Þjóðviljinn - 21.04.1990, Side 24
Dönsk
kvikmyndavika
Dagana 21 .-29. apríl verður haldin í Reykjavík dönsk kvikmynda-
vika, á vegum Dansk-íslenska félagsins í samvinnu við Háskólabíó.
Sérstakir gestir hátíðarinnar verða leikstjórinn Erik Clausen og leikar-
inn Leif Sylvester Petersen. Erik Clausen leikstýrirtveimur af myndun-
um á hátíðinni, en Leif Sylvester leikur eitt aðalhlutverkið í annarri
þeirra, Tarzan-Mama mia. Þeir félagar verða viðstaddir opnun hátíð-
arinnar þann 21. apríl kl. 16.00.
Erik Clausen er fæddur 1942
og hefur fengist við flest er lýtur
að kvikmyndagerð. Hann leikur,
leikstýrir og skrifar handrit. Auk
þess er hann liðtækur listmálari.
Fyrsta mynd hans var Circus Cas-
ablanca 1981 sem hlotið hefur
mörg verðlaun. Næsta mynd var
Felix (1982) en aðalleikona henn-
ar hlaut danska óskarinn eða Bo-
dil verðlaunin fyrir frammistöðu
sína í henni. Tarzan-Mama mia
er nýjasta mynd Clausens og
jafnframt fyrsta barnamynd
hans. Enda segir Clausen sjálfur
að myndina hafi hann gert eftir
að starfsbróðir hans hafði sagt
honum að erfiðustu verkefni í
kvikmyndagerð væru þau er fjöll-
uðu um börn eða dýr. Clausen
ákváð að taka áskoruninni og
gera mynd er fjallaði um bæði.
Tarzan—Mama
Mia (1988)
Tarsan-Mama mia er saga 11
ára stúlku Rikke sem býr með
föður sínum á Vesturbrú í Kaup-
mannahöfn. Rikke er búin að
missa mömmu sína og saknar
hennar mikið. Þegar kennarinn
hennar segir bekknum frá skáld-
fáknum Pegasusi sem getur sótt
hina látnu til himna eygir Rikke
von um að endurheimta móður
sína. Hún tekur þátt í happa-
drætti þar sem hestur er í vinning
og hreppir hann. Návist hestsins
skiptir svo sköpum fyrir þau feðg-
inin og ýmsa nágranna þeirra
ekki síst rónann Ludvig sem er sá
eini sem eitthvað þekkir til dýra.
Aðalhlutverk leika Leif Syl-
vester, Michael Falk, Christina
Haagenssen og Tammi Öst.
Tarsan-Mama mia verður sýnd
24. apríl kl 17.00 og 19.00, þann
25. apríl kl 17.00 og 19.00 og
þann 26. apríl 17.00 og 19.00.
Hip Hip
Hurra (1986/7)
Hip Hip Hurra er unnin í sam-
vinnu Dana, Norðmanna og
Svía. Leikstjóri er Kjell Grede,
hann er fæddur 1936 og er einn
þekktasti kvikmyndaleikstjóri
Svía. Fyrri myndir hans eru með-
al annars Hugo og Josefina
(1967) sem gerð er eftir barnabók
Maríu Gripe, Harry Munter
(1969) og Clair Lust (1976). Gre-
de skrifaði einnig og leikstýrði
tveim stórum þáttaröðum fyrir
sjónvarp um Strindberg.
Myndin Hip Hip Hurra er
byggð á sögu Skagen hópsins sem
voru skandinavískir listamenn er
dvöldu í Skagen í Danmörku.
Þeirra á meðal voru P. S. Kröyer
og kona hans Marie sem á sínum
tíma var talin ein fegursta kona
Danmerkur, Anna Ancher sem
er einn frægasti kvenmálari Dana
og maður hennar Michael en
hann og Sören Kröyer voru vinir
ævilangt þó ólíkari menn væri
varla hægt að hugsa sér. Að auki
má nefna Christian Krogh sem er
einn frægasti málari Noregs og
Viggo Johansen en hann málaði
mjög mikið sína eigin fjölskyldu.
Aðalhlutverk í Hip Hip Hurra
Ieika Stellan Skarsgárd, Lene
Bröndum, Pia Vieth, Morten
Grunwald og Ulla Henningsen.
Hip Hip Hurra verður sýnd 22.
apríl kl 21.00 og 23.00 og þann
26. apríl kl. 19.00 og 21.00.
Peter
von Scholten
(1986/7)
Peter von Scholten er söguleg
mynd er lýsir lokum nýlendu-
tímabils Danmerkur. Peter von
Scholten var síðasti landstjóri
Dana á Saint Croix í Vestur Indí-
um. Hann var ákaflega litríkur
persónuleiki sem batt enda á
eigið einveldi með að gefa þræl-
um sínum frelsi. Von Scholten
gerði þetta að eigin frumkvæði og
að mestu í andstöðu við dönsku
stjórnina.
Leikstjóri myndarinnar um
Peter von Scholten er Palle
Kjærulf-Schmidt. Hann er fædd-
ur 1931 og þekktur fyrir leik-
stjórn sjónvarpsleikrita. Hann
hefur einnig leikstýrt 9 myndum
þar á meðal Tukuma (1983) og
Barbara (1967).
Kjærulf-Schmidt segir að í Pet-
er von Scholten takist sér að sam-
eina tvö áhugamál sín en þau eru
danska þjóðin og sálfræði vald-
sins. Eitt af því sem komi hvað
greinilegast í ljós þegar danska
nýlendutímabilið sé skoðað sé
hversu skýr sér-dönsk persónu-
einkenni verði við óvenjuiegar
aðstæður.
Aðalhlutverk í myndinni Peter
von Scholten leika Ole Ernst,
Karen Lise Mynster, Jesper
Langberg og Etta Cameron. Pet-
er von Scholten er sýnd 21. apríl
kl. 23.00 og 24. aprfl kl. 21.00 og
kl 23.00.
Rend mig i
traditionerne
(1979)
Rend mig i traditionerne er
gerð eftir sögu Leif Panduro sem
margir íslendingar þekkja. Þetta
er saga Davíðs sem er 18 ára og
ósáttur við skólann sinn. Móðir
hans er heimskur milljónamær-
ingur og Davíð þorir ekki að
segja yndislegustu stúlku í heimi
að hann elski hana. Davíð stend-
ur í þeirri meiningu að hann hafi
gleypt sprengju og allt þetta leiðir
að lokum til þess að hann gefst
upp. Hann fer að gelta og bíta
fólk eins og hundur og er að lok-
um settur á geðveikrahæli.
Leikstjóri Rend mig i traditi-
onerne er Edward Fleming.
Hann er fæddur 1927 og vann
lengi við leikhús áður en hann
sneri sér að kvikmyndum. Meðal
mynda hans má nefna De uan-
stændige (1983) Den kroniske
uskyld (1985) og Sidste akt
(1987).
Aðalhlutverk í myndinni leika
Henrik Kofoed, Karin Wedel,
Jan Gustavsen, Bodil Kjer, Niels
Hinrichsen, Githa Nörby og Axel
Ströbye. Rend mig i tradition-
erne verður sýnd þann 23. april
kl. 17.00 og 19.00, þann. 25 aprfl
kl 21.00 og 23.00, og þann 26.
apríl kl 17.00.
Mord i
Paradis (1988)
Mord i Paradis er gerð eftir
sögu danska rithöfundarins Dan
Turell er segir frá ónafngreindum
blaðamanni sem verður fyrir því
að vinur hans er skotinn fyrir
augum hans. Hann skrifar eftir-
mæli eftir vin sinn en kaldlyndur
yfírmaður hans ákveður að senda
hann út á landsbyggðina. Til
Rodby þar sem vændiskona
fannst myrt í nuddstofunni Para-
dís og maður sem virðist geð-
veikur hefur verið tekinn fastur
fyrir morðið. Blaðamaðurinn
kemst fljótt að því að ekki er allt
sem skyldi í bæjalífinu í Rodby.
Leikstjóri Mord i Paradis er
Sune Lund-Sörensen. Hann er
fæddur 1942 og hefur aðallega
gert stuttmyndir og heimildar-
myndir, sem hlotið hafa verðlaun
víða um heim. Hann hefur verið
búsettur í Svíþjóð um langt skeið
og fyrsta kvikmynd hans í fullri
lengd Smyglarakóngurinn (1985)
var unnin í samvinnu Svía og
Dana. Mord i Paradis er þriðja
kvikmynd Lund-Sörensen.
Hann segir sjálfur að myndin
sé um spillinguna og óþverrann
sem hægt er að fela bak við bros-
andi og sjálfsánægt andlit smá-
bæjarins. Stfll og andrúmsloft
myndarinnar sé svipað og svörtu
myndanna bandarísku, en mynd-
in sé þó að öllu leyti dönsk. Hún
sé um Dani og Danmörku átt-
unda áratugarins.
Aðalhlutverk í Mord i Paradis
leika Michael Falch, Ole Ernst,
Susanne Breuning, Kirsten Le-
hfeldt og Morten Grundwald.
Mord i Paradis verður sýnd 21.
april kl 19.00 og 21.00, þann 24.
april kl 17.00 og 19.00 og þann
25. aprfl kl 23.00.
Guldregn (1988)
Guidregn er gerð eftir bama-
bók eftir Anders Bodelsen. Sag-
an fjallar um fjögur börn sem búa
í úthverfi Kaupmannahafnar.
Þau finna kassa sem í eru áttaþús-
und danskar krónur og em í
Úr kvikmyndinni Tarzan-Mama mia.
Ole Ernst í hlutverki Peter von Scholten.
fyrstu steinhissa, en þegar þau
frétta af nýlegu pósthúsráni,
leggja þau saman tvo og tvo. Þau I
ákveða að geyma peningana þar'
til boðin verði fundarlaun en þau \
vita ekki að þjófarnir hafa í hönd-
um nafnskírteini eins þeirra sem
eftir varð á fundarstað pening-
anna. Leikurinn æsist svo þegar
börnin fara að leita þjófanna og
þjófarnir barnanna.
Leikstjóri Gullregns er Sören
Kragh-Jacobssen. Hann er fædd-
ur 1947 og lauk námi frá FAMU
kvikmyndaskólanum í Prag.
Hann vinnur hjá danska sjón-
varpinu við gerð efnis fyrir börn
og unglinga. Allar myndir hans
fjalla um börn eða ungt fólk og
má þar nefna myndina Sjáðu sæta
naflannn minn (1978) og Gúmí
Tarzan (1981) sem sýndar hafa
verið hér á landi.
Kragh-Jacobssen segir að
auðséð sé á því myndefni sem
börn og unglingar velji á mynd-
bandaleigum að þau sækist eftir
spennu í kvikmyndum. Þegar
saga Anders Bodelsens svo barst
honum í hendur sá hann þar kjör-
ið tækifæri til að gera góðan val-
kost við þær ofbeldis- og hryl-
lingsmyndir sem nóg framboð er
af.
Aðalhlutverk í myndinni leika
Ricki Rasmussen, Ken Vedse-
gaard, Tania Fridenberg, Nanna
Böndergaard, Torben Jenssen,
Ulla Gottlieb, Jens Okking og
Kirsten Genius. Guldregn verður
sýnd þann 22. apríl kl 15.00 og
17.00 og þann 25. aprfl kl 17.00
og 19.00.
Manden i
Mánen (1986)
Manden i Mánen er saga Johns
sem hefur verið í fangelsi í 16 ár.
Hann drap konuna sína í æðis-
kasti án þess að vita almennilega
af hverju. Þessum 16 árum í fang-
elsinu hefur hann eytt í að velta
fyrir sér hvað ást sé. Nú hefur
hann verið látinn laus með mynd
af konu sinni og dóttur í fartesk-
inu og eru það einu tengsl hans
við fortíð sína og lífið utan fang-
elsisins. John upplifir svo frelsið
líkt og martröð. Hann vinnur við
uppvask á hóteli og horfir á heim-
inn út um lítinn kringlóttan
glugga sem er hluti skreytingar
hótelsins, og táknar tunglið.
Hann reynir að ná sambandi við
dóttur sína en hún vill ekkert með
hann hafa. En að lokum tekst
honum að rjúfa einangrun sína.
Leikstjóri Manden i Mánen er
Erik Clausen sérstakur gestur
danskrar kvikmyndahátíðar og
betur kynntur hér að framan. Um
þessa mynd sína segir Erik
Clausen að svo margt fólk hafí
eyðilagt líf sitt í nafni ástarinnar
því það sé svo erfitt að hafa stjóm
á svona sterkum tilfinningum.
Hann segir að hann hafi hitt
menn sem hafi drepið eiginkonur
sínar eða unnustur og að slíku sé
oft lýst og dæmt sem ástríðuglæp.
Honum finnst það aftur of mikil
einföldun. Sumir þessara manna
áttu börn og þeir höfðu því drep-
ið móður barnanna sinna.
Clausen velti því þess vegna fyrir
sér hvernig þessum mönnum
gengi svo að taka á ný þátt í hvers-
dagslífinu.
Aðalhlutverk í myndinni leika
Peter Thiel, Kim Jansson og
Christina Bengtsson. Manden i
Mánen er sýnd þann 21. apríl kl
16.00, og 19.00 og þann 23. kl
21.00 og 23.00.
Danskri kvikmyndaviku lýkur
28. apríl en dagskrá tveggja síð-
ustu daganna lá ekki fyrir þegar
blaðið fór í prentun. En að sögn
Friðjóns Guðmundssonar hjá
Háskólabíói er ætlunin að sýna
þá aftur þær myndir sem verða
vinsælastar. Myndimar verða all-
ar sýndar ótextaðar nema Tarz-
anMama mia. Eigi að síður
spennandi dönsk kvikmyndavika
framundan.
—ss
24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 21. apríl 1990