagði Sigurjón Péturs-
son, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík, við
Þjóðviljann í gær. Þeir Sigurjón
og Ólafur Ragnar hafa haldið
áfram að kljást í fjölmiðlum og
Sigurjón hefur lýst yfir að hann
telji að Ólafur eigi að segja af sér
formennsku nú þegar. Sigurjón
telur að Ólafur Ragnar hafi sagt
sig úr lögum við stærsta félagið
innan flokksins með því að neita
að lýsa yfir stuðningi við framboð
þess.
Eruð þið Ólafur Ragnar ekki
að stórskaða flokkinn með þess-
um yfirlýsingum?
„Það er enginn vafi á því að
ágreiningur eins og þessi hlýtur
að hafa áhrif á sóknarfæri flokks-
ins um land allt. En það hefði
Ólafur Ragnar átt að íhuga áður
en hann hleypti þessu af stað.“
Áttirðu í hreinskilni sagt nokk-
Sigurjón Pétursson
urn tíma von á að Ólafur Ragnar
myndi lýsa yfir stuðningi við G-
listann í Reykjavík?
„Já, ég átti von á því. Jafnvel
þótt ýmsir af hans stuðnings-
mönnum hafi farið á nýjan vett-
vang.“
Hverju svararðu sveitar-
stjórnarmönnum sem segjast geta
skilið afstöðu Ólafs Ragnars í
þessu máli?
„Þeir myndu örugglega ekki
sýna afstöðu formannsins jafn
mikinn skilning ef hún beindist
að þeirra eigin framboðum,“
sagði Sigurjón. -gg
Kosningar
Samstaða í Bolungamk
Við höfum náð víðtækri sam-
stöðu hér um málefni, fólkið á
listanum kemur víða að og ég tel
góðar líkur á að við náum meiri-
hluta í bæjarstjórn, sagði Krist-
inn H. Gunnarsson, efsti maður á
lista Samstöðu, nýrra samtaka
um bæjarmál í Bolungarvik.
Þrír listanna sem boðnir voru
fram við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar standa nú að lista Sam-
stöðu, G-listi, B-listi og H-listi
óháðra. Þessi þrjú framboð fengu
samanlagt meirihluta atkvæða í
síðustu kosningum. Alþýðu-
flokknum var einnig boðið sam-
starf, en hann hafnaði því. Hins
vegar er alþýðuflokksmenn að
finna á lista Samstöðu.
Kristinn H. Gunnarsson
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins er sem fyrr segir efstur á lista
Samstöðu. Jón Guðbjartsson
bæjarfulltrúi óháðra skipar ann-
að sæti listans. Þriðji verður
Valdemar Guðmundsson vél-
virki, Helga Jónsdóttir kennari
verður í fjórða sæti, Anna Björg-
mundsdóttir sjúkraliði í fimmta,
Ketill Elíasson í sjötta og Sverrir
Sigurðsson í sjöunda.
Sjö bæjarfulltrúar sitja í bæjar-
stjórn Bolungarvíkur og Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðuflokkur
eiga meirihluta þeirra.
-gg
Fossvogsdalur
Fögnuðurí
Kópavogi
Skipulagsstjórn: Útivistar- og íþróttasvœði í Foss-
vogsdal.Valþór Hlöðversson: Gríðarlega mikilgleði-
tíðindi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: Fallist á sjón-
armið Reykvíkinga
Valþór Hlöðversson, bæjar-
fulltrúi í Kópavogi, segir það
gríðarlega mikil gleðitíðindi að
skipulagsstjórn ríkisins hafi sam-
þykkt aðalskipulag sem gerir ráð
fyrir útivistar- og íþróttasvæði í
Fossvogsdal í stað hraðbrautar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður skipulagsnefndar Reykja-
víkur, segir hins vegar að skipu-
lagsstjórn hafi að vissu marki fall-
ist á sjónarmið borgarinnar í
deilunum um Fossvogsdalinn.
Skipulagsstjórn hefur staðfest
að í Fossvogsdal verði útivistar-
og íþróttasvæði. Hins vegar er
gert ráð fyrir að hægt verði að
leggja göng undir dalinn til þess
að tengja umferð milli austur- og
vesturhluta höfuðborgarinnar.
Þó er gert ráð fyrir að kanna aðra
möguleika til þess að leysa um-
ferðarvandann.
„Þetta eru mikil tíðindi af
tveimur ástæðum. í fyrsta lagi
hefur í fýrsta sinn verið samþykkt
aðalskipulag fyrir Kópavog. í
öðru lagi höfum við nú unnið
sigur í 16 ára gamalli deilu við
Reykjavíkurborg og skipulagsyf-
irvöld ríkisins," sagði Valþór í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Skipulagsstjórn hefur fallist á
sjónarmið okkar í borgarstjóm
um nauðsyn samgönguæðar um
dalinn og um leið vísað á bug
kröfum Kópavogsbúa um að eng-
ar samgöngur fari um dalinn.
Sjónarmið okkar hafa alltaf tekið
mið af umferðarörygginu. Við
viljum beina umferð frá íbúða-
hverfum,“ sagði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson við Þjóðviljann í
gær.
Hann segist telja að úr því ríkið
hefur hafnað hraðbraut yfir dal-
inn ofanjarðar, hljóti það að
greiða þann umframkostnað sem
hlýst af að þurfa að gera göng
undir hann.
„Næsta skref í málinu á að
mínu mati að verða að borg og
bær taki höndum saman um að
skipuleggja dalinn með sameigin-
leg afnot í huga,“ sagði Valþór
Hlöðversson.
-gg
Yfirlýsingar Ólafs Ragnars Grímssonar formanns Al-
þýðubandalagsins um framboðsmál í Reykjavík fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í vor, hafa vakið hörð
viðbrögð ýmissa flokksmanna. Fjölmiðlar hafa vikum
saman gengið eftir afstöðu formannsins en hann hefur
neitað að svara spurningum um framboðsmálin fyrr
en nú síðustu daga.
afgerandi afstöðu með öðrum
deiluaðilanum og hann gerði, var
enn frekari nauðsyn á að formað-
urinn héldi stjórnmálasambandi
við báða aðila og horfðist í augu
við þá staðreynd að mikill fjöldi
ágætis Alþýðubandalagsfólks,
fólks sem borið hefur uppi borg-
armálabaráttu flokksins á undan-
förnum árum, hefur kosið að
vinna undir merkjum Nýs vett-
vangs.
Reyndar var ég þeirrar skoð-
unar seinnihluta vetrar að ABR
ætti að verða við ósk Æskulýðs-
fylkingarinnar og Birtingar um
að stofnað yrði kjördæmisráð í
borginni. Þá hefðu öll flokksfé-
lögin í Reykjavík orðið formlegir
aðilar að ákvörðuninni um fram-
boð. Ég er sannfærður um að ef
ABR hefði orðið við þessari
kröfu, sem reyndar er skylda
samkvæmt flokkslögum að verða
við þó ekki sé getið þar um tíma-
setningar, hefðu málin þróast á
annan veg.
Auðvitað getur verið erfitt í
stærsta kjördæmi landsins að ætla
einu flokksfélagi að rúma með
eðlilegum hætti allar þær skoðan-
ir og strauma sem í höfuðborg-
inni hrærast, því Reykjavík er
ekki bara sveitarfélag heídur líka
kjördæmi. í þessu sambandi
nefni ég að í öllum öðrum kjör-
dæmum er mikill fjöldi flokksfé-
laga sem tengjast síðan saman í
kjördæmisráði. Ef kjördæmisráð
hefði verið stofnað í janúar, fe-
brúar og jafnvel þó það hefði
dregist fram í mars, hefði fram-
vindan orðið önnur og Alþýðu-
bandalagsmenn í Reykjavík
hefðu gengið einhuga til kosn-
inga vegna þess að þá hefðu öll
flokksfélögin að forminu til haft
jafnan rétt.
Sú rödd hefur heyrst af lands-
byggðinni að ríkisstjórnin geri
ekki nógu mikið til að bakka
framboðslista þar upp með góð-
um málum?
Það er auðvitað ljóst að iands-
byggðarfólk getur sérstaklega
reitt fram fjölmörg atriði sem ár-
angur af störfum ríkisstjómar-
innar. Ef við fömm aftur til sum-
arsins og haustsins 1988 áður en
við gengum inn í ríkisstjórn, þá
ríkti örvænting á landsbyggðinni
og menn töluðu um að landið
væri að sporðreisast. Þorri at-
vinnufyrirtækja landsbyggðar-
innar var að verða gjaldþrota.
En hvað tala menn um í dag?
Nú tala menn um að atvinnulífið
sé að rétta við, að fyrirtækin séu
farin að skila hagnaði inn í byggð-
arlögin og nú er atvinnuleysisvof-
an ekki lengur við næstu dyr allt í
kringum landið. Þvert á móti hef-
ur tekist á einu og hálfu ári að
snúa við þeirri örvæntingu sem
ríkti í atvinnumálum landsbyggð-
arinnar yfir í nýja vonartíma og
stöðugleika. Það er auðvitað
stóri þátturinn f árangri stjórnar-
innar.
Þessi ríkisstjórn hefur einnig
lokið verkefni sem aðrir höfðu
gefist upp við varðandi verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Þó menn hafi deilt um einstök
atriði í þeim efnum er ljóst að
ríkið mun á þessu ári færa til
sveitarfélaganna mjög miklar
upphæðir í gegnum breytta
verkaskiptingu sem stryrkir mjög
sveitarfélögin og framfaraþrótt
þeirra.
Þá er ríkisstjómin að ræða um
stórframkvæmdir á komandi ára-
tug sem allar eru fyrst og fremst
tengdar landsbyggðinni. Við
erum að ræða stórvirkjun á
Austurlandi í tengslum við nýtt
álver. Við höfum einnig rætt í
mikilli alvöm og gert um það
samþykkt að æskilegt sé að nýtt
álver verði staðsett utan höfuð-
borgarsvæðisins og við emm að
tala um að flýta gerð jarðganga á
Vestfjörðum. A næsta áratug
lítur því út fyrir að allar stærstu
framkvæmdir landsins verði á
landsbyggðinni í samanburði við
síðasta áratug þegar allar helstu
stórframkvæmdir voru hér á
Reykjavíkursvæðinu, eins og
flugstöðin, Kringlan og svo fram-
vegis.
Það er því ljóst að engin ríkis-
stjórn hefur í langan tíma skapað
á eins stuttum tíma jafn afgerandi
þáttaskil í málefnum landsbyggð-
arinnar og þessi stjóm. Enda er
athyglivert að Alþýðubandalags-
menn um allt land notfæra sér
þennan árangur, hvort sem þeir
bjóða fram sér eða með öðmm.
Geta úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna haft áhrif á heilsufar
ríkisstjórnarinnar?
Heilsufar ríkisstjórnarinnar er
mjög gott vegna þess að hún hef-
ur náð ótrúlegum árangri. Hún
hefur ekki einungis forðað því
efnahagslega stórslysi sem blasti
við þegar Sjálfstæðisflokkurinn
hrökklaðist í burtu og afstýrt
fjöldaatvinnuleysi og hruni at-
vinnulífsins um allt land, heldur
einnig náð þeim árangri að ís-
lendingar geta sagt með réttu að
þeir séu að ná svipuðu verðbólgu-
stigi og þær þjóðir sem hafa
minnsta verðbólgu í Vestur Evr-
ópu. Við emm með minnsta
atvinnuleysi á Vesturlöndum,
svo lítið að það er hverfandi og
við erum reyndar með lægsta
skattahlutfall í Vestur Evrópu,
þó sumum finnist það ótrúlegt.
Með öðmm orðum erum við
að ná þeim efnahagslega stöðug-
leika sem menn hefur dreymt um
hér á landi í áratugi sem er aftur
forsenda þess að hægt sé að bæta
lífskjörin með skipulagsbreyting-
um og uppstokkunum. Þessi rík-
isstjórn getur því með afgerandi
hætti sýnt verk sín og borið sam-
an við hvaða ríkisstjórn sem er á
undanförnum 20-30 árum og
samanburðurinn er okkur í hag.
Sérð þú fyrir þér breytingar á
framboðsmálum til Alþingis í
psi þeirra breytinga sem nú hafa
orðið í sveitarstjórnarkosning-
um?
Ég ætla í sjálfu sér ekkert að
fullyrða neitt um það. Hins vegar
sofnar aldrei stjórnmálafræðing-
urinn í mér hér á skrifstofu fjár-
málaráðherra. Stjórnmálafræð-
ingurinn leyfir sér stundum að
ganga út fyrir völl hinna daglegu
verkefna sem ég sinni sem ráð-
herra. Það er óneitanlega mjög
fróðlegt fyrir mig sem hef í kenns-
lu við Háskóla Islands fjallað um
þróun íslenskra stjórnmála á
þessari öld, að horfa á ýmislegt
sem hefur verið að koma fram á
seinustu misserum.
Það er alveg ljóst að þessar
sveitarstjórnarkosningar eru nú
þegar merkilegar fyrir þá sök, að
það er mun meira um að jafnað-
armenn og félagshyggjufólk eða
vinstrafólk, hafi tekið höndum
saman víða um land með góðum
árangri og bjóði fram sameigin-
lega lista. Þetta er bæði gert í ná-
grannabyggðarlögum borgarinn-
ar, á Suðurlandi, Austurlandi,
Norðurlandi og Vestfjörðum.
Það er líka áberandi að það er
yngra fólk og að nokkru leyti nýtt
fólk sem ber uppi þetta starf og
það er áberandi að þetta hefur
alls staðar gengið vel nema í
Reykjavík sem sker sig úr. Mað-
ur sér að yngri kynslóðin, fólk á
milli tvítugs og fertugs, fólk sem
lítur á sig sem félagshyggjufólk
og jafnaðarmenn í evrópskum
skilningi, er ekki reiðubúið að
sætta sig við að afl vinstraftSlks og
jafnaðarmanna verði með þeim
hætti að kröftunum sé skipt í
marga ólíka flokka. Það er líka
áberandi núna að endurnýjunar-
krafturinn í Kvennalistanum
virðist búinn. í Reykjavík er ekki
mikið af nýju fólki á lista
Kvennalistans. Sú von sem marg-
ir höfðu þegar Kvennalistinn
fékk 30% í skoðanakönnunum
fyrir tveimur árum, að hann væri
endurnýjunarkrafturinn fyrir fé-
lagshyggjufólk og jafnaðarsinna,
hefur ekki orðið reyndin.
Ég finn mjög greinilega að
fjöldi þessa unga fólks er að leita
að nýjum samvinnuformum og
það er auðvitað skylda okkar sem
erum í forystu fyrir flokknum, að
hlusta á raddir þessarar nýju kyn-
slóðar sérstaklega. Forystu sem
ekki hlustar á raddir nýrra kyn-
slóða dagar uppi og flokka slíkrar
forystu dagar uppi, því atburðar-
ásin tekur þá völdin af sjálfu sér.
Sumir sem nota orðið Hrey-
fingin með stórum staf hafa verið
mjög uppteknir af sögu hennar
frá fyrri tíð. Þetta fólk ætti að
horfa til þess að stærstu áfangarn-
ir í sögu hennar voru unnir þegar
forystumennirnir voru óhræddir
að vinna með öðrum og taka upp
ný skipulagsform og hverfa frá
fyrri tíð. Mér finnst að sumir sem
sýna of mikla hræðslu í þessum
efnum ættu að horfa til fortíðar-
innar, ekki bara til að leita að
einhverju sem aldrei á að
breytast, heldur til að skoða þau
miklu stökk sem forystumenn
sósíalista voru tilbúnir að taka
þegar þeir lögðu niður flokka,
þegar þeir lögðu niður Kommún-
istaflokkinn og Sósíalistaflokk-
inn og voru tilbúnir til að stofna
nýja flokka og leita nýrra sam-
fylkingarforma vegna þess að
þeir töldu það til ávinnings fyrir
stefnumálin og stjórnmálaþróun-
ina.
Ég ætla ekki að spá neinu um
þróunina á næstu mánuðum og
misserum en það er ljóst að það
er mikil gerjun á meðal íslenskra
jafnaðarmanna og félagshyggju-
fólks og sú gerjun er helst á meðal
yngra fólks og við sem erum í for-
ystunni megum ekki vera svo
steinrunnir að við séum ekki einu
sinni tilbúnir að skoða hluti sem
Magnús Kjartansson, Einar Ol-
geirsson og Brynjólfur Bjarnason
hikuðu ekki við að hrinda í fram-
kvæmd þegar þeir voru í forystu í
hreyfingu íslenskra sósíalista.
-hmp
Laugardagur 21. apríl 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5