Þjóðviljinn - 18.05.1990, Side 11
Hægri eða vinstri;
D eða G -tveir kostir
Svavar Gestsson skrifar um stjórnmál
, «•>•••> i .
* >»« ••••*
Lóðin sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins úthlutaði sjálfum sér og seldi síðan með miljónahagnaði.
Ljósm. Jim Smart.
Margt fróðlegt hefur komið
fram í kosningabaráttunni í
Reykjavík undanfarna daga. Það
sem skiptir langmestu máli að
mínu mati eru upplýsingar um
vinnubrögð meirihlutans annars
vgar og tillögur minnihlutans og
einkum Alþýðubandalagsins
hins vegar.
Alvarleg dæmi
um misnotkun
meirihlutavalds
Frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins hafa bent á alvarleg
dæmi um spillingu þá sem þrífst
meðal forráðamanna borgarinn-
ar í krafti meirihlutavaldsins:
1. Þeir hafa fullyrt að einn
borgarráðsmaður hafi sótt um lán
til sjálfs sín og samþykkt að lána
sjálfum sér hæsta lán sem veitt
hefur verið úr húsverndunarsjóði
borgarinnar.
2. Þeir hafa greint frá því að
annar borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins hafi úthlutað sjálfum
sér lóð á grænu svæði, hann hafi
síðan selt lóðina og hirt af sölunni
margar miljónir. Hann hafi þann-
ig brotið reglur borgarinnar
sjálfrar um að skila eigi lóðum ef
sú starfsemi sem fyrirhuguð var
er felld niður.
3. Fram hefur komið að til-
teknir vinir borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins hafi aðstöðu til
þess að knýja fram breytingar á
öryggismannvirkjum í umferð-
inni í sína þágu og sinna fyrir-
tækja þó að þær breytingar stofni
umferðinni í hættu.
4. Fram hefur komið að öll
hönnun á mannvirkjum borgar-
innar fer fram án útboðs og nem-
ur hönnunarkostnaðurinn milj-
örðum króna á kjörtímabili. Full-
yrt er að íhaldið noti meirihluta-
vald sitt til þess að veita vinum og
vandamönnum þessi dýru verk-
efni en aðrir fái þar hvergi nærri
að koma sem ekki eru íhaldinu
þóknanlegir.
Jafnframt þessum dæmum um
beina misnotkun valdsins af hálfu
meirihlutans koma fram upplýs-
ingar um það að hann er á móti
því að styrkja lýðræði í borginni:
1. Meirihlutinn hafnaði tillögu
um að efna til skoðanakönnunar
um flugvallarsvæðið.
2. Meirihlutinn hafnaði tillögu
um að félag eldri borgara fengi
áheyrnarfulltrúa í félagsmálaráði
þegar fjallað er um stefnumót-
andi mál sem snerta aldraða.
3. fhaldið samþykkti hins veg-
ar að kaupmenn skuli fá
áheyrnarfulltrúa í skipulags-
nefnd.
Kosningarnar
snúast um grund-
vallaratriði
Þessi dæmi eru til marks um
skýran hugmyndafræðilegan
ágreining í kosningunum til borg-
arstjórnar Reykjavíkur þar sem
takast á vinstri stefna Alþýðu-
bandalagsins annars vegar og
hægri stefna Sjálfstæðisflokksins
hins vegar.
Kosningar snúast því um pólit-
ísk grundvallaratriði en ekki
„ímynd“ eða ásjónu einstakra
borgarfulltrúa.
Það sem er í annan stað athygl-
isvert við þessa kosningabaráttu
er sú staðreynd að allar þær til-
lögur sem minnihlutaflokkarnir
bera fram eru tillögur sem eiga
uppruna sinn í samstarfi minni-
hlutaflokkanna eða í Alþýðu-
bandalaginu. Það hefur ekkert
nýtt komið fram frá H-listanum;
ekkert umfram það sem sagt hef-
ur verið þúsund sinnum áður af
minnihlutaflokkunum. Það er í
sjálfu sér ekki merkilegt nema
vegna þess að Nýr vettvangur
segist vera nýr en er bersýnilega
ekki nýr hvorki að því er varðar
málefni og heldur ekki að því er
varðar frambjóðendur.
Þegar litið er yfir framboðslist-
ana í Reykjavík blasir það við að
allir frambjóðendur fráfarandi
minnihluta eru í framboði aftur.
Ef eitthvað er að marka skoðana-
kannanir virðast átökin standa
um það hvort Alþýðubandalags-
maður eða krati, Bjarni P.
Magnússon, verða borgarfulltrú-
ar. Það hljóta að teljast kostuleg
örlög fyrir Alþýðubandalags-
menn að velta Alþýðubandalags-
manni úr borgarstjórn fyrir krata
eftir allt sem er á undan gengið í
samskiptum þessara flokka í
borgarstjórn Reykjavíkur. Enda
verða þeir Alþýðubandalags-
menn vonandi ekki margir sem
fella sinn eigin mann úr borgar-
stjórn Reykjavíkur!
Þaö eru aðeins
tveir kostir:
G eða D
Fyrr var minnt á það að um
hugmyndalegan ágreining væri
að ræða og í raun væru aðeins
tveir kostir fyrir Reykvíkinga,
hægristefnan í mynd Sjálfstæðis-
flokksins og vinstristefnan í
merki Alþýðubandalagsins. í
sj álfu sér þarf ekki að fj ölyrða um
þessar meginandstæður frekar,
en etv. þarf að skýra það nokkru
nánar að Nvr yetívangur ísljist
ekki skýr valkostur fyrir vinstri-
menn.
Nýr vettvangur
og landsmála-
úrslitin
Fyrst er það fram að telja að
eini flokkurinn sem stendur að
Nýjum vettvangi er Alþýðu-
flokkurinn. Alþýðuflokkurinn
mun því reikna sér atkvæði Nýs
vettvangs í borgarmálum og í
landsmálum líka. Innan minni-
hlutaflokkanna hefur oft verið
mjög góð málefnaleg samstaða
en ágreiningur hefur helst stafað
frá Alþýðuflokknum:
1. Alþýðuflokkurinn lagðist
gegn breytingum á stjórnkerfi
borgarinnar í lýðræðisátt í vinstri-
meirihlutanum á sínum tíma.
2. Alþýðuflokkurinn hefur
lagt til að borgin selji hitaveituna
og rafmagnsveituna.
3. Alþýðuflokkurinn var einn
minnihlutaflokka með íhaldinu í
Ölduselsskólamálinu en það mál
snerist um lýðræði: Það er hvort
foreldrar og starfsmenn skóla
ættu að fá að ráða eða hvort fá-
mennisklíka Sjálfstæðisflokksins
ætti að ráða úrslitum.
í landsmálum líka, sagði ég.
Það er ljóst að meginátakamál ís-
lenskra stjórnmála um þessar
mundir eru:
1. Álmálið, það er hvort reisa
cigi álvéfksiiiiojii liéf á lánui
hvað sem það kostar eða hvort
reisa eigi álverksmiðju ef viðun-
andi orkuverð fæst og ef íslenskt
forræði verksmiðjunnar er
tryggt.
2. EB-málið. Þar er aðalá-
greiningurinn um það hvort ís-
land á fyrirvaralaust að verða að-
ili að evrópsku efnahagssvæði.
3. Ágreiningur er um það
hvort hleypa á erlendum aðilum
hömlulaust inn í íslenskt hag-
kerfi. Þar hefur Alþýðuflokkur-
inn á ýmsum sviðum viljað ganga
lengra en Sjálfstæðisflokkurinn.
Það er fullkomlega ljóst að
ávinningur Nýs vettvangs verður
túlkaður til framdráttar þessum
landsmálapólitísku stefnumiðum
Alþýðuflokksins ef vettvangur-
inn kemur vel út úr kosningunum
á laugardaginn í næstu viku.
Atkvæði á H-lista
er ekki kraf a um
vinstristefnu
Af þessari upptalningu er enn-
fremur ljóst að atkvæði greitt H-
listanum er ekki krafa um vinstri
stefnu. Atkvæði greitt H-
listanum er ekki ávísun á neitt
nema óvissuna. Því ekki aðeins
eru málefnin óljós, heldur er líka
ljóst að það verður erfitt að ná
samstöðu um nokkurt mál innan
þess hóps sem stendur að Nýjum
vettvangi eftir kosningamar. Þar
verður ekki unnt með heilstæð-
um hætti. Enda sagði Bjami P.
Magnússon borgarfulltrúi Alþýð-
uflokksins að fólkið kæmi úr
öllum áttum þegar hann útskýrði
í sjónvarpsþætti af hverju þeir
NV-menn væru ýmist með eða á
móti Áburðarverksmiðjunni. Þar
hitti Bjarni P. Magnússon nagl-
ann á höfuðið.
Þeir vinstrimenn í Reykjavík
sem vilja kjósa heilsteypta vinstri
stefnu kjósa því Alþýðubanda-
lagið, G-listann. Atkvæði greitt
öðmm listum eru ekki krafa um
vinstri stefnu.
SUZUKI
cínœgjulegri akstur
betri þjóniistu
lcegra verð
Suzuki Swift 3ja dyra.
Verð frá kr.
613.000,- stgr.
Suzuki Fox Samurai.
Verð frá kr.
929.000,- stgr.
Suzuki Swift 5 dyra.
Verð frá kr.
687.000,- stgr.
Suzuki Vitara.
Verð frá kr.
1150.000,- stgr.
Suzuki bilar hf.
eru fluttir í Skeifuna 17.
Opið kl. 9-18 mánud.-föstud.
og kl. 10-17 laugardaga.
SUZUKI
--iWt* " '
SUZUKI BILAfí HF
SKEtFUNNI 17 SÍMI 685100