Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 21
Bandaríkin á hnignunarbraut Siguvegari í heimsstyijöld og köldu stríði getur átt það á hættu að tapa í samkeppni þriggja stórra viðskiptablakka. Heimurinn velt- ist um fast, eins og við vorum að pára um fyrir viku. Við tókum þá líka fram að mörgum þætti nóg um hve veröldin er eitthvað ófyr- irsjáanleg orðin. Maður veit aldrei á hveiju maður á von. Eitthvað hefur sólin breyst frá því í fyrra, sagði skáld- ið. Þó er það svo, að ef atburðir eru skoðaðir eftir á, þá finnast margar rammar ástæður fyrir hverri sveigju sem atburðarásin á sig tekur. Sigurvegaramir sem töpuðu Tökum til dæmis þá furðu- legu staðreynd að þeir sem biðu ósigur í síðari heimsstyijöld, þeir hafa sigrað friðinn ef svo mætti segja. Með öðrum orðum, það eru Þýskaland og Japan sem nú eru auðugust ríkja og safna innistæð- um og stórfyrirtækjum út um allt meðan aðrir safna skuldum. Og fara fram úr sjálfum Bandaríkjun- um á mörgum efhilegum sviðum hátækni og framleiðslu. Meðan bæði Sovétrikin og Bandaríkin, höfuðsigurvegaramir í stríðinu, sem skiptu heiminum á milli sín að því loknu, þau em bæði í miklum vandræðum. Því menn skulu gá að því, að þessi tvö risaveldi eiga fleira sameiginlegt í heimstaflinu en við blasir við fyrstu sýn. Bandarískur efnahagur hefur að sönnu ekki beðið annað eins skipbrot og hið kreddufasta tilskipanahagkerfi Sovétmanna. En sem fyrr segir: Bandarikjamenn hafa misst for- ystuna á mörgum sviðum. Og þeir hafa breyst úr helsta lánardrottni heims í risavaxinn skuldasafnara. Hervaldiö sem brást Til þess ama liggja margar á- stæður. En það er eðlilegt að nema fyrst staðar við það, að víg- búnaðarkapphlaup risaveldanna hefur gengið mjög nærri auði þeirra og kröfhim. Það segir sig sjálft að vígbúnaðarkapphlaupið var afskaplega dýrt Sovétmönn- um. Ef að sá útreikningur stenst sem nú er sýndur, að þjóðarfram- leiðsla þeirra sé ekki nema þriðj- ungur af bandarískri þjóðarfram- leiðslu, þá gefur auga leið að þeg- ar Sovétríkin reyna að halda uppi svipaðri vígvél og Bandarikin, þá leggst sú byrði með margfoldum þunga á hvem sovéskan þegn. En vopnakapphlaupuð var líka dýrt spaug fyrir Bandaríkin. Menn hafa gert á því merkar úttektir hve hættulegt það að mörgu leyti er fyrir iðnaðinn bandaríska, að lifa á hergagnapöntunum. Þær hafi svipuð áhrif og ríkispantanimar á sovéskan iðnað: greiðslur em tryggðar hvað sem varan kostar, kostir þeir sem tengjast sam- keppni upp gufaðir. Stórar fram- leiðslugreinar sofha firam á lappir sér - á meðan Þjóðveijar og Jap- anir, sem í framhaldí af ósigri í stríði var lengi vel meinað að vera með í vígbúnaðarævintýrum, gátu einbeitt sér að nýrri framleiðslu og hátækni sem til framtíðar horfði. Auk þess hafa Bandaríkin og Sovétríkin mátt bíta í það súra epli, að mikill herafli er ekki sama ávisun á pólitískt áhrifavald og forræði og áður. Efling kjam- orkuvopnakerfa, hnignun hug- myndakerfa, vanmáttur nútíma- herja í styijöldum á borð við þær sem háðar vom í Vietnam og Afganistan - allt leggst þetta á eitt um að draga úr þýðingu þess að hrúga upp vopnum. Slyngur sölu- maður tölvuvamings reynist með umsvifum sínum afdrifaríkari en aðmíráll með marga kafbáta í sjó. Sömu leið og Argentína? í framhaldi af þessu em menn famir að spá því, að Bandarikj- anna bíði áframhaldandi hnignun á næstu árum og áratugum. Sumir taka svo djúpt í árinni að segja að þetta auðugasta ríki heims sem verið hefur gæti farið svipaða leið og Argentína. Argentína var einu sinni ríki bróðirinn í Rómönsku Ameríku, tilheyrði fyrsta heiminum svo- kallaða í velsæld og Iífskjömm, bar sig saman við Evrópu og Norður-Ameríku og leit niður á granna sína í álfunni fyrir þeirra eymd og volæði. Sá tími er nú löngu liðinn. Hvert þriðjaheims- vandamálið af öðm steypist yfir landið, hvað sem auðlegð þess líður og allgóðri menntun þegn- anna. Meira að segja millistéttin, sem í reynd er einn helsti hemill á uppreisn og stjómbyltingartil- raunir, hún glutrar niður velferð sinni og hrekst í vergangsmanna sæti. Blakkimar þrjár Walter Russell Mead, sérfróð- ur um hagfræðileg vandamál við World Policy Institute í New York, skrifar grein í Harpers Magazine nýlega, þar sem hann dregur upp mynd af því hvemig Bandaríkin, sigurvegarar i kalda striðinu, gætu tapað í friðsamlegri samkeppni. Hann gerir þá, eins og margir aðrir, ráð fyrir því að heimurinn sé að skipta sér í þrjár viðskiptablakkir - Evrópu, Aust- ur-Asíu og Ameríku. Evrópu- blökkin gæti verið mjög óháð hinni amerísku um vömr og þjón- ustu: hún gæti flutt hráefni inn frá Afriku og Sovétríkjunum, elds- neyti ekki bara frá Austurlöndum nær, heldur og Sovétrikjunum. Hún gæti komið láglaunaiðnaði sínum fyrir í Austur-Evrópu (greinarhöfundur minnir á það að í Póllandi sé t.d. nú fáanlegt mjög ódýrt vinnuafl, þar megi kannski fá verkamann í vinnu fyrir 40 dollara á mánuði). Auðug lönd Vestur-Evrópu gætu haldið áffarn að sér- hæfa sig í hátækni og þjónustuiðnaði HELGARPISTIL Arni Bergmann og selt framleiðslu sína á markaði sem stækkar mjög með raunvem- legu efhahagslegu forræði yfir Austur-Evrópu. Fátt um fína drætti Mead telur og að Austur- Asíublökkin verði einnig um margt sjálfri sér nóg heild sem hafi lítið til Ameríku (Norður- og Suður-) að sækja annað en hrá- efhi. Og muni veija sig gegn bandarískum iðnvamingi eins og Japanir gera með ýmsum ráðum. Utkoman er sú að mjög er þrengt að umsvifamöguleikum Banda- ríkjanna sem áður gátu valsað með sín viðskipti um allan heim í því viðskiptakerfi eftirstríðsár- anna sem þau áttu mestan þátt í að móta. Lítill stuðningur er í því að ráða mestu um viðskiptin við Rómönsku Ameríku: þar hefur verið um beina efnahagslega hnignun að ræða á næstliðnum áratug. Til dæmis að taka minnk- aði útflutningur Bandaríkja- manna til þriggja helstu ríkja Rómönsku Ameríku (Argentínu, Mexíkó og Brasiliu) um 36% á árunum 1981-1987. Dollarinn stenst ekki Mead telur það mjög hættu- legt hve rækilega Bandaríkja- menn hafa vanist á að reyna að kynda undir hagvexti hjá sér með lántökum (Evrópumenn og Jap- anir kunna miklu betur að spara), hve ofmetinn dollarinn er í við- skiptum og hve háðir Bandaríkja- menn eru olíuinnflutningi frá jafn viðkvæmu og ótryggu svæði og Austurlöndum nær. Hann telur að lykilstaða dollarans í heimsvið- skiptum sé mjög veik orðin og lýkur þeim kafla ræðu sinnar á þessum orðum hér: „Ef að Austurlönd nær yfir- gefa hið bandaríska áhrifasvæði og olíuviðskiptin hverfa af doll- arasvæðinu, þá mun stutt í það að Bandaríska Oldin sé öll. Dollar- inn mundi hrapa eins og loft- steinn. Bandaríkin yrðu að vinna sér inn erlendan gjaldeyri til að borga olíureikningana sína, er- lendar skuldir okkar mundu fara að þjarma að lífskjörum okkar, útlendir aðilar mundu missa á- hugann á að reka áffam fjárlaga- halla okkar með kaupum á ríkis- skuldabréfum. Rlkir Bandaríkja- menn mundu flytja fé sitt ffá Bandaríkjunum, og inn í öruggt athvarf erlendis...” Aörir ráöa músíkinni Ekki nema von að greinarhöf- undi finnist í næstu andrá, að Bandaríkin gætu fetað svipaða slóð og Argentína hefur fetað á liðnum áratugum. Til þess að komast hjá því að fara þá leið, segir hann, þurfa Bandaríkja- menn að hætta að monta sig af því að þeir hafi unnið kalda stríðið og reyna að snúa sér að því með al- gáðu hugarfari að taka til vand- legrar athugunar stöðu sina í hag- kerfi heimsins. Enn bólar ekkert á slíku, segir hann: „Það er að byija nýtt partí,” segir hann, „og við verðutn að mála okkur og dansa og daðra við þá skástu af þeim sem mæta á svæðið. Það verður erfiðara en áður: það er búið að veðsetja gim- steinana okkar og við höfiun orð- ið að setja bót á kvöldkjólinn, við erum ekki í æskublóma lengur og höfum fitnað meir en góðu hófi gegnir. Við getum ekki heldur leyft okkur að sitja heima í fylu, og úr því við höfum ekki efni á að borga hljómsveitinni, þá getum við ekki lengur búist við því að hún spili það lag sem við helst vildum.” Allt er þetta nokkuð ffóðlegt. Föstudagur 1. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.