Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 13
Flikkað upp á rauðu stjörnuna. Myndir: Þórunn Sigurðardóttir Dmitri hló við og sagði að í so- vésku leikhúsi þyrftu leikstjórar helst að vera ofurmenni: „Von- andi eignumst við einhvern tím- ann svoleiðis kvenfólk.“ Malí-leikhúsið Ein aðalástæða fyrir því að mig langaði til Sovétríkjanna, var að sjá Malí-leikhúsið í Leníngrad. Um páskana í fyrra var haldið þar námskeið á vegum norrænu dans- og leiklistamefndarinnar og er óhætt að segja að fólk hafi fatlið flatt fyrir þessu óvenjulega leikhúsi, sem sýnir nær eingöngu dramatiseringar á skáldsögum. Með bréf frá Árna Bergmann og Lenu komst ég allra minna ferða í leikhúsinu, sá þrjár sýningar og kom krökkunum líka inn, þótt strangt tekið væri uppselt á allar sýningar ár fram í tímann. Malí- leikhúsið er án efa þekktasta leikhús Sovétríkjanna í dag en þegar landið var opnað fyrir 4 árum, voru þau meðal fyrstu listamannanna sem voru sendir um heiminn til að kynna það sem er að gerast í sovéskri list. Auðvitað hafa alltaf verið sendir listamenn frá Sovétríkjunum, en þá á vegum hins opinbera en ekki á eigin vegum eins og þau. Er skemmst frá því að segja að þau hafa lagt heiminn að fótum sér, svnt í Japan, Bandaríkjunum, Ástralíu og um alla Evrópu. Von- andi verður ekki langt að bíða þess að þau komi til lslands, en það hefur reyndar komið til tals. Ég hafði heyrt því haldið fram af fólki, sem hefur séð leikhús um allan heim, að Malí-leikhúsið væri besta leikhús veraldar. Svo- leiðis „bestatal" er auðvitað ó- marktækt í listum, samt finnst mér Malí-leikhúsið hafa hrifið mig meira en nokkurt annað leikhús sem ég hef heimsótt. Ég fékk ítarlegt viðtal við Stronin, aðaldramaturg, Malí og ég byrja á því að spyrja hann hvers vegna þeir sæki efnivið sinn í skáldsögur frekar en leikrit og hvemig þeir vinni sýningamar: „Við elskum „episkt“ leikhús. Leikhús er í eðli sínu saga, frá- sögn. Okkur skortir ný leikrit og við getum ekki endalaust leikið klassíkina. Skáldsögur em svo ríkar af öllum þeim undirtexta sem við emm alltaf að leita að þegar við æfum leikrit. Þeim mun betri sem leikritin em þeim mun meiri undirtexta finnum við í þeim. Það er ákaflega þakklátt að vinna leiksýningar úr góðum skáldsögum, ef maður hefur nóg- an tíma og er með skapandi hóp og góðan dramaturg. Við byrjum á því að æfa alla söguna, bókstaflega allan texta hennar. Við emm aldrei undir ár að þessari vinnu og skiptum henni ekki niður í tímabil. öll vinnan byggir á spuna (impro- visasjón), en allur leikinn texti er þó úr sögunni; texti höfundar. Smátt og smátt hreinsum við út aukaatriði, vinnum stefnu sýn- ingarinnar og byggingu, þar til eftir stendur heilleg, dramatísk frásögn, full af reynslu og lífi. Textinn reynist undantekningar- laust miklu sjálfsprottnari og markvissari með svona vinnu- brögðum en ef leikaramir koma ekkert nálægt þróun verksins.“ Ég spurði hann einnig hvort hinar miklu vinsældir leikhússins bæði innan og utan Sovétríkj- anna stjórnuðu vali á verkefnum, að þeir væra að eltast við almenn- ingssmekk, einsog stundum er sagt um leikhús sem ná mikilli athygli og vinsældum: „Við emm hluti af fólkinu og það er hluti af okkur. Svo einfalt er það. Við erum ekki að leika fyrir okkur sjálf. Við njótum ríkisstyrks og eigum auðvitað að nota hann til að flytja leiklist handa almenningi. En við gemm mjög strangar listrænar kröfur og það er líka okkar skylda. Við byggjum alla okkar vinnu á Stan- islavski og Meyerhold og höfum þróað kenningar þeirra á per- sónulegan máta, sem hentar okk- ur.“ Að loknu miklu lengra samtali spurði ég hann að lokum hvemig leikhúsinu væri stjórnað, en hvarvetna á Vesturlöndum (á ís- landi líka) em menn að glíma við að finna hentugasta stjórnunar- formið á leikhúsunum. Engin opinber afskipti „Við emm með 45-50 fast- ráðna leikara, og örfáa aðra starfsmenn. Við höfum aðeins eitt svið og það er fremur lítið. Leikhúsinu er stjórnað af Lev Dodin, aðalleikstjóra þess í sam- ráði við mig (Stronin) og stjóm- endur deilda leikhússins. Yfir- stjórnin er svo 16 manna leikhús- ráð, sem allt eru starfsmenn (flest leikarar), utan einn gagnrýnandi sem við óskuðum eftir að sæti með okkur í leikhúsráðinu. í því situr enginn fulltrúi stjómvalda og þau koma hvergi nærri stjóm- un eða rekstri hússins og skipta sér ekkert af okkur lengur. Þau Greinarhöfundur með Mongólum í sparífötum að skoða Vetrarhöllina. einfaldlega láta okkur fá peninga til rekstursins og búið. Þannig á það líka að vera og reynslan í So- vétríkjunum hefur sýnt að öll þessi afskipti yfirvalda af listum, hvort heldur það er af rekstrar- legri eða listrænni afkomu, eru til ills bæði fyrir leikhúsin og stjórnvöld. Við bemm ábyrgð á rekstrinum, launagreiðslum og öðru og það er aðeins við okkur sjálf að sakast ef illa tekst til. Við greiðum t.d. laun eftir reynslu og hæfileikum og hikum ekki við að flokka starfsfólk okkar niður eftir listrænni getu. Allt annað er hálf- kák og meðan við gerum þetta sjálf sýnum við ábyrgð og gemm þær kröfur sem einar skila þeirri leiklist sem fólkið á skilið.“ Þá vitum við það. Því miður er ekki hægt að tíunda sýningar Malí frekar en að segja að þær voru yndislegar; kraftmiklar og heillandi. Allt sem manni finnst að gott leikhús eigi að vera. Ég get þó ekki sleppt að geta þess að vinir mínir á leikstjórnar- deildinni, sem ég vitna hér í af og til, voru auðvitað ekki sammála þessu, frekar en að konur gætu orðið góðir leikstjórar. Þessir ungu og gáfuðu menn vom ein- kennilegt sambland af aftur- haldssömum körlum og þrælrót- tækum framúrstefnumönnum, en svoleiðis samsetningar eru víst til víðar en í Sovét. Þeir sögðu að Malí væri venjulegt kapítalískt fyrirbæri, sem stjórnað væri af markaðshyggju Vesturlanda. „Konfekt perestrojkunnar hans Gorba handa Vesturlöndum," sögðu þeir. Annars var heldur vel talað um Gorbatsjov af flestum sem við hittum, þótt einstaka ungmenni héldi því fram að hann væri „bestur á erlendri gmnd“. Og allir vom sammála um að í dag ríkti vaxandi skilningur á vægi listarinnar og Gorbatsjov ynni markvisst að því að aflétta því oki sem hvílt hefði á lista- mönnum. Síðustu dögunum í Sovét var eytt í Novogorod og Moskvu. Ferðalagið í næturlestinni til Moskvu var þægilegt og ég sofn- aði vært út frá bréfum Bjarna Thor, þótt þröngt væri í klefan- um. Mér fannst Moskva öll vest- rænni og vesældarlegri en Len- íngrad. IMoskvuvaralltáöðrum endanum út af fundi Æðsta ráðs- ins og lengi vel óvíst að við kæm- umst inn á hótel. Það tókst nú samt eftir ítarlega skoðunarferð um borgina. Hvarvetna er verið að gera upp gamlar byggingar, kirkjur og leikhús. Og nú á að taka upp hið uppmnalega nafn torgsins þar sem Bolshoi leikhús- ið stendur og kalla það Leikhús- torg í stað Svetlofstorgs, einsog það er kallað í dag. Pólitískt leikhús í Moskvu Merkast við Moskvudvölina var nú samt að fara á fmmsýn- ingu hjá þeim heimsfræga Peter Stein, sem var að setja upp sína fyrstu sýningu í Moskvu, Rómú- lus mikla eftir Durrenmatt. Því miður fannst mér þetta afspymu- leiðinleg leiksýning; kaldi þýski gáfumannastfllinn upp á sitt al- besta, ofskýringar í postmodem- iskri leikmynd, sem leikaramir gátu engan veginn hreyft sig í, tilgerðarlegar, utanáliggjandi lausnir á flestum málum. Þegar betur var að gáð, var hins vegar augljóst að það voru einhver stór og merk pólitísk skilaboð sem leikstjórinn var að reyna að koma á framfæri. f lok sýningarinnar rann það upp fyrir mér að hann var að fjalla um Sovét í dag; Óvissa tekur við af miðstýrðu einveldi, ný kúgun í stað þeirrar sem er verið að hafna. Sú kúgun er markaðshyggjan og öll sú spill- ing sem henni fylgir. Og þó að Stein tækist ekki að koma þessu til skila í sýningunni (sem ef til vill var líka vegna getu og áhuga- leysis leikaranna) fær hann þó prik fyrir þessa viðleitni sína. Það var einkennileg tilviljun að eftir fmmsýninguna sem var tekið heldur fálega, hittum við Peter Stein úti á götu og að sjálf- sögðu tókum við hann tali. Hann var daufur og greinilega vonsvik- inn yfir viðtökunum, en hafði margt eftirtektarvert að segja: „Leikararnir kunna ekki skil á öðm en Stanislavský. Súrrealismi er þeim framandi og þeir hugsa og skilja allt út frá ofurróman- tískum hugmyndum um listina. Sovéskt leikhús þarf sannleika, ekki lygi. Sovésk leikritun hefur byggst á lognum sögum, og á lygum, földum raunvemleika nærist spilling og hræðsla. Leikhúsið er þjakað af langvar- andi ritskoðun. Ég vil sýna sann- leikann, - það sem bíður Sovét- ríkjanna í þessari langþráðu per- estrojku og ég vona að nýir höf- undar í Sovétríkjunum geri það einnig. Og þegar við spurðum Stein hvort hann vildi ekki koma með okkur til íslands að leikstýra svaraði hann án þess að hika: „Jú, á morgun.“ Og svo hvarf hann inn í mannþröngina. Svo er Moskva kvödd, allir vin- irnir sem við höfum eignast í So- vétríkjunum. Vináttusamningur Leiklistarskólans í Leníngrad og þess íslenska hefur verið undirrit- aður og við vonumst til að fá hóp frá þeim til íslands í haust. Þá ætla ég að sýna þeim allar kon- urnar sem em að leikstýra á ís- landi. Helmingurinn af heimsreisu minni er senn að baki. Áður en ég held yfir hafið til San Francisco sem er næsti áfangastaður, þarf ég að heimsækja vini og kunn- ingja í Helsinki, Kaupmanna- höfn, París og Luxemborg. Þegar vélin lyftir sér frá Moskvuflu- gvelli og ég horfi yfir borgina, heiti ég sjálfri mér því að koma hingað aftur þegar einhver reynsla verður komin á perest- rojkuna. Eða kannski maður fæðist bara hér í næsta lífi? Vonandi verður þá eitthvað fleira en kókdósir og hamborgar- ar sem tákna það freisi og lýðræði Vesturlanda, sem náð hefur austur fyrir tjaldið. Föstudagur 1. Júní 1990 : NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13 030f inúj..f t.uapLH.'taöT GAJBRAOJ3H TTÝM - AOtó Sf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.