Þjóðviljinn - 18.05.1990, Blaðsíða 13
X-NESKAUPSTAÐUR
Kosið um
meirihlutann
að venju
G-listinn
1. Smári Geirsson kennari, 2.
Guðmundur Bjarnason starfs-
mannastjóri, 3. Sigrún Geirsdótt-
ir skrifstofumaður, 4. Klara
Sveinsdóttir verkakona, 5. Einar
Már Sigurðarson kennari, 6.
Magnús Jóhannsson verkamað-
ur, 7. Guðmundur R. Gíslason
nemi, 8. Katrín Jónsdóttir
sjúkraliði, 9. Steinunn Aðal-
steinsdóttir yfirkennari, 10.
Guðjón B. Magnússon sjómað-
ur, 11. Jóna Katrín Aradóttir
húsmóðir, 12. Friðný H. Þorláks-
dóttir hjúkrunarfræðingur, 13.
Snorri Styrkársson fjármála-
stjóri, 14. Guðrún Jónfna
Sveinsdóttir verkamaður, 15.
Karl Jóhann Birgisson fram-
kvæmdastjóri, 16. Kolbrún
Skarphéðinsdóttir verslunar-
maður, 17. Anna M. Jónsdóttir
húsmóðir, 18. Halldór Þorsteins-
son sjómaður.
Klara Sveinsdóttir: Kröfurnar breytast og við
verðum að endurskoða ýmislegt og bœta.
Meirihlutinn hefur sannað gildi sitt
Eg bæði get haft og vil hafa áhrif
á málefni bæjarins og það er
meginástæðan fyrir því að ég þáði
boð um að taka þátt í þessari bar-
áttu, segir Klara Sveinsdóttir í
samtali við Þjóðviljann, en hún
skipar fjórða sæti G-listans í Nes-
kaupstað.
Klara er 29 ára móðir, fisk-
verkakona og sjómannskona.
Hún er algjörlega nýtt blóð í póli-
tíkinni í Neskaupstað, hefur ekki
tekið þátt í pólitísku starfi og ekki
verið bundin flokkum.
„Ég hef mikinn áhuga á bæjar-
málum, en það var engu að síður
erfið ákvörðun að blanda sér í
þessa baráttu. Sem móðir og
sjómannskona hef ég ekki ákjós-
anlegar aðstæður til þess að
standa í þessu, en þetta tekst ein-
hvern veginn,“ segir Klara í sam-
tali við blaðið.
Hún kemur úr umhverfi og
stétt sem ekki er algengt að eigi
fulltrúa svo ofarlega á framboðs-
lista. Nýju fólki fylgja nær óhjá-
kvæmilega nýjar áherslur og
Klara bendir á að þjónusta sem
talin var fullgild í gær þurfi ekki
endilega að vera fullnægjandi í
dag eða á morgun.
Nýjar aherslur
„Ég hef aðrar áherslur í ýmsu
en þeir sem hingað til hafa stjórn-
að bæjarfélaginu hér. Það er þörf
á að endurskoða ýmislegt og
bæta, til dæmis hvað snertir
umönnun barna og aldraðra.
Þessi þjónusta hefur verið góð í
Neskaupstað, en við getum enn
bætt hana. Kröfurnar breytast og
endurnýjun og nýjar hugmyndir
eru hverju bæjarfélagi nauðsyn.
Auk þess að efla félagslega
þjónustu er nauðsynlegt að auka
fjölbreytni í atvinnulífi staðarins.
Hér er næg atvinna, en fjöl-
breytnin mætti vera meiri. Okkur
vantar ýmsa þjónustu sem bráð-
nauðsynlegt er að hafa í bænum.
Með aukinni fjölbreytni í at-
vinnulífinu gerum við bæinn betri
og meira aðlaðandi sérstaklega
fyrir ungt fólk. En það er sjálfsagt
að fólkið í bænum taki þátt í
þessu, það er ekki bara hægt að
bíða eftir að bæjaryfirvöld taki
málin í sínar hendur.“
Verður tvísýnt
„Áróður andstæðinga okkar
gengur út á að meirihlutinn verði
Klara Sveinsdóttir með Birtu dóttur sinni: Ég hlakka til að starfa að
bæjarmálunum og hef trú á að þetta verði skemmtilegt.
að falla hér vegna þess að
„kommúnisminn“ sé alls staðar
að falla. Fólkið ræður þessu
auðvitað, en ég tel að meirih-
lutinn hafi sannað gildi sitt fylli-
lega . Minnihlutinn hefur ekki
staðið sig í núverandi hlutverki
sínu og mun áreiðanlega ekki
gera það heldur ef hann kemst í
meirihluta. Við höfum þó ekki
sigrað í þessum kosningum fyrir-
fram, þetta verður tvísýnt.
Ég hef trú á að það verði
skemmtilegt að starfa í bæjarmál-
unum. Ég hlakka sérstaklega til
þess að starfa í nefndum, enda fer
mikilvægasta starfið fram þar,“
segir Klara.
Alþýðubandalagið hefur haldið meirihluta í
44 ár. Aðeinsþrjúframboð. Benedikt Sigur-
jónsson er nýr oddviti Framsóknarflokksins,
Stella Steinþórsdóttir leiðir D-listann. Endur-
nýjun í efstu sœtum hjá G-listanum
Smári Geirsson.
Stella Steinþórsdóttir.
Benedikt Sigurjónsson.
Framboðum hefur fækkað í
Neskaupstað frá fyrri kosn-
ingum. Oháðir kjósendur bjóða
ekki fram nú, en þeir fengu 142
atkvæði og einn bæjarfulltrúa
fyrir fjórum árum. Nýir menn
hafa valist til forystu hjá Alþýðu-
bandalaginu, Framsóknarflokk-
urinn hefur kosið sér nýjan
oddvita, en Stella Steinþórsdóttir
verður efst á D-listanum.
Kosningarnar í Neskaupstað
snúast að venju fyrst og fremst
um hvort meirihluti Alþýðu-
bandalagsins eigi að halda velli
eða ekki. Sjálfstæðismenn segja í
Norðfirðingi sínum að það geri
engum gott að sitja einráðir í
valdastóli of lengi. Framsóknar-
menn spyrja í leiðara Nestíðinda
hvort það hafi verið gæfa Norð-
firðinga að Alþýðubandalagið
skuli hafa ráðið það lögum og
lofum í hartnær hálfa öld.
Meirihlutamenn svara því til
að starf þeirra byggist á samvirkri
forystu og innri dreifingu valds,
reglulegri endumýjun og virku
lýðræði, þrátt fyrir að minnihlut-
inn hafi ekki staðið sig sem skyldi
í aðhaldi.
Misjafnlega
öruggt
Vinstri menn hafa haft meiri-
hluta í bæjarstjórn síðastliðin 44
ár, fyrst Sósíalistaflokkurinn, síð-
an Alþýðubandalagið. Þessi
meirihluti hefur þó verið misjafn-
lega öruggur í sessi.
í kosningunum voru þrjú fram-
boð eins og nú. Alþýðubandalag-
ið fékk þá mjög ríflegan meiri-
hluta og fimm bæjarfulltrúa.
Meirihlutinn styrktist fremur en
hitt í kosningum 1982, en síðast
var staða hans mun tæpari. Þá
kom nýtt framboð til sögunnar,
framboð óháðra. Óháðir, Sjálfs-
tæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur fengu þá 531 atkvæði
samtals á móti 524 atkvæðum Al-
þýðubandalagsins, en meirihlut-
inn hélt velli. Víst er að baráttan
verður tvísýn nú sem þá.
Stella efst á
D-lista
Stella Steinþórsdóttir bæjar-
fulltrúi og verkakona er oddviti
Sjálfstæðisflokksins, sem nú hef-
ur tvo bæjarfulltrúa. Elínborg
Eyþórsdóttir bæjarfulltrúi hefur
dregið sig í hlé, en Magnús Sig-
urðsson verktaki skipar annað
sætið í hennar stað. Magnús D.
Brandsson fulltrái skipar það sæti
Breiðablik. Þjónustuíbúðum fyrir aldraða hefur fjölgað verulega á kjörtímabilinu.
sem Sjálfstæðisflokkurinn lítur á
sem sitt baráttusæti. Jón Kr. Ól-
afsson og Guðmundur H. Sigfús-
son eru í fjórða og fimmta sæti
D-listans.
Benedikt Sigurjónsson er nýr
oddviti Framsóknarflokksins
sem hefur einn bæjarfulltrúa.
Benedikt var ekki á listanum síð-
ast, en núverandi bæjarfulltrúi,
Gísli Sighvatsson, skipar heiðurs-
sæti B-listans. Annað til fimmta
sæti listans skipa þau Þórarinn V.
Guðnason verkamaður, María
Kjartansdóttir húsmóðir, Sigrún
Júlía Geirsdóttir bankastarfs-
maður og Guðröður Hákonarson
bifreiðarstjóri.
Prír nýir
Efstu sæti G-listans eru að
hluta skipuð nýju fólki. Þrír
bæjarfulltrúar hafa dregið sig í
hlé, oddvitinn Kristinn V. Jó-
hannsson, Elma Guðmundsdótt-
ir og Þórður M. Þórðarson.
Smári Geirsson kennari var í
þriðja sæti listans síðast en hlaut
flest atkvæði í fyrsta -sætið í for-
vali flokksins. Guðmundur
Bjarnason starfsmannastjóri
skipar annað sætið, en Sigrún
Geirsdóttir það þriðja. Sigrún
var í öðru sæti síðast. Klara
Sveinsdóttir fiskverkakona hefur
ekki verið á lista áður, en skipar
fimmta sætið nú. Einar Már Sig-
urðarson er varabæjarfulltrúi, en
hefur nú verið settur í baráttusæt-
ið.
-gg
Nýjar áherslur
með nýju folki
Föstudagur 18. maí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13