Þjóðviljinn - 18.05.1990, Síða 25
Óvissa
um Kötlu
Eitt frægasta eldfjall landsins,
Katla, hefur gosið 15-20 sinnum
frá landnámi og líklega lagt tölu-
vert af byggðu eða grónu landi í
auðn á þeim tíma. Af einhverjum
orsökum náðu hlaup samfara
gosum Kötlu ekki að spilla landi
þar sem nú er Mýrdalssandur og
hluti Sólheimasands fyrr en eftir
landnám. Kannski var þá lokið
löngu goshléi. Kannski var stærð
og lega Mýrdalsjökuls (hann var
líklega minni og þynnri) þannig
að hlaup voru lítil eða fóru fram
til norðurs. Og óvissuatriðin eru
fleiri. Og hugmyndirnar margar.
Til dæmis hefur Kjartan Jóhann-
esson, áhugamaður úr Álftaveri
um eldgos og jökla, talið að
skarðið þar sem Kötlujökull fell-
ur nú hafi ekki verið til á fyrstu
öldum íslandsbyggðar. Gos og
jökulrof hafi opnað hlaupum
leiðina niður í byggðir austan
fjallsins. Einar H. Einarsson,
fræðimaður úr Mýrdal, telur að
gosstöðin austan í jöklinum hafi
ekki orðið virk fyrr en snemma á
miðöldum, fram að því hafi gosið
vestar.
Svona má lengi telja, en þarfar
vangaveltur sem þessar minna á
að það er afar lítið vitað um sjálfa
eldstöðina, rétt eins og hinar
fornu byggðir. Það er líka lítið
rætt um raunverulega hættu af
framtíðargosum og -hlaupum
Kötlu. Skoðum þessi striði nán-
ar.
Um 400-600 metra þykkur
jökull liggur yfir eldvirku svæð-
Veðurstofa íslands
Veðursjá á Miðnesheiði
Tilboö óskast í byggingu veðursjár á Miönes-
heiöi.
Um er aö ræöa að smíöa og fullgera 45 m2
radarhús.
Smíða og reisa 8 m háa stálgrind og pall fyrir
veðursjá.
Jafna lóð umhverfis hús og setja upp 87 m
langa girðingu meö hliði.
Verkinu skal vera aö fullu lokiö 10. ágúst 1990,
þó er ekki hægt aö Ijúka að fullu vinnu viö girð-
ingu fyrr en í lok september.
Lagður verður vegur að byggingarsvæðinu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7, 105
Reykjavík frá föstudegi 18. maí til og með mið-
vikudags 23. maí gegn 5.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
29. maí 1990 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Boraartúni 7. sími 26844
Elskulegur eigimaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Baldvin Lúðvík Sigurðsson
frá Hælavík
Bergstaðastræti 43A, Reykjavík
sem andaðist 12. maí á Vífilsstaðaspítala verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. maí kl. 13.30.
Halldóra Guðmundsdóttir
Anna María Baldvinsdóttir Hrafn Karlsson
Garðar Baldvinsson Kristín Viðarsdóttir
Baldvin Baldvinsson Bjarney Linda Ingvarsdóttir
Hafþór Baldvinsson
Sigurður Stefán Baldvinsson
Arnór Baldvinsson
og barnabörn
11 ÚRRÍKI m- ú p ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON SKRIFAR
NÁTTÚRUNNAR H 4» ■
unum í fjalllendinu sem Mýrdals-
jökull hylur (niðurstöður þyk-
ktarmælinga uppúr 1950). Nýrri
mælingar með íssjá sýna stóra
dæld eða dal um miðbik fjalllend-
isins og tvær smærri, dýpri dældir
þar ofan í. Mælingarnar voru
ekki nógu víðtækar til þess að af-
hjúpa allan botn jökulsins eða
uppbyggingu eldstöðvarinnar
eða eldstöðvanna (tvö aðskilin
skjálftasvæði eru í jöklinum).
Menn hafa ýmist litið á Kötlu sem
megineldstöð með einni stórri
öskju og sprungukerfi sem nær til
Eldgjár eða tvær megineldstöðv-
ar og tvö sprungukerfi (það vest-
ara stefnir í norður, það eystra í
norðaustur). Fleiri möguleikar
koma til. Nú þegar Katla er
vöktuð með jarðskjáltamælum
væri brýnt að fá sem gleggst mynd
af eðli eldstöðvarinnar (eða eld-
stöðvanna) svo og sprungukerfis
(eða -kerfa) sem leynast undir
ísnum. Það hj álpar til við að segj a
betur fyrir um gos ásamt með sem
gleggstum upplýsingum um fyrri
gossögu (að þeim rannsóknum er
unnið). Þess vegna ætti strax að
kortleggja botn Mýrdalsjökuls
eins og gert var með Hofsjökul á
vegum Raunvísindastofnunar
fyrir fáeinum árum. Þar var
ástæðan virkjun Blöndu. Hvað
Mýrdalsjökul varðar er fræði-
legur áhugi og vörn gegn náttúru-
vá næg ástæða. Ýmsar nauðsyn-
legar jarðeðlisfræðilegar athug-
anir geta auk þessa sagt eitt og
annað um eðli Kötlu og til-
heyrandi kvikuhólfs (eða hólfa).
Hér er líklega um að ræða fjár-
hæðir sem nema nokkrum tugum
milljóna á fáeinum árum.
Kötluhlaupin og önnur skyld
hlaup eftir landnám fóru ýmist
um svæðið austan við Skóga eða
austarlega um Mýrdalssand. Þeg-
ar versta gosóáran Kötlu gekk
yfir (tíð gos á 17. öld og stór gos á
18. öld) tóku hlaupin smám sam-
an að leggja undir sig svæðið vest-
ast á sandinum, næst Vík. Á
hlaupmörkum, t.d. úr stórhlaup-
inu 1755, sést að framburður hef-
ur náð a.m.k. 15 metra hæð yfir
núverandi land (a.m.k.25-30 m
yfir þáverandi grunn) hjá Múlak-
vísl, nokkrum kílómetrum austan
við Vík og varnargarðinn lága.
Árið 1918, í síðasta goshlaupi,
sýndist hlaupdýptin vera a.m.k.
10-15 metrar. Nú er alls óvíst hve-
nær næsta Kötlugos verður; ekki
má einblína á meðaltal goshléa,
því hléin eru allt frá fáeinum ára-
tugum að lengd upp í rúma öld og
ekki er vitað hvort orðið hafi
smágos í jöklinum 1955. Það er
líka óvíst hvar hlaupið verður
mest og dýpst og hve vestarlega
það nær. En ef hlaupið er stórt og
fari það nálgæt randfjöllum Vík-
ur, mun varnargarðurinn ekki
duga og þess utan er mikið flat-
lendi nær sjónum. Það er því full
ástæða til að endurskoða varnar-
•'V
Katla í Mýrdalsjökli. Útlínur öskjunnar eru dregnar samkvæmt loft-
myndum og gervihnattamyndum. Landslag á botni hennar eftir Helga
Björnssyni (1979). -Tekið eftir grein Kristjáns Sæmundssonar í Eldur
er í norðri (1982).
aðgerðir og efla rannsóknir svo valdinn: Eldsumbrot í Mýrdals-
unnt verði að spá með sem lengs- jökli. Kostnaðinn má réttlæta
tum fyrirvara um helsta óvissu- með kröfum um búsetuöryggi.
fföfum það
huggulegt
á Hótel Valhöll!
Frískandi göngur í stórkostlegri náttúru.
Dýrlegur matur og drykkur.
Kyrrð sveitarinnar.
Mjúk rúm.
Þægileg þjónusta.
Þetta er lífið!..
O
- a HÓTElVALHÖLL
Þingvöllum
MATUR FRAMREIDDUR TIL KL. 23:00 ÖLL KVÖLD. OPIÐ TIL KL. 01:00 FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD
KÖKUHLAÐBORÐ MEÐ KAFFINU ALLA DAGA. UPPLÝSINGAR OG BÓKANIR I SlMA 98-22622.
Taikniið b)á Tömaai