Þjóðviljinn - 21.04.1990, Page 12
Borgarvirki framtíðarinnar
í Geldinganesi
Sýning á tillögum arkitekta og
skipulagsfræðinga að framtíðar-
skipulagi á Geldinganesi í Kolla-
firði er nýafstaðin að Kjarvals-
stöðum. Þátttaka í samkeppninni
var góð, og bárust fjölmargar at-
hyglisverðar tillögur, þar af þrjár
sem hlutu verðlaun og fjórar sem
voru keyptar að auki. Tillagan
sem hlaut fyrstu verðlaun var
unnin á Vinnustofu arkitekta hf. á
Skólavörðustíg 12 af þeim Hró-
bjarti Hróbjartssyni, Richard Bri-
em, Sigríði Sigþórsdóttur og Sig-
urði Björgúlfssyni.
Skipulagning byggðar á jafn
vel afmörkuðu svæði og Gelding-
anesið er, hlýtur að vera heillandi
verkefni fyrir arkitekta, þar sem
nesið er í rauninni eyja frá náttúr-
unnar hendi, sem tengist landinu
aðeins með sandeiði, sem flýtur
yfir á flóði. Eyjan er 220 hektarar
að flatarmáli, sporöskjulaga,
ávöl og hæst í miðjunni og fagurt
útsýni til flestra átta.
Ekki er þess kostur að gera
grein fyrir öllum skipulagstillög-
unum í einni blaðagrein, og völd-
um við þann kostinn að kynna
tillöguna sem hlaut fyrstu verð-
laun.
Nútíma
borgarvirki
Hróbjartur Hróbjartsson arki-
tekt sagði í samtali við Nýtt helg-
arblað að hann og félagar hans
hefðu í upphafi verksins farið og
skoðað landkosti og það sam-
hengi sem eyjan hefur við byggð-
ina og náttúruna í kring. Fljót-
lega hafi komið fram þörfin til
þess að skapa einhverja afger-
andi viðmiðun eða festu í um-
hverfinu, þar sem eyjan sjálf sé
nær sérkennalaus eins og diskur á
hvolfi. Hún sé jafnframt öll gott
byggingarland og bjóði upp á
áhugavert byggingarstæði til allra
átta. Því hafi grunnhugmyndin
um að setja miðborgina á miðja
hásléttuna komið snemma á
vinnslutímanum.
Höfundar tillögunnar sögðu
jafnframt að eftir fyrstu skoðun
hafi skipulagsvinnan falist í eins
konar boltakasti, þar sem þau
Hróbjartur Hróbjartsson, Sigurður Björgúlfsson, Sigríður Sigþórsdóttir og Richard Briem, höfundar verðlaunatillögunnar að skipulagi
byggðar í Geldinganesi. Ljósm. Jim Smart.
hentu hugmyndum á milli sín um
leið og þau skoðuðu borgarum-
hverfið í kring um sig til þess að
draga lærdóm af því góða og
slæma sem gert hefði verið í for-
tíðinni. Ekki til að apa eftir, held-
ur til þess að gera betur miðað við
aðstæður. „Við erum að smíða
nýja hluti, en notum til þess
gömul verkfæri," sagði Sigurður
Björgúlfsson.
Ein er sú hugmynd, sem þau
hafa fengið úr sínu nánasta um-
hverfi af Skólavörðuholtinu, en
það eru útsýnisgötur til hafsins í
gegnum Skuggahverfið eins og
Frakkastígurinn eða Njarðargat-
an í hina áttina. I verðlaunatillög-
unni er gert ráð fyrir „borgarm-
úr“ á háeyjunni sem fylgir hæð-
arlínum og er myndaður af mis-
hárri fjölbýlishúsakeðju. Innan
múrsins er miðbærinn með þeirri
þjónustustarfsemi sem honum
fylgja, verslunum, skrifstofum,
veitingahúsi, tveim skólum, kir-
kju, safnaðarheimili og fé-
lagsmiðstöð, íþróttahúsi og tveim
knattspymuvöllum.
Utan „múrsins" eru annars
Samgöngur
í inngangi að skipulagstillög-
unni er gerð grein fyrir þeim vax-
andi vanda sem samgöngur fela í
sér fyrir nútíma borgarsamfélag
og þessi vandi muni kalla á
nýjar áherslur í borgarskipulagi
framtíðarinnar. Meginorsök um-
ferðarvandans sé mengun og þró-
un olíuverðs í framtíðinni, og sú
staðreynd að það almennings-
vagnakerfi sem við höfum búið
mengun af völdum umferðar, sí-
fellt dýrari og fyrirferðarmeiri
aðgerðir til að brjóta einkabíln-
um leið um borgina, fjölgun um-
ferðarslysa, dýrari heilbrigðis-
þjónusta og dýrari bflar í framtíð-
inni vegna mengunarvarna og
slysavarna, dýrari bflageymslur
o.s.frv., allt þetta muni í framtíð-
inni leiða til þess að bæði verði
óeðlilegra og erfiðara að ferðast
um í einkabíl í borginni í framtíð-
inni með þeim hætti sem tíðkast í
Tillaga Hróbjarts Hróbjartssonar, Richards Briem, Sigríðar
Sigþórsdóttur og Sigurðar Björgúlfssonar, sem fékk 1. verð-
laun í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Gelding-
aness, gerir ráð fyrir 7-8000 manna byggð á nesinu, sem
einkennist af íjölbýlishúsakeðju er myndar eins konar virkis-
borg utan um borgarkjarnann á hásléttu nessins.
vegar geislagötur sem ganga
beínt til sjávar og hafa stefnu á
ákveðin kennileiti: Snæfells-
jökul, Akrafjall, Skarðsheiði,
Kerhólakamb og Kistufell í Esju,
Skálafell, Rjúpnahæð, Gufunes
og Gróttuvita. Hinsvegar er
byggð einbýlishúsa, raðhúsa og
minni sambýlishúsa á 1-3 hæðum,
sem stendur meðfram göturn sem
lagðar eru eftir hæðarlínum
hringinn í kring um borgarmúr-
inn. Alls er gert ráð fyrir 2500
íbúðum á svæðinu, þar af 1500
íbúðum í sambýli. Neðan byggð-
ar er svo akvegur hringinn í kring
um eyjuna, en ströndin er opin og
öllum frjáls þar fyrir neðan. Er
gert ráð fyrir göngustíg meðfram
allri strandlengjunni nokkuð
fyrir neðan akveginn.
Horft í gegnum borgarhliðið •
í áttina að Kistufelli.
við þjóni ekki tilgangi sínum
vegna þess að það sé allt of háð
bílaumferðinni. Þá sé kostnaður
óheyrilegur við bflaflotann á höf-
uðborgarsvæðinu, sem telur um
75000 farartæki.
Höfundar benda á tvennar
leiðir til þess að takmarka notkun
einkabflsins án þess að ferðafrelsi
einstaklingsins sé heft:
1 fyrsta lagi megi vinna að meiri
blöndun byggðar í borgarskipu-
laginu, þannig að tryggt sé að sem
flestir íbúar hvers hverfis geti
unnið í námunda við heimili sín.
Þannig mætti fækka ferðum mið-
að við þá uppskiptingu í sérhæfð
hverfi, sem tíðkast hafi í hug-
myndafræði skipulags undan-
farna áratugi.
f öðru lagi er bent á nýja val-
kosti í fólksflutningum, sem ættu
að geta orðið vænlegir, sérstak-
lega fyrir okkur Islendinga í
framtíðinni. Spár um stórhækkað
olíuverð í nánustu framtíð, aukin
dag. Alla skipulagsvinnu til fram-
tíðar þurfi því að vinna út frá
þessari staðreynd.
í samræmi við þetta er gert ráð
fyrir því að Geldinganesborgin
hafi þrenns konar tengingu við
meginlandið:
í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því
að Vesturlandsvegurinn nýi fari
úr Gufunesi um austurhluta
eyjunnar upp í Gunnunes og
Alfsnes, þar sem fyrirhugaður
sorpurðunarstaður borgarinnar
verður. í öðru lagi er gert ráð
fyrir því að meðfram Vestur-
landsvegi verði rafknúin braut á
teini eða teinum, sem tengist
meginlandinu. f þriðja lagi er
gert ráð fyrir viðkomustað hrað-
ferju, sem tengi eyjarnar á Sund-
unum við miðborgina.
Gert er ráð fyrir því að Vestur-
landsvegurinn verði lagður á
stólpum yfir sjó austan núverandi
sandeiðis. Vestan þess verður
smábátahöfn og vestan hennar
verður síðan viðlegukantur fyrir
12 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 21. apríl 1990